Morgunblaðið - 15.07.1993, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993
Mikil þátt-
taka í þjóð-
minjadegi
MJÖG MIKIL aðsókn var að
Minjasafninu á Akureyri á þjóð-
minjadegi siðastliðinn sunnudag
og fjöldi manna tók þátt í göngu-
ferð um Fjöruna og Innbæinn.
Sérsýningar sem settar voru upp
meðai annars að þessu tilefni
verða opnar fram á haust.
Að sögn Guðnýjar Gerðar Gunn-
arsdóttur á Minjasafninu á Akur-
eyri tókst þjóðminjadagurinn afar
vel hér á Akureyri. Mjög góð þátt-
taka var í gönguferð frá Laxdals-
húsi um Fjöruna og Innbæinn og
að Minjasafninu og gestir á safninu
urðu rúmlega 340 þennan dag en
ella þykir gott á venjulegum sunnu-
degi að þeir séu um 100.
Mest Akureyringar
Guðný Gerður sagðí að það hefði
verið gleðilegt að meirihluti gesta
á þessum degi hefðu verið Akur-
eyringar, en hún hefði lengi saknað
þess að þeir legðu leið sína í safn-
ið. Að jafnaði væru gestir á sumrin
ferðafólk, erlent og innlent. Hún
sagðist vonast til að framhald yrði
á og Akureyringar og nærsveitar-
menn kæmu í heimsókn þótt ekki
væri blásið til sérstaks tilefnis. Hins
vegar væri hún fylgjandi því að
þjóðminjadagur yrði árlegur við-
burður á íslenskum söfnum.
Við Minjasafnið á Akureyri
starfa tveir fastráðnir starfsmenn
og auk þeirra hefur einn safnvörður
verið í sérverkefnum um árs skeið.
Á sumrin sagði Guðný Gerður að
við bættust ijórir starfsmenn við
gæslu. Auk þess hefðu um sinn
verið við safnið 4-5 starfsmenn
vegna atvinnuátaksverkefnisins og
það hefði gefið góða raun. Kraftar
þeirra hefðu nýst saftiinu afar vel,
meðal annars við skráningu á Ijós-
myndasafninu, sem hefði verið mjög
aðkallandi.
Sérsýningar Minjasafnsins verða
opnar fram á haust, húsvemdarsýn-
ingin í Laxdalshúsi til 1. september
en sýningamar í Minjasafnshúsinu
sjálfu til 15. september.
-----» ♦ ♦
Þriðju sum-
artónleikar
á Norðurlandi
ÞRIÐJA tónleikaröð Sumartón-
leika á Norðurlandi verður í
kirkjunum á Húsavík, í Reykja-
hlíð og á Akureyri dagana 16.-18.
júlí. Tónlistarmennirnir Gunnar
Kvaran og Öm Falkner koma
fram á tónleikunum en fresta
verður um sinn tónleikum söng-
hópsins Hljómeykis, sem fyrir-
hugað var að kæmi fram í þess-
ari röð tónleikanna.
Á efnisskrá Gunnars og Arnar
eru verk eftir Bach, César Franck,
Vivaldi, Pál ísólfsson og Mascagni.
Tónleikamir í Húsavíkurkirkju
verða á föstudagskvöld klukkan
20.30. í Reýkjahlíðarkirkju í Mý-
vatnssveit verða tónleikarnir klukk-
an 21 á laugardagskvöld. Tónleik-
amir í Akureyrarkirkju verða
klukkan 17 á sunnudag.
Fylgst með framkvæmdum
FÉLAGARNIR Heimir og Daði fylgdust með þegar verið var að rífa gömlu steinbryggjuna í höfninni í
Ólafsfirði, en það verk er hið fyrsta sem unnið er á vegum nýstofnaðs Hafnasamlags Eyjafjarðar. Í Hafna-
samlagi Eyjafjarðar em, auk OlafsQarðar, Dalvíkurbær og Árskógshreppur. í stað gömlu steinbryggjunn-
ar sem hverfur af sjónarsviðinu á næstu dögum verður síðar í sumar eða haust hafist handa við stækkun
annarrar bryggju í höfninni.
Tónleikar
Yið Pollinn
Á VEITINGASTAÐNUM Við
Pollinn á Akureyri verða í
kvöld tónleikar Aðalsteins
Ásbergs og Onnu Pálínu
ásamt djasstríóinu Skipað
þeim.
Tríóið Skipað þeim er skipað
þeim Gunnari Gunnarssyni píanó-
leikara, Jóni Rafnssyni bassaleik-
ara og Árna Katli Friðrikssyni
trommuleikara. Þeir félagar hafa
átt töluvert samstarf við Aðalstein
og Önnu Pálínu og haldið tónleika
á Akureyri og í Hafnarfirði í sam-
bandi við vinabæjamót og Listahá-
tíð.
Tónlistin er að mestu af hljóm-
diski Aðalsteins og Önnu Pálínu,
Á einu máli, en einnig verða á
efnisskránni lög m.a. eftir Jón
Múla Árnason.
Tónleikamir eru liður í Lista-
sumri á Akureyri og hefjast Við
Pollinn stundvíslega klukkan 22.
(Fréttatilkynning.)
Iðnþróunarfélagið metur skinnaiðnaðinn
Ahersla er á að
hraða verkinu
IÐNÞRÓUNARFÉLAG Eyjafjarðar vinnur þessa dagana að
athugun á málefnum skinnaiðnaðar á Akureyri. Niðurstöður
athugana eða tillögur til úrbóta eru ekki enn tilbúnar en lögð
er áhersla á að hraða verki eins og hægt er.
Að sögn Ásgeirs Magnússonar
hjá Iðnþróunarfélaginu eru mál-
efni skinnaiðnaðarins þar til at-
hugunar og verið að athuga hvern-
ig þau líta út og hvaða möguleikar
kunna að vera til frambúðar á
þeim grundvelli. Hann sagði að
lögð yrði áhersla á að flýta verki
sem unnt væri, en á þessu stigi
hefðu menn engin svör á reiðum
höndum.
Afskaplega þýðingarmikil
fyrirtæki
Ásgeir sagði að skinnaiðnaður-
inn og fleiri iðnfyrirtæki, hér á
Akureyri og annars staðar í þjóð-
félaginu, ættu við ákveðna erfið-
leika að etja, sumpart fortíðar-
vanda og sumpart vanda vegna
erfiðrar stöðu á markaði nú. „Það
sem við erum að fást við hér núna
eru fyrirtæki sem lengi hafa skap-
að mörgu fólki atvinnu og eru
afskaplega þýðingarmikil í bæjar-
félaginu og þýðingarmikil í þjóð-
hagslegu tilliti. Hlutverk okkar er
að reyna að draga upp sem sann-
asta og réttasta mynd af þessu
og koma henni áfram eins og
hægt er,“ sagði Ásgeir. Hann
kvaðst ennfremur vona að ekki
liði langur tími þar til unnt væri
að segja frekar til um niðurstöður
athugananna.
Baldur Kárason er trúlega fyrsti
íslendingurinn sem hefur háskóla-
próf sem bruggmeistari, en hann
tók við starfí bruggmeistara hjá
Viking-Bruggi á Akureyri nú um
mánaðamótin.
Baldur sagðist hafa lokið stúd-
entsprófí úr eðlisfræðideild
Menntaskólans á Akureyri og
haldið þaðan í nám í matvæla-
fræði við Háskóla íslands. Að því
loknu sagðist hann hafa farið í
eins árs framhaldsnám við brugg-
deild Heriot-Watt háskólans í Ed-
inborg í Skotlandi. Þar sagði hann
vera einu bruggdeild við háskóla
á Bretlandseyjum, en tvær viðlíka
deildir væru auk þess til í Þýska-
landi.
Við skóla þennan sagði Baldur
að menntaðir væru ölgerðarmeist-
arar breskra brugghúsa og auk
þeirra hefðu nemendur verið þarna
víða að, meðal annars frá Ástral-
íu, Nýja Sjálandi, Möltu, Japan og
meira að segja Þýskalandi. Nám
við skólann tæki fjögur ár en
matvælafræðinám sitt heima hefði
reiknast jafngildi þriggja fyrstu
áranna.
Áhugamál verður atvinna
Baldur sagðist lengi hafa haft
áhuga á bruggi, raunar mætti orða
það svo að margra ára áhugamál
væri orðið að atvinnu hjá sér.
Hann kvaðst hafa unnið hjá Vik-
ing-Bruggi í hálft annað ár, þar
af um árs skeið með Alfred Teu-
fel, fráfarandi bruggmeistara fyr-
irtækisins. Hann sagði engra stór-
breytinga að vænta þótt hann
tæki við störfum en ýmislegt væri
þó í bígerð af nýjungum í fram-
leiðslunni.
Morgunblaðið/Golli
Bruggmeistari að störfum
BALDUR Kárason, hinn nýi bruggmeistari Viking-Bruggs fylgist
hér með gæðum mjaðar síns.
Viking-Brugg ölgerðin á Akureyri
Islenskur brugg-
meistari til starfa
UM mánaðamótin tók til starfa hjá ölgerðinni Viking-Bruggi
á Akureyri nýr bruggmeistari, en hann hefur lokið prófi frá
bruggdeild háskóla í Skotlandi.