Morgunblaðið - 27.04.1993, Síða 4
4 G
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
RALL
Fiölskylduíþrótt í ótjcm ór
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
RALLAHUGINN hefur vaxið með árunum, sérstaklega eftir að Jón fór að keyra með Rúnar í bílnum og
hvað þá þegar Baldur var farin af stað líka. Petra Baldursdóttir sem hér er með „drengjunum“ sínum, eigin-
manninum Jóni Ragnarssyni og sonunum Rúnari og Baldri, hefur tengst ralli á íslandi frá 1975 og fylgst
með eiginmanninum, báðum sonum sínum og dótturinni í keppni.
Það er stundum talað um „kon-
una á bak við manninn“, en
þegar kemur að Petru Baldurs-
dóttur, er miklu réttara að tala
um „konuna á bak við manninn
- og börnin“. A hennar heimili
heitir fjölskylduíþróttinn nefni-
lega rall og hefur gert allt frá
árinu 1975, þegar eiginmaður-
inn Jón Ragnarsson hóf sinn
feril í sæti aðstoðarökumanns
með bróðir sinn Ómar við stýr-
ið. Eftir farsælan feril þeirra
bræðra í nokkuð mörg ár flutti
Jón sig yfir í ökumannssætið
og eldri sonurinn á heimilinu,
Rúnar, þá 15 ára gamall, gerð-
ist aðstoðarökumaður föður
síns. Samstarf feðganna leiddi
af sér glæstan árangur, fjóra
íslandsmeistaratitla og vel-
gengni sem var áframhaldandi
eftir að feðgarnir skiptu aftur
á sætum og Rúnar tók við stýr-
inu.
egar það svo gerðist á liðnu
sumri að Rúnar varð að vera
frá keppni vegna hálsmeiðsla, Jón
ákvað að keyra sjálfur í síðustu
keppninni og fór að litast um eftir
aðstoðarökumanni var það dóttirin
Sveinbjörg, þrítug þriggja barna
móðir, sem settist við hlið föður
síns, „og ég er ekki viss um að
henni hafi þótt pabbi sinn keyra
nógu hratt,“ segir Petra.
Og sama sumar kom ungur
maður inn í rallið sem á endanum
var kosinn akstursíþróttamaður
ársins. Það var yngsta bamið á
bænum, Baldur Jónsson, sem seldi
bílinn sinn, keypti keppnisbíl af
pabba sínum og hóf þáttöku í
flokki óbreyttra bíla með félaga
sinn Guðmund Pálsson sem að-
stoðarökumann.
„Það kom mér ekkert á óvart
að sjá á eftir krökkunum í rallið,
því Jón er búinn að vera í þessu
svo lengi að til dæmis strákarnir
þekkja eiginlega ekkert annað,“
segir Petra og viðurkennir að hún
hefði nú stundum í gegnum tíðina
alveg getað hugsað sér að keyra
sjálf í keppni.
„Hins vegar er alveg nóg fyrir
heimili að gera út einn keppnisbíl.
Það er heldur ekkert gaman að
ralli nema að menn séu á almenni-
legum græjum og satt best að
segja hefur mér aldrei þótt mínir
menn vera á alveg nógu góðum
bílum. Hefði alltaf viljað hafa þá
örlítið betri,“ segir hún brosandi.
Og það er ljóst að það eru fleiri
en keppnismennirnir á heimilinu
sem hafa gaman að bílum og
akstri.
— Þegar Jón byijaði á sínum
tíma, heldurðu að það hafi hvarfl-
að að þér að heilum 18 árum síðar
myndir þú ennþá hafa fulla ástæðu
og enn meiri til að hvetja menn í
keppni?
„Nei, það hefði mér aldrei dott-
ið í hug. En ég skal alveg viður-
kenna að minn áhugi hefur vaxið
með árunum og ég hef gefið mér
meiri tíma til að fylgjast með, sér-
staklega eftir að Jón fór að keyra
með Rúnar í bílnum, hvað þá þeg-
ar Baldur fór af stað líka.“
- Hefurðu aldrei verið hrædd?
„Alltaf. Ég hef alltaf verið með
ákveðna hræðslu um að eitthvað
gæti komið fyrír, bæði þegar
Omar og Jón voru að keppa og
sérstaklega þegar drengirnir voru
komnir í keppni líka. Og ég ætla
nú ekkert að lýsa því hvemig mér
Ég hef stundum
brosad aó sjálf ri
mér þegar ég er
aé tala vid þáá
milli leiéa i
keppnum. Er i
sömu setning-
unni aé hvetja þá
til aé ná betri
hraéa og aé
segja þeim aé
passa sig á aé
aka ekki of hratt!
leið í fyrra þegar Rúnar og Jón
veltu bílnum nánast beint fyrir
framan mig.
En svo er þetta dálítið mót-
sagnakennt hjá manni og ég hef
stundum brosað að sjálfri mér
þegar ég er að tala við þá á milli
leiða í keppnum. Er í sömu setn-
ingunni að hvetja þá til að ná
betri hraða og að segja þeim að
passa sig á að aka ekki of hratt!
Það er svona þegar metnaðurinn
og móðurtilfinningin virka sam-
an.“
- Eftir tengsl við rallið í öll
þessi ár, hveijar eru eftirminnileg-
ustu stundirnar?
„Það var auðvitað mjög gaman
hérna í gamla daga þegar Jón og
NÝR RALLBÍLL
Ladan vikur
fyrir Lancia
Lancia Delta-rallbílar hafa síðustu ár verið bílar þeirra ökumanna
sem hreppt hafa heimsmeistaratitla í ralli og og heimsmeistartitl-
ar framleiðanda farið til Lancia-bílaverksmiðjanna, sem eru í
harðri samkeppni við bíla annarra framleiðenda, bæði í flokki
sérútbúinna og flokki óbreyttra bíla í rallakstri. Þá hafa samskon-
ar bílar unnið tugi rallmóta um allan heim og Evrópumeistaratit-
ila. Nú er einn slíkur kominn til keppni hérlendis, keppnisbíll fyrr-
um Ástralíumeistara, sem ökumennirnir Orn Stefánsson, Ævar
Sigdórsson og aðstoðarökumaðurinn Ægir Ármansson verða með
í rallinu í sumar.
að eru ekki tvö stýrij bílnum,
heldur munum við Örn skipt-
ast á að aka bílnum. Við erum ekki
í neinu titlatogi, ætlum að hafa
gaman af rallinu og láta aðra um
stressið fyrst um sinn. Við eigum
eftir að læra á bílinn, sem er öflug-
ur og vel búinn,“ segir Ævar Sig-
dórsson.
Lancia-rallbíll þeirra félaga er
með 280 hestafla vél og fjórhjóla-
drifi, sem ætti að skila sér vel á
íslensku malarvegunum. „Það er
ótrúlegt grip, sem bíllinn býður upp
á. Hann hreinlega étur sig niður,
þegar bensíngjöfin er stiginn til
botns og rýkur áfram, hvort sem
ekið er á möl eða malbiki. Það er
hægt að láta hann dansa gegnum
beygjunar og aflið er mun meira
en ég hef þekkt í keppnisbíl," segir
Ævar. „í fyrra kepptum við Lada
Samara-bíl, þannig að stökkið er
stórt, en kostur að kunna vel á
framhjóladrifið frá fyrri tíð.“
Ævar ekur fyrst
Samvinna þremenninganna um
rekstur bílsins ítalska þýðir það að
annar ökumannanna er alltaf fjarri
góðu gamni, þ.e. verður í hópi við-
gerðarliðsins á meðan hinn stýrir
þílnum undir leiðsögn aðstoðaröku-
mannsins Ægis.
„Það verður ekkert erfitt að
þurfa að horfa í fyrstu keppninni,
þegar Ævar ekur í Þoturallinu,"
segir Örn. „Þótt ég viti hvort sem
er að ég myndi keyra hraðar en
hann, hvað sem hann kemst hratt!
Og ég veit að hann hefur verið að
laumast í bílinn á næturna til að
máta sætið og finna lyktina af hon-
um,“sagði Örn og brosir í kampinn.
Meðal búnaðar i Lancia-bílnum,
sem var smíðaður í Englandi fyrir
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
ÍTALSK-ÆTTAÐI Lancia-rall-
bíllinn verður undir stjórn þeirra
Arnar Stefánssonar,_ Ævars Sig-
dórssonar og Ægis Ármannssonar,
sem hér standa við hann ásamt við-
gerðamönnunum. Bíllinn var smíð-
aður í Bretlandi 1990 og sigraði í
áströlsku rall-keppninni ári síðar.
ástralskan ökumann í árslok 1990
sem gengi-N bíll, er fjórhjóladrif
sem skiptir aflinu til helminga á
milli fram- og afturhjóla, stillanleg
Bilstein-fjöðrun, sérstakir keppnis-
stólar, fimm punkta öryggisbelti og
Halon-slökkvikerfi.
Bíllinn mun keppa við nokkra
öfluga bíla í flokki óbreyttra bíla,
en í þeim flokki verður veittur sér-
stakur íslandsmeistaratitill í fyrsta
skipti, þannig að tveir meistaratitil-
ar verða veittir í rallakstri í ár svip-
að og gert hefur verið í torfærunni.
GR