Morgunblaðið - 24.06.1993, Qupperneq 12
12 C dqgskrc
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993
Gömlu sjónvarpsstöðvamar
tapa yfirburðastöðu sinni
ErU Bandaríkjamenn að HUNDRAÐ og fimmtíu milljónir Bandaríkjamanna fylgd-
mieea milrilifmnt ust með lokaþætti myndaflokksins Cheers, eða 60% banda-
. . rísku þjóðarinnar. Þessi mikla horfun er nokkuð sem
sameinmgaratl. bandarískar sjónvarpsstöðvar sem eru eingöngu reknar
með auglýsingatekjum ná æ sjaldnar nú til dags. Færri
og færri Bandaríkjamenn fylgjast með hinum svokölluðu
fijálsu sjónvarpsstöðvum.
Sjöundi áratugurinn - Sjónvarpsáhorfendur
fylgdust náið með stríðinu í Víetnam.
Bandarísku sjónvarpsstöðvarnar
ABC, NBC og CBS eru í mjög erf-
iðri stöðu. Á hverju ári missa þær
áhorfendur og auglýsingafé yfir til
kapalsjónvarpsstöðva. í Bandaríkj-
unum er áætlað að 93 milljónir
heimila hafí sjónvarp. Fyrir tíu
árum áttu CBS, NBC og ABC 83%
af bandaríska sjónvarpsmarkaðin-
um. Nú ráða þessar stöðvar yfir
61% af markaðinum. Þessar stöðvar
eru þess vegna ekki lengur það
sameiningarafl sem þær voru.
Sjónvarp sem
sameiningarafl?
í Bretlandi er ástandið en eins
og það var í Bandaríkjunum fyrir
áratug. Aðeins 6% breskra sjón-
varpsáhorfenda hafa aðgang að
gervihnattasjónvarpi. Öll þjóðin
fylgist með sama efninu og hefur
svipaða reynslu sem sjónvarps-
áhorfendur. Þessi reynsla er mjög
svipuð hvaða stétt sem áhorfandinn
tilheyrir eða hvar sem hann eða hún
á heima. í Bandaríkjunum er allt
annað upp á teningnum. Samfélag-
ið er mun mislitaðra og hefur auð-
vitað alltaf verið það. En engu að
síður hafa NBC, CBS og ABC virk-
að sem sameinandi afl af því að
meirihluti sjónvarpsáhorfenda
fylgdist með þeim. Nú þegar færri
og færri horfa á þessar stöðvar
hafa sumir sjónvarpsspekúlantar
áhyggjur af því að bandaríska þjóð-
arsálin verði fyrir óbætanlegu tjóni.
Fyrsta sjónvarpsútsendingin sem
náði á tii alls landsins var send út
árið 1949. Sjónvarpið virtist vera
hið mikla sameiningarafl þjóðarinn-
ar. Fyrstu bandarísku gamanþætt-
irnir - Ozzie and Harriet, The
Burns and Allen Show, Leave It to
Beaver - sýndu ameríska drauminn
eins og bandarísk millistétt upplifði
hann og þá sérstaklega út frá sjón-
arhóli hvítra karlmanna. Þessir
myndaflokkar gerðust í hinu full-
komna úthverfi þar sem allir voru
hvítir, allt var tandurhreint og eng-
inn vissi hvað eiturlyf voru.
Draumsýn og
raunveruleiki
Það var alltaf
stórt bil á milli
þessarar draum-
sýnar og banda-
rísks raunveru-
leika. Besta úttekt-
in á þessum mun
og hvernig áhrif
sjónvarp hefur á
fólk er að finna í
bókum rithöfund-
arins Johns Updi-
kes um Rabbit.
Updike er heillaður
af flötum sjón-
varpsskerminum.
Sögupersónan Rabbit byrjar að
horfa á sjónvarp á fimmta áratugn-
um. Rabbit fýlgist með barnaefni
frá Walt Disney og hinum geysivin-
sæla fjölskyldumyndaflokki The
Brady Bunch. Smám saman verður
sjónvarpsefnið óhuggulegra. Sjö-
undi áratugurinn gengur í garð og
í stað fjölskylduefnis horfir Rabbit
á götuuppþot, launmorð og Víet-
nam-stríðið í beinni útsendingu.
Updike bendir á að sjónvarpið getur
sýnt ameríska drauminn en það
getur einnig sýnt hvernig hann leys-
ist upp í ofbeldi. í byijun áttunda
áratugarins horfir Rabbit á gaman-
myndaflokka þar sem fátt er heil-
agt, eins og M*A*S*H, All in the
Family og Soap. Þrátt fyrir góðar
tilraunir voru þessir myndaflokkar
engu að síður fastir í sama farinu.
Þeir eru eins langt frá raunveruleik-
anum og glansmyndaflokkar
fimmta áratugarins. Enginn af
þessum þáttum tekst á við þau
vandamál sem bandarískt samfélag
á við að stríða.
Um miðbik níunda áratugarins
hættu sjónvarpsstöðvarnar að
reyna að höfða til allrar fjölskyld-
unnar í einu. í stað þess var áhorf-
endum skipt í ákveðna flokka og
myndaflokkar hannaðir sérstaklega
fyrir þá. Ellilífeyrisþegar fengu The
Golden Girls, upparnir Thirtysomet-
hing, velefnaðir unglingar Beverly
Hills 90210, blökkumenn Frech
Prince of Bel Air og verkafólk Rose-
anne. Sjónvarpsstöðvarnar voru
ríkari en nokkru sinni fyrr en samt
með ótryggari og skiptari stöðu.
Gott dæmi um breytinguna er að
Johnny Carson, ókrýndur kóngur
miðnæturviðtalsþátta, dró sig í hlé
á síðasta ári og enginn einn tók
við. Þess í stað beijast Jay Leno,
David Letterman og Arseno Hall
um hituna.
Hvað tekur við?
Þegar hér er komið í sagnabálki
Johns Updikes fær Rabbit nóg af
sjónvarpsglápi og snýr sér að lestri
góðra bóka. Sumir vilja meina að
þetta viðmót sé í sókn hjá velmennt-
uðum Bandaríkjamönnum. Þeir
leyfa börnum sínum ekki að liggja
yfir útsendingum ABC, NBC eða
CBS. Þess í stað borgar þeir áskrift-
argjöld að CNN, C-Span, Home Box
Office og sérstökum íþróttarásum,
og fylgist með þeim. Fæstir eru
hrifnir af gömlu sjónvarpsstöðvun-
um. Enn færri eru hrifnir að því
sem tekur við. Það eru ekki margir
sem virðast hafa áhuga á því að
geta valið á milli 750 sjónvarpsrása
með nýjustu hátækni.
Cheers - Gamanmyndaflokkurinn Cheers naut mikilar almennrar
hylli meðal sjónvarpsáhorfenda.
Bandarískt sjónvarp er að brotna
dpp í mörg smá brot. Spænskumæl-
andi íbúar landsins hafa víða komið
á fót sjónvarpsstöðvum eingöngu
með efni á þeirra máli. í mörgum
stórborgum eru sérstakar sjón-
varpsstöðvar fyrir minnihlutahópa
eins og gyðinga. Almenningur
skiptist í æ minni hagsmunahópa
sem tala ekki saman, hver með sína
sjónvarpsstöð. Skiptir það einhveiju
máli að þessir hópar eiga ekkert
eitt sameiginlegt fyrir utan það að
búa í sama landinu? Sumir benda
á að hið svokallaða sameiningarafl
gömlu sjónvarpsstöðvanna hafi ein-
gönguð þjónað til þess að styrkja
veldi hvítra ríkra karlmanna í
Bandaríkjunum. Sama fólk segir
að ABC, NBC og CBS hafí kæft
alla fjölbreytni og skapað mjög
slæmar stereótýpur. Nú þegar þess-
ar stöðvar riða til falls sé loks tæki-
færi til þess að leyfa ólíkum skoðun-
um og mismunandi túlkunum að
blómstra.
Fyrir þremur árum gerði blaða-
maðurinn Bill McKibben athyglis-
verða könnun. Hann bað nokkrar
manneskjur að taka upp sjónvarps-
efni í heilan sólahring frá 60 mis-
munandi stöðvum. Á meðan verið
var að taka upp efnið fór McKibben
í fjallgöngu. Eitt þúsundum stund-
um af sjónvarpsefni var safnað
saman og það tók McKibben heilt
ár að horfa á það allt. Hann skrif-
aði síðan bók, The Age of Missing
Information, og bar saman . hvað
fjallgangan gaf honum og hvað
hann fékk út úr sjónvarpsefninu.
Það kemur kannski ekki, á óvart
að sú stemmning sem náttúran
kallaði fram í huga McKibbens var
að hans mati mun meira gefandi
en nokkuð sem hann sá í sjónvarp-
inu. Allir valmöguleikarnir sem
sjónvarpið býður upp á rugla ein-
faldlega fólk í ríminu og láta það
halda að það sé að missa af ein-
hveiju miídlvægu. Þeir sem horfa
ekki á sjónvarp geta huggað sig
við það að ekki er boðið upp á neitt
merkilegt hvort sem er.
BÍÓIIM í BORGIIMIMI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIIM
Nóg komið ★ ★ 'A
Andsnúið umhverfið sprengir öryggi
bandarísks meðaljóns sem lætur reiði
sína bitna á kvölurum sínum í L.A.
Skýtur yfir markið sem þjóðfélags-
ádeila en á sínar stundir sem hasar-
mynd.
Spillti lögregluforinginn ★ ★ ★
Einstaklega óhugnanleg mynd og hrá
um gjörspilltan lögregluforingja og
úrkynjaðar venjur hans. Ein besta
mynd Harvey Keitels.
Sommersby ★ ★ ★
Þó að efnisþráðurinn þoli ekki hárfínar
rannsóknir þá er ástarsagan óvenju
viðfelldin. Jodie Foster er frábær og
útlit myndarinnar, sem gerist að loknu
þrælastríðinu, með eindæmum vel
gert.
Konuilmur ★ ★ ★ 'A
Afar vönduð mynd um samband ólíkra
einstaklinga. Eftirminnileg fyrir vel-
skrifað handrit og afburðaleik Al Pac-
inos.
BÍÓHÖLLIN
Ósiðlegt tilboð ★ ★ ‘A
Mynd um breyskleika mannsins og
siðferðisþrek vekur örfáar, forvitnileg-
ar spurningar en svarar þeim að hætti
sálfræðinga skemmtanaiðnaðarins.
Leikaranir sleppa fyrir horn en útkom-
an aðeins glansmynd í vandaðri kant-
inum.
Náin kynni ★★
Ofurdramatísk smámynd um ljúfar og
harla óvenjulegar ungmennaástir.
Marisa Tomei stelur henni með húð
og hári.
Ljótur leikur ★★★'/«
Ögrandi, afargott verk um tregafull
mannleg samskipti og ómanneskjuleg
átök og umhverfi. Rómantísk spennu-
mynd.
Stuttur frakki ★ ★ V*
Skemmtileg mynd um Frakka sem
lendir í villum í Reykjavík. Eggert
Þorleifsson stelur senunni en Frakkinn
er mjög góður. \
Leikföng ★★
Geggjuð hugmynd um leikfanga-
smiðju sem breytist í vopnaframleiðslu
verður að ruglaðri bíómynd þar sem
stórkostleg leiktjöld og munir standa
einir uppúr.
Meistararnir ★ 'A
Klisjum hlaðin gamanmynd um lög-
fræðing sem á að koma röð og reglu
á íshokkíleik vandræðagemlinga.
HÁSKÓLABÍÓ
Fifldjarfur flótti ★ ★ 'A
Frönsk mynd um ævintýralegan flótta
úr fangelsi (byggð á sönnum atburð-
um) er skemmtilega raunsæ en spenn-
an mætti vera betur viðloðandi.
Ósiðlegt tilboð ★ ★ 'A
Mynd um breyskleika mannsins og
siðferðisþrek vekur örfáar, forvitnileg-
ar spumingar en svarar þeim að hætti
sálfræðinga skemmtanaiðnaðarins.
Leikararnir sleppa fyrir horn en út-
koman aðeins glansmynd í vandaðri
kantinum.
Stál í stál ★ ★ ‘A
Sæmilegasta sumarafþreying þar sem
hátæknilegt neðanjarðarfangelsi er í
aðalhlutverki.
Stúlkan, löggan og bófinn ★ ★
Óvenjuleg mynd um óvenjulegar per-
sónur. Ristir ekki djúpt og er borin
uppi af léik stórstjarnanna.
Lifandi ★ ★ ★
Afar vel sviðsett mynd um ótrúlegar
mannraunir sem gerðust hátt uppi í
Andesijöllum fyrir tveimur áratugum.
Mýs og menn ★ ★ ★
Ljúfsár og vönduð kvikmyndagerð
uppúr frægri sögu Johns Steinbecks
um vináttu og náungakærleik. John
Malkovich er frábær sem Lenny.
LAUGARÁSBÍÓ
Staðgengillinn ★★
Það stendur fátt í veginum fyrir stað-
gengilinum sem er vel leikin af Löru
Flynn Boyle en Timothy Hutton plag-
ar nokkuð ásjálegan þriller sem heldur
vel dampi framundir leikslok.
Stjúpbörn ★
Einkar væmin gamanmynd um unga
stúlku sem flýr sitt ruglingslega fjöl-
skyldulíf.
Feilspor ★★★ Góð sakamálamynd
um glæpahyski sem stefnir á smábæ
þar sem hugrakkur lögreglustjóri bíð-
ur þeirra. Fínn leikur og spennandi
saga undir leikstjóm Carls Franklins.
REGNBOGINN
Tveir ýktir 1 ★ ★ ‘/2
Útúrsnúningur á Lethal Weapon og
fleiri og tekst stundum vel upp og stund-
um ekki. Leikaramir hafa gaman að
taka þátt í gríninu.
Goðsögnin ★
Hrollvekja sem fer vel af stað en fellur
kylliflöt í tómatsósuslabbið.
Ólíkir heimar ★ ‘/2
Lumet verður flest á í messunni í gyð-
inglegri útgáfu af Vitninu. Melanie Grif-
fith ræður ekki við aðalhlutverkið.
Loftskeytamaðurinn ★★★
Vel leikin mynd um- margslungin ná-
unga sem setur svip sinn á mannlífið í
norskum smábæ.
Siðleysi ★ ★ ★ ‘/2
Frábærlega gerð mynd Louis Malle um
ástarsamband sem hefur mjög slæmar
afleiðingar. Leikhópurinn góður.
Ferðin til Las Vegas ★ ★ ★
Unaðsleg kómedía frá Andrew Berg-
man um tregan brúðguma semk er við
það að missa ástina sína í hendur milla
eftir slæman póker. Frábærar persónur
og Elvis-eftirlíkingar.
Englasetrið ★ ★ ★
Forpokaðir, sænskir sveitavargar reyn-
ast besta fólk þegar nútímaleg borgar-
böm eru búin að skólpa af þeim skin-
helgina.
SAGA BÍÓ
Nóg komið ★ ★ 'A - sjá Bíóborgina
Captain Ron ★
Sauðmeinlaus en með eindæmum
aulaleg gamanmynd um landkrabba-
fjölskyldu og skipstjórann þeirra.
STJÖRNUBÍÓ
Ógnarlegt eðli ‘A
Gjörsamlega mislukkaður farsi, enda
beinist athyglin lengst af að úrskíf-
unni, ekki tjaldinu.
Dagurinn langi ★ ★ ‘A
Billy Murray tekur að endurmeta líf
sitt þegar hann vaknar alltaf til sama
dagsins í þessari rómantísku gaman-
mynd. Hún er best þegar Murray er
hvað illskeyttastur en svo linast hann
upp og verður mjúki maðurinn.