Morgunblaðið - 19.05.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.05.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1993 B 13 Þorkell Jón Kaldal byggingafræðingur og Gunnsteinn Skúlason, framkvæmdastjóri fyrir framan nýbyggingu Sólningar. í sumar er áformað að steypa upp efri hæðir hússins og taka þær í notkun fyrir veturinn. mjög áberandi og til þess fallnir að skipta byggingunni í sundur, hvað útlit varðar. Valmaþak Ofan á húsinu verður valmaþak og það látið ganga vel út fyrir vegg- ina. Þakið verður samfellt, þó að það líti út eins og mörg þök. — Þetta þak á að lúta öllum lögmálum varðandi gott valmaþak, segir Jón. — Á því verða engir staðir við- kvæmir fyrir því mikla álagi, sem stundum fylgir íslenzkri veðráttu. Að mati Jóns hafa íslendingum oft verið mislagðar hendur við þak- gerðina, þegar verið er að byggja hús. — Sums staðar má sjá langar verksmiðjubyggingar, þar sem þak- járnið er'látið ganga inn í steinvegg- ina, segir hann. — Áður fyrr ríkti hér slík ofurtrú á steinsteypunni, að hún var nánast talinn óforgengi- legt efni. En reynslan hefur leitt í ljós, að steinsteypan er ekki eílífðar- efni. Með réttum aðferðum má hins vegar draga úr hættunni á steypu- skemmdum með því að komast hjá viðkvæmum álagspunktum í upp- hafi og þannig losna við þau vanda- mál, sem þessu fylgir. — Sléttum þökum fylgdu vissir kostir, heldur Jón áfram. — Það var hægt að hanna húsin á frjálsari hátt, því að lagið á húsinu var ekki háð þakinu. Þar að auki voru þau ódýr. Þess vegna voru þau svo vin- sæl. Það var hægt að teikna húsin nánast hvernig sem var. Hönnunin verður fióknari með því að nota aðra þakgerð t. d. valmaþak, en slík atriði er alltaf hægt að leysa. Flötu þökin hafa hins vegar gefizt illa, þess vegna var hætt við þau. Síðan tóku við hallandi þök, sen náðu þó gjarnan ekki lengra en út að steinveggjunum. Þeir standa þá óvarðir gagnvart frostþiðu og ís- lenzka slagregninu. Þetta hefur ekki heldur gefizt vel. Þetta má leysa með því að láta þakið nú út yfir útveggina og það verður gert á þessu húsi nýja húsi Sólningar. — Valmaþök hafa þann kost fram yfir venjuleg mænisþök, að valma- þökin má nota ofan á flóknara grunnplan, segir Jón Kaldal að lok- um. — Valmaþök eru auk þess fal- leg. Þau skírskota beint til náttúr- unnar, en hún leitast við að forma landslag í valma, bæði fjöll og hæð- ir. Vaxandi endurvinnsla — Verksmiðja Sólningar hafði verið í mjög óhentugu húsnnæði og eftir að bruninn mikli varð í Gúmmí- vinnustofunni fyrir norkkum árum, lét ég gera úttekt á húsnæði okk- ar, segir Gunnsteinn Skúlason, framkvæmdastjóri og eigandi Sóln- ingar. — Þá kom í Ijós, að því var í ýmsu ábótavant og að mörgu leyti mjög ófullnægjandi með tilliti til brunavarna. Því fór ég þess á leit við Kópavogsbæ að fá úthlutað lóð fyrir þessá nýbyggingu. Hamraborg - Kóp. Til sölu falleg 3ja herb. íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi. íbúðin er parketlögð. Flísalagt baðherb., góðar innréttingar, suðursvalir, þvottaherb. á hæðinni. Bílskúr. Verð 6,5 millj. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. HRAUNHAMARhf FASTEIGNASALA Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirdi. Sími 54511. Starfsemi fyrirtækisins er aðal- lega fólgin í endurvinnslu á hjól- börðum. í nýju verksmiðjunni, sem er sérstaklega hönnuð fyrir þessa starfsemi, mun hráefnið koma inn um annan endann og fara síðan í gegnum verksmiðjuferilinn og enda sem fullbúin vara í hinum enda húsinn. — Við tökum við bíldekkjum, sem búið er að slíta, og setjum á þau nýtt slitlag, svo að þau verða not- hæf á ný, segir Gunnsteinn. — Þetta er ekki séríslenzk starfsemi, því að um allan heim eru starfrækt fyrir- tæki af þessu tagi og þau stærstu endurvinna gífurlegt magn af hjól- börðum. Þess má geta, að flestir hópferðabílar og vörubílar aka á sóluðum dekkjum fyrir utan mikinn fjölda einkabíla. Flugvélar eru eng- in undantekning, en þau fá sérstaka meðferð af öryggisástæðum eðli málsins samkvæmt. Hjá Sólningu hf. starfa að jafn- aði um 45 manns og allt upp í 60 manns á mestu álagstímunum, sem eru á vorin og á haustin, þegar bí- leigendur skipta um dekk. Auk starfseminnar í Reykjavík rekur fyrirtækið dekkjaverkstæði í Njarð- vík, Selfossi og á Egilsstöðum. Rekstur fyrirtækisms hefur gengið vel undanfarin ár. í fyrra var velta þess hátt í 400 millj. kr. og hagnað- ur um 11 millj. kr. — Það er mikil samkeppni í þessari grein, þar sem það eru fleiri fyrirtæki starfandi hér sem framleiða sóluð dekk. Auk þess erum við í samkeppni við inn- flutningsfyrirtækin á þessu sviði, sem flytja bæði inn sóluð dekk og ný- . — Eg tel, að við höfum staðizt samkeppnina á undanförnum árum og með nýjum og endurbættum vélakosti í nýju húsnæði ætti okkur að verða kleift að ná fram enn betri og hagkvæmari framleiðslu, heldur Gunnsteinn áfram. — Það hafa líka orðið miklar breytingar í endur- vinnslu á hjólbörðum og þær vélar, sem við notum nú, eni mjög líkar þeim vélum, sem notaðar eru við framleiðslu á nýjum hjólbörðum. Umhverfisvæn starfsemi Endui-vinnsla á hjólbörðum hefur farið vaxandi jafnt hér á landi sem í heiminum yfirleitt. — Þessi starf- semi sparar okkur íslendingum mikinn gjaldeyri og veitir auk þess fjölda manns atvinnu, segir Gunn- steinn. — Þar að auki er þetta umhverfisvæn vara, eins og kallað er. Með því að endurvinna eitt stórt dekk er verið að spara um 100 lítra af olíu og það er auðvelt að gera sér í hugarlund, hvað það þýðir á heimsvísu. Það hefur þvi verið mik- ill uppgangur í þessari starfsemi út um allan heim. Ætlunin er að selja megnið af húsnæðinu á efri hæðunum, en þeim er skipt í mjög hagkvæmar, sjálfstæðar einingar sem eru hver um 190 ferm. Á miðhæðinni er gert ráð fyrir verzlunum og þjón- ustustarfsemi og skrifstofum á efstu hæðinni. — Þessi byggirtg mun standa mjög frjálst, það er að segja að það verður ekkert byggt fyrir framan það og þar verða stór- ir gluggar með miklu útsýni, segir Gunnsteinn. — Byggingin stendur á stað, sem verður mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í framtíð- inni. Fífuhvammssvæðið svonefnda, sem er þarna í næsta nágrenni, á eftir að byggjast upp á næstu árum. Breiðholtsbrú og Sundahöfn eru ekki heldur langt undan og það er skammt í næstu bæjarfélög. Markaðsrannsóknafyrirtækið Gallup mun flytja með sína starf- semi í 300-400 fermetra húsnæði á efstu hæð byggingarinnar, auk þess sem Sólning- hf. verður þar með sínar skrifstofur. Að öðru leyti er efri hæðunum óráðstafað. — Bygg- ingakostnaður hússins liggur að sjálfsögðu enn ekki fyrir, segir Gunnsteinn Skúlason að lokum. — Eg tel samt, að hann verði mjög viðunandi. — Eg byggi þetta hús sjálfur, á sjálfur byggingakranann og mótin en er að sjálfsögðu með meistara að húsinu. Til viðbótar kemur, að ég hef unnið mikið við húsið með mínum starfsmönnum. Ég hef því getað ráðið bygginga- hraðanum sjálfur. Síðast en ekki sízt hef ég notfært mér vöruskipti í öllum efniskaupum á hagkvæman hátt. Þannig hef ég t. d. borgað fyrir steypuna með dekkjum. 29077 Skoðum og verðmetum eignir samdægurs. Einnig opið laugard. 13-15 Fannafold Einbýlis- og raðhús Glæsil. parh. 111 fm ásamt 30 fm bílsk. 3 svefnh. Rúmg. stofa. Flísal. baðh. Vand- aðar innr. Áhv. byggsj. o.fl. 5,0 millj. Verð 12,7 millj. Goðatún - Gbæ Einbhús 130 fm ásamt 40 fm bílsk. 4 svefnh., rúmg. stofa. Eldh. m. borðkrók. Stór lóð. Skipti mögul. á minni eign. Verð 11,2 millj. Jöldugróf Einbhús 136 fm ásamt tvöf. 51 fm bílsk. 4 svefnh. Rúmg. stofa, flísal. baðherb., stórt eldh. Skipti mögul. á 3ja-4ra herb. íb. Verð 12,0 millj . Hverfisgata m/vinnuaðst. 2ja hæða timburhús, forsk. að innan. 3 svefnh. og bað á efri hæð, stofa, stórt eldhús og gestasnyrt. á neðri hæö. Geymslukj. undir húsinu, samtals 177 fm. Að auki sambyggt steinhús ca 40 fm m. kj. Nýtist til eigin atvinnu eða útleigu. Salthamrar Glæsil. 182 fm einbhús þar af 35 fm bílsk. 4 rúmg. svefnherb., stór stofa, fallegt eld- hús, flísal. baðherb. Stór, fullfrág. garður. Áhv. 5,7 millj. þar af 5,0 millj. veðdeiid. Verð 15,5 millj. Aflagrandi Glæsil. raðh. um 187 fm m. innb. bílsk. 4 herb., baðherb. og gestasn. Sólstofa. Áhv. 9,7 millj. húsbr. Verð 16,0 millj. Gerðhamrar - sjávarlóð Glæsil. einbhús 200 fm ásamt 33 fm bílsk. Húsið skiptist í 2 svefn- herb, bað, eldh. og stofu á efri hæð, á jarðh. 3 svefnhberb., geymslur og snyrting. Stór verönd. Einstök staðsetn. vestast á nesinu með sjávarútsýni. Áhv. 5 millj. þarf af 4,5 veðdeild. Verð aðeins 16 millj. Nönnugata - hæð og ris Afburða glæsil. 6-7 herb. íb. á tveimur hæðum, samtals um 180 fm. Tvennar svalir. Frábært útsýni. Parket. Húsið er byggt 1984. Verð 13,6 millj. Hlíðarhjalli Kóp. Glæsil. 154 fm sérh. ásamt 26 fm bílskúr. 3-4 stór svefnherb. Rúmg. stofa. Stórar suðursv. Vandaðar innr, Góður garður. Fallegt útsýni. Áhv. 4 millj. þar af 3,4 mlllj. veðd. Verð 13,4 millj. Hlíðarás - Mos. Afburðaglæsil. 140 fm efri hæð í tvíb. 4 svefnherb. Arinn. Parket. Glæsil. útsýni. Vandaðar innr. Eign í sérfl. Áhv. 5 millj. veðd. o.fl. 4-5 herb. íbúðir Flúðasel Falleg 4ra herb. íb. á 1. hæð 100 fm. Flísal. hol. Rúmg.' stofa. 3 svefnherb. Góðar sólarsvalir. Verð 7,2-7,4 millj. Hraunbær - 4ra ásamt einstaklíb. 4ra herb. íb. á 2. hæð m. 3 svefnherb., rúmg. stofu, eldh. m. borðkróki, baðh. Einstaklíb. á 1. hæð. Eignin selst í einu lagi. Til afh. strax nýmáluð og með nýjum teppum. Kóngsbakki Falleg 4ra herb. íb. á 2. hæð. 3 svefn- herb. Þvottaherb. í íb. Rúmgóð stofa. Flí- sal. baðherb. Flúðasel 3ja-4ra herb. íb. á 3. hæð og i risi. 3 svefnh., stofa m. parketi, rúmg. baðh. m. tengt f. þvottav. Verð 7,1 millj. Vesturbær 4ra herb. íb. á efstu hæð í fjölb. um 100 fm. 3 svefnh. Eldh. m. góðum borðkrók. Rúmg. stofa. Fallegt útsýni. Verð 7,3 millj. Seljabraut Falleg 4ra herb. 115 fm íb. á 1. haaó. 3 svefnherb. i ib. eínnig 1 herb. í kj. m. aóg. að snyrt. Park- et. Stæði i bflskýli fylgir. Áhv. 2,6 mlllj. veSd. Verft 7,8 mlllj. 3ja herb. íbúðir Asgarður - ný íb. Glæsil. 3ja-4ra herb. íb. á 1. hæð m. sérinng. Svo til fullfrág. 2-3 svefnherb. Eldh. m. fallegri innr. Svalir. Verð 8,9 millj. Laugarnesvegur Falleg 3ja herb. íb. á 1. hæð 75 fm. 2 svefnherb., ágæt stofa. Svalir. Góður bakgarður. Áhv. 2,1 millj. veðd. Verð 6,5 millj. Furugrund 3ja-4ra Falleg 3ja herb. íb. 88 fm á 1. hæð ásamt herb. í kj. Fallegar innr. , flí- sal. baðherb. Húsið er nýl. málað. Verð 6,9-7,0 millj. Baughús Fallegt 187 fm parhús m. innb. 35 fm bílsk. Neðri hæð: 2 rúmg. svefnherb., snyrt., og þvcfttah. Efri hæð: Rúmg. stofa, eldh., 1-2 svefnh., baðherb. Glæsil. út- sýni. Áhv. húsbr. 6 millj. Verð 12,2 millj. Fossvogur - Kóp. Fallegt 127 fm raðhús á 2 hæðum. 4 svefnh. Rúmg. stofa m. suðursv. Einstök staðsetn. neðst í Fossvogsdal. Útivistar- svæði f. framan húsið. Verð 10,5 millj. I smíðum Reyrengi Glæsil. 193 fm einbhús m. innb. 34 fm bílsk. Selst fokh., fullfrág. utan. Vandað hús með steyptri loftaplötu, 4 svefn- herb., rúmg. stofu og arinn. Verð 9,8 millj. Háhæð Glæsil. 172 fm parh. m. innb. bílsk. Gert ráð fyrir 4 svefnh., gestasnyrt. og bað- herb. Rúmg. stofa. Húsið skilast fullfrág. utan, fokh. innan. Aðeins 1 hús eftir. Verð 9,1 míllj. Áhv. 6,0 mlllj. í húsbréfum. Berjarimi Glæsil. íb. á góðu verði Til sölu 2ja, 3ja og 4ra herb. íb. m. stæði í bílskýli. Verð 2ja herb. 5,8 millj. Verð 3ja herb. 6,6-6,9 millj. Verð 4ra herb. 8,1 millj. Selst tilb. til innr. m. fullfrág. sam- eign. Teikn. og nánari uppl. á skrifst. Baughús Glæsil. 187 fm parhús m. innb. 35 fm bílsk. Til afh. nú þegar fokh., fullfrág. að utan. Áhv. 5,0 millj. húsbr. Verð 8,4 millj. Sérhæðir Kópavogur - vesturbær Efri sérhæft í tvíbhúsi 129 fm ásamt 35 fm bílsk. Sérinng. Sérhiti. Framnesvegur 3ja herb. íb. á 3. hæð um 75 fm ásamt herb. í kj. 2 svefnherb. í íb., stofa, nýl. gler. Verð 6,1 millj. Tunguvegur - Hf. Efri sérhæð í tvíb. ásamt risi. 2 svefn- herb. Verð 6,0 millj. Áhv. 840 þús. veðd. 2ja herb. Háaleitisbraut Gullfalleg 2ja herb. íb. á jarðh. 48 fm. Parket. Sérsmíðuð eldhinnr. Suðurve- rönd. íb. er öll nýmáluð. Áhv. 2,6 millj húsbréf. Verð 5,3 millj. Holtsgata 2ja herb. kjíb. 52 fm. Rúmg. svefnh. Ágæt teppal. stofa. Eldhús með litlum borð- króki. Áhv. 2,5 millj. Vesturgata Falleg 2ja herb. íb. í nýl. húsi á 4. hæð, 64 fm. Rúmg. svefn'n., stór stofa. Svalir. Áhv. 3,2 millj. veðd. Verð 6,4 millj. Óðinsgata 2ja herb. íb. 46 fm á efri hæð í tvíbhúsi. Svefnherb., rúmg. stofa m. parketi. Tengt f. þvottav. á baði. Góðar geymslur í kj Verð 4,2 millj. Ásgarður - ný íb. Glæsil. 2ja herb. íb. á 1. hæð í nýju husi 65 fm m. sérinng. Skilast m. nýjum innr. og frág. sameign. Áhv. húsbréf 2,5 millj, Verð 6,8 millj. Bústaðavegur Falleg 2ja herb. 62 fm íb. á 1. hæð m sérinng. og sérhita. Áhv. veðd. og lífeyr issj. 3,0 millj. Laus strax. Verð 6,5 millj. Eskihlið Falleg 2ja herb. íb. 60 fm á 3. hæð. Eld hús m. borðkrók. Ágæt stofa. Vestursv. Verð 5,4 millj. Þverbrekka - laus strax Falleg 2ja herb. 47 fm íb. á 5. hæð. Stórgl útsýni. Verð aðeins 4,3 millj. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 38A, VIÐAR FRIÐRIKSSON, LÖGG. FASTEIGNASALI, HEIMASÍMI 27072.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.