Morgunblaðið - 15.07.1993, Síða 2

Morgunblaðið - 15.07.1993, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993 Framkvæmdaráð Alþýðukvenna Konnr hvatt- ar tíl þátttöku FRAMKVÆMDARÁÐ Sambands Alþýðuflokkskvenna tók þá afstöðu í gær að skora á konur að taka virkan þátt í flokksstjórnarfundi Alþýðuflokksins næsta sunnudag en sitja ekki hjá líkt og tillaga hafði komið um á síðasta fundi Sambands Alþýðukvenna. Rannveig Guðmundsdóttir hefur ekki gefið endanlegt svar um hvort hún hyggst gefa kost á sér til varaformannsembættisins en allar líkur eru nú taldar á því að hún muni gera það. í gærkveldi fóru stuðningsmenn Sambands Alþýðuflokkskvenna tel- Rannveigar Guðmundsdóttur af stað með undirskriftasöfnun til að hvetja hana til að gefa kost á sér í varaformannsembættið og í gær- kveldi höfðu einhveijir tugir kvenna og karla í Alþýðuflokkum skrifað undir hvatninguna. ‘ Hvattar í trúnaðarstörf Framkvæmdaráð Sambands Al- þýðuflokkskvenna samþykkti eftir- farandi ályktiin: „Framkvæmdaráð ur það ekki samræmast þátttöku kvenna í stjórnmálum að sitja hjá og vera ekki reiðubúnar að axla þá ábyrgð sem konum er falin hveiju sinni. Stjórnin vill því hvetja allar kon- ur í flokksstjórn Alþýðuflokksins til virkari þátttöku á flokksstjómar- fundinum næstkomandi sunnu- dagskvöld og að sem flestar gefi kost á sér til þeirra trúnaðarstarfa sem þar verður kosið til.“ Sólarkaffið sötrað VEÐURBLÍÐA hefur á stundum leikið um borgarbúa á undanförnum dögum og hér má sjá gesti á kaffi- húsi sötra kaffið sitt í sólskininu. Verðbreytingar v. gengislækkunarinnar Aukin eftirspum eftir spariskírtemum og ríkisvíxlum eftir gengisfellingu > „Cheerios" Veröið VeröMS hækkar morgun- varkr. ernúkr. um verðarhringir 425 gpakki 255 277 8,6% Cheerios hækkar um 8,6% VEGNA gengisfellingarinnar hafa „Cheerios“ morgunverðar- hringimir hækkað. Til dæmis hefur 425 g pakki af hringjunum hækkað úr 255 krónur í 277 krónur og er það 8,6% hækkun. Þess má getið að hringirnir em fluttir inn frá Bandaríkjunum. Polar Sea í Keilavík POLAR Sea, stærsti ísbijótur Bandaríkjanna, lagðist að bryggju í Keflavík í morgun og mun skipið verða þar næstu þijá daga. Verið er að undirbúa rann- sóknarleiðangur með skipinu um norðurhöfin og verða íslenskir vísindamenn frá Háskóla íslands með í þeim leiðangri. Að sögn Joe Quimby hjá Upplýs- ingaskrifstofu varnarliðsins mun dvöl þess notuð til að taka matvæli og vistir um borð og til að gefa áhöfn skipsins landvistarleyfi. í dag Bretland _________________ Sýknudómur gagnrýndur 20 Verðkönnun á ís___________ 70 króna munur 22 og 23 íþróttir__________________ Steranotkun bætir ekki 43 Leiðari___________________ Áfengi og einkavæðing 22 Ávöxtunarkrafa lækkar umtalsvert á markaðinum ÁVÖXTUN í viðskiptum með spariskírteini ríkissjóðs hefur að meðaltali verið 0,5 prósentustigum lægri á Verðbréfaþingi íslands í júlímánuði en í júní. Meðalávöxtunarkrafan í viðskipt- um með þessi bréf var 7,14% en er það sem af er mánaðar- ins 6,68%. Mikil eftirspurn hefur verið eftir skírteinum með innlausnardag síðar á þessu ári og fram á mitt næsta ár og er ávöxtunarkrafa þeirra við sölu nú á milli 6,0% og 6,1% en var í upphafi júlímánaðar 6,75 til 6,85%. Ávöxtunarkrafa á ríkisvíxlúm hefur einnig farið lækkandi að undanförnu. Ólafur K. Ólafs hjá peningamáladeild Seðlabankans segir að þessar breytingar ættu að geta gefið tilefni til einhverra raunvaxtalækkana hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum. Ólafur segir að eftir gengisfell- inguna á dögunum hafi eftirspum eftir spariskírteinum ríkissjóðs, sem hafí tiltölulega stuttan tíma í inn- lausn, aukist. Aukinni eftirspum hafí verið mætt af hálfu Seðlabank- ans með lægri ávöxtunarkröfu og hafí hún lækkað um 0,75 prósentu- stig frá 5. júlí. Meðalávöxtunar- krafan í viðskiptum með spariskír- teini hafi á sama tíma lækkað um hér um bil 0,5 prósentustig. Ólafur segir að þessi lækkun á eftirmarkaði með spariskírteini ætti að gefa öðmm aðilum á markaðnum svigrúm til raunvaxtalækkunar. Viðskiptabankar og sparisjóðir eigi til dæmis í ákveðinni samkeppni við ríkissjóð um sparifé og þessar að- stæður gefí að minnsta kosti ekki tilefni til raunvaxtahækkunar hjá þeim. Fremur megi ætla að vextir verðtryggðra lána geti þokast niður á við af þessu tilefni. Að sögn Ólafs hefur ávöxtunar- krafa á ríkisvíxlum einnig lækkað að undanfömu. Sú þróun hafí verið stöðug og jöfn frá áramótum. Enn eigi sér stað nokkur lækkun á ávöxtun ríkisvíxla þrátt fyrir útlit um tímabundna aukningu verð- bólgu í kjölfar gengisfellingarinnar 28. júní. Ávöxtun í nýjasta flokki ríkisvíxla var í gær 8,35% við kaup en 8,15% við sölu. í útboði þessara víxla 9. júlí var meðalávöxtunin hins vegar 9,49%, hækkaði um tæplega 0,8 prósentustig frá síðasta útboði. í gær fór fram útboð á spariskír- teinum ríkissjóðs í 1. flokki D 1993 til 5 og 10 ára. Alls bámst tilboð Viðskipti/Atvinnulíf Dagskrá ► Bókanir Flugleiða um 21% b Sannleikurinn um Dame fleiri - Mikligarður sakaður um Ednu - Ofbeldi í bandarísku sjón- blekkingu - 300 miiyóna kr. bati varpi - Órafmagnaðir tónleikar tryggingafélaga - GSM farsíma- MTV - Leikkonan Rebecca De númer komin Momay - Kvikmyndir vikunnar að fjárhæð 605 milljónir króna og boða í báðum flokkum er 7,29% en var tekið tilboðum fyrir 430 milljón- var við útboð í júní 7,39% til fimm ir. Meðalávöxtun samþykktra til- ára og 7,34% til 10 ára. * Akvörðun um frestun ákæru endurskoðuð Ríkíssaksóknari gefur út ákæru fyr- ir kynferðisafbrot RÍKISSAKSÓKNARI gaf í gær út ákæru á hendur fötluðum manni fyrir kynferðisafbrot gagnvart ungum börnum, en áður hafði emb- ætti ríkissaksóknara tekið þá ákvörðun að fresta ákæru á hendur honum skilorðsbundið í þijú ár. í tilkynningu frá ríkissaksóknara segir m.a. að hörð gagnrýni hafí verið höfð í frammi vegna ákvörðun- ar embættisins um að fresta ákæru skilorðsbundið. Gagnrýnin hafi leitt til blaðaskrifa og umræðu þar sem málsatvik hafi verið afflutt og í verulegum atriðum ekki verið í samræmi við það sem lægi fyrir í skjölum málsins. Hvorki ákværuvaldið né sakborningur ættu þess kost að koma fram á vettvangi opinberrar umræðu viðhlítandi leið- réttingum og staðreyndum málsins. Því hefði verið ákveðið að vísa málinu í dóm og gefa út ákæru á hendur sakborningi. Hér á eftir fer tilkynning ríkis- saksóknara í heild: „Þann 17. mars sl. ákvað emb- ætti ríkissaksóknara að fresta ákæru skilorðsbundið í 3 ár á hend- ur manni, sem kærður hafði verið fyrir kynferðisafbrot gagnvart ung- um börnum á heimili sínu hér í borg. Við rannsókn málsins kannað- ist maðurinn við og játaði að nokkru leyti kæruefni, sem þótti falla und- ir 202. og 209. gr. almennra hegn- ingarlaga nr. 19, 1940, sbr. lög nr. 40, 1992, og ákvæði í lögum um vernd barna og ungmenna nr. 58, 1992. Það var mat ákæruvalds, eins og atvikum málsins og högum sak- bornings var háttað, að rétt væri að fresta ákæru skilorðsbundið, enda væru lagaskilyrði til þess, en högum sakbomings er þann veg háttað, að hann er öryrki, mikið fatlaður og algerlega bundinn hjóla- stól. Við endurskoðun nú á málinu er mat ákæruvalds á réttmæti þessar- ar ákvörðunar í sjálfu sér óbreytt. En eftir að ákvörðunin var tekin hefur sérstaklega af hálfu aðstand- anda eins bamanna verið höfð í frammi hörð gagnrýni vegna henn- ar, sem leitt hefur til blaðaskrifa og umræðu í þjóðfélaginu. í þeirri umfjöllun hafa málsatvik verið af- flutt og í verulegum atriðum ekki verið í samræmi við það sem fyrir liggur í skjölum málsins. Eftir að málið er komið í svo almenna umfjöllun sem orðin er á hvorki ákæruvald né sakborningur þess kost að koma fram á vett- vangi opinberrar umræðu viðhlít- andi leiðréttingum á málsatvikum og staðreyndum málsins. Því hefur orðið að ráði, eins og komið er, að vísa máli þessu til meðferðar í dómi og hefur því í dag af hálfu ákæru- valds verið gefín út ákæra á hendur þeim sakborningi sem hér á hlut að máli. Verður málið samkvæmt henni rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Með þessu verður að ætla að tryggt sé að mál þetta hljóti rétt- láta og sanngjarna meðferð og að ekki verði hállað rétti neins er hags- muna á að gæta í málinu og málið fái þá niðurstöðu, sem ekki verður breytt nema þá með áfrýjun til æðra dóms.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.