Morgunblaðið - 30.04.1993, Qupperneq 4
4 C
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993
Ó, þessar
lífsins lystisemdir
UM LANGA hríð hefur verið rætt, ritað og rifist um óholl-
ustu kaffis. Sérstaklega hafa augu manna beinst að ófrískum
konum og sýnt fram á að kaffidrykkja geti aukið líkur á
fósturmissi. Ennfremur hefur verið talið líkJegt að samband
væri milli kaffidrykkju á meðgöngu og lítillar fæðingar-
þyngdar nýbura. Nýjar rannsóknir benda aftur á móti til
þess að kaffi sé ekki eins slæmt og margir hafa haldið fram.
Bandaríska lyfja-og matvælaeftir- Asiaweek er grein um kaffín og
litiðlflokkar kaffín undir lyf og ákvað rannsóknir á áhrifum þess. Kaffín
árið 1980 að setja hið örvandi efni er meðal annars í kaffi, en einnig í
á lista yfir óæskilega_ neysluvöru kakói, tei og kóladrykkjum.
fyrir ófriskar konur. I tímaritinu
Úr ljósu yfir
í sterkari litatóna
Te af telauf-
um: 43 mg.
Kakó: 13 mg.
Trekkt kaffi :
85 mg.
Kaffínskert
kaffi: 2,5 mg.
VEÐRÁTTAN setur meira mark á mannvirki hér á landi en
annars staðar og þurfa Islendingar því að leggja meiri vinnu
í viðhald húsa sinna en aðrar þjóðir. Húseigendur geta sparað
sér mikla fjármuni og fyrirhöfn með því að standa rétt að verki
í upphafi og gæta þarf þess að húsin séu varin á þann hátt
sem besta raun gefur.
Ólafur Már Sigurðsson, markaðsstjóri hjá Hörpu með nýtt útilita-
kort Hörpu.
Aö undanförnu hefur
það færst í aukana við
mólun húsa að utan að
notaðir eru líflegir litir, '
bæði sterkir og afger-
andi litatónar sem og
jarðlitir. Sama gildir
hvort húsið er klætt
búrujórni eða bygging-
arefnið er steinn eða
viður.
að sögn Ólafs. Nauðsynlegt er að
háþrýstiþvo þessi hús og hreinsa
sem mest af gamalli málningu.
Síðan er gott að láta veggina
standa í afvötnun og útöndun í
nokkurn tíma því oftast leynist í
veggjunum raki sem ekki hefur
átt nægilega greiða leið út. Reynd-
ar má bera vatnsfæluna strax á
því að hún hleypir rakanum út í
gegnum sig en gott er að bíða
með að mála, jafnvel þangað til
næsta_ sumar. Málningarkerfið,
sem Ólafur segir að gefi besta
raun á stein sé böðun með vatns-
fælu og síðan málaðar tvær um-
ferðir eða böðun og síðan málað
einu sinni með terpentínuþynntri
akrýlmálningu og ein til tvær
umferðir með vatnsþynnanlegri
akrýlmálningu.
Þegar steinhús er endurmálað,
er sílanfestir notaður á þá fleti sem
bletta þarf eftir skröpun eða
hreinsun og síðan á alla þá fleti
sem koma undan málningu sem
hreinsuð hefur verið af með há-
þrýstiþvotti. Fyrst er blettað og
síðan eru heilmálaðar tvær um-
ferðir af þeirri málningu, sem val-
in hefur verið. ■
Jóhanna Ingvarsdóttir
££ Eins og heimur hátískunn-
ar, fer málning í gegnum
reglubundnar tískusveiflur.
kk Að sögn Ólafs Más Sigurðs-
sonar, markaðsstjóra hjá
^ málningaverksmiðjunni
%f% Hörpu, er þróun í litavali
nokkuð sveiflukennd þar
^ sem að smekkur fólks
breytist ört í þessum efnum
semöðrum. „Fyriraðeins
um fimm árum síðan voru
flest hús máluð hvít, síðan tóku
svokallaðir pastellitir við. Nú eru
sterkari Iitir meira afgerandi sem
gefur vissulega umhverfínu meiri
fjölbreytileika en ella. Algengt er
að valdir séu þrír litir til málunar
utanhúss. Þá er gjarnan valinn
einn litur, sterkur og afgerandi, á
tréverk eins og glugga, hurðir,
þakkanta og jafnvel á þakið sjálft.
Annar litur, mildari, er valinn á
sökkla og minni fleti og loks aðal-
liturinn, t.d. mildur jarðlitur, á
stærstu fletina sem tónar við
sterkari litina." Ólafur segir að
þróunin hafí einnig verið þessi í
viðarvörn, en nú er unnt að mála
viðinn og veija í öllum regnbogans
litum.
„Ljósir litir munu vissulega
halda velli þó litagleðin sé nú mun
meiri en áður. Þeir, sem eru djarf-
ir og þora að spila á ímyndunarafl-
ið, munu hinsvegar geta tekið
þátt í miklum litaleik í sumar,“
segir Ólafur Már um leið og hann
féllst á að gefa þeim húseigendum,
sem hyggja á útimálningu í sum-
ar, holl ráð.
Málning skipar stóran sess í
viðhaldi húsa, en málningarvinnu
má oftast skipta í þrjá flokka:
undirbúning, grunnun og málning.
Það verður seint brýnt nógsam-
lega fyrir fólki að vanda undirbún-
ing málunar sem best og spara
þar ekki tíma. Málmfleti jafnt sem
steypta fleti skal þvo og gamal-
málaða fleti, þar sem málning er
farin að flagna, skal þvo með há-
þrýstivatni.
Rétt grunnun er einnig mikil-
væg. Bera steinfleti skal grunna
með sílanefnum, bert bárujárn
með ætigrunni og bert tré með
grunnfúavara.
Aðstæður við málningarvinnu
skipta miklu máli. Þurrt, hlýtt og
Kaffein í mg mióið við
150 ml af vökva.
sólarlítið veður er hentugast til
málunar. Nýsteypta fleti skal ekki
mála fyrr en að mánuði liðnum
og rakainnihald viðar má ekki fara
yfir 17%.
Bárujárn
Áður en málning bárujáms
hefst verður að hreinsa burt ryð,
olíur og hvers kyns óhreinindi, t.d.
með vírbursta, sköfu og háþrýsti-
þvotti. Nýtt bárujám er best að
láta veðrast í eitt til tvö ár áður
en það er meðhöndlað eins og að
neðan greinir. Ómálað, zinkhúðað
járn skal gmnna, síðan tvímála
með þakmálningu. Ómálað járn
skal ryð- og olíu-
hreinsa og
grunna með ryð-
vamarmálningu,
síðan tví- eða þrí-
mála með þak-
málningu. Þegar
bámjám er mál-
að - skal nota
pensil eða kúst,
draga vel úr
málningunni og
sjá til þess að
hún berist ekki
þykkara á í Iág-
bárunni. Yfirleitt
em málaðar tvær
umferðir og er
gott að þynna
þakmálninguna
með terpentínu
um það bil 5-10%
í fyrri umferð.
Vlður
Það vill stundum vefjast fyrir
mönnum hvernig þeir eigi að veija
tréverk utanhúss fyrir veðri og
vindum. Áður en endanlegt efni
er borið á viðinn þarf að undirbúa
hann vel. Nýr viður þarf að véra
hreinn og þurr og rakainnihald
undir 17%. Af gömlum við þarf
að skafa af allt lauslegt í burtu
og gljáandi fleti sem og veðraða
verður að slípa með sandpappír.
Hægt er að mæla rakainnihald
viðar með sérstökum mælum. Síð-
an skal gmnna með grunnfúavörn.
Þegar undirbúningi er lokið þarf
að mála eina til þijár umferðir
allt eftir því hvaða efni er notað
og hvaða áferð fólk sækist eftir.
Stelnn
Steypuskemmdir hafa hijáð
margan íslendinginn síðustu árin
og hefur verið kappkostað að
vanda til málningarkerfa þannig
að rakanum í steypunni verði
greidd leið út en lokað fyrir hann
í hina áttina. Viðleitni í þessa átt,
sem hefur skilað verulegum
árangri, er vatnsfælan svokallaða
sem ver steininn fyrir slagregni,
Neskaffi: 65
mg.
Uppáhellt
kaffi: 115 mg.