Morgunblaðið - 24.06.1993, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993
dagskrq C 5
LAUOARPAGUR 36/6
MYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
OÞÆGILEG
RÉTTARHÖLD
SPENNUMYND
Mood Indigo - Mind ofa Killer
k k
Leikstjóri John Patterson. Hand-
rit Jacob Epstein og Ken Solarz.
Aðalleikendur Tim Matheson,
Alberta Watson, Giancarlo
Esposito, Claudia Christian.
Bandarísk sjónvarpsmynd. CIC
1992. CIC myndbönd 1993.91
mín. Bönnuð yngri en 16 ára.
Eiginkona sál-
fræðingsins Pet-
ers (Matheson)
var myrt af ein-
um sjúklinga
hans og mátti
hann síðan ganga
í gegnum óþægi-
leg réttarhöld til
að hvítþvo nafn
sitt, samt eru
ekki allir sammála um sakleysi
hans. Hann er fengin til að rann-
saka mál konu sem ákærð hefur
verið fyrir morð á bónda sínum. Sú
reynir sjálfsvíg og Peter fær að
kíkja í heilsufarsögu íjölskyldu
hennar til að fá botn í málið.
Matheson var á sínum tíma tals-
vert efnilegur leikari og fékk þá
hlutverk í myndum á borð við Ani-
mal House, Fletch og To Be or Not
to Be, en síðan hafa miðlungs sjón-
varps- og kapalmyndir verið lifí-
brauð mannsins. Mind of a KiIIer
hangir tæpast í meðallaginu til þess
er efnið alltof slitið og margbrúkað.
Sálfræðiþrillerar með nánast sama
söguþráð og draumsenur eru ótrú-
lega vinsælar hjá sjónvarpsmynda-
framleiðendum þessar stundirnar,
við líðum fyrir það. Ein slakasta
leikkona seinni ára, Claudia Christ-
ian (Hexed), er síst til að bæta hlut-
ina.
EIMGUM AÐ
TREYSTA
SPENNUMYND
Sólstingur - Sunstroke k k
Leikstjóri James Keach. Handrit
Duane Poole. Aðalleikendur Jane
Seymour, Stephen Meadows,
Steve Railsback, Ray Wise, Don
Amache. Bandarísk. CIC 1992.
CIC myndbönd 1993.90 mín.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Fögur kona, Teresa, (Seymour)
lætur tilleiðast og
tekur puttaferða-
lang upp í bíl sinn
þar sem hún er á
ferð um Arizona
eyðimörkina.
Hún er að reyna
að hafa upp á
dóttur sinni sem
hún hefur ekki
séð síðan hún
skildi því faðirinn (Wise) hélt með
hana á braut. En fyrir skömmu
fékk hún upplýsingar um að feðgin-
in væru í felum í Tuscon.
Teresa kynnist arkitektinum
Greg (Meadows), segir honum sorg-
arsöguna alla og býðst hann til að
aðstoða hana í dótturleitinni. En
er hann allur þar sem hann sýnist?
Og puttalingurinn finnst myrtur.
Spennumynd á hefðbundnu nót-
unum, gerð fyrir kapal og leikstýrð
af leikaranum James Keach, Stac-
eys bróðir. Sjálfsagt er myndin
kunnust fyrir að hér leiddu þau
saman hesta sína leikstjórinn og
Seymour hin breska og úr varð
hjónaband. Annars er leikur Seymo-
ur allur hinn hörmulegasti og ekki
bætir úr skák fyrir dömunni að hún
rembist við Suðurríkjaframburð
sem hún ræður illa við. Og gleym-
ir, svona stundum. Railsback og
Wise, báðir skínandi skapgerðar-
leikarar á góðum degi, fá lítið að
tjá sig. Það er helst að Don gamli
Amache hressi upp á kunnuglega
framvinduna. En Sólstingur er
sómasamlega gerð í flesta staði og
flokkast sem meðalafþreying.
AF
UTANGARÐS-
MÖNNUM
DRAMA
Sam og ég - Sam and Me k * 'U
Leikstjóri Deepa Mehta. Handrit
Ranjit Chowdhry. Aðalleikendur
Chowdhry, Peter'Boretsky, Om
Puri. Kanadisk sjónvarpsmynd.
ITC 1992. SAM-myndbönd 1993.
90 mín. Ölium leyfð.
Þessi óvenju-
lega, kanadíska
mynd, gerð og
skrifuð af ind-
veijum, íjallar
um tvo minni-
hlutahópa í Norð-
ur-Ameríku, ind-
veija og gyðinga,
eða kannski öllu
frekar indveija
og gamalmenni. Nik (Chowdhry)
er nýkominn til Kanada fyrir at-
beina frænda síns, læknisins Puri.
Meiningin að halda það út í landinu
í fimm ár, snúa síðan aftur til
heimalandsins sem milljóneri af
brotunum sem þeir fá að hirða af
gnægtaborði kanadamanna.
Nik fær þann starfa að gæta
erfiðs gamalmennis, Sam, gyðings
sem er bæði sérvitur og kenjóttur.
Nik, sem finnur að hann er horn-
reka í vestrænu þjóðlífi og Sam,
sem er lítið betur settur undir smá-
sjá sonar hans, verða perluvinir.
Það er svo sannarlega gaman að
sjá vináttuna blómstra í höndum
tveggja stórgóðra leikara. Handrit
annars þeirra, Chowdhry, er bæði
athyglisvert og forvitnilegt; áhorf-
andinn fær þó nokkra innsýn í þau
kjör sem jaðarhópar búa við á Vest-
urlöndum. Það blasir við að ekki
er öfundsvert hlutskipti að vera
gamall og því síður Asíubúi eftir
þessari umfjöllun að dæma. Þetta
einstaka samband er því miður allt-
of stuttaralegt og nær ekki að koma
öllu því til skila sem örugglega ligg-
ur Chowdhry á hjarta. Engu að síð-
ur er fengur í þessari óvenjulegu
og hlýju mynd sem syndir svo sann-
arlega á móti straumnum. Og Om
Puri (City of Joy) er kröftugur og
tjáningarríkur leikari sem ánægju-
legt er að fylgjast með.
BÍÓMYNDBÖND
Sæbjöm Valdimarsson
Leyniskyttan - Sniper kk
Með ólíkindum skammsýn has-
armynd, með ótrúlega aulalegum
atriðum en nokkrum sæmilegum
brellum. Ein af mörgum sem eru
að leggja feril Tom Berenger í rúst.
Þó mun skárri á skjánum en tjald-
inu. Leikstjóri Louis Llosa.
FÓLK
MPropaganda Films, fyrirtæki
Sigurjóns Sighvatssonar og Ste-
vens Golins, framleiðir m.a. þessa
dagana myndaflokk fyrir sjónvarps-
stöðina NBC sem ber heitið Þjóð-
vegur 66 eða Route 66. Þetta er
endurgerð þáttaraðar sem var mjög
vinsæl í Bandaríkjunum á árunum
1965 til 1970. Þetta eru klukku-
stundarlangir þættir um tvo náunga
sem eru á ferðalagi í Corvettu, sem
stoppa hér og þar á leiðinni og
hjálpa fólki við ýmsar aðstæður.
Einn aðalleikari Þjóðvegar 66 er
Dan Cortese. Hann var stjórnandi
íþróttaþáttar á MTV og nýtur mik-
illar hylli hjá kvenþjóðinni. Cortese.
sem er 25 ára gamall segir að hann
vilji ekki vera eingöngu þekktir sem
hjartaknúsari.
Hvað í ósköpunum
gerir þetta fólk?
Margir sjónvarpsáhorfendur og kvik-
myndahúsagestir horfa oft á myndir þar
til síðustu starfstitlarnir hafa rúllað í
gegn og velta fyrir sér hvað allt þetta
fólk sem getið er geri. Islenskir áhorf-
endur sjá starfsheitin oftast nær á ensku
og gefa mörg þeirra litla vísbendingu
um starfssvið viðkomandi. Starfstitlar
eins og „gaffer“ og „best boy“ segja
manni ekki mikið.
Undarleg
starfsheiti í
kvikmyndaidn-
aðinum eru
ofureinföld á
íslensku
Það sýnir vel hvað ensku starfs-
heitin eru ógagnsæ að Bandaríkja-
menn og Bretar vita almennt ekki
hvað þau þýða. í sumum kvik-
myndahúsum í Bandaríkjunum eru
stuttar skýringar á þessum starfs-
heitum jafnvel sýndar á milli aug-
lýsinga áður en sýning hefst. Þetta
gefur til kynna að margir hafi
áhuga á því að vita hvað öll þessi
starfsheiti þýða.
Hvað gerir hver?
íslenskir kvikmyndagerðarmenn
hafa gefið út bók sem inniheldur
skýringar á ýmsum af þessum
starfsheitum. Bókin heitir einfald-
lega Starfslýsingar kvikmynda-
gerðarmanna. Þar er að fínna ís-
lensk heiti á flestum þeim störfum
sem lúta að kvikmyndagerð ásamt
starfslýsingu.
Hvað gera þá „gaffer“ og „best
boy“ eftir allt saman? Sá fyrr-
nefndi er ljósamaður og sá síðar-
nefndi aðstoðarmaður hans. Þeir
sjá um lýsingu og raftæki, og passa
upp á að allt sé rétt tengt. Þeir
hafa stundum gripil sér til aðstoð-
ar. Griplar, „(key) grip“ á ensku,
sjá um flutning á kvikmyndatöku-
tækjum á milii staða. „Dolly grip“
er gripill sem sérhæfir sig m.a. í
uppsetningu teina og ýtir sicjpn
kvikmyndatökuvélinni á eftir þeim
þegar leikararnir rölta um upp-
tökustaðinn.
„Foley artist" og „continuity
adviser“ heita einfaldlega á ís-
lensku leikhljóðameistari og
skrifta. Leikhljóðameistarinn býr
til áhrifahljóð. Samkvæmt gömlum
brandara eyðir hann starfsævinni
í það að slá saman kókoshnetum
til þess að líkja eftir hestum á
þeysireið.
Skrifta hefur mjög mikilvægu
hlutverki að gegna við gerð kvik-
mynda. Hún eða hann passar m.a.
upp á að engin mistök verði í sam-
hengi. Þetta er nokkuð sem enginn
tekur eftir nema gerð séu mistök.
Sem dæmi um slík mistök er atriði
úr myndinni „Pet Semetry" þar
„Best boy“ - Aðstoðarmaður
ljósmanns sér um uppsetningu
Ijósa.
„Key grip“ - Gripill þarf að
geta unnið erfiðisvinnu.
sem aðalieikarinn situr við hlið
grafreits sem er fagurlega skreyt-
ur fjólubláum blómum. Sekúndu
seinna, í næsta skoti, eru blómin
gul. Þarna hefur skriftan ekki nót-
erað hjá sér nógu .nákvæmar upp-
lýsingar.
Mikil ábyrgð
„Clapper loader person“ og
„looping editor" eru tvö önnur
starfssvið sem vel má kynna. Það
fyrrnefnda felur í sér að setja filmu
í vélina og að slá saman klapptrénu
og hrópa „Taka eitt“ o.s.frv. Fólk
telur kannski ekki mikla ábyrgð
falda í því að slá saman klapptréi,
en það þjónar engu að síður lykilat-
riði þegar skeyta á saman kvik-
mynd. Sá sem sér um þetta starf
á íslandi ber titilinn annar aðstoð-
armaður tökumanns. „Looping ed-
itor“ er hljóðmeistari. Hann sér um
það að kvikmyndahúsagestir heyri
hvert orð sem leikari stynur upp.
UTVARP
RÁS 1
IM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir.
6.55 Bæn.
7.00 Fréttir. Söngvaþing Morgrét Eg-
gertsdóttir, Snmkór Selfoss, Kór Fjöl-
brautoskólo Suöurlonds, Árnesingokórinn
i Rvik, Þorsteinn Honnesson, Somkór
Kópovogs, Elin Sigurvinsdóttir, Þokkobót,
Anno Pólino Árnodóttir, Eyjólfur Kristjóns-
son og Ási i Bæ syngja.
7.30 Veðurfregnir. Söngvoþing heldur
ólrom.
8.00 Fréttir.
8.07 Músik oó morgni dogs. Umsjón:
Svanhildur Jokobsdóttir.
8.30 Fréttir ó ensku.
8.33 Músik oó motgni dags heldur ólrom.
9.00 Fréttir.
9.03 Funi. Helgorþóttur borno. Umsjón:
Elisobet Brekkon. (Einnig útvorpoó kl.
19.35 ó sunnudogskvðldi.J
10.00 Fréttir.
10.03 Lönd og lýðir. Póllond. Umsjón:
Þorleifur Friðriksson.
10.45 Veóurfregnir.
11.00 í vikulokin. Umsjón: Póll Heiðor
Jónsson.
12.00 Útvarpsdogbókin og dogskró loug-
ordogsins
12.20 Hódegisfréttir
12.45 Veóurfregnir. Auglýsingor.
13.00 Fiéttaouki ó lougordegi
14.00 Hljóðneminn. Dogskrórgeróarfólk
Rósor 1 þteifor ó lifinu og listinni. Um-
sjón: Stefón Jökulsson.
16.00 Fréllir.
16.05 í þó gömlu góðu
16.30 Veóurfregnir.
16.35 Mólgleði. Leikir oð orðum og rnóli.
Umsjón-. lllugi Jökulsson.
17.00 Tónmenntir Metropoliton-óperan.
Umsjón: Rondver Þorlóksson. (Einnig út-
vorpoó næsto mónudog kl. 15.03.)
18.00 „Happdrættið", smósogo eftir Shir-
ley Jotkson. Kristjón Korlsson þýddi. Anno
Sigriður Einorsdóllir les.
18.48 Dónorfregnir. Auglýsingor.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Auglýsingor. Veðurfregnir.
19.35 Djossþóttur. Umsjón: Jón Múli Árno-
son. (Áóur útvorpaó þriójudogskvöld.)
20.20 Loufskólinn. Umsjón: Horoldut
Bjornoson. (Fró Egilsstöðum. Áður útvorp-
oó sl. miðvikudog.)
21.00 Soumastofugleði. Umsjón og dons-
stjórn: Hermonn Rognor Stefónsson.
22.00 Fréttir. Dogskró morgundogsins.
22.07 Litill hornkonsert eftir Carl Morio
von Weber. Anthony Holsteod leikur ó
horn með The Honover Bond; stjórnondi
Roy Goodmon.
22.27 Orð kvöldsins.
22.30 Veðurfregnir.
22.36 Lengto en nefið næt. Frósögur of
fólki og fyrirburðum, sumor ó mörkum
rounveruleiko og imyndunor. Umsjón:
Morgrét Erlendsdóttir. (Fró Akureyri.)
(Áður útvorpoó i gær kl. 14.30.)
23.05 Lougordogsflétto. Svonhildur Jok-
obsdóttir fær gest í létt spjoll með Ijúfum
tónum, oð þessu sinni Eddu Þórorinsdótt-
ur leikkonu. (Einnig útvorpoð ó föstudog
kl. 15:03)
24.00 Fréttir.
0.10 í djoss og blússveiflu. Helen Hu-
mers, Soroh Voughon, Joe Willioms, Al-
berto Hunter og fl. syngjo.
1.00 Næturútvarp ó somtengdum rósum
lil morguns.
Joe Williams.
RÁS 2
FM 90,1/94,9
8.05 Stúdið 33. Örn Petersen flytur létto
norræno dægurtónlist úr stúdiói 33 i Koup-
monnohöfn. (Áður útvorpoð sl. sunnudag.)
9.03 Þetto lif. Þetto lif. Þorsteinn J. Vil-
hjólmsson. Veðurspó kl. 10.45. 11.00 Helg-
orúlgófon. Helgorútvorp Rósar 2. Koffigestir.
Umsjón: Liso Pólsdóttir og Mognús R. Einors-
son. 12.20 Hódegisfréttir. 12.45 Helgor-
útgófon. Dogbókin. Hvoð er oð gerost um
helgino? itorleg dogbók um skemmtonir,
leikhús og ollskonor uppókomur. Helgorútgóf-
on ó ferð og flugi hvor sem fólk er oð finno.
14.00 Ekkifréttoauki ó laugordegi. Ekkifrétt-
ir vikunnor rifjaðar upp og nýjum bætt við.
Umsjón: Houkur Houks. 14.40 Tilfinningo-
skyldon. 15.00 Heiðursgestur Helgorútgóf-
unnor litur inn. Veðurspó kl. 16.30. ló.31
Þorfoþingið. Umsjón: Jóhonno Harðordótlir.
17.00 Vinsældorlisti Rósar 2. Umsjón:
Snorri Sturluson. (Einnig útvorpoó i Næturút-
vorpi kl. 02.05.) 19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Rokktiðindi. Skúli Helgoson segir
rokkfréttir af erlendum vettvongi. 20.30
Ekkifréttaouki ó lougordegi. Umsjón: Houkur
Houksson. (Endurtekinn (jóttur úr Helgorút-
gófunni fyrr um doginn.) 21.00 Vinsældo-
listi götunnor. Hlustendur veljo og kynno
uppóholdslögin sin. (Áður útvorpoð miðviku-
dagskvöld.) 22.10 Stungið of. Kristjón Sig-
urjónsson og Gestur Einor Jónosson. (Fró
Akuteyri.) Veðurspó kl. 22.30. 24.00 Frétt-
ir. 0.10 Næturvokt Rðsor 2. Umsjón: Arn-
or S. Helgoson. Næturúfvorp ó somtengdum
rósum til morguns.
Frittir kl. 7, 8, 9, 10, 12.20, 16,
19, 22 og 24.
NCTURÚTVARPIÐ
1.30 Veðurfregnir. Næturvakt Rósor 2 held-
ur. ófrom. 2.00 Fréttir. 2.05 Vinsældolisti
Rósor 2. Snorri Sturluson kynnir. (Endurtek-
inn þóttur fró lougordegi.) 5.00 Fréttir.
5.05 Næturtónor. 6.00 Fréltir of veðri,
færð og flugsomgöngum. Veðurfregnir kl.
6.45 og 7.30. Næturtónor holdo ófrom.
AÐALSTÖDIN
90,9 / 103,2
9.00 Lougordagsmorqun ó Aðolstöðinni.
Þægileg og róleg tóníisl i upphofi dogs.
13.00 Léttir i lund. Böðvor Berfsson og
Gylfi Þór Þorsteinsson. 17.00 Korl Lúðviks-
son. 21.00 Næturvoktin. Óskolög og kveðj-
ur. Haroldur Doði Rognorsson. 1.00 Ókynnt
tónlist til morguns.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Morgunténor. 9.00 Morgunútvorp ó
lougordegi. Fréttir kl. 10, 11 og 12. 12.15
Við erum við. Þorsteinn Ásgeirsson og Ágúst
Héðinsson. Létt og vinsæl lög, ný og göm-
ul. Fréttir of iþróttum og otburðum helgarinn-
or og hlustoð er eftir hjortslætti monnlifs-
ins. Fréttir kl. 13, 14, 15, 16. 16.05 is-
lenski listinn. Jón Axel Ólofsson. Dogskró-
gerð: Ágúst Héðinsson. Framleiðondi: Þor-
steinn Asgeirsson. Fréttir kl. 17. 19.30
19:19. Fréttir og veður. Somsend útsending
fró fréttostofu Stöðvor 2 og Bylgjunnor.
20.00 Siðbúið sumorkvöld. 23.00 Hofþór
Freyr Sigmundsson. Hressilegt lokk fyrir þó
sem eru oð skemmto sér og öðrum. 3.00
Næturvaktin.
BYLGJAN, ÍSAFIRDI
FM 97,9
9.00 Sjó dogskró Bylgjunnor FM 98,9.
19.19 Fréttir. 20.00 Kristjón Geir Þorléks-
son. 22.30 Kvöldvokt FM 97,9. 2.00
Næturvokt Bylgjunnot.
BROSID
FM 96,7
9.00 Á Ijúfum lougordogsmotgni. Jón Grön-
dol. 13.00 Böðvar Jónsson og Péll Sævor
Guðjónsson. 16.00 Gomla góðo diskótón-
listin. Ágúst Mognússon. 18.00 Doði Mogn-
ússon. 21.00 Upphitun. 24.00 Nætur-
vokt. 3.00 Næturtónlist.
FM 957
FM 95,7
9.00 Lougordogur i lit. Björn Þór Sigur-
bjötnssons, Helgo Sigrún Horðordóttir og
Holldór Bockmon. 9.30 Gefið Bokkelsi. 10.00
Afmælisdogbókin. 10.30 Stjörnuspóin. 11.15
Getrounohornið 1x2. 13.00 íþróttofréttir.
14.00 islenskir hljómlistorraenn. 15.00 Mot-
reiðslumeistorinn. 15.30 Afmælisbam vik-
unnor. 16.00 Hoilgrimur Kristinsson.
16.30 Getroun. 18.00 íþróttofréttir. Get-
rounir. 19.00 Axel Axelsson. 22.00 Loug-
ardogsnæturvokt Sigvaldo Koldolóns. Portý-
leikurinn. 3.00 Laugordogsnæturvokt.
SÓLIN
FM 100,6
10.00 Jóhonnes og Júlíus. 14.00 Gomon-
serai guðanno. 18.00 Ókynnt. 19.00 Út
í geim. Þórhollur Skúloson. 22.00 Glund-
roði og ringulreið. Þór Bæring og Jón G.
Geirdal. 22.01 Pizzur gefnor. 22.30 Tungu-
mólokennsla. 23.30 Smóskifo vikunnor brot-
in. 1.00 Næturvoktin. 4.00 Ókynnt tónlist
til morguns.
STJARNAN
FM 102,2
9.00 Tónlist. 12.00 Hódegisftéttir.
13.00 Bondoriski vinsældolistinn. 16.00
Noton Horðorson. 17.00 Siðdegisfréttir.
19.00 íslenskit tónor. 19.30 Kvöldfréttir.
20.00 Dreifbýlistónlistorþóttur Les Roberts.
1.00 Dogskrórlok.
Banostundir kl. 9.30 og 23.50.
ÚTRÁS
FM 97,7
12.00 M.S. 14.00 M.H. 16.00 F.Á.
18.00 F.G. 20.00 M.R. 22.00 F.B.
24.00-3.00 Vokt.
ÚTVARP HAFNARFJÖRÐUR
FM91.7
17.00 Listohátíðorútvorp. 19.00 Dogskró-
lók.