Morgunblaðið - 15.07.1993, Side 1

Morgunblaðið - 15.07.1993, Side 1
64 SIÐURB/C STOFNAÐ 1913 157. tbi. 81. árg. FIMMTUDAGUR 15. JULI1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Lávarðar hafna tillögu Thatcher London. Reuter. LÁVARÐADEILD breska þingsins felldi í gærkvöldi með yfirgnæf- andi meirihluta breytingartillögu lafði Thatcher, fyrrum forsætis- ráðherra, við frumvarp stjórnarinnar um staðfestingu á Maa- stricht-samkomulaginu. Tillagan, sem var um að efnt skyldi til þjóðaratkvæðagreiðslu um samkomulagið, var felld með 445 at- kvæðum gegn 176. Thatcher sagði fyrir fullu húsi lávarða, að Bretar ættu ekki að gefa frekar undan, nema þjóðin óskaði þess. Hún sagðist hafa brennt sig á því í forsætisráðherra- tíð sinni að treysta orðum annarra Evrópubandalagsríkja um að völd EB yrðu ekki teygð yfir þing ríkj- anna. Hún sagði: „Ekki vaða út í þann pytt aftur [...] og sökkva ef til vill upp fyrir haus.“ Aðrir ræðumenn í lávarðadeild- inni, þar á meðal margir fyrrum ráðherrar, minntu á að Thatcher hefði sjálf í gegnum tíðina mælt gegn þjóðaratkvæðagreiðslum, og sagt þær ekki eiga heima í lýðræðis- kerfi Bretlands því þær drægju úr valdi þingsins. Rannsóknir á borkjama úr Grænlandsjökli Hitasveiflur fyrri hlý- skeiða meiri en nú er London. Reuter. MENGUN í andrúmslofti jarðar gæti valdið gífurlegum breytingum á hitastigi, líkt og þeim sein urðu fyrir síðasta jökulskeið. I nýju tölublaði visindatimaritsins Nature segir að rannsóknir á borkjarna úr iðrum Grænlandsjökuls hafi leitt í ljós að hlýindaskeið milli síð- ustu tveggja jökulskeiða hefðu einkennst af óstöðugum hitabreyting- um, sem entust í állt frá 70 til 700 ár. Snjór á hálendinu Morgunblaðið/RAX STARFSMENN Vegagerðarinnar vinna nú við að Áætlað er að verkið taki nokkra daga. Hér eru ryðja snjó af veginum um Fjallabaksleið. Þeir hófu Vegagerðarmenn með tæki sín á leið gegnum skafl starfið í fyrradag og er rutt báðum megin frá. á veginum austur af Landmannalaugum. Átta Evrópulönd standa að rann- sóknunum, og eru íslendingar þar á meðal. Unnið er úr borkjarna sem sóttur var niður á þriggja kílómetra dýpi í Grænlandsjökli, og er frá hlý- indaskeiðinu fyrir síðasta jökulskeið. Hitastig á tímabilinu er ákvarðað með rannsókn á súrefnissamsætum. Vísindamennimir komust að því að hitastig á síðasta hlýindaskeiði var yfirleitt um tveim gráðum hærra en nú, en gat kólnað snögglega um allt að tíu gráður. „Þessar nýju upp- götvanir valda okkur áhyggjum af hvað gæti gerst ef hiti hækkar,“ sagði breski vísindamaðurinn Eric Wolff. Vísindamenn telja, að mengun í andrúmsloftinu nú, svonefnd gróð- urhúsaáhrif, geti valdið hækkun á hitastigi í heiminum. Árný Sveinbjörnsdóttir, jarðfræð- ingur við Raunvísindastofnun Há- skóla íslands, er einn þeirra íslend- inga sem taka þátt í rannókninni, og er meðhöfundur greinarinnar í Nature. Hún segir frekari athuganir á borkjamanum nú standa yfir, og vonast sé til að þær gefí vísbending- ar um hvers megi vænta á því hlý- skeiði sem nú stendur yfír. „Veður- far nú er mun stöðugra en á fyrri hlýskeiðum, og rannsóknimar bein- ast að því hver sé ástæða þessa stöð- ugleika,“ sagði Árný. „Það kom okk- ur mjög á óvart hvað hiti virðist hafa breyst hratt; flest bendir til að tíu gráðu hitabreyting hafi getað orðið á innan við 10 árum.“ Þriðjungur Sarajevobúa hefur nú aðgang að rennandi vatni á ný SÞ segja hættu á að átök bijótist aftur út í Króatíu Belgrad, Sar^jevo, London. Reuter. HÁTTSETTUR embættismaður Sameinuðu þjóðanna segir að veruleg hætta sé nú á því að stríð brjótist út á ný milli Króata og Serba sem búsettir eru áJtróatísku landsvæði en vilja segja sig úr Iögum við lýðveldið. „Hvorirtveggju eru gráir fyrir járnum og hafa eflt liðsafnað sinn og búa sig undir frekari átök,“ sagði Cedric Thornberry, aðstoðar- yfirmaður gæsluliðs SÞ I Bosníu, á fréttamannafundi I gær. Króatar segja Serba hafa skotið eldflaugum og sprengjum á flug- völlinn í strandborginni Zadar á þriðjudag en síðast var barist á þessum slóðum í janúar er Króatar tóku á ný Mazlenica-brúna sem var eyðilögð í bardögum 1991. Brúin er mikilvæg vegna þess að hún tengir saman norðurhluta Króatíu með höfuðborginni, Zagreb, og suðursvæðin þar sem margir helstu ferðamannabæir landsins eru við Adríahafið. Króa- tísk stjórnvöld ætla að láta byggja flotbrú í stað gömlu brúarinnar á staðnum og lagfæra flugvöllinn. Cedric Thornberry sakaði alla þijá stríðsaðila í Bosníu um að hindra flutninga SÞ á neyðargögn- um til óbreyttra borgara. Þörf væri á 1.200 tonnum daglega til að sinna þörfum 2,3 milljóna manna á átakasvæðunum en að- eins helmingur þess magns bærist á áfangastað. Douglas Hurd, Utanríkisráð- herra Bretlands, sagði í gær að Evrópubandalagið (EB) hlyti að íhuga að beita Króata refsiaðgerð- um vegna hlutdeildar þeirra í stríð- inu í fyrrum Bosníu. Sagði hann koma til greina að ræða það mál á fundi utanríkisráðherra EB- iandanna í Brussel á mánudag. Um þriðjungur íbúa í Sarajevo hefur nú fengið aðgang að renn- andi vatni á ný en ekki hefur enn tekist að koma gas- og rafmagns- veitum í samt Iag. Starfsmenn SÞ sjá um viðgerðirnar en segja að Serbar hafi ekki virt að fullu ný- gert samkomulag við leiðtoga múslima um að lina þjáningar borgarbúa sem eru um 380.000. Sænskir ísmolar fluttirút Stokkhólmi. Reuter. SÆNSKT fyrirtæki malar gpiil í Bandaríkjunum með því að selja þar ísmola á öld- urhúsum. Heimskautaís heit- ir fyrirtækið, sem er staðsett í bænum Gallivare, nyrst í Svíþjóð. Flogið er með ferskvatn yfir Atlantshafið til Bandaríkjanna, þar sem því er breytt í ísmola, og kosta fjórir slíkir einn doll- ara á bar í New York. „Banda- ríkjamenn eru bijálaðir í ís- mola. Þeir hafa meira af ís en áfengi í drykkjunum sínum,“ sagði Per Henriksson, einn af fimm starfsmönnum Heim- skautaíss, í samtali við dag- blaðið Dagens Nyheter.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.