Morgunblaðið - 15.07.1993, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993
Hertar kröfur til nemenda á skriflegum ökuprófum
Annar hver féll fyrstu
vikuna eftir endurskoðun
EFTIR að skrifleg ökupróf voru endurskoðuð hefur aukist
að nemendur falli og nú falla um 20% nemenda í Reykja-
vík, en fjórar vikur eru síðan endurskoðuð próf voru fyrst
lögð fyrir. Fyrst eftir að ný próf voru lögð fyrir féllu enn
fleiri nemendur og í fyrstu vikunni féllu yfir 50% þeirra
nemenda sem þreyttu prófið,
Ingólfur Á. Jóhannesson, for-
stöðumaður ökunámsdeildar hjá
Umferðarráði, segir skýringuna á
þessu vera þá að bæði hafi einhveij-
ir ökukennarar ekki áttað sig á
breyttum prófum og einnig hafí
nemendur ekki almennilega tekið
upplýsingar um hertar kröfur alvar-
lega. Það sé nú að breytast og seg-
ist hann búast við að fallprósentan
haldist í um 20% en fyrir breyting-
ar var fall almennt á bilinu 10-12%
á skriflega prófinu.
í eldra prófínu var nauðsynlegt
að fá 80 stig af 90 en nú er búið
eða annar hver nemandi.
að skipta prófínu í tvennt. Ingólfur
segir að í fyrri hlutanum séu mjög
mikilvægar forgangsspumingar og
í þeim hluta er nauðsynlegt að ná
43 stigum af 45. í seinni hlutanum
er nauðsynlegt að fá 83 stig af 90.
„Það er yfirleitt þessi fyrri hluti sem
fólk nær ekki núna. Við emm
ánægðir með þetta nýja fyrirkomu-
lag, það veitir aðhald."
Hertari kröfur
„Þó bóknámið sé nú betra á eftir
að koma í ljós hvort það skili sér út
í umferðina. Við eigum eftir að
herða kröfur í akstursprófum en á
þeim prófum heyrir til undantekn-
inga að nemendur falli.“ Ingólfur
segir það vegna þess að of litlar
kröfur séu gerðar en nú standi til
að breyta því, hvenær það verður
liggur þó ekki fýrir.
Séraðstoð fyrir lesblinda
Ingólfur segir nemendur sem em
lesblindir eða eigi erfítt með lestur
geta átt eiga erfíðara með að ná
prófínu nú. „Þau gátu áður hugsan-
lega sloppið í gegn án þess að fá
aðstoð við lesturinn þar sem minni
kröfur vom gerðar. Við emm nú
að gera ráðstafanir til að hvetja
ökukennara til að senda þau ekki
í prófíð upp á von á óvon nema þau
hafa fengið lesaðstoð, en þau eiga
rétt á henni. Það er mikilvægt að
foreldrar sem eiga lesblind böm
ræði við ökukennara til að panta
þessa aðstoð."
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00" \\11
Hetmild: Veðurstola islands
(Byggt é vsðurapá kl. 16.1S I gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 15. JULI
YFIRLIT: Við Jan Mayen er 1009 mb lægð sem þokast vestur, en 1025
mb hæð er yfir N-Grænlandi. Langt suösuðvestur í hafi er 997 mb vax-
andi lægð sem hreyfist hægt norður á bóginn.
SPÁ: Þaö er búist við norðaustlægum eða breytilegum áttum á landinu,
gola, en víða kaldi að deginum. Skýjað verður að mestu á norðaustur-
og Austurlandi, þurrt að kalla. Vestan og suðvestan lands verður víða
nokkuð bjart veöur, þó hætt við síðdegisskúrum sunnanlands og vest-
an. Áfram veröur fremur svalt við norðurströndina, en annars 10-16
stiga hiti, hlýjast vestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG, LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Austlæg átt,
nokkuð stíf á föstudag, einkum við suðurströndina en annars hægari.
Skýjað og súldarvottur með austur- og suðausturströndinnl en annars
þurrt. Víðast bjartviðri vestanlands og norðan. Hlýnandi og verður hlýj-
dst vestanlands
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30.Svarsimi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
O &
Heiöskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
V $
r r r * r *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
* * *
* *
♦ * *
Snjókoma
Alskýjað
*
V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
rtig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 fgær)
Greiðfært er um þjóðvegi landsins og flestir hálendisvegir orðnir færir
fjallabílum. Þó er enn ófært um Syöra-Fjallabak og um Nyrðra-Fjallabak
milli Landmannalauga og Eldgjár, Gæsavatnaleið og leiðirnar frá Sprengi-
sandi til Skagafjarðar og Eyjafjarðar eru ófærar. Einnig er leiðin lokuð
um Stórasand og um línuveginn við Hlöðufell. Víða er unnið við vega-
gerð, og eru vegfarendur af gefnu tilefni beðnir að virða þær merkingar
sem þar eru.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðín.
VEÐUR VIÐA
kl. 12.00 ígær
Akureyri
Reykjavlk
hití
8
13
UMHEIM
að í$l. tfma
veöur
skýjað
skýjað
Bergen 16 skýjið
Helslnki 16 skýjað
Kaupmannahöfn 16 léttskýjað
Narssarsauaq 16 léttskýjað
Nuuk 12 vantar
Osló 17 skýjað
Stokkhólmur 19 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 26 heiðskfrt
Amsterdam 16 alskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Berlín 19 alskýjað
Chicago vantar
Feneyjar 22 skýjað
Frankfurt 16 rigning
Glasgow 13 rign.ásfð.klst.
Hamborg 14 rigning og súld
London 22 skúr á síð. klst.
Los Angeles 22 skýjað
Lúxemborg 15 rigning
Madrid 34 léttskýjað
Malaga 24 heíðskfrt
Mallorca 24 léttskýjað
Montreal 21 skúr á síð. klst.
NewYork 31 skýjað
Orfando 27 þrumuveður
Parfs 20 skýjað
Madeira 21 skýjað
Róm 23 léttskýjað
Vfn 18 skýjað
Washington 34 mistur
Winnipeg 18 akýjað
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Lagt af stað
STEFÁN og kona hans Guðmunda eru í fararbroddi við upphaf
Stefánsgöngu.
Stefánsganga Jasonarsonar hafin
Lífsneistimi bloss-
ar við hreyfingu
Selfossi.
„ÉG LEGG áherslu á að hitta fólk í þéttbýli og dreifbýli til að
labba með því 1-3 kilómetra á hverjum stað,“ sagði Stefán
Jasonarson þegar hann lagði af stað frá Selfossi í 500 kilómetra
göngu þar sem hann mun koma við á hinum ýmsu stöðum hring-
inn í kringum landið. Göngunni lýkur í Reykjavík 19. ágúst.
Tilgangur göngunnar er að
minnast árs aldraðra í Evrópu
með eftirminnilegum hætti og
leggja áherslu á nauðsyn hreyf-
ingar fyrir aldraða. Göngunni lýk-
ur á opnunarhátíð „Gym i Nord-
en“ sem er samnorræn hátíð fólks
yfír sextugt. Stefán göngugarpur
er kominn fast að áttræðu og var
galvaskur við upphaf göngunnar.
„Mér líður afskaplega vel og
ég hlakka mjög til göngunnar.
Ég hef alltaf viljað sjá hvað er á
bak við næstu hæð og það verður
gaman að fara þessa ferð á tveim-
ur jafnfljótum. Ég vil að fólk finni
hvernig Íífsneistinn blossar þegar
maður hreyfír sig,“ sagði Stefán.
Nokkur hópur fólks, ungir og
gamlir, fylgdu Stefáni úr hlaði
Mjólkurbús Flóamanna. Þar var
stutt samkoma áður en Stefán
lagði af stað, ættjarðarlög voru
leikin á harmonikkur og flutt
ávörp ásamt því sem hitað var
upp fyrir gönguna. Síðan lagði
Stefán af stað í tíu kílómetra
göngu út frá Selfossi. Hinn 16.
júlí verður hann við Hellu klukkan
11.30 og klukkan 18 sama dag
við Hvolsvöll.
Sig. Jóns.
Utanríkismalaiiefiid ræðir við þingnefnd EB
Skiptust á skoðun-
um um hvalveiðar
UTANRÍKISMÁLANEFND Alþingis er nú stödd á Evrópubandalags-
þinginu í Strassborg og átti í gær viðræður við þá þingmannanefnd
EB sem fer með málefni íslands. Björn Bjarnason, formaður utanríkis-
málanefndar, segir að viðræðumar hafi verið ánægjulegar og fróðleg-
ar en meðal annars skiptust þingmennirnir á skoðunum um hvalveið-
ar og íslendingarnir gerðu grein fyrir þeim sjónarmiðum að vísinda-
lega væri sannað að hægt væri að stunda m.a. hrefnuveiðar án þess
að raska lífríki sjávarins.
Þingmennirnir á EB-þinginu eru
ásamt Bimi Bjarnasyni Páll Péturs-
son, Ólafur Ragnar Grímsson, Ingi-
þjörg Sólrún Gísladóttir og Ámi R.
Árnason. Bjöm segir að í gærdag
hafí verið rætt almennt um sam-
skiptin við Evrópubandalagið og að
íslendingarnir hafí gert grein fyrir
þeirri ályktun Alþingis að nauðsyn-
legt væri að efla tvíhliða viðræður
við EB í framhaldi af EES.
„Þingnefndarmennirnir sem við
ræddum við vöktu aftur athygli okk-
ar á því að mikill áhugí væri á þing-
inu á að breyta stefnu EB um leið
og aðildarríkjum þess fjölgaði," seg-
ir Björn. „Um yrði að ræða nýsköp-
un í yfírstjóm EB í þá átt að tryggt
yrði meira jafnræði milli ríkja um
leið og Austurríki, Finnland, Svíþjóð
og Noregur ganga í bandalagið.
Okkur fannst fróðlegt að heyra þessi
viðhorf."
Rætt um fiskveiðistefnuna
í máli Bjöms kemur fram að auk
þessa hafí umræðan snúist um físk-
veiðistefnu EB og fyrirhugaðar
breytingar á henni í þá átt að byggja
hana á veiðileyfum en ekki réttind-
um einstakra ríkja. „Við gerðum
nefndinni aftur grein fyrir okkar
sjónarmiðum í hvalveiðimálum, með-
al annars að vísindalega væri sannað
að hægt væri að stunda hrefnuveið-
ar án þess að raska lífríkinu og raun-
ar væri nauðsynlegt að veiða hrefnu
til að raska ekki þessu jafnvægi,“
segir Björn. „Fulltrúi frá Azoreyjum
nefndi þá að eyjarnar hefðu stundað
hvalveiðar áður en Portúgal gekk inn
í EB en í framhaldi af því varð að
leggja þær veiðar niður sökum
stefnu bandalagsins í hvalveiðimál-
um. Hann taldi erfitt fyrir ríki sem
ætluðu sér aðild að EB að stunda
hvalveiðar."
í dag hittir utanríkismálanefnd
forseta þingsins að máli og fulltrúa
þingflokka auk þess að hlusta á
umræður um fiskveiðimál.
i
>
>
i
I
)
I
>
>
1