Morgunblaðið - 24.06.1993, Qupperneq 6
6 C dqgskrc
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993
SUNWIPAGIIR 27/6
Sjónvarpið
9 00 RADIIAFFIil ►Mor9unsi°n-
Dflnnncrm varp barnanna
Kynnir er Rannveig Jóhannsdóttir.
Heiða Þýskur teiknimyndaflokkur
eftir sðgum Jóhönnu Spyri. Þýðandi:
Rannveig Tryggvadóttir. Leikraddir:
Sigrún Edda Björnsdóttir. (26:52)
Leikföng á ferðalagi Brúðuleikur
eftir Kristin Harðarson og Helga
Þorgils Friðjónsson. Hanna María
Karlsdóttir les. Sjöundi þáttur. Frá
1986. Gosi Fyrsti þáttur teikni-
myndaflokks um spýtustrákinn vin-
sæla. Þýðandi: Jóhanna Þráinsdóttir.
Leikraddir: Aðalsteinn Bergdal.
(1:52) Hlöðver grís Enskur brúðu-
myndaflokkur. Þýðandi: Hallgrímur
Helgason. Sögumaður: Eggert Kaab-
er. (19:26) Felix köttur Bandarískur
teiknimyndaflokkur um köttinn sí-
hlæjandi. Þýðandi: Ólafur B. Guðna-
son. Leikraddir: Aðalsteinn Bergdal.
(24:26)
10.35 Þ-Hlé i
16.50 ►Slett úr klaufunum Sumarleikur
Sjónvarpsins. Þættir þessir verða á
dagskrá annan hvern miðvikudag í
sumar. Farið verður í spumingaleik
í sjónvarpssal og lagðar þrautir fýrir
þátttakendur úti um víðan völl. Kvik-
myndagerðar-maðurinn Siggi Zoom
fylgist grannt með öllu sem fram fer
og festir á filmu. í þessum þætti eig-
ast við fallhlífarstökkvarar og stang-
veiði-menn. Umsjónarmaður þáttar-
ins er Felix Bergsson og Magnús
Kjartansson sér um tónlist og dóm-
gæslu. Dagskrárgerð annast Björn
Emilsson. Aður á dagskrá 23. júní.
17.35 ►Sfldarréttir Þriðji þáttur af fjórum
þar sem Werner Vögeli forseti al-
heimssamtaka matreiðslumeistara
matreiðir úr íslenskri síld. Umsjón:
Sigmar B. Hauksson. Áður á dag-
skrá 9. nóvember 1989.
17.50 ►Sunnudagshugvekja Séra Pétur
Þórarinsson í Laufási í Eyjafirði flyt-
ur.
18.00 ►Sagan um systkinin (En god hi-
storie for de smá - Sagan om lille
bror) Sænsk bamamynd. Þýðandi:
Edda Kristjánsdóttir. Lesari: Ragnar
Halldórsson. (Nordvision - Sænska
sjónvarpið) Áður á dagskrá 12. apríl
1992. (3:3)
18.25 ►Fjöiskyldan í vitanum (Round the
Twist) Ástralskur myndaflokkur um
ævintýri Twist-fjölskyldunnar sem
býr í vita á afskekktum stað. Þýð-
andi: Guðni Kolbeinsson. (9:13)
18.50 ►Táknmálsfréttir
19.00 ►Roseanne Bandarískur gaman-
myndaflokkur. Aðalhlutverk: Rose-
anne Arnold og John Goodman. Þýð-
andi: Þrándur Thoroddsen. (9:26)
19.30 ►Auðlegð og ástríður (The Power,
the Passion) Ástralskur framhalds-
myndaflokkur. Þýðandi: Jóhanna
Þráinsdóttir. (123:168)
20.00 ►Fréttir og íþróttir
20.35 ►Veður
20.40 ►Húsið í Kristjánshöfn (Huset pá
Christianshavn) Sjálfstæðar sögur
um kynlega kvisti sem búa í gömlu
húsi í Christianshavn í Kaupmanna-
höfn og næsta nágrenni þess. Þýð-
andi: Olöf Pétursdóttir. (22:24)
21.10 ►Heimsókn islenskir listamenn á
menningarviku Norðurlanda í Fær-
eyjum. Meðal listamanna sem fram
koma eru Einar Már Guðmundsson,
Bubbi Morthens og Thor Vilhjálms-
son. Auk þess er brugðið upp svip-
myndum frá sýningu Tolla og sýnd
brot úr mynd Ásdísar Thoroddsen,
Inguló. Dagskrárgerð: Guðbergur
Davíðsson.
21.45 |#«|||# 11YHH ►Svikamylla (To
nilnmlnU Be the Best)
Bresk/bandarísk sjónvarpsmynd í
tveimur hlutum byggð á sögu eftir
Barböru Taylor Bradford. Þetta er
spennandi saga um Paulu O’Neill,
tilvonandi erfíngja veldisins mikla
sem kjamakonan Emma Harte skildi
eftir sig. Morð, svik og fjölskylduerj-
ur drífa söguna áfram og ógna tii-
veru ungu konunnar. Síðari hluti
myndarinnar verður sýndur næst-
komandi miðvikudagskvöld. Leik-
stjóri: Tony Wharmby. Aðalhlutverk:
Lindsay Wagner, Anthony Hopkins,
Stuart Wilson, Stephanie Beacham
og Fiona Futlerton. Þýðandi: Kristrún
Þórðardóttir. Fyrri hluti. (1:2)
23.20 ►Útvarpsfréttir í dagskrárlok
STÖÐ tvö
9 00 RADUAFFUI ►Skógarálfarnir
DAIIflflCrni Teiknimynd með
íslensku tali.
9.20 ►Sesam opnist þú Talsettur leik-
brúðumyndaflokkur um Árna, Berta,
Kermit, Kökuskrímslið og vini þeirra.
9.45 ►Umhverfis jörðina í 80 draumum
Teiknimyndaflokkur með íslensku
tali.
10.10 ►Fjallageiturnar Teiknimynd um
fjallageiturnar sem að sjálfsögðu tala
íslensku.
10.35 ►Ferðir Gúllívers Ævintýrleg, tal-
sett teiknimynd gerð eftir þessum
heimsþekktu sögum.
11.00 ►Kýrhausinn Forvitnilegt efni úr
ýmsum áttum; efni, tengt óvenjuleg-
um dýrum, framandi löndum og ótal
mörgu öðru, til fróðleiks og skemmt-
unar. Stjómendur: Benedikt Einars-
son og Sigyn Blöndal. Umsjón: Gunn-
ar Helgason. Dagskrárgerð: María
Maríusdóttir.
11.40 ►Kaldir krakkar (Runaway Bay)
Nú er komið að lokaþætti þessa
leikna myndaflokks fyrir börn og
unglinga. (13:13)
13 00IÞROTTIR
KVIKMYND
14.00 |
12.00 ►Evrópski vinsældalistinn (MTV -
The European Top 20) Tuttugu vin-
sælustu lög Evrópu kynnt í þessum
hressilega tónlistarþætti.
►ÍÞróttir á sunnu-
degi
► Hver er stúlkan?
(Who’s That Girl?) í
þessari spennandi gamanmynd leikur
kynbomban Madonna ungfrú Nikki,
lífsglaða og villta stúlku sem var í
fangelsi fyrir glæp sem hún framdi
ekki. Louden Trott, reglusamur og
metnaðargjam lögfræðingur, fær
það verkefni að fylgja dömunni úr
fangelsinu og út á flugvöll. Aðalhlut-
verk. Madonna, Griffin Dunne, Havi-
land Morris og Hohn McMartin. Leik-
stjóri: James Foley. 1987. Mynd-
bandahandbókin gefur 'h
15.30
ÞÆTTIR
►Saga
MGM-kvik-
When the Lion Roars) Þáttaröð þar
sem saga fyrirtækisins er rakin frá
upphafi í máli og myndum. (3:8)
16.30 ►Imbakassinn
17.00 ►Húsið á sléttunni (Little House
ön the Prairie) Hlýr og mannlegur
fjölskylduþáttur um hinu góðkunnu
Ingalls-Ijöikyldu. (21:24)
17.50 ►Aðeins ein jörð Endurtekinn þátt-
ur frá síðastliðnu fímmtudagskvöldi.
18.00 ► 60 mínútur Bandarískur frétta-
skýringaþáttur.
19.19 ►19:19Fréttir og veður.
20.00 ►Handlaginn heimilisfaðir (Home
Improvement) Bandarískur gaman-
myndaflokkur sem vermdi efstu sæti
vinsældalistans þar vestanhafs allan
síðasta vetur. (3:22)
20.30 ►Töfrar tónlistar (Concerto!) Nú er
komið að lokaþætti þessarar bresku
þáttaraðar þar sem Dudley Moore
hefur leitt áhorfendur inn í heima
sígildrar tónlistar. (6:6)
21.30 IfUIIIIIVUn ► Draumaprinsinn
IWIIVmilIU (She’II Take Ro-
mance) Linda Evans, sem margir
þekkja úr myndaflokknum Ættar-
veldið, leikur Jane McCormic í þess-
ari rómantísku kvikmynd. Jane er
ákaflega jarðbundin og ákveðin kona
sem starfar við að segja veðurfréttir
á sjónvarpsstöð. Hún er ánægð með
starfið, elskar unglingsdóttur sína
og er mjög sátt við unnusta sinn,
Warren Dennis. Warren er skynsam-
ur, áreiðanlegur og alltaf í góðu jafn-
vægi. Hvaða aðra kosti gæti kona
beðið um að maðurinn hennar hefði?
Það er hægt að hugsa sér ýmislegt
eins og Jane uppgvötvar óvænt þegar
hún er skotin með ástarör í sitt vam-
arlausa hjarta. Aðaihlutverk: Linda
Evans, Tom Skerrit, Larry Pointexter
og Heather Tom. Leikstjóri: Piers
Haggard. 1990.
23.00 ►Charlie Rose og Alice Walker í
kvöid er Alice Walker gestur blaða-
mannsins.
23:50 IfUllfUVUn ►Leyndarmál
nllnlnlflU (Shadow Makers)
Lokasýning. Bönnuð börnum.
Myndbandahandbókin gefur ★ Vi
1.55 ►Dagskrárlok
Draumaprinsinn - Jane er stolt af því að hafa báðar
fætur á jörðinni.
Rómantískasti
madur bæjarins
Jane
McCormick
hefur enga trú
á rómantík
STÖÐ 2 KL. 21.30 Það er engin
önnur en Dynastydrottningin Linda
Evans sem fer með aðahlutverk
þessarar gamansömu bandarísku
sjónvarpsmyndar. Jane McCormick
(Evans) hefur enga trú á rómantík
og blómavöndum og er stolt af því
að vera með báða fætur á jörðinni.
Fréttastofa er að leita að rómantísk-
asta manni bæjarins og Jane er dóm-
ari í keppninni. Það líður ekki löngu
uns hún er beinlínis umsetin af karl-
mönnum.
Tónleikar með
Bubba Mortens
Mynd um
íslenska
menningarviku
í Þórshöfn í
Færeyjum
SJÓNVARPIÐ KL. 21.10 Dagana
17. til 24. febrúar var haldin íslensk
menningarvika í Norðurlandahúsinu
í Þórshöfn í Færeyjum. Guðbergur
Davíðsson kvikmyndagerðarmaður
fylgdist með því sem fram fór og
hefur gert hálfrar klukkustundar
mynd um heimsókn íslensku lista-
mannanna. Meðal annars er brugðið
upp svipmyndum frá myndlistarsýn-
ingu Tolla og ljóðaupplestri Einars
Más Guðmundssonar. Sagnameist-
arinn Thor Vilhjálmsson treður upp
og sýnd eru brot frá tónleikum
Bubba Morthens. Sýnt er úr mynd
Ásdísar Thoroddsen, Inguló og þijú
færeysk skáld lesa ljóð sín. Auk
þess er í myndinni rætt við Jóhann
Hendrik Poulsen prófessor og lista-
mennina Trónd Paturson og Gunnar
Hoydal.
Töfrar tónlistar - Dudley
Moore er sljórnandi þátt-
anna.
Veric
eftir
Choplan
íTöfrum
tónlistar
Richard
Stoltzman
flytur konsert
fyrir klarinett
eftir Choplan
STÖÐ 2 KL. 20.30 í kvöld
fáum við að fylgjast með æf-
ingum og flutningi Richards
Stoltzman og Sinfóníhljóm-
sveitar Lundúna á konsert fyr-
ir klarinett eftir Coplan. Ein-
leikarinn Richard Stoltzman er
fæddur í Bandaríkjunum og
hefur vakið mikla athygli fyrir
einstaka tækni og gífurlega
fjölhæfni. Klarinettið leikur í
höndunum á Richard og honum
ferst jafn vel úr hendi að leika
sígild verk með stórum hljóm-
sveitum og að spila léttleikandi
jass með litlum grúbbum. Um-
sjónarmaður þáttarins er gam-
anleikarinn Dudley Moore en
hann segir sögu verksins sem
fiutt verður, spjallar við Ric-
hard og fer með áhorfendum á
æfingar hjá Sinfóníuhljóm-
sveitinni. Stjómandi hljóm-
sveitarinnar er Michael Tilson
Thomas.
Fjölskylduátök - Jonathan Ainslay (Christopher Cazenove) og Arabella Erfinginn -
(Stephanie Beacham) eru hættulegt par. Paula O’Neill.
Frændi erfingjans setur
af stað mikla svikamyllu
Svikamylla er
framhald af
ættarsögunni
sem hófst með
myndaflokkn-
um um
kjarnakonuna
Emmu Harte
SJÓNVARPIÐ KL. 21.45 Fyrir all-
löngu var sýndur í Sjónvarpinu
myndaflokkur um kjarnakonuna
Emmu Harte sem braust úr sárri
fátækt og byggði upp mikið versl-
unarveldi. Nú hefur verið gerð mynd
í tveimur hlutum eftir sögu Barböru
Taylor Bradford og er hún sjáif-
stætt framhald sögunnar um Emmu
Harte. Paula O’Neill er tilvonandi
erfíngi veldisins sem Emma byggði
upp forðum en ættingi hennar, Jon-
athan Ainsley, setur af stað mikla
svikamyllu og hefur í hyggju að
sölsa undir sig auðæfin með öllum
tiltækum ráðum. Þetta er spennandi
saga um morð, svik og fjölskylduá-
tök og leikurinn berst víða um heim,
til Hong Kong, Macau, Lundúna og
New York. Seinni hluti myndarinnar
verður sýndur miðvikudaginn 30.
júní. Leikstjóri er Tony Wharmby
og í aðalhlutverkum eru Lindsay
Wagner, Anthony Hopkins, Step-
hanie Beacham, Christopher Caz-
enove, Stuart Wilson, James Saito
og Fiona Fullerton. Kristrún Þórðar-
dóttir þýðir myndina.