Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 1
OTtttntlMfofrtfr
c
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRIL 1993
RALLÝKROSS
Brautinni í Kapelluhrauni
hefur verið breytt eftir ítrek-
aðar óskir frá keppendum.
En það eru ekki einu fram-
kvæmdirnar á vegum Rallý-
krossklúbbsins.
RALLIÐ
Lancia Delta-keppnisbíll fyrr-
um Ástralíumeistarans í ralli
er kominn í hendur íslenskra
ökumanna og á honum verð-
ur mætt strax í Þoturallið.
ÖRYGGISHJÁLMAR
Þá sjaldan að á þá reynir, þá
er líka að reyna á síðasta ör-
yggisatriðið, jafnvel það sem
skilur á milli lífs og dauða.
En það er ekki sama hvernig
hjálmarnir eru.
TORFÆRAN
Áhorfendur í torfærukeppn-
inni í Jósepsdal 9. maí eiga
eftir að sjá þar nokkrar nýjar
og forvitnilegar grindur.
KEPPNISFYRIRKOMULAG
í nokkrum greinum aksturs-
íþrótta verður fyrirkomulagi
breytt í sumar. Til dæmis í
krónuflokki rallýkrossi, í
stigagjöfinni í torfærunni og
varðandi íslandsmeistara-
verðlaunin í ralli.
KEPPNISSKRÁIN
Þeir sem ætla sér að fylgjast
með akstursíþróttunum í
sumar fá hér í blaðinu skrá
yfir allar keppnirnar sem
haldnar verða frá og með
maíbyrjun og fram eftir ári.
GO-KART
Þar eru keppendur allt niður
í 8 ára aldur erlendis á 70
kúbika bílum. Þetta er sú
grein akstursíþrótta sem
margir vilja sjá hérlendis sem
fyrst.
KEPPNIR ERLENDIS
Það stendur til hópferð á
Formulu 1, en þeir sem verða
á ferðinni í Evrópu í sumar
og hafa áhuga á kappakstri,
ralli eða rallýkrossi ættu að
líta á baksíðuna.
< , , ,■ ,
■ > „
Keppendur og viðgerðar-
menn í hinum ýmsu
greinum akstursíþrótt-
anna eru margir hverjir að
leggja síðustu hönd á frágang
ökutækja sinna fyrir keppnis-
tímabil sumarsins, enda að því
komið. Hinn 2. maí verður
keppt í rallýkrossi, 8. maí er
fyrsta torfærukeppni sumarsins
og í kjölfarið kemur svo keppni
á vélsleðum, í sandspyrnu,
motokrossi, ralli, kvartmílu og
hjólakeppnir.
Samtals er 51 akstursíþrótta-
keppni haldin í ár samkvæmt
keppnisdagatali Landssam-
bands íslenskra akstursíþrótta-
félaga, LÍ A, og hafa átta þegar
verið haldnar, í ískrossi og á
vélsleðum.
í þessu blaði er fjallað um
komandi keppnistímabil, það
helsta sem á döfínni er hjá
ýmsum aðilum í akstursíþrótt-
um og um Go-kart, þá aksturs-
íþrótt sem aðilar innan Lands-
sambands íslenskra aksturs-
íþrótta vilja koma hér á í næstu
framtíð.
Að auki er á miðopnu blaðs-
ins að finna gott yfirlit yfir allar
keppnir sem eftir eru á árinu,
en þær eru samtals sex í kvart-
mílunni, fimm í motokrossi, ein
á hjólum, sex í ralli, níu í rallý-
krossi, fimm í sandspyrnu, átta
í torfæru og ein í vélsleðaakstri.
Og það lítur út fyrir að þessar
keppnir, eigi eftir að verða enn
meira spennandi nú en áður, því
margt bendir til þess að enn
fleiri keppendur hugsi sér til
hreyfings í sumar en síðast. Þó
voru útgefin keppnisskírteini á
síðastliðnu ári, ein fimm hundr-
uð talsins, sem hlýtur að teljast
býsna gott, en skráðir meðlimir
| í akstursíþróttafélögunum tutt-
> ugu innan LÍA eru um þrjúþús-
&
<§ und talsins.
L,
| En það eru sem sé allar líkur
cí
g á fjölgun og þar með á enn fjör-
3
§ ugri keppni fyrir þá sem hafa
| áhuga á að fylgjast með aksturs-
| íþróttum sumarsins.