Morgunblaðið - 15.07.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993
19
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Aðstaðan bætt
NÝBYGGING Guðmundar Tyrfingssonar hf. í endanum fjær er
smurstöðin, verkstæðið í miðjunni og skrifstofu- og starfsmannaað-
staðan i endanum nær.
Guðmundur Tyrf-
ingsson hf. flutt í
nýtt þjónustuhús
Hefur byggt yfir 14 rútur á 20 árum
Selfossi.
GUÐMUNDUR Tyrfingsson hópferðaleyfishafi á Selfossi flutti starf-
semi sína nýlega í nýtt þjónustuhús að Fossnesi við Suðurlandsveg.
Húsið er 400 fermetrar að stærð og rúmar verkstæðissal fyrir rútu-
bíla, smurstöð, skrifstofu- og starfsmannaaðstöðu.
Guðmundur hóf rekstur rútubif-
reiða og hópferðaakstur 1962. Árið
1971 byggði hann bragga við Nón-
hóla ofan við Selfoss og hafði þar
aðsetur. I þeim bragga smíðaði hann
14 rútubíla til eigin nota á 20 árum
auk eins bíls fyrir annan notanda.
Fyrirtækið Guðmundur Tyrfingsson
hf. á nú 11 hópferðabíla með 358
sætum.
26 ár í sama hreppnum
Hópferðaakstur Guðmundar er af
ýmsu tagi, lengri og skemmri ferðir
með fólk innan og utan héraðs ásamt
flutningum á ferðafólki. Daglegur
skólaakstur er á dagskránni á vet-
uma en Guðmundur hefur ekið skóla-
börnum í einn hreppinn, Gaulvetja-
bæjarhrepp, í 26 ár.
„Reksturinn gengur vel sem slíkur
en við vonumst til að sumarið verði
betra en í fyrra þegar hópferðimar
drógust saman um 33%,“ sagði Guð-
mundur en hann starfar í tengslum
við Hópferðamiðstöðina sem er sam-
skiptaaðili hópferðahafanna við
ferðaskrifstofurnar í landinu.
Reksturinn af eldhúsborðinu
Guðmundur og kona hans, Sigríð-
ur Benediktsdóttir, annast rekstur
fyrirtækisins og em með 8 fasta
starfsmenn en yfír sumarið bætast
við lausráðnir starfsmenn. „Mesta
breytingin er að losna við reksturinn
af eldhúsborðinu, því hér er öll að-
staða fyrir hendi,“ sagði Sigríður.
Hún sagði að þrátt fyrir flutninginn
svömðu þau hjónin erindum vegna
fyrirtækisins heima eins og áður.
Með tilkomu nýja hússins er mögu-
legt að taka inn fleiri bíla til viðhalds
og aðstaðan er mun betri. í öðrum
enda hússins er smurstöð til að þjóna
bílaflotanum og öllum almenningi
sem þarf á slíkri þjónustu að halda.
Lítið gert fyrir bilasmíðina
Aðspurður um framhald á rútu-
smíðinni í nýja húsinu sagði Guð-
mundur: „Það er nú eins og það er.
Nú eru fluttir inn útkeyrðir bílar,
FJAÐRAGORMAR
í ÝMSA BÍLA
allt niður í ’80-módel. Þetta er auðvit-
að aigjörlega fráleitt. Menn halda
að þeir séu að gera góð kaup, en svo
er ekki. Ferðafólk gefur landinu
stimpil eftir þessu meðal annars, að
það sé keyrt um landið á gömlum
bílum. Ég vil ekki þjóna ferðamann-
inum svona. Ef við viljum fá fólkið
til að koma aftur eða mæla með ferð-
um hingað þurfum við að þjóna fólki
með góðum tækjum og lipurri þjón-
ustu.
Það er of lítið gert fyrir bílasmíð-
ina. Það þarf til dæmis að greiða
vörugjald af öllu sem keypt er inn
til verksins, efni og vinnu. Það var
búið að lofa að fella þetta niður en
enginn veruleiki komið í það ennþá.
Það er sami vandi í þessari grein og
í skipasmíðunum.
Það hefur enginn áhuga á að gera
neitt fyrir þetta. Það eru fáir í þess-
ari grein og ráðamenn hlusta ekki á
þessar raddir okkar. Svo er það nú
þannig að með allri þessari skatt-
heimtu sem tíðkast er það sjálfgefið
að þetta gangi ekki.
Þau hjónin Guðmundur og Sigríð-
ur sögðust halda sínu striki og þjón-
usta fólk og fyrirtæki með hópferða-
bíla. Hin nýja aðstaða gæfí tækifæri
til að koma enn betur til móts við
þarfir viðskiptavinanna.
Sig. Jóns.
TAKACOM
SÍMSVARAR
Japanskt hugvit og taskni
sem hentar hvort sem er
fyrírtaskjum, stofnunum
eða heimilum.
Sparar tíma, tyrirhöfn og
óþarfa óþæginJi.
Hreint út sagt frábær taski.
5íðumúla 37100 Rvk. Sími 607570
Sistc1
..sérfrasðingar í eímamálum
UTSALA
-(wra-
GARÐURINN
Kringlunni
Krt þú orðtn(n) féla^l?
Ttyggðu þér cinstakt inngöngutilboð
og hringdu í síma 688300.
*
VAKA-HELGAFELL
Meðal uppskrifta í júlípakkanum frá Nýjum
eftirlætisréttum eru gómsætir grillréttir,
nýstárlegir sjávarréttir, girnilegir ábætisréttir
og margt, margt fleira!
Frábært inngöngulllboð t il nýrra réiaga:
• Fyrsti pakklnn með 50% afslætti á 339 kr.
•Ókeypis safúmappa (áætlað verðmæti 980 kr.)
•Ókeypis taska (áætlað verðmæti 1.270 kr.)
SPEJXNANDI
JULIPAKKI
GOTT F Ó L K / SlA