Morgunblaðið - 30.04.1993, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993
C 9
Stofnfindur
vináttu- og
ferdafélagsins
'lsland - Malta
ÁHUGAFÓLK um aukin sam-
skipti milli íslands og Möltu hef-
ur hist að undanförnu og að
frumkvæði Björns Jakobssonar
hefur verið ákveðið að halda al-
mennan kynningarfund um
Möltu í Ársal Hótel Sögu kl. 20.30
n.k. mánudagskvöld, 3. mai.
Jafnframt verður um stofnfund
Ferða- og vináttufélagsins ísland
- Malta og ræða og er áhugafólk
um málefnið kvatt til að mæta.
Malta á sér langa og merka sögu
og hefur þessi perla Miðjarðarhafs-
ins verið nefnd eyja sólar og sögu.
Tilgangur félagsins er að standa
fyrir og stuðla að auknum vináttu-,
menningar- og viðskiptatengslum
milli íslands og Möltu. í þeim til-
gangi mun félagið skipuleggja ár-
lega eina til tvær kynningar- og
Smábátaeigendur sjá til þess að
ávallt er ferskan fisk að fá á
Möltu.
skemmtiferðir til Möltu á hagstæð-
ustu kjörum fyrir félagsmenn og
jafnframt stuðla að almennum
ferðalögum og gagnkvæmum heim-
sóknum milli landanna.
Að loknu ávarpi Björns Jakobs-
sonar flytur Dr. Gottfried Pagen-
stert, sendiherra Þýskalands á Is-
landi og fyrrum sendiherra á Möltu,
erindi um land og þjóð. Að því loknu
verður sýnd stutt kvikmynd frá
staðnum og síðan greinir Emil Örn
Kristjánsson frá ferðamöguleikum
til Möltu, en eftir umræður og fyrir-
spurnir fer fram stjórnarkjör. ■
Bretum hugnast
best í Búdapest
BRESKA fyrirtækið Travelscene
hefur gert úttekt á borgum sem
breskir ferðamenn sóttu heim á
sl. ári. Þar kom ýmislegt fróðlegt
í ljós og t.d. var Miinchen sú
borg sem flesta dreymir um að
vitja aftur þó svo að íbúarnir
fengju þann vitnisburð að þeir
væru fjarri því að vera vinsam-
legir. I Búdapest var vingjarn-
legasta og viðmótsbesta fólkð.
2! Breskum ferðamönnum
J3 fannst menn í Sófíu og Gent
jgg þó langhvimleiðastir. Þeim
■ fannst mest til um sögustaði
í Prag en síst það sem fyrir
'55 augu bar í Salzburg. Besta
andrúmsloftið þótti þeim vera
í Prag og það versta í Sófíu. Köln
fékk vitnisburðinn sem hreinasta
borgin og Istanbúl sú subbuleg-
asta. Bestu verslanir þóttu mönn-
um í Köln og Ghent en þær verstu
í Prag og Istanbúl. Næturlífið
fannst Bretum fjörugast í New
York, Berlín og Búdapest.
Sextán ferúaráðgjafar útskrifast
FERÐAMÁLASKÓLA íslands
var slitið í annað sinn fyrir-
nokkru Að þessu sinni útskrifuð-
ust 16 nemendur frá skólanum
sem ferðaráðgjafar.
Námið er alls 600 stundir og er
viðurkennt af Félag ísl. ferðaskrif-
stofa sem markviss og raunhæfur
undirbúningur til að starfa á ferða-
skrifstofum. í lok skólaárs gengust
nemendur undir alþjóðlegt
IATA/UFTA próf sem er viður-
kennt af flugfélögum og ferðaskrif-
stofum um allan heim og veitir al-
þjóðleg réttindi. Aðalkennarar við
skólann eru þau Pétur Björnsson
og Inga Erlingsdóttir.
Við kennslu í innlendri ferða-
landafræði var notuð ný bók
„Ferðaþjónusta á íslandi" sem Úlf-
ar Antonsson og Tryggvi Jakobsson
skrifuðu fyrir Ferðamálaskólann.
Kenndar voru 34 námsgreinar
auk starfsþjálfunar nemenda á
ferðaskrifstofum, en skólinn leggur
metnað sinn í að nemendur kynnist
flestum þáttum ferðaþjónustu.
í maí nk. mun skólinn bjóða fólki
Kennarar og brautskráðir nemendur úr Ferðamálaskóla íslands.
utan höfuðborgarsvæðisins upp á
nám í innlendri ferðaþjónustu og
verður bytjað með slíka kennslu á
Akureyri. Er námið ætlað þeim sem
vinna við ferðaþjónustu eða vilja
kynna sér þá möguleika sem ferða-
þjónusta hefur upp á að bjóða.
Auk þess verður boðið upp á 3ja
kvölda námskeið fýrir þá sem hafa
hug á að ferðast erlendis á eigin
vegum svokallað „Flug og bíll“, og
verða kynntir ferðamöguleikar,
undirbúningur ferðar, akstur og
umferðarreglur og leiðarlýsingar.
Ferðamálaskóli íslands er rekinn
sameiginlega af Félagi ísi. ferða-
skrifstofa og Tölvuskóla íslands.
Viltu fara til Súdans?
SÚDAN er væntanlega ekki fyrsta landið sem kemur í huga
manna sem eru að undirbúa sig í ferðalög. Ástandið í landinu
hefur lengi verið mjög erfitt, ættbálkar berast á banaspjótum,
harðsljórn, neyð og hungur er áreiðanlega ofar í hugum en lit-
ríkar kóraleyjar Súdans í Rauðahafinu, þjóðgarðar þar sem öll
heimsins dýr una sér, eða voldugir regnskógar suðurhlutans.
Súdan er stærsta land Afríku,
að fiatarmáli um 2,5 milljónir fer-
kílómetra en dreifbýlt miðað við
stærð, íbúar um 20 milijónir.
Ferðamálaráð landsins hefur ný-
lega sent til Ferðablaðsins kort
og ýmsar upplýsingar um land og
þjóð og bendir á að þar séu marg-
ir óviðjafnanlegir staðir sem er-
lendir ferðamenn muni hafa gleði
og gaman af að heimsækja.
Taldir eru upp nokkrir staðir
auk suðurhlutans þar sem regn-
skógarirnir eru og höfuðborgin,
sem heitir Juba, svæði auðugt þar
af fornminjum, teygir sig á báðum
bökkum Nílarfljótsins norður af
höfuðborg landsins, Khartoum til
Wadi Halfa, rétt hjá landamærun-
um við Egyptaland. Á því svæði
þykja margar þessar fornminjar
hinar merkustu. Þar eru hinir
fornu og merku Kush píramídar,
og leyndardóma þeirra hafa vís-
indamenn og fornleifafræðingar
lengi glímt við og ekki tekist að
leysa.
Þá er getið um Gemmeiza
ferðamannaþorpið sem er í aust-
urhluta landsins en þar er dýralíf
sérlega fjölskrúðugt.
Höfuðborgin Khartoum stendur
þar sem mætast Bláa og Hvíta
Níl. íbúar eru um níu hundruð
þúsund. Þar er frægur úlfalda-
markaður og arabískur súk þar
sem enn má finna fflabeinsút-
skurð að ógleymdum silfurskart-
gripum og forkunnarfagrar bast-
og tágakörfur. Þjóðminjasafnið í
höfuðborginni þykir státa af ýms-
um þjóðargersemum og þar eru
minjar varðveittar frá því fjögur
þúsund árum fyrir Krist.
Súdan er múhammeðstrúarland
og áfengi af skornum skammti.
Allmörg þokkaleg hótel eru í höf-
uðborginni og víðar um landið en
þeim hefur verið haldið heldur illa
við síðustu ár. Vegabréfsáritunar
er krafist af flestum. Flugtími frá
Englandi er 5-6 klst. í breska rit-
inu Business Traveller er ódýrasta
fargjald London-Khartoum-Lon-
don um 75 þúsund kr.
. ■
Jóhanna Krístjónsdóttir
hhhh FERÐIR
UM HELGINA
Fl
LAUGARD. 1. maí kl. 10.30
er skíða og gönguferð á
Hengil. Gengið upp Sleggju-
beinsskarð og á Skeggja sem
er hæsti tindur fjallahringsins
og að norðvestanverðu á
Hengli.
Kl. 13 á laugardag er hella-
skoðunarferð í Árnaker sem
er í hraunbreiðunni neðan við
vesturenda Hlíðarfjalls í Ölfusi.
Ferðin er tilvalin fjölskylduferð.
Sunnud. 2. maí er 5. áfangi í
Borgargöngu. Hefst hún við
Hjallaenda og gengið um Búr-
fellsgjá að Búrfelli og yfir
hraunið að Kaldárseli. Gangan
tekur um tvo og hálfan tíma.
Brottför í ferðir er frá Um-
ferðarmiðstöðinni og Mörkinni
6.
ÚTIVIST
LAUGARD. 1. maí verður geng-
inn hluti gamallar þjóðleiðar er
kallaðist Selvogsgatan og var
á milli Hafnarfjarðar og Sel-
vogs. Ekið er að Kaldárseli þar
sem gangan hefst. Gengið yfir
Helgadal og hjá Valahnúkum,
upp í Grindarskörð. Reikna má
með að gangan taki 5-6 klst.
Sunnud. 2. maí er fyrsti
áfangi nýrrar fjallasyrpu yfir
sumartímann. Verður í sumar
farið á níu fjöll, annanhvern
sunnudag frá 2. maí til 22. ág-
úst. Á sunnudag er stefnan tek-
in á Skálafell á Hellisheiði sem
er 574 m. Brottför kl 10.30 frá
BSÍ.
Fólk er minnt á að taka með
sér nesti og vera á góðum
gönguskóm og með legghlífar.
Fossavatnsganp 1. maí
FOSSAVATNSGANGAN á ísafirði verður farin 1. maí og var
fyrst farið í þessa göngu 1935. Frumkvæði á sínum tíma átti
Olafur Guðmundsson í Þór. Gangan féll niður 1940-54 en
hefur verið á hverju ári síðan.
Þátttakendur geta valið um
52 þrjár vegalengdir. Hina eigin-
■S legu Fossavatnsgöngu eða ís-
mim landsgöngu sem er 20 km og
1™ lagt af stað við Vatnahnjúk.
'b) Þá er hálf Fossvatnsganga 10
km og byijað er við Kristjánsbúð á
Botnsheiði og loks er 7 km ganga
þar sem farið er frá Kristjánsbúð
og við Miðfellsfót. Mark er við Skíð-
heima og lagt af stað kl. 14 í öllum
vegalengdum.
Islandsgangan er stigakeppni þar
sem keppendur ná stigum úr fimm
göngum sem fram fara víðs vegar
um landið. Fossavatnsgangan er sú
fimmta og síðasta af göngunum í
íslandsgöngunni og ráðast því úrslit
að henni lokinni og
verðlaunaafhending
fer hér fram. Þátt-
tökugjald er 1.200
krónur og innifalið
í gjaldi eru kaffi-
veitingar að göngu
lokinni.
Magnús Kristj-
ánsson sigraði í
fyrstu göngunni
1935 og næstu fjög-
ur ár á eftir. Sigur-
vegari í fyrra var
Gísli E. Árnason.
Kristján R. Guð-
mundsson er sá sem
oftast hefur borið
sigur úr býtum í
Fossavatns-
göngunni eða alls
tólf sinnum. ■
Einkennisstafir
flugfélaga
AY Finnair
AZ Alitalia
BC Brymon Airways
Bl Royal Brunei Airlines
CO Continental Airlines
Cl China Airlines
CX Cathay Pacific
GA Garuda Indonesia
GN Air Gabon
HH Somali Airlines
HM Air Seychelles
IB Iberia
IR Iran Air
KE Korean Air
KX Cayman Airways
MS Egyptair
NH All Nippon Airways
OA Olympic Airways
PR Philippine Airlines
PZ Lineas Areas Paraguayas
QV Lao Aviation
RB Syrian Arab Airlines
RY Air Rwanda
SAA South African Airways
UA United Airlines
VN Air Vietnam