Morgunblaðið - 27.04.1993, Blaðsíða 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
AKSTURSÍÞRÓTTIR
Góð öryggisþróun
„ÞRÓUNIN í öryggismálunum hefur veriö mjög
góð, bæði hvað varðar bílana og ökumennina.
Menn eru famir að smíða bUana miklu betur
og vita að fúsk við keppnisbíla skUar engum
árangri. Mér finnst menn líka bera meiri virð-
ingu fyrir eigin öryggi, þótt alltaf séu einhveij-
ir sem vilja sjá á eftir sem fæstum krónum í
hjálm, galla og þess háttar. En hugsunarháttur-
inn hefur breyst. Það situr enginn alvöru akst-
ursíþróttamaður í gallabuxum í bilnum, ekki
frekar en að knattspyrnumaður fer á stígvélum
inn á völlinn.
LIAA
STA.FIR
og merki
á bílinn, bátinn
skiltiS, gluggann
inni sem
úti
IPennanum
Hallarmúla 2 getur
dú fengið límstafi útskorna eftir
únum óskum. 50 litir og 150
eturgerðir, auk fjölda mynda
og tákna. Einnig er hægt aS fá
fyrirtækja-, félaga- og vörumerki
skorin með stuttum fyrirvara.
C3
jjllllli
Hallarmúla 2
S. 81 32 11
Við getum
þaggað niður
í þeim flestum
Sendum í póstkröfu!
Gott verÓ —
Gæðaþjónusta
ÍSETNING
Á STAÐNUM
Verslið hja fagmanninum.
Bílavörubú&in
Skeifunni 2,
Í1 29 44
að hefur orðið mikil breyting á
í þessum efnum og hana má
að stórum hluta þakka tilkomu ralls
á íslandi. Með þeirri akstursíþrótt
efldust áherslumar á öiyggismálin
til muna og það hefur skilað sér út
í aðrar greinar akstursíþrótta," seg-
ir Benedikt Eyjólfsson, betur þekkt-
ur sem Benni í Bílabúð Benna, en
sú verslun hefur m.a. sérhæft sig
í vörum fyrir akstursíþróttir, enda
eigandinn í hópi þeirra sem fengu
akstursáhugann á unga aldri,
áhuga sem lifir góðu lífi enn og
segja má að hafi lagt grunninn að
ævistarfinu.
Svo eignaðist Benedikt jeppa
Fyrst vom það mótorhjólin og
mótorhjólaviðgerðir og svo eignað-
ist Benedikt jeppa sem hann byij-
aði á að taka í sundur og endur-
smíða. Síðan lá leiðin í torfæru-
keppnir, sandspymu og kvartmílu
á ámnum frá ’77 og framyfír ’82
með vægast sagt góðum árangri
þótt hann vilji ekki gera mikið úr
honum.
En það vekur líka athygli þegar
skoðaðar em myndir frá keppnum
á þessum ámm, að Benedikt er
kominn með fjögurra punkta belti,
lokaðan hjálm, veltigrind og keppn-
isstól á sama tíma og margir mættu
til leiks með opinn hjálm, enga velti-
grind, tveggja punkta belti og þar
fram eftir götunum.
„Það kom bara ekkert annað til
greina, keppnisandinn var nógur
fyrir til að maður færi ekki líka að
storka forlögunum með því að vera
ekki með öryggisbúnaðinn í lagi,“
segir Benedikt. Annað atriði sem
hann segist snemma hafa lagt
áherslu á var að mæta alltaf með
bílana hreina og gljáandi til keppni.
„Það hefur alltaf farið í taugamar
á mér að sjá menn koma til keppni
á skítugum bflum, það er svona
ákveðin óvirðing við ökutækið og
þá sjálfa."
Þarf að kynnast bílunum
„En svo er heldur ekki nóg að
vinna í bílunum og keyra þá bara
í keppnum. Menn þurfa líka að
gefa sér tíma til að keyra keppnis-
bflana sína og kynnast þeim, þann-
ig að þegar komið er út í keppni
séu menn að keyra bfla sem þeir
þekkja. Það kann að hljóma ein-
kennilega, en ég líki þessu stundum
saman við það sem gerist í hesta-
mennskunni.
Þar tala menn um að til að ná
því besta út úr hesti þurfi að kynn-
ast honum og vita hvemig hesturinn
hugsar. Bíllin hugsar auðvitað ekki,
en það er enginn bíll nákvæmlega
eins og annar og menn þurfa að
gefa sér tíma til að kynnast öllum
eiginleikum og viðbrögðum síns bfls
ætli þeir sér að komast langt í
keppni.
Benedikt segist almennt vera
ánægður með þá þróun sem verið
hefur á undanfömum áratug í akst-
ursíþróttunum, en bætir við að
vissulega hefði verið gaman að sjá
hana dálítið meira í átt við það sem
hefur verið í Bandaríkjunum.
Keppni án mikils tiikostnaðar
„Það sem gerir akstursíþróttir
þar frábrugðnar því sem er hér og
í Evrópu er að þær eru almennari
og venjulegt fólk sem langar til að
spreyta sig í t.d. kvartmflu eða
akstri á lokuðum brautum gefst
tækifæri til þess án mikils kostnað-
ar. Hér má kannski segja að menn
þurfi að varast að setja markmiðið
of hátt, þannig að kostnaður við
þátttökuna verði til þess að margir
sem hafi áhugann treysti sér ekki
út í keppni, eða geri það af vanefn-
um.
Að því leytinu má segja að til
dæmis flokkar eins og „standard“-
flokkurinn í torfærunni og krónu-
flokkurinn í rallýkrossinu séu mjög
sniðug dæmi sem gefa þessum
TORFÆRAN
Nýjar og
betri grindur
Torfæran er vinsælasta akstursíþróttinn hérlendis, ef marka
má aðsókn á keppnir. í síðasta móti liðins keppnistímabils
komu tæplega 6000 manns á mótssvæðið, en þá fór fram lands-
keppni milli Islands og Svíþjóðar og íslenskir ökumenn hefndu
ófaranna frá því um vorið, þegar sænskir ökumenn sýndu
þeim snyrtilegan akstur og unnu. í ár eru horfur á auknum
fjölda keppenda, en fyrsta keppni ársins er torfæra Jeppa-
klúbbs Reykjavíkur í Jósepsdal þann 9 maí. Þar munu nokkr-
ar nýjar grindur líta dagsins ljós.
Flestir toppökumenn torfærunn-
„ar síðustu ára mæta til leiks,
þó margir hafí verið orðnir þreytt-
ir í loks síðasta árs, sem endaði
með vandræðagangi í kringum það
hver átti meistaratitilinn skilin,
eftir mistök í frágangi á skýrslum
einnar keppninnar. En á endanum
heimti Magnús Bergsson frá Sel-
fossi titilinn í flokki sérútbúinna
jeppa, en Ragnar Skúlason í flokki
götujeppa. Báðir verða meðal
keppenda í Jósepsdal.
Breytingar á stigagjöf
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á reglum í stigagjöf, sem
gefur dómurum möguleika á ná-
kvæmari stigagjöf, en oft hefur
staðið styr um stigagjöf í einstök-
um þrautum. Hafa nýjar reglur
varðandi aðferð við stigagjöf verið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
AHUGAMALIÐ lagði grunninn að ævistarfinu, Benedikt Eyjólfsson,
betur þekktur sem Benni í Bílabúð Benna.
greinum akstursíþrótta ákveðið for-
skot, því að mönnum gefst í þessum
flokkum kostur á að keppa án mik-
ils tilkostnaðar. Þeir sitja þá ekki
uppi með stórar fjárfestingar ef
þeir til dæmis komast að raun um
að íþróttin henti þeim ekki.“
Það er auðheyrt að jeppar og
jeppakeppnir skipa ákveðinn sess
hjá Benedikt og þarf reyndar ekki
annað en að litast um í fyrirtækinu
til að sjá að hann hefur í gegnum
tíðina dyggilega stutt við torfæruna
með kostun við keppni. Það eru þó
annars konar jeppar sem hafa verið
efstir á listanum á undanfömum
árum, upphækkaðir, fjórhjóladrifnir
fjallajeppar með tilheyrandi breyt-
ingum og viðbótarbúnaði. Og hann
er ekki einn um áhugann, enda
skemmst að minnast Jeppadags
Bílabúðar Benna og Ferðaklúbbsins
4x4, þegar nærri 800 jeppar tóku
þátt með um 2.000 manns innan-
borðs og lögðu leið sína til Nesja-
valla, auk þeirrar athygli allrar sem
fjallajepparnir og jöklaferðir hafa
vakið í fjölmörgum erlendum tíma-
ritum.
„Ef við lítum á fjallajeppana sem
almenningsakstursíþrótt, þótt ekki
sé keppt í henni, væri það sú íþrótt
sem mestur vaxtarbroddur er í
núna. Ég hef nokkuð gaman af því
að sjá marga fyrrum keppnisöku-
menn komna í jeppadæmið og ekki
síst íjölskyldur þeirra, sem eru þá
ekki lengur bara áhorfendur, heldur
þátttakendur í áhugamálinu."
ve
I