Morgunblaðið - 15.07.1993, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993
Oddaaðstaða nýrra flokka í Japan
Líkur á minni-
hlutastjóm LDP
Tókýó, Omiya. Reuter.
ÞRÍR nýir flokkar, sera klofning-smenn úr stjómarflokknum,
Frjálslynda lýðræðisflokknum, stofnuðu, njóta vaxandi stuðn-
ings en þó ekki nógu mikils til koma stjórnarflokknum frá
völdum í þingkosningunum á sunnudag, samkvæmt skoðana-
könnunum sem birtar voru í gær. Formaður Nýja flokksins,
sem talið er að gegni lykilhlutverki við myndun nýrrar stjórn-
ar eftir kosningar, segir líklegast að LDP myndi minnihluta-
stjórn.
Ef marka má kannanirnar missir
Fijálslyndi lýðræðisflokkurinn
þingmeirihluta sinn, fær um 220
þingsæti en þarf 256 sæti af 511.
Útlitið er enn nöturlegra hjá sósíal-
istum, helsta stjómarandstöðu-
flokknum, sem mun eiga í erfiðleik-
um með að ná 100 sætum, en hef-
ur haft 134 á undangengnu þingi.
Þrem nýjum flokkum, sem hafa
verið myndaðir af fyrrum félögum
frjálslyndra, er spáð talsverðu fylgi,
eða frá 10 til 50 sætum hveijum
fýrir sig, samtals rúmlega 100 þing-
sætum.
Næsta stjórn skammlíf
Morihiro Hosokawa er formaður
eins þessara nýju flokka, Nýja
flokksins, sem spáð er um 30 sætum
og lykilhlutverki í myndun nýrrar
stjórnar. Hosokawa telur að tals-
verðar líkur séu á því LDP verði
áfram við völd, en þá í minnihluta-
stjórn. Sagði hann útilokað að sinn
flokkur myndi ganga til samstarfs
við LDP, nema frekari klofningur
yrði í fiokknum eftir kosningamar
á sunnudag. Bæði LDP og sósíalist-
ar hafa biðlað til Nýja flokksins um
stjórnarsamstarf, en Hosokawa
segir að flokkur hans muni ekki
starfa í ríkisstjórn á komandi þingi.
„Það verða fleiri kosningar á þessu
ári,“ sagði hann. „Næsta ríkisstjóm
verður ekki langlíf."
Þjóðhátíð íFrakklandi
Reuter
FRAKKAR héldu þjóðhátíð í gær, minntust töku
Bastillunnar 1789 með pompi og prakt. Skrautsýn-
ing var í París og var myndin tekin er Francois
Mitterrand forseti og Guignon hershöfðingi, yfir-
maður Parísarheijanna, óku í opnum heijeppa um
Champs Elysées breiðgötuna umkringdir hesta-
sveitum lýðveldisvarðarins.
Sýknudómur í manndráps-
niáli gagnrýndur í Bretlandi
Lundúnum. Reuter.
NÍTJÁN ára breskur unglingur sem játaði að hafa stungið ná-
granna til bana var sýknaður af morðákæru og manndráp af
gáleysi í gær og sætti úrskurður dómara harðri gagnrýni af
hálfu þingmanna, lögreglu og fjölmiðla.
Minnsta
verðbólga
í Bretlandi
í 30 ár
VERÐBÓLGAN í Bretlandi
fór niður í 1,2% á ársgrund-
velli í júní. Er það minnsta
verðbólga sem mælst hefur í
tæp 30 ár. í maí var verðbólg-
an 1,3%.
Dánartalan í
Japan hækkar
DÁNARTALAN vegna land-
skjálftanna í Japan á mánudag
var komin í 102 í gær og 91
manns var enn saknað.
Þjóðhollir
Frakkar
MEIRIHLUTI Frakka, eða
57%, er reiðubúinn að fórna
lífí sínu til að veija land sitt
komi til innrásar og tæp 70%
þeirra eru andvíg því að her-
skylda verði lög niður, sam-
kvæmt skoðanakönnun Le
Figaro.
Pilturinn, Joseph Elliott, bar
fyrir sig sjálfsvörn er hann særði
41 árs tónlistarmann, Bob Os-
bome, til ólífís. Osborne og kona
hans sátu úti í garði við heimili
sitt í suðurhluta Lundúna og fylgd-
ust með tunglmyrkva. Urðu þau
þá vitni að því er Elliott skar hjól-
barða bifreiða í sundur. Veitti
Osborne Elliott eftirför _og hugðist
veita honum ráðningu. í stimping-
um lagði Elliott til hans með hnífi
og gekk eggjárnið gegnum hjart-
að. Hné Osborne niður og er hann
lá deyjandi lét Elliott spörkin dynja
á honum.
„Réttarkerfíð virkar ekki eðli-
lega,“ sagði Geoffrey Dickens,
þingmaður íhaldsflokksins. „Illa
gefnir menn fylla kviðdómsbekki
í auknum mæli og í mörgum tilvik-
um átta þeir sig ekki á því sem
fram fer í réttarsalnum," bætti
hann við.
Ekkja Osbome, Diane, er
þriggja barna móðir og gat ekki
dulið gremju sína er kviðdómurinn
greindi frá niðurstöðu sinni. Tals-
maður Verkamannaflokksins í
dómsmálum gagnrýndi niðurstöðu
kviðdómsins og sagði hryggilegt
að svona nokkuð gæti átti sér stað.
Eftir að dómur gekk fengu kvið-
dómendur loks að vita að Elliott
hefði verið forfallinn fíkniefna-
neytandi og með langan afbrota-
feril að'baki. Hafði hann hlotið
dóma fyrir innbrot, íkveikju og
bílþjófnað.
„Hvers konar réttarfar er við
lýði“ sagði í stórri fyrirsögn í
Daily Express. „Það er aðeins eitt
orð yfír þessa niðurstöðu: glæp-
samleg" sagði Daily Star. Loks
sagði Daily Mail úrskurðinn vera
andstyggilegan. „Ég á ekki orð
af undrun og veit satt að segja
ekki hvað gera ber. Með þessu
erum við að kalla yfir okkur það
ástand að menn ráfí um götumar
með hnífa og beiti þeim ef þeim
er boðinn birgurinn," sagði Frank
Sole rannsóknarlögreglustjóri í
London.
Þjóð í uppnámi
Breska þjóðin komst í uppnám
í síðasta mánuði og gífurleg reiði
braust út er tveir árvakrir menn
í ensku þorpi vom dæmdir í fímm
ára fangelsi fyrir að lúskra á
meintum síbrotatáningi. Áfrýjun-
arréttur minnkaði refsinguna síðar
í sex mánaða fangelsi.
ítalska herlið-
ið flutt á brott
frá Mogadishu
Róm, Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
ÍTÖLSKU hersveitirnar í Mogadishu verða fluttar til annarra
svæða í Sómalíu og umdeildur yfirmaður þeirra sendur heim
til Rómar, að sögn embættismanns Sameinuðu þjóðanna í
gær. Beniamino Adreatta, utanríkisráðherra Ítalíu, kvaðst
„hneykslaður" á þessari ákvörðun.
VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKAN
HJÖRUUDAKROSSAR
-LEGUR
cARARBRODDI
' FJÖRTÍU
ÁR!
FAB kúlulegur
og rúllulegur
TIMKEN keilulegur
Eigum á lager flestar gerðir af legum og
hjöruliðakrossum í bíla og vinnuvélar.
legur fyrir hverskonar
leiðsluvélar, iðnaðarvélar
og bátagíra.
Útvegum allar fáanlegar legur
með hraði.
Það borgar sig að nota það besta!
precision
hjöruliðakrossar •
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84
• VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FALKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS •
Harður ágreiningur kom fram á
yfírborðið um aðgerðir friðargæslu-
liða Sameinuðu þjóðanna í Mogadis-
hu að undanfömu. Beniamino
Andreatta sagði að hann hefði farið
þess á leit við Boutros Boutros-
Ghali, framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna, að ítölsku hermenn-
irnir yrðu fluttir norður fyrir Moga-
dishu þar til deilan yrði leyst.
Koffi Annan, sem fer með frið-
argæslu á vegum Sameinuðu þjóð-
anna í höfuðstöðvunum í New York,
sagði að ítölsku hermennirnir yrðu
fluttir út fyrir Mogadishu, þar sem
komið hefur til átaka milli friðar-
gæsluliða og stuðningsmanna sóm-
alska stríðsherrans Mohammeds
Farah Aideeds. Hann sagði að
Bruno Loi hershöfðingi, umdeildur
yfirmaður ítalska herliðsins, yrði
sendur til Rómar en kvaðst ekki
líta svo á að hann hefði verið rek-
inn, heldur væri hér aðeins um eðli-
legar tilfæringar að ræða. Loi hers-
höfðingi hefur verið sakaður um
að óhlýðnast skipunum frá yfir-
stjórn friðargæsluliðsins og fara
þess í stað eftir skigunum frá Róm.
Þrír flokkar á Ítalíu, þeirra á
meðal Norðursambandið, sem er'í
mikilli sókn, hafa hvatt stjórnina
til að kalla hermennina heim.
Alþjóðanefnd Rauða krossins
áætlar að 50 manns hafi beðið bana
á mánudag þegar bandarískar her-
þyrlur gerðu árás á höfuðstöðvar
Aideeds í Mogadishu. Talsmaður
bresku hjálparstofnunarinnar
Björgum börnunum hvatti Samein-
uðu þjóðimar til þess að einbeita
sér að nýju að því að bjarga nauð-
stöddum Sómölum í stað þess að
eltast við Aideed.