Morgunblaðið - 27.04.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
C 11
VIÐURKENNING
Umferðarrád veitir
LÍA Umferðarljósið
„Brautin sem við völdum var allóvænt og ég held að okkur
takist að koma háttvirtum þingfulltrúum á þessu öðru
Umferðarþingi talsvert á óvart,“ sagði Óli H. Þórðarson,
framkvæmdastjóri Umferðarráðs á 2. Umferðarþingi sem
haldið var í aprílbyrjun. Umferðarráð veitti þá Umferðar-
Ijósið í annað sinn, verðlaun til aðila sem hafa unnið sér-
staklega árangursríkt og eftirtektarvert starf á sviði um-
ferðarmála. Slysavarnafélag íslands hlaut Umferðarljósið
1990, en að þessu sinni urðu Landssamtök íslenskra aksturs-
íþrótta fyrir valinu og tók Ólafur Kr. Guðmundsson, for-
maður LIA, við þeim fyrir hönd samtakanna.
Bandarískt máltæki
segir: Ef maóur tel-
ur sig vera meö 5
dollara haus, þá
kaupir maóur 5
dollara hjálm. Þaó
er umhugsunarvert
aó leggja mikinn
kostnaó i ökutækió
og spara svo vió sig
þegar kemur aó ör-
yggisbúnaói eins og
hjálmum. Þaó um-
hugsunaratriói á
ekki bara vió um
akstursiþróttir
Kevlar-efni, sem eru framleiddir á
svipaðan hátt og trefjaglers-
hjálmarnir, en úr nýrri gerð af
trefjadúk og með samskonar
tækni og t.d. er notuð í flugvélar
og skotheld vesti. Kevlar-hjálmar
eru t.d. notaðir af Bandaríkjaher
og eru taldir vera 100% sterkari
en jafnþungir hjálmar út trefja-
gleri.
Talsverður verðmunur
Talsverður verðmunur er á
þessum þremur gerðum hjálma,
en umhugsunarvert að spara við
sig í þeim efnum og ágætt að
hafa í huga bandarískt máltæki
sem segir: Ef maður telur sig vera
með 5 dollara haus, þá kaupir
maður 5 dollara hjálm. Og það
umhugsunaratriði á ekki bara við
um akstursíþróttir, því ekki þarf
annað en að líta í kringum sig úti
í umferðinni til að sjá allt of marga
unga ökumenn á bifhjólum með
hjálma sem veita þeim ámóta ör-
yggi og skjólgóð húfa. ve
Um_ valið að þessu sinni sagði
Óli H. Þórðarson m.a.: „Um
er að ræða fjölmenn landssamtök
sem hafa innan sinna raða marga
hugsjónamenn sem setja umferð-
aröryggi í öndvegi í störfum sínum
og hvetja félaga sína óspart til að
gera slíkt hið sama. Samtökin
hafa náð umtalsverðum árangri
hvað þetta varðar og af þeim get-
um við hin lært m.a. á hvem hátt
við getum best aukið öryggi okkar
í og á ökutækjum og komist þann-
ig heil á leiðarenda."
Nefndi hann sem dæmi um starf
akstursíþróttamanna í þágu um-
ferðaröryggis, að snemma hefði
barátta þeirra fyrir því að koma
kappakstri af götunum hafist, svo
sem með kvartmílubrautinni í
Kapelluhrauni. Einnig nefndi hann
sérstaklega átak Sniglanna, Bif-
hjólasamtaka lýðveldisins á sl. ári
til aðgerða og átaks í því skyni
að koma í veg fýrir slys á bifhjóla-
mönnum og slys af þeirra völdum,
en átakið var gert í samstarfi við
Umferðarráð og lögreglu og sagði
hann það hafa skilað tvímælalaus-
um árangri.
Þá fjallaði hann um strangar
öryggisreglur í akstursíþróttum
hér, samstarf akstursíþrótta-
manna við Umferðarráð, lögreglu,
Bifreiðaskoðun og fleiri og lauk
máli sínu með því að þakka akst-
ursíþróttamönnum samstarfið á
liðnum árum og sagðist vænta
þess að: „verðlaunaveitingin verði
þeim styrkur í starfi og auðveldi
forráðamönnum akstursíþrótta-
manna að efla þá hugsun meðal
sérhvers félagsmanns að í umferð-
inni verði hann að haga sér óað-
finnanlega, hraðaþörf sinni verði
hann skilyrðislaust að fá fullnægt
á afmörkuðum brautum, fjarri al-
mennri umferð.“
Sérefni
Jeppar & vélsleðar
Fjallahótelið • Hættur á hálendinu •
Jeppi ársins • Jeppadagur fjölskyldunnar •
Vélsleðar á fjöllum • Ævintýrakonan ♦
Þolfimimeistarinn • Bílar 1993»
TIMARIT UM TÆKI OG TÓMSTUNDIR
Litrikt blaó á sölustöðum-áskriftarsími 67 77 66
MICRA
ER
MEO SIG
OG SÍNA
Enda vgitj
fullkomnustu
prófunar- og
hönnunarferli
notuö til aö þróa
sterkan og öruggan
bíl meö sérstakri
styrkingu í þaki og
hliöarbitum.
IMI55AIM MICRA
BILL ÁR5IIM5
1993
VERÐ AÐEIIMS STGR.
Kr. 799-000.-
Þykkir stálbitar
eru í huröum