Morgunblaðið - 27.04.1993, Page 5
Ómar voru að sigra í rallkeppnum,
en tvisvar sinnum hef ég upplifað
alveg stórkostlega tilfinningu og
verið óskaplega stolt. Og það sem
gerir þessi tvö skipti líka svo sér-
stök er að þau komu svo á óvart.
I fyrra skiptið var þegar Rúnar
varð Islandsmeistari sem ökumað-
ur þá lang yngstur ökumanna tii
að bera þann titil. Það var þá
mjög hörð keppni á milli fegðanna
og svo þeirra Ásgeirs Sigurðssonar
og Braga Guðmundssonar á
Metro-bíl og úrslit réðust ekki fyrr
en á síðustu leiðinni, sem var
Djúpavatnsleið.
Eg beið við enda leiðarinnar
með viðgerðahópnum og spennan
var gífurleg, því að ég vissi hvað
Metro-inn var öflugur og líklegur
til að sigra. Stóð á leiðarendanum
og mændi á hæð sem vegurinn lá
yfir. Birtust þá ekki mínir menn
á undan yfir hæðina. Það var ólýs-
anleg tilfínning sem vaknaði við
að sjá þá og vita að titillinn var í
höfn.
Hitt skiptið var svo í lok tíma-
bilsins í fyrra. Þá keyrðum við Jón
þá Baldur og Guðmund með kær-
ustunum þeirra niður í aðalstöðvar
LÍA þar sem átti að afhenda verð-
laun fyrir Islandsmeistara og bik-
armeistarakeppnir sumarsins.
Baldur sagði að þetta myndi ekki
taka nokkra stund, svo við ákváð-
um að hinkra eftir þeim og stóðum
í gættinni. Svo gerðist það óvænta
sem ekkert okkar átti von á þó svo
að Baldur hefðu unnið til fjöl-
margra verðlauna á þessu eina
sumri og gengið alveg frábærlega
vel. Hann var kosinn aksturs-
íþróttamaður ársins úr hópi eitt-
hvað um 400 keppenda og þá varð
mamma stolt. Þá vaknaði sama
stórkostlega tilfinningin," segir
Petra.
„Það eru þessi tvö augnablik
sem mér þykir vænst um af mörg-
um góðum í rallsögu þessarar fjöl-
skyldu.“
Rallsögu sem ekki sér fyrir end-
ann á og hver veit nema að í yngstu
kynslóð fjölskyldunnar leynist arf-
takar. Til dæmis er þar einn lítill
Jón Rúnar, sem gæti átt eftir að
eiga fleira sameiginlegt með afa
sínum og frænda en nöfnin.
ve
FRÉTTIR
Óskar Ólafsson og Jóhannes Jó-
hannesson hafa selt Suzuki GTi
keppnisbíl sinn, sem þeir óku í fyrra
með góðum
árangri. Þeir
keyptu Mazda fjór-
hjóladrifsbíl Tóm-
asar Jóhannesson-
ar, hafa tekið hann
rækilega í gegn og
ættu að eiga góða möguleika í
flokki óbreyttra bíla, en í fyrra
skorti þá bæði afl og fjórhjóladrif.
Þeir sem lítið þekkja til aksturs-
íþrótta eiga kannski erfitt með að
átta sig á hver er munurinn á milli
þeirra. Vélhjóla-
íþróttaklúbburinn
VÍK, hefur gefið út
lítið og nett dreifi-
bréf til að kynna
motokross í stuttu
máli, en það hefur
löngum verið talin ein erfiðasta
akstursíþróttin. Segir þar m.a.:
„Motokross er kappakstur sérsmíð-
aðra vélhjóla yfir gróft, torfært
landssvæði. Keppnirnar eru haldnar
á lokuðum brautum, þar sem ekið
er í hringi í ákveðinn tíma yfir hol-
ur, hóla, „þvottabretti“, stökkpalla
o.s.fr. Sigurvegari er sá/sú sem
ekið hefur flesta hringi í keppn-
inni. í motokrossi er hjólum/kepp-
endum skipt niður í þrjá megin-
flokka eftir stærð véla, 125, 250
og 500 kúbik. Þyngd hjólanna er á
bilinu 80-100 kg og hestaflafjöldi
vélanna á milli 40-65 hestöfl. Hjólin
eru geysiiega aflmikil, búin öflugum
dempurum sem gerir hjólunum
kleift að komast yfir ótrúlegustu
hindranir á augabragði."
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
C 5
FRÉTTIR
íslandsmeistarinn í flokki götu-
jeppa, Ragnar Skúlason frá Kefla-
vík var ákveðinn í að hvíla sig á
þessu keppnistíma-
bili, en hefur nú
breytt um skoðun.
Hann mætir með
Jeepster meistaraj-
eppann eitthvað
endurbættan og
hefur titil að veija. í sama flokki
mætir Þorsteinn Einarsson með
farkost sem fiktað hefur verið í
vetur.
Hópur akstursíþróttamanna hyggst
fara á heimsmeistaramótið í
Formula 1 kappakstri á Silverstone
brautinni í sumar í skipulagðri hóp-
ferð, þar sem m.a verður litið við
hjá frægum keppnisliðum, s.s.
McLaren og Will-
iams. Einnig verður
breski meistarinn
í rallýkross heims-
óttur, farið á stóra
go-kart braut til
keppni á milli ferðalanga ofl. Þá á
að kanna möguleika á heimsókn í
skóla fyrir rallökumenn. Ferðin er
áætluð 9. júlí.
í umræðum um Go-kart sem marg-
ir akstursíþróttamenn hafa áhuga
á að koma á fót hér hafa ýmsar
hugmyndir komið
upp um nafn á
íþróttinni. Ein er að
kalla íþróttina
körtukeyrslu og
ökutækin þá körtur,
en orðabók Menn-
ingarsjóðs útskýrir orðið karta sem:
eitthvað Iítið, ögn. Það á svosem
ágætlega við m.v. stærð ökutækis
og aldur keppenda, sem væntanlega
væru þá kartlingar.
%
BOSCH
VERKSTÆÐI
Lágmúla 9 sími 3 88 20
Ókeypis
BOSCH kerti
í bílinn
pantirðu vélarstiiiingu
fyrir 30. apríl nk.
A
Nýr Forman
Ekki bara betri, heldur 548 sinnum betri!
Formán LXi skutbíll kostar aðeins kr. 697.000.- á götuna!
Nýr og endurbættur Forman hefur nú
litið dagsins Ijós. Eftir að Skoda
verksmiðjurnar sameinuðust Volkswagen
samsteypunni hafa þýskir tækni- og
hugvitsmenn lagt nótt við dag. Útkoman er
glæsilegur og rúmgóður skutbíll.sem státar af
548 endurbótum.stórum sem smáum.
Forman er nú framleiddur samkvæmt
kröfum og stöðlum Volkswagen, sem tryggja
meiri gæði, aukið öryggi og betri endingu.
Vélin er með hvarfakút og tölvustýrðri
Bosch Motronic innspýtingu og kveikju, sem
er viðhaldsfrí og dregur úr bensíneyðslu. í
hurðum eru styrktarbitar, og innréttingar eru
nýjar. Það sama gildir um bremsukerfið,
rafkerfið og margt,margtfleira.
Hinir f|ölmörgu aðdáendur Forman hafa
því fengið 548 nýjar ástæður til þess að velja
þennan vinsæla skutbil. Og er þá ein ótalin:
Nefnilega verðið!
Nýr framhjóladrifinn Forman LXi, 5 dyra
og 5 gíra kostar kr. 697.000,- á götuna, og
fæst í 9 spennandi og frískum litum.
Komdu og reynsluaktu nýjum Forman.
Söludeild Jöfurs er opin virka daga 9-18 og
laugardaga 12-16.
Aukabúnaður á mynd: Alfelgur.
Nýbýlavegur 2, Kópavogur, sími 42600.