Morgunblaðið - 27.04.1993, Síða 10
löl o
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2!7. APRÍL 1998
\
ORYGGISHJALMAR
BIFREIÐAÍÞRÓTTIR
Langerma Nomex bolur
með rúllukraga---------
Hlífðargalli úr Nomex
Öryggisbúnaöur ökumanna
Þótt menn hafi merkt talsverða hugarfarsbreytingu á undanförnum
árum þegar kemur að öryggisbúnaði keppenda þá virðist sem ennþá
sé nokkuð í land þar til menn a.m.k. borgi jafn brosandi fyrir slíkan
búnað og búnað fyrir ökutækin, svo notuð séu orð sölumanns í bíla-
vöruverslun. Ef litið er á þau atriði sem ýmist eru skylda eða
æskileg til að auka öryggi keppenda í akstursíþróttum, þá er þar
fyrst og fremst um að ræða veltibúr, hjálma, keppnisstóia í
bifreiðar, öryggisbelti og fatnað úr eldtefjandi efni.
Sé veltibúrið undanskilið, enda
sérsmíðað fyrir hvert ökutæki
og illmögulegt að segja til um kostn-
að, þá sést að ætli menn'sér að hafa
allan ofangreindan öryggisbúnað
með besta móti, er verið að tala um
allt að 100 þúsund krónur, miðað
við að allir hlutir séu keyptir nýir
og að um sé að ræða bifreiða-
keppni. Lágmarkskostnaður væri þá
tæpar 50 þúsund krónur. En þá má
líka líta til þess að meirihluti búnað-
arins er aðeins keyptur einu sinni,
nema að einhver veruleg óhöpp komi
upp á og eins, að miðað við það að
akstursíþróttir eru almennt kostnað-
arsamar, þá eru upphæðimar sem
fara í öryggisbúnað kannski ekki svo
miklar inni í öllu dæminu.
En lítum á hvernig þessar tölur
koma til. Hjálmar úr Kevlar-efni,
með Nomex-klæðningu, sem er það
eldtefjandi efni sem notað er í fatnað
fyrir akstursíþróttamenn, kosta frá
tæpum 16.000 upp í rúmar 21.000
krónur, m.v. við upplýsingar sem
fengust hjá Bílabúð Benna. Séu
keyptir hjálmar sem ekki eru Nomex-
klæddir er verðið 12.800. Tvöfaldir
Nomex-gallar kosta kr. 25.900, en
hvert lag af Nomex veitir 24 sek-
úndna algera einangrun og vörn í
aleldi.
Eitt er þó það atriði sem hafa þarf
í huga við slíka galla og það er að
þeir einangra í báðar áttir. Með öðr-
um orðum þarf að huga að því hvem-
ig fatnaður er innan undir. Einfald-
ast er að vera annað hvort í undir-
fatnaði úr Nomex, sérstaklega ef
verið er í einföldum göllum og þá
langerma bol með rúllukraga og síð-
um nærbuxum. Sokkar úr Nomex
eru líka mjög æskilegir.
Ef slíkur undirfatnaður er ekki
fyrir hendi er betra að vera einungis
í nærfatnaði úr bómull og engu öðm
innanundir og séu menn í tvöföldum
göllum er undirfatnaður úr Nomex
ekki nauðsynlegur. Rúllukragabol-
ur úr því efni kostar tæpar 8.000
krónur og síðar nærbuxur em aðeins
ódýrari. Andlitsgrímur úr þessu
efni, sem ná vel niður hálsinn, upp
á nef og vama því þannig að menn
andi að sér eldi, kosta 3.900 krónur.
Hanskar eru á verðbili frá tæpum
3.000 krónum upp í tæpar 4.000
krónur. Sérstaka keppnisskó má fá
með Nomex-klæðningu og kosta þeir
þá frá 9.800 til 11.200 eftir gerðum.
Loks eru það hálskragar úr Nomex,
sem kosta 3.300 krónur.
Keppnisstóla, eða svokallaða
körfustóla sem „leggjast“ að öku-
manninum og halda honum stöðugri
í sætinu er hægt að fá í ýmsum verð-
flokkum, frá tæpum 20.000 krónum
og upp úr. Fjögurra punkta örygg-
isbelti em skylda í akstursíþróttum
hér, en margir komnir með fimm
punkta belti og ekki ólíklegt að þau
verði skylduð í náinni framtíð. Verð
á 5 punkta beltum er frá tæpum
9.000 krónum og í um kr. 18.000.
Eitt ber þó að athuga varðandi
öryggisbeltin og það er að belti sem
hafa lent í t.d. veltu eða ákeyrslum
þannig að ökumaður hefur kastast
til og á þau reynt, slík belti eru ónýt
og ekkert annað að gera en að klippa
þau og kaupa ný. Þetta er í rauninni
svipað og með hjálmana og það get-
ur verið dýrkeypt í þessum efnum
að taka áhættuna með útbúnað sem
einu sinni er búið að reyna á.
ve
Það öryggisatriði
sem síðast reynir á
fara þarf eftir við kaup á nýjum
hjálmi. Síðan er fleira sem kemur
til, eins og bent er á í bók LÍA.
Svo sem það að þyngd hjálma
skiptir talsverðu máli. Æskileg
þyngd þeirra er á bilinu 1.200 -
1.400 grömm, en hjálmar sem eru
yfír 1.600 grömmum eru orðnir
of þungir. Þá ber þess að gæta
að til eru bæði opnir og lokaðir
hjálmar sem uppfylla staðlana í
reglunum. Öryggislega séð er þó
vart spuming um að vera með
lokaða hjálma, þar sem þeir verja
stærri hluta höfuðsins og eru með
hökuhlíf sem getur vamað miklum
höfuð og kjálkameiðslum.
Mismunandi styrkleiki
Efniviður hjálmanna skiptir
máli eins og fram kemur í reglun-
um, en hjálmar em aðallega fram-
leiddir úr þremur mismunandi efn-
um. Ræðst styrkleiki og verð af
þeim þótt vart beri að taka það
fram að sé á annað borð verið að
leggja í kostnað við akstursíþrótt-
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
ir, er öryggisbúnaðurinn ekki sá
kostnaðarhluti sem menn ættu að
spara við sig í. En því miður vill
það stundum verða eins og einn
afgreiðslumaður í bifreiðavöm-
verslun orðaði það: Menn koma
hér og kaupa dekk sem kostar 30
þúsund krónur án þess að blikka
auga, en svo þegar farið er að
skoða hjálma og þeim em sýndir
góðir og ömggir hjálmar úr sterku
efni á um 20 þúsund krónur, þá
eiga menn ekki orð yfír verðlagið.
Efniviðurinn
Ódýrastu og um leið veikbyggð-
ustu hjálmamir em úr Polycarbon-
ate-efni, en langflestir hjálmar
sem em í notkun hér á landi em
úr þessu efni, sem er ekki trefja-
efni. Þessir hjálmar em tiltölulega
nýjir á markaðnum hér, en áður
vom algengastir hjálmar úr Fiber-
glass, sem er trefjaefni og nokkuð
sterkara en Polycarbonate, en um
leið dýrara. Nýjasta og sterkasta
gerð hjálmar er úr svokölluðu
Lokaður öryggis-
hjálmur úr Kevlar,
fóðraður með
Nomex
Hanskar
úr Nomex
ÞAÐ var einu sinni kona sem fór með manni sínum í verslun
erlendis til að kaupa hjálm. Maðurinn keppti i akstursíþróttum
á íslandi og meðferðis var handbók Landssambands íslenskra
akstursíþróttafélaga, þar sem tíundaðar eru reglur um öryggis-
atriði og þar á meðal um hjálma. Verslunin, sem stóð fyllilega
undir sínu veglega nafni „Helm-world“ var all stór og allir
veggir þaktir hillum frá lofti niður til gólfs og ekkert í þeim
hillum nema hjálmar. Af öllum stærðum, gerðum, lögun og lit-
um og í hundraðatali. Hugsaði frúin sér gott til glóðarinnar
og hugðist aðstoða manninn við að velja hjálm sem færi vel
við gallann og bílinn og þar fram eftir götunum. Hófst nú leit-
in að réttum hjálmi með dyggri aðstoð verslunarmanns og
bókarinnar góðu. Tæpri klukkustund síðar lá niðurstaðan ljós
fyrir og var þá búið að nota útilokunaraðferðina við bæði þá
hjálma sem voru í verslunni sem og inni á lager. Það voru
nákvæmlega tveir hjálmar - ekki tvær tegundir, heldur tvö
stykki - sem stóðust allar reglurnar. Annar of lítill og hinn
of stór!
Þessi litla dæmisaga segir sitt,
enda em reglur um hjálma
í akstursíþróttum strangar og mik-
ilvægt að eftir þeim sé farið. Því
segja má sem svo að þá sjaldan
ökumenn komast í þá aðstöðu að
það reyni á hjálminn, þá sé líka
búið að reyna á öll önnur öryggis-
atriði. Því getur spumingin um líf
og dauða oltið á hjálminum.
Nákvæmar reglur um hjálma
Reglur um öryggishjálma í akst-
ursíþróttum hérlendis em í sam-
ræmi við nýjar alþjóðlegar reglur
FISA og em eftirfarandi:
■ 1. Allir sem keppa í aksturs-
Andlitsgrima úr Nomex-----------
íþróttum á íslandi skulu meðan á
keppni stendur og á sérleiðum vera
með hjálm fastspenntan á höfuð
sér, sem uppfyllir einhvem eftirfar-
andi staðal og er þannig merktur:
Snell 1985 (með „special applicati-
on“), Snell 1990 (með „Special
application“)eða B.S.I. BS 6658-85
(með „type a“). (Reyndar hefur
gildistöku þessara reglna verið
frestað til að gefa framleiðendum
kost á að aðlaga sig þeim).
■ 2. Allir hjálmar skulu vera
með framleiðsluárið merkt á eða
í hjálminn.
■ 3.
vera
mennu ástandi, órispaðir og ekki
kvamað úr þeim. Hjálmar sem
hafa orðið fyrir höggi em bannaðir.
■ 4. Hjálmar sem hafa verið
málaðir eða lakkaðir em bannaðir.
Einnig er bannað að hreinsa hjálm
með sterkum efnum þar sem þau
geta skemmt efnin í hjálminum.
■ 5. Hjálmar úr polycarbonate-
efni skulu ekki vera eldri en
þriggja ára gamlir. Hjálmar úr
Fiber-glass eða Kevlar-efni skulu
ekki vera eldri en fimm ára gaml-
ir. Þegar hjálmar hafa verið í
umferð umfram þessi mörk skal
hætta notkun þeirra og fá nýja.
■ 6. Hjálmar skulu falla þétt
og vel að höfði þess sem þá nota.
Of þröngur hjálmur eða of rúmur
kemur að takmörkuðum notum.
I 7. Einungis má setja talkerfi
(intercom) í þá hjálma sem til þess
em gerðir. Þá er um að ræða að
göt og raufar em inni í hjálminum
til að koma þessum búnaði fyrir.
Gæta skal þess að þessi aukabún-
aður auka á engan hátt hættu á
meiðslum þess sem hann ber.
I 8. í keppnum þar sem gera
má ráð fyrir eldhættu, skulu kepp-
endur vera með hjálma sem era
með eldtefjandi klæðningu
(nomex).
Þyngdin skiptir máli
Þannig hljóma reglumar sem
Hálskragi úr Nomex—
Keppnisstóll--------------
Öryggisbelti, fimm punkta
Búnaður ökumanns og stóll
er frá Bllabúð Benna.
Öryggisbeltin eru frá
Bllasmiðnum.
Keppnisskór, fóðraðir
með Nomex, og Nomex-
sokkar innanundir-------