Morgunblaðið - 30.04.1993, Side 8

Morgunblaðið - 30.04.1993, Side 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993 SAGT ER að New York sé borg sem aldrei sefur og víst er að ferðamenn eiga auðvelt með að finna sér eitthvað til dundurs innan borgarmarkanna. Ef eitthvað er þá er framboð skemmtana, uppákoma og staða að skoða of mikið og getur gert gesti ringlaða fyrstu dagana. En þegar vorar færist fjör í mannlífið utandyra og áfram er endalaust framboð áhugaverðra menningarviðburða. Markaður á Union torgi Morgunblaðið/Einar Falur Morgunblaðið/Einar Falui Metropolitansafnið Morgunblaðið/Einar Falur Fyrir ferðamenn í sinni fyrstu heimsókn til New York er kjörið að fara í skoðunarferð út að Frelsisstyttunni þar sem hún stendur í hafnarmynninu því um leið gefst tækifæri til að sjá Manhattan-eyju úr nokkurri fjar- lægð með öllum sínum skýja- kljúfum. Þá er einnig áhrifamikið að fara í siglingu á ánum sitt- hvorumegin við Manhattan í ljósaskiptunum; rétt eins og að líta yfir borgina úr tumi Empire State byggingarinnar, þeirrar sem King Kong kleif á sínum tíma eða úr Twin Towers. Þá er gaman að ganga um Central Park og fylgjast með mannlífínu í þeirri gróðurvin, heimsækja fjármálahverfíð og síðan Soho með öllum sínum galleríum og vinalegu andrúms- lofti. Þar í nágrenni er Litla ítal- ía með marga góða veitingastaði og Kínahverfíð, litskrúðugur ævintýraheimur, nokkrar götur þar sem kínverskan er opinbert mál, físksalar á gangstéttum og margt forvitnilegt á boðstólum. Verslanir er víða en hvað flestar í miðborginni milli 34. og 57. strætis. Þar eru einnig flest hót- elin og hávaðinn mestur og ekki skrítið þótt fólk hafí ekki eirð í sér til að dvelja þar lengi. Og ekki aðeins á Manhattan því margt áhugavert gefur einnig að líta í hinum ijórum hverfum borgarinnar. Fimm hundruð punda konur og 50 punda rotturtil sýnis í góðu helgarveðri er gaman að koma til Coney Island í Brook- lyn, þar eru leifar fomrar frægð- ar þessarar fyrrum mest sóttu baðstrandar heims. Enn eru þar parísarhjól, sitthvað skrítið til sýnis, eins og fímmhundruð í Williamsburg punda konur og fímmtíu punda rottur og mannlífíð er skemmti- legt. Þar skammt undan er Brig- hton Beach, forvitnilegt og ört vaxandi hverfí rússneskra inn- flytjenda, kavíar, pylsur og vodki í verslunum. Og kassinn af Prins póló kostar 300 krónur. Annars staðar í Brooklyn, í Williamsborg, er í nokkrum sam- liggjandi götum stærsta samfé- lag hasída gyðinga í heiminum, komnum frá A-Evrópu eftir Heimsstyrjöldina seinni. Karlar eru svartklæddir með hatta og slöngulokka og konur með hár- kollur og í rósóttur kjólum eru eins og út úr skáldsögu eftir Sin- ger. Þá er nyrst í Bronx stór dýragarður sem er gaman að ganga um, dýrin ekki lengur í búrum heldur á rölti innan girð- inga og einnig sérstakt að að fara um hverfíð suður af og sjá hvemig mannfólkið hefur það í stórborg eins og New York, þar sem nóg er af öllu og einnig af eymd. Söngleikir og myndllstarsýningar Engum þarf að leiðast á kvöld- in. Allir vita af söngleikjunum við Broadway og einnig má sjá margar áhugaverðar leiksýning- ar. Jassklúbbar eru nokkrir og enginn svikinn af að koma við á sveiflustöðum eins og Blue Note eða Village Vanguard í Gre- enwich Village. Miðaverð tólf til átján hundruð krónur. Mikil upp- lifun er að koma í Metrópólitan, þótt Kristján Jóhannsson sé ekki á sviðinu, er ekki hörgull á snjöll- um listamönnum þar á bæ, sýn- ingar daglega og stundum tvisv- ar á dag. Miðar kosta frá 500- 7.000 kr.í bestu sæti. Ballettinn er þar svo og Fílharmóníusveitin sem er undir stjórn undir stjóm Kurts Masur. Þá em kvikmynda- hús um allan bæ og hægt að sjá það nýjasta í bandarískri og evr- ópskri kvikmyndagerð sem og klassískar kvikmyndir. Loks er það myndlistin en New York hefur löngum verið talin til miðstöðva á þeim vettvangi og víst er ótrúlega margt að sjá í galleríum, bæði í Soho og við 57. stræti og síðan í söfnunum. Metrópólitansafnið er risastórt og marga perluna úr menningar- og listasögunni, allt frá egypsku hofí að sjálfsmyndum Rembrandts. Nútímalistasafnið er alltaf gaman að sjá hvort sem er úrval meistaraverka, hina merkilegu ljósmyndadeild eða tímabundnar sýningar. Nú er þar sýning á verkum Josephs Beuys. Guggenheim safnið austan- megin við Central Park er opið á ný eftir stækkun og sýnir fram á vorið jámskúlptúra Picassos og fleiri. Þá hefur Guggenheim opnað útibú í Soho, lítið og skemmtilegt. Loks má nefna að í Whitney safninu stendur nú yfir tíæringur þeirra þar sem gestir eiga að geta séð þverskurð þess sem er að gerast í banda- rískri myndlist um þessar mundir - og menn hafa ólíkar skoðanir á því úrvali, nú sem endanær. ■ Einar Falur Ingólfsson KinfektM burt afkoddanum UM hríð þótti ekkert hótel með hótelum nema það setti konfekt- mola eða lítið súkkulaðistykki á kodda gestanna þegar herbergi voru búin fyrir nóttina. í banda- rískum ferðablöðum er nú sagt að þessi hallærislega kvöldgjöf sé sem betur fer að detta úr tísku. Hvort þetta stafar af hagræð- ingu, hollustuhugmyndum eða al- mennum spamaði er ekki'á hreinu. En samt verður eitthvað að koma í staðinn segja hinir sérfróðu; það hefur sálfræðilega góð áhrif á gest sem borgar offjár fyrir herbergi að fá smákveðju. Stungið hefur verið upp á einni rós eða appelsínu eða gulrót á disk við rúmið. ■ Hestaferðir um Vestfiríi VESTURHESTAR á Reykhólum hyggjast í sumar bjóða upp á sjö daga hestaferðir um sunnanverða Vestfirði sem lýkur með ferð út í Breiðafjarðareyjar. Ýmist er gist á bóndabæjum eða í tjöldum. Verð fyrir sjö daga er 77 þúsund kr. og er þá innifalið, reiðtygi, 1-2 hestar á mann, leiðsögn, gist- ing og fæði, svefnpoki, reiðhjálm- ur, sigling um Breiðafjörð og ferðir frá Keflavík til Reykhóla og aftur til baka. Fyrsta daginn er riðið fyrir Beru- fjörð að Klukkufelli, síðan er farin Laxárdalsheiði til Hólmavíkur og síð- an næsta dag Steingrímsfjarðarheiði ofan í Djúp. Síðan er riðið upp Langa- dal ofan í Fjalldali og Þorgeirsdal. Á sjötta degi er farið um Þorskafjörð og síðasta daginn er farið í Breiða- fjarðareyjar og gist í Flatey. ■ Dagsferð á tónleika Bruce Springsteen SAMVINNUFERÐIR/Landsýn og tónleikaklúbbur Bylgjunnar ætla að efna til hópferðar til írlands á uppstigningadag, 20. maí, til að hlýða á tónleika Bruce Springste- ens. Er farið frá Keflavík að morgni og um eftirmiðdaginn get- ur fólk skoðað sig um og verslan- ir eru opnar fram á kvöld. Tón- leikarnir hefjast kl. 20 en flogið er heim um nóttina. Verð er 19.885 oger innifalið flug, skattur, miðar á tónleikana og rútu- ferðir fyrir og eftir þá. ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.