Morgunblaðið - 15.07.1993, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 15.07.1993, Qupperneq 5
5 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993 Dræm sala hjá SH á tví- frystum Barentshafsfíski AÐ SÖGN Friðriks Pálssonar forstjóra Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna hefur sala frysts fisks úr Barentshafi, sem unninn er í frystihúsum hér á landi og seldur í blokk á markaði erlendis, verið dræm að undanförnu. Hann segir að þó að framleiðendur hafi farið varlega í kaupum á heilfrystum fiski úr Barentshafi sé enn mikið af óseldum birgðum hjá frystihúsunum. Friðrik segir ástæðurnar þrí- þættar. „I fyrsta lagi höfum við gert skýran greinarmun á þessum fiski úr Barentshafi og íslenskum sjávarafurðum. Þessi áhersla á uppruna fisksins hefur orðið til Ráðuneyti hugsanlega flutt í Reykjavíkurapótek Athuguð kaup eða leiga á apótekinu í athugun er að ríkið kaupi eða leigi hús Reykjavíkurapóteks í Austurstræti fyrir landbúnaðar- og samgönguráðuneyti og ýmsa starfsemi. Halldór Blöndal, landbúnaðar- og samgöngu- ráðherra sagði í viðtali við Morgunblaðið að þessi möguleiki væri í umræðunni og hefði verið ræddur við forsætisráð- herra. Hann sagðist ekki geta sagt til um hvað húsið kostaði. „Utanríkisráðuneytið leggur mikla áherslu á að fá hús Byggða- stofnunar til umráða þar sem starf- semi ráðuneytisins er á ýmsum stöð- um. Þeir telja óhjákvæmilegt að koma starfseminni á einn stað. Af þessum sökum er óhjákvæmilegt að landbúnaðarráðuneytið flytji um set, en það er í húsnæði Byggðastofnun- ar, og það mál hef ég rætt við for- sætisráðherra," sagði Halldór Blönd- al. Hann sagði að jafnframt hefði verið rætt um möguleika á því að flytja samgönguráðuneytið þar sem húsnæði þess væri of lítið þar sem það er nú. Dýr lausn en söguleg þýðing „Það hefur komið upp að þessi ráðuneyti flytji í Reykjavíkurapótek. Það er að vísu dýr lausn en þá er á hitt að líta að Reykjavíkurapótek er mjög sérstakt, hefur byggðasögu- lega þýðingu og ekki á færi einstakl- inga að halda því við með þeirri reisn sem húsinu sæmir. Það verður að gera þetta með þeim hætti að ekki sé um ófullnægj- andi lausn að ræða og að óðara verði að flytja ráðuneytin á nýjan leik, það er kostnaðarsamt og kemur ekki til greina.“ Sögufrægt hús HÚS Reykjavíkurapóteks á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis. þess að minni áhugi hefur skapast á þessari afurð og það vegur þungt að fiskurinn er seldur eftir að hafa verið frystur tvisvar. í annan stað hefur framboð verið mikið að undanförnu og því er hvorki spenna né hreyfing á markaðinum. Loks hafa deilur um ágæti og gæði vörunnar haft áhrif á sölu hennar." Hann sagði að ef hráefnið væri gott og vinnslan með réttum hætti væri þessi fiskur, þó tvífrystur væri, alls ekki slæm vara. Benedikt Sveinsson fram- kvæmdastjóri Islenskra sjávaraf- urða segist ekki kannast við neina sérstaka erfiðleika í sölu eða markaðssetningu fisks úr Barents- hafi. Hann segir að hráefnið hafi að mestu verið unnið í blokkir á Bandaríkjamarkað og telur jafn- framt að birgðir fullunnins fisks úr Barentshafi séu ekki miklar í landinu. „Þessi kaup á frystum fiski eru gerð í því augnamiði að skapa verkefni fyrir frystihúsin á vetrarmánuðum. Ég á von á að þetta hráefni verði áfram keypt en við munum að sjálfsögðu huga vel að markaðssetningu þessara afurða," sagði Benedikt. INNLENT Stórlax úr Soginu EINN af stærstu löxum sum- arsins veiddist í Soginu i gær- morgun. Var það 22 punda lax sem Kjartan Sigurðsson veiddi í landi Alviðru á spón. Áður höfðu veiðst 22,5 punda fiskur í Hvítá í landi Lang- holts og 22 punda lax í Staðar- torfu í Laxá í Aðaldal. Veiði hefur glæðst í Soginu að undanförnu og fyrir skömmu voru komnir 30 laxar á land í landi Ásgarðs og annað eins í Alviðru. Þá hafði frést af tals- verðu af laxi í landi Syðri-Brú- ar, en Árni ísaksson veiðimála- stjóri dró þar þrjá í gær og sá miklu fleiri. Skipulag í Laugarnesi Tillit tek- iðtQmaun- vistarleifa NÝ DRÖG að deiliskipulagi í Laugarnesi munu taka tillit til mannvistarleifa, sem komu fram á jarðsjá, að sögn Þorvaldar S. Þorvaldssonar forstöðumanns borgarskipulags. Breyta verður aðkomu bifreiða að nesinu, bíla- stæðum og hnika til fyrirhuguðum byggingarreit að viðbyggingu við hús Hrafns Gunnlaugssonar. Að sögn Margrétar Hallgrímsdótt- ur, borgarminjavarðar, komu í ljós gamlar tóftir sem rétt þykir að varð- veita en ekki eru uppi áform um að kanna frekar á næstunni. TOLLALÆKKUN! MITSUBISHI L 300 FJÖLNOTA FJÖLSKYLDU- BÍLLINN! SMENN UM LAND Al.LT, kkunar \\al» btU to Vegna Ibæft lo kostar 1?eSS aðein^ 000 kr 479 MITSUBISHI Fremstur meðal jafningja Mitsubishi L 300 Minibus er 8 manna fólksbíll, sniðinn fyrir ferðalög og frístundir ijölskyldunnar - rúmgóður, þægilegur og aflmikill. Hann er gæddur afar góðum aksturseiginleik- urn og aldrifið hentar hin- um íslensku aðstæðum. Farðu í fríið á Mitsubishi L 300 Minibus! VERNÐ HEKLA aHegB VI Laugavegi 170-174- Sími 69 55 00 e l»‘l* MiTSUBISHI HVÍTA HÚSIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.