Morgunblaðið - 15.07.1993, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 15.07.1993, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JUU 1993 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1368 kr. með vsk. á mánuði innanlands. I lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Áfengi og einkasala Fréttir af því að lögregla víðs vegar um landið hafi lókað umsvifamiklurd bruggverksmiðjum eru farnar að verða daglegt brauð. Þó að ávallt hafi verið bruggað á íslandi í töluverðum mæli virðist sem þessi iðja sé að færast í aukana. í fyrra var 36 bruggverksmiðjum lokað af lögreglu. Það sem af er þessu ári hefur mun færri verk- smiðjum verið lokað en hald lagt á meira magn af bruggi en allt síð- asta ár. Þróunin virðist vera í átt til stærri og afkastameiri brugg- verksmiðja. í nýlegri fréttaskýringu í Morg- unblaðinu kemur fram, að áætlað sé að 10-20 þúsund lítrar af svo- nefndum landa séu settir á markað- inn í hverjum mánuði. Var haft eft- ir lögreglumanni að þetta gæti þýtt, að veltan á landamarkaðinum næmi allt að 300 milljónum króna á ári. Höskuldur Jónsson, forstjóri Áfeng- is- og tóbaksverslunar ríkisins, seg- ir í Morgunblaðinu í gær að hann telji að milli 9 og 10% af því áfengi, sem neytt sé á Islandi, talið í hrein- um vínanda, sé framleitt í brugg- verksmiðjum. Ef þetta sama magn væri selt í verslunum ÁTVR myndu skatttekjur ríkisins aúkast um 800-900 milljónir króna á ári. Þetta eru tölur sem hljóta að vekja menn til umhugsunar. Það er eitthvað að, þegar myndast hefur neðanjarðarhagkerfí fyrir áfengi sem veltir mörg hundruð milljónum króna á ári. Við þetta bætist að töluverðu magni af áfengi er vafa- laust smyglað hingað til lands á ári hveiju. Hvorki brugg né smygl virð- ist særa réttarvitund almennings. Þá kaupa íslendingar að auki mikið magn af áfengi í fríhöfnum jafnt hér á landi sem erlendis. Sá hluti áfengisneyslunnar, sem fer ekki í gegnum hið opinbera einkasölu- kerfí, er því verulegur. Þetta ætti í sjálfu sér ekki að koma á óvart. Áfengi hefur fylgt manninum frá upphafi og í mann- kynssögunni er að finna ógrynni dæma um hve útsmogin mann- skepnan getur verið, er kemur að því að fara í kringum reglur, sem eiga að hefta áfengisneyslu. Nær- tækasta dæmið er þegar reynt var að koma á allsheijarbanni á áfengis- sölu í mörgum vestrænum ríkjum á fyrstu áratugum aldarinnar. Áfleið- ingin varð síður en svo sú að sala á áfengi hætti heldur færðist hún í hendur glæpamanna. í Bandaríkj- unum til dæmis varð gróði vegna ólöglegrar sölu á áfengi til að leggja grunninn að umsvifamikilli skipu- lagðri glæpastarfsemi. Hér á landi var einnig eitthvað um smygl og svartamarkaðsbrask og mjög deildar meiningar um ágæti bannlaganna. í júnímánuði 1917 sendi hópur 100 þjóðkunnra manna, sem nefndi sig Andbanningafélagið, frá sér áskorun, þar sem sagði meðal annars: „Þótt áfengisnautn hafi ef til vill minnkað eitthvað til sveita, en þar var drykkjuskapur þegar að mestu leyti úr sögunni, þá hefur hann ekki minnkað í kaup- stöðum og sjávarþorpum, en hefur aftur á móti orðið miklu skaðlegri heilsu manna vegna neyslu allskon- ar ódrykkja, sem allir vita, að marg- ir leggja sér til munns, þegar hörg- ull verður á ómenguðu áfengi, og allt eru það sterkustu brenndir drykkir, sem til landsins flytjast nú.“ Umræðan er því ekki ný af nálinni. Norðurlöndin hafa haft ákveðna sérstöðu í Evrópu þegar kemur að sölu á áfengi allt frá því að áfengis- sölubanni var aflétt á þriðja áratug aldarinnar. Hér hefur verið byggt upp ríkisrekið einkasölukerfí með það að markmiði annars vegar að draga úr áfengisneyslu en hins veg- ar hámarka tekjur ríkisins af þess- ari sömu neyslu. í ljósi reynsiunnar má hins vegar spyija hvort rökin fýrir einkasölu séu að veikjast. Hös- kuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, hefur bent á, að þótt áfengisverð sé hækkað hafí það ekki endilega í för með sér að neysla á áfengi drag- ist saman. Það Ieiði ekki síst til þess að fólk leiti ódýrari lausna. „Það er ekki alveg gefið, að menn drekki minna, heldur reyna þeir að ná í svipað magn fyrir minni pen- ing,“ segir Höskuldur. Þetta er ein- mitt það sem virðist vera að gerast nú. Staðan er áþekk annars staðar á Norðurlöndunum þó að þar hafi menn brugðist við nánari tengslum við önnur ríki með því að lækka verð á áfengi töluvert upp á síðkast- ið. Svíar, Norðmenn og Finnar leggja allir mikla áherslu á það, í aðildarviðræðum sínum við Evrópu- bandalagið, að fá að viðhalda einka- sölu á áfengi. Það virðist hins vegar ætla að verða torsótt. Fram- kvæmdastjóm EB hefur lýst því yfir að einkasala stríði gegn ákvæð- um Rómarsáttmálans, stofnsátt- mála bandalagsins, um samkeppni. Þá hafa þau rök verið dregin stór- Iega f efa af hálfu bandalagsins að einkasala sé réttlætanleg út frá heilbrigðisjónarmiðum. Segir bandalagið ekkert benda til þess að einkasala hafi orðið til að minnka áfengisneyslu. Þvert á móti hefur EB bent á nýlega sænska könnun þar sem fram kemur að rúmlega 40% af því áfengi sem Svíar neyta koma ekki úr hinni ríkisreknu einka- sölu heldur eru keypt í fríhöfnum eða frá bruggurum og smyglurum. Ríkisrekin sölustarfsemi heyrir sögunni til á flestum sviðum. Það er því orðið tímabært að ræða á opinskáan og fordómalausan hátt hvort til greina komi að afnema þá einokun sem hingað til hefur verið við lýði í áfengissölu á íslandi. Ef öðrum en ríkinu yrði leyft að selja áfengi yrði sú saia auðvitað að lúta ströngum reglum og hörðu eftirliti. Þá má spyija hvort gengið hafi verið of langt f því að hækka verð á áfengi úr því að jafn stór hluti áfengisneyslunnar og raun ber vitni fer í gegnum óopinberar leiðir. Með þessu er ekki verið að hvetja til aukinnar áfengisneyslu. Þvert á móti. Neyslan er þegar til staðar þó að hún komi ekki íram í opinber- um tölum. Raunhæft verð yrði því fyrst og fremst til að gera neysluna opinbera og tryggja að hún sé háð eðlilegu eftirliti og að af henni séu greidd tilskilin opinber gjöld. Ef sýna má fram á með rökum að núverandi kerfí uppfyllir ekki þau markmið sem réttlæta tilveru þess ber að breyta kerfinu. ' * J*-'' - <Tí , a 5' & ■ Á slysstað MYND Morgunblaðsins með fréttinni í gærdag af hinu alvarlega slysi. Drengurinn á batavegi eftir slysið við smábátahöfnina í Kópavogi Báturinn er ekki skoðunarskyldur SLYSIÐ sem varð við smábátahöfnina í Kópavogi á þriðjudag, er 9 ára drengur lenti í skrúfu hraðbáts á siglinganámskeiði hjá siglingaklúbbn- um Ymi, hefur vakið umræðu um öryggismál á slíkum námskeiðum. Sjö börn voru um borð í bátnum ásamt leiðbeinanda. Báturinn er ekki skoðunarskyldur og ekki eru til sérstakar reglur um starfsemi sem þessa. íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur hefur ákveðið að endur- skoða sérstaklega öryggismál varðandi alla starfsemi sína í ljósi þessa máls. Drengurinn mun vera á batavegi og líðan hans eftir atvikum góð. Að sögn formanns Siglingaklúbbs- ins Ýmis í Kópavogi, Hjördísar Andr- ésdóttur, er fyllstu öryggiskröfum framfylgt á öllum kennslu- og æfing- arsiglingum þar. Hún sagði að þeir þrír aðilar sém annast kennslu í sjó- mennsku fyrir klúbbinn séu allir van- ir starfsmenn og beri hún fyllsta traust til þeirra. Hjördís sagði að það væri brýnt fyrir bömunum að þau héldu sér og hreyfðu sig ekki til í bátunum meðan þeir væru á ferð. Slysið á þriðjudag hefði verið óhapp sem orið hefði þrátt fyrir að farið hefði verið eftir öryggisreglum í hvl- vetna. „Mér sýnast þessi mál hvergi nærri í lagi,“ sagði Svanhvít Ingólfsdóttir hjá lögreglunni í Kópavogi í samtali við Morgunblaðið. „Vegna þess að báturinn er undir 6 metrum virðast engar sérstakar reglur gilda um hann eða kennsluna sem þarna fer fram. Þá hlýtur það að teljast gáleysi að engin handföng eða handfesta er framantil í bátnum. því slíku væri auðvelt að koma fyrir.“ Hún benti einnig á að hlíf umhverfís skrúfuna hefði getað dregið úr hættunni. Ekki skoðunarskyldur Að sögn Benedikts Guðmundsson- ar siglingamálastjóra eru bátar und- ' ir 6 metrum ekki_ skoðaðir af Sigl- ingamálastofnun. í lögum um skipa- skoðun frá 30. apríl 1993 segir að eftirlit skuli hafa með öllum skipum lengri en sex metrar, svo og öllum farþegaskipum. Benedikt sagði að lögin hefðu verið túlkuð þannig að bátar sem þessir teljist ekki til far- þegaskipa og starfsemi sem þessi því utan starfssviðs Siglingamála- stofnunar. Hann sagði að atburður- inn vekti menn að sjálfsögðu til umhugsunar. Gera yrði kröfur um búnað og hæfni þeirra sem fengjust við kennslu af þessu tagi og óeðli- legt virtist að starfsemi sem þessi væri óháð öllum reglugerðum um öryggismál. Benedikt sagði að slysið væri í rannsókn hjá Siglingamála- stofnun og yrði áliti skilað að henni lokinni. Áhersla á öryggismál Sigríður Ólafsdóttir hefur kennt hjá siglingaklúbbnum Ými í 8 ár. Hún sagði að ekki væru til skráðar öryggisreglur um kennsluna um borð í bátunum en áhersla væri lögð á öryggismál og börnin ávallt höfð í björgunarvestum. Sigríður sagði að hJíf sem var fremst á bátnum, sem slysið varð á, hefði verið tekin af vegna viðgerða og ekki sett á aftur. Hún sagði að það væri vinnuregla að börnin væru ekki í stafni bátanna þegar þeir væru á ferð og þess vegna hefði ekki verið komið þar fyrir hand- föngum eða annarri handfestu. Endurskoða öryggisreglur „Við höfum afráðið að fara yfir allar öryggisreglur varðandi nám- skeiðahald og æfíngar hjá okkur í ljósi þessa atburðar," sagði Jónas Kristjánsson hjá íþrótta-.og tóm- stundaráði Reykjavíkurborgar. Hann sagði að slysið væri alvarleg áminn- ing um að sífelit þyrfti að kanna hlut- ina að nýju og gera betur, ekki að- eins í sambandi við kennslu á sjó heldur alla starfsemi á vegum íþrótta- og tómstundaráðs. Regluleg- ir fundir væru í starfshópum um ör- yggismál og reynt að bæta úr jafn- óðum og eitthvað kæmi upp. „Báturinn sem slysið var á í Kópa- vogi á þriðjudag var ekki skoðunar- skyldur og starfsemin utan reglu- gerða, það sem gerist virðist því á ábyrgð þess sem bátnum stýrir. Mér finnst það lélegt að þeir sem eiga að setja reglumar geti fríað sig frá ábyrgð sinni með svo auðveldum hætti. Það ættu að vera til reglur um starfsemi sem þessa,“ sagði Jónas. * Skýrsla OECD um umhverfismál á Islandi Veiðleyfagjald til hafrannsókna og mengunarvarna ÖSSUR Skarphéðinsson umhverfisráðherra kynnti í gær skýrslu Efna- hagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar, OECD, um stöðu og fram- kvæmd umhverfismála á Islandi. OECD virðist svo að þótt fiskveiði- stjórnun íslendinga hafa náð megintilgangi sínum megi enn bæta hana. Huga þurfi að erfiðleikum sjávarútvegsins við að laga sig að breyttum aðstæðum og neikvæðum áhrifum kvótakerfisins. „Gjald sem fæst fyr- ir veiðileyfi og kvóta rnætti nota í auknum mæli til að fjármagna ha- frannsóknir til að styðja þjóðfélagshópa og sveitarfélög sem bera skarð- an hlut frá borði til að laga sig að breyttum aðstæður,“ segir í niður- stöðum skýrslunnar. Umhverfisráðherra, Össur Skarp- héðinsson, boðaði fréttmenn til fund- ar í gær í garðskála Grasagarðins í Laugardal. Þar var kynnt skýrsla OECD um mat og stöðu og fram- kvæmd umhverfismála á íslandi. OECD hefur ákveðið að vinna skýrsl- ur um framkvæmd þessara mála í aðildarlöndum og eru ísland og Þýskaland fyrstu löndin sem samtök- in athuga. Skýrslan er unnin af sér- fræðingum frá Kanada, Noregi og Sviss í samstarfi við starfsmenn umhverfisráðuneytis. Umhverfisvöktun Umhverfisráðherra vakti athygli á ýmsu sem fram kæmi í skýrslunni. Það væri sérstaklega jákvætt að vatnsmengun væri sáralítil en hins vegar væri bent á að einungis 6% landsmanna nytu enn þjónustu skolphreinsistöðva. Landsmenn veittu ennþá óhreinsuðu skolpi í haf- ið og rannsaka þyrfti áhrif þessa á strandsjóinn. Höfundar skýrslunnar leggðu mikla áherslu á hversu óheillavænlegar afleiðingar umtals- verð mengun gæti haft fyrir fiskút- flutning okkar, eða jafnvel einungis grunur um mengun. Það væri því ljóst að Islendingar yrðu að vera vel á verði í sinni „umhverfisvöktun", þ.e. að fylgjast með menguninni og snúast til varnar í tíma. Ossur taldi þarft að vekja athygli á þessu því að honum og fleirum þætti á stund- um að skilningur fjárveitingavalds og þeirra sem yfir fé réðu, væri ekki nægjanlegur. í skýrslunni eru íslend- ingar hvattir til að taka upp um- hverfísvæna búskaparhætti í ríkara mæli. T.a.m. talin mikil þörf á því að stemma stigu við gríðarlegri fjölg- un hrossa. Sumtjákvætt Össuri var þó gleðiefni að benda á að skýrsluhöfundar teldu tnargt jákvætt hér á landi, t.d. að við hefð- um dregið úr styrkveitingum til að ræsa fram mýrar, og Island fengi jákvæða umsögn fyrir ýmsar stjórn- valdsaðgerðir, t.d. gjald á einnota plastpoka. Össur vakti einnig at- hygli á því að vikið væri að fískveiði- stjóminni og m.a. hvatt til þess að skattlagning kvóta eða afla yrði at- huguð hugsanlega í tengslum við lækkun á öðrum álögum. „Með því móti gæti stjómunarkerfi fískveiða staðið undir sér í auknum mæli, meira fjármagn fengist til rannsókna á lífríki sjávar og til varnaraðgerða gegn mengun í sjó,“ segir m.a. í skýrslunni. -----»■■ ♦ ♦- Tíu manns í bíl- veltu í Álftafirði Þrennt á slysadeild STÓR tíu manna bíll, fullur af fólki, valt í Álftafirði í gærmorgun um 25 km suður af Djúpavogi. Þrennt slasaðist í veltunni og var flutt á heilsugæslusstöðina á Höfn í Hornafirði. Meiðsli fólksins munu ekki alvarleg. Að sögn lögreglunnar á Fáskrúðs- firði er talið að sprungið hafí á öðm framhjóli bílsins og við það hafi öku- maður misst stjórn á honum þannig að bíllinn valt niður í skurð. Tilkynnt var um slysið um kl. 11 um morgun- inn og var þrennt, ein kona og tveir drengir, flutt á sjúkrahús en hinir sjö farþegamir sluppu með skrámur. Meiðli þeirra þriggja sem flutt vom til Hafnar munu þó ekki alvarleg. Bíllinn er talinn ónýtur eftir óhappið. 70 króna munur á ódýr- asta og dýrasta ísnum ÞAÐ fylgir gjarnan sumarblíð- unni að fá sér ís. Ekki skemmir að hægt er að fá ýmis konar góð- gæti með ísnum svo sem hrískúl- ur, hnetur og lakkrísbita, svo eitt- hvað sé nefnt. Verð á ísnum er hins vegar verulega mismunandi eins og blaðamaður Morgunblaðs- ins komst að er gerð var lausleg verðkönnun í nokkrum ísbúðum í bænum. Is með dýfu fyrir hjón með þijú börn getur kostað frá 350 krónum ef miðað er við ódýr- asta ísinn og upp í 685 krónur þar sem verðið er hæst. I þessari könnun kom I Ijós að mikill munur getur verið á lægsta og hæsta verði á stórum ís í brauð- formi með dýfu. Ódýrasti ísinn kost- ar 100 krónur í Isbúðinni við Lauga- læk, og er hann frá Rjómaísgerð- inni, en dýrasti 170 krónur bæði í íshöllinni í Skalla í Lækjargötu og í Dairy Queen í Aðalstræti og á báð- É) ís með dýfu Ýffl venju- barna- \) legur kr. ís kr. 1 Bónus ís 109 691 PÓIÍS 110 75 j Dairv Queen 170 1101 íshöllin á Skalla 170 115 1 ísbúðin í Álfheimum 105 701 Skalli í Laugalæk 110 75 I ísbúðin Lauaalæk 100 501 um stöðum er um að ræða Emmess- ís. Þetta er 70% verðmunur. í ísbúðinni við Álfheima er boðið upp á tvær stærðir af ís, fyrir utan barnaís, og er miðstærð þar svipuð hefðbundinni stærð annars staðar. Þar kostar miðstærðin 105 krónur sem er næstlægsta verð, sem fannst og selur verslunin Kjörís. Þá kemur Bónusís í Ármúla. Þar kostar ísinn 109 krónur og er það einnig ís frá Kjörís. Pólís í Skipholti selur ísinn frá Kjörís á 110 krónur og í Skalla í Laugalæk kostar Emmessís með dýfu einnig 110 krónur. Barnaís Barnaís með dýfu er einnig ódýr- astur í Isbúðinni í Laugalæk og kost- ar þar 50 krónur. Þá kostar hann 69 krónur í Bónusís. í ísbúðinni í Álfheimum er hann á 70 krónur og á Skalla í Laugalæk og Pólís kostar hann 75 krónur. í Dairy Queen ís- búðinni kostar sambærilegur ís 110 krónur, en í íshöllinni í Skalla kostar hann 115 krónur. Verðmunur á ódýr- asta og dýrasta barnaísnum er því 65 krónur. Minni álagning Helga Friðriksdóttir, verslunar- Morgunblaðið/Þorkell Ódýr ís HELGA Friðriksdóttir í ísbúðinni í Laugalæk selur ódýran ís og segir að álagning fyrirtækisins hafi verið minnkuð til að lækka verð. stjóri ísbúðarinnar í Laugalæk, segir að álagning sé almennt of há á ís. Hins vegar hafi ísbúðin minnkað álagningu sína og selji því ódýrari ís en oft. gerist og gengur. Hilmir Sigurðsson, eigandi ísbúð- arinnar I Álfheimum, segist ekki hafa hækkað verðið í versluninni sinni í um tvö ár og ástæðan fýrir því að hann selji ís í ódýrara lagi sé að hann sætti sig hreinlega við minni álagningu. Morgunblaðið/Þorkell Minnisvarði um Odd Ólafsson BJÖRN Ástmundsson, forstjóri Reykjalundar, Ragnheiður Jóhannes- dóttir ekkja Odds Olafssonar yfirlæknis og Haukur Þórðarson yfir- læknir á Reykjalundi við minnisvarða um Odd, sem Ragnheiður afhjúpaði í gær. Minnisvarðinn, Lífsnautn, er eftir Sigurjón Ólafs- son myndhöggvara. Sigurjón dvaldist um tíma á Reykjalundi og þar hóf hann listsköpun í málmi. Löndun á Þórshöfn 140 tonn af ísfiski úr Barentshafi Þórshöfn ÁFRAMHALD er á kaupum frysti- húsanna á Norð-austurlandi á ís- fiski úr Barentshafi. Síðastliðinn sunnudag kom hingað MS Atlantic Margaret, færeyskt skip, skráð í dóminíkanska lýðveldinu, og hófst löndun á 140 tonnum af þorski á Þórshöfn á þriðjudag. Sem fyrr eru það frystihúsin frá Húsavík til Vopnafjarðar, sem kaupa aflann og er honum ekið á milli. Fisk- urinn, sem er vænn, er flakaður á Bandaríkjamarkað og er hann uninn eins í öllum frystihúsunum fjórum. Hér eru menn brattir á meðan mikil vinna er í frystihúsinu en það er stærsti atvinnurekandinn á svæð- inu. Ný flæðilína er í húsinu sem eykur afkastagetu þess og gæði físks- ins. Heimamenn munu standa saman að því að áframhald verði á kaupum á erlendu hráefni og hér verða menn ekki ánægðir ef stoðum verður kippt undan þessum kaupum á fiski úr Barentshafi. - L.S. ♦ ■ ♦ ♦ Eldur laus í Alfheimum SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var kallað út að blokk í Álfheimum í gærmorgun en þá lagði mikinn reyk út úr einni íbúðinni. Móðir og þrjú börn höfðu verið inni í ibúðinni er elds varð vart en öll komust þau út. Að sögn slökkviliðsins var lítill eld- ur í íbúðinni en kveiknaði hafði í út frá mat á eldavél. Börnin voru flutt á slysadeild til skoðunar en ekkert reyndist ama að þeim. Sumarferð Landsmálafélagsins Varðar Farið verður norður um Kjöl o g að Blönduvirkjun SUMARFERÐ Landsmálafélagsins Varðar verður farin næstkomandi laugardag. Farið verður norður um Kjöl að Blönduvirkjun og síðan suður til Reykjavíkur eftir þjóðvegi nr. 1. Áð verður að Gullfossi, á Hveravöllum og við Blönduvirkjun og flytja þeir Davið Oddsson for- sætisráðherra og Markús Öm Ant- onsson borgarstjóri ávörp. Aðalfararstjóri í sumarferðinni verður Höskuldur Jónsson, forseti Ferðafélags íslands. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið, að farið yrði af stað klukkan 7.45 að morgni, enda væri leiðin löng og því mikilvægt að halda stundvíslega af stað. Haldið verði frá Valhöll að Háaleitisbraut og ekið sem leið liggur austur að Gull- fossi. Þar verði áð og skoðaðar þær framkvæmdir sem Ferðamálaráð og Náttúruvemdarráð hefðu unnið að til að bæta ^ðstöðu ferðamanna. Þar myndi Markús Öm Antonsson borgar- sljóri einnig ávarpa ferðafólkið. Fjallasýn skoðuð og sagnir rifjaðar upp Höskuldur segir að búast megi við að staldrað verði við hjá Gullfossi í um hálfa klukkustund. Þaðan verði síðan haldið til Hveravalla og fjalla- hringurinn skoðaður á leiðinni. Víða sjáist vel til fjalla, vatna og jökla, ekki síst af Bláfellshálsi. Þegar komið sé austur fyrir Hvítá verði kominn tími til að rifja upp ýmsar sagnir af Kjalarsvæðinu. Þær séu fjölskrúðug- ar, og megi nefna þá trú sumra, að reimt sé í skála Ferðafélagsins í Hvít- ámesi. Einnig verði minnst á sögu svæðisins, en þar hafí farið um her- flokkar á Sturlungaöld, útilegumenn hafí búið þar og ýmsir mannskaðar orðið. Allir þekki til dæmis söguna Áð við Gullfoss ÁÐ VERÐUR við Gullfoss og meðal annars skoðaðar þær framkvæmd- ir, sem Ferðamálaráð og Náttúruverndarráð hafa unnið að til að bæta aðstöðu ferðamanna þar. um örlög Reynistaðabræðra, sem þama bám beinin. Ávarp forsætisráðherra á Hveravöllum Að sögn Höskuldar er gert ráð fyr- ir að snæddur verði hádegisverður á Hveravöllum. Það verði hverasvæðið skoðað, sem og minjar um vem Fjalla- Eyvindar og Höllu, og Davíð Oddsson forsætisráðherra muni flytja ávarþ sitt. Næsti áfangastaður ferðarinnar verður Blönduvirkjun. Höskuldur seg- ir að tækifæri gefíst til þess að skoða stöðvarhúsið, sem sé undrastórt, en þó aðeins brot af þeirri miklu mann- virkjagerð, sem fram hafí farið í tengslum við gerð virkjunarinnar. Minnast megi þess, að vatnasvið henn- ar nái yfir 1.520 ferkílómetra og stífl- ur rísi í allt að 44 metra hæð. Veitu- skurðir séu á annan tug kílómetra að lengd. Húnvetningar bætast í hópinn Leið Varðarfélaga mun að þessu loknu liggja eftir þjóðveginum vestur Húnavatnssýslu. Höskuldur segir að þar muni Húnvetningar bætast í hóp- inn til að greina frá staðháttum og mannlífi í héraðinu. Hann segir að það hafi jafnan verið til gildisauka hverri ferð Varðar þegar heimamenn komi til liðs við ferðafólkið. Húnvetn- ingar verði hins vegar kvaddir við Brú og eftir það muni för verða hraðað til Reykjavíkur. Áætlað sé að komið verði þangað um klukkan 23 um kvöldið. Höskuldur Jónsson sagðist að lok- um vilja leggja áherslu á, að nauðsyn- legt væri fyrir þátttakendur að hafa með sér nægt nesti til dagsins og vera í hlýjum, skjólgóðum fötum og góðum skóm. Þá væri ástæða til að hvetja fólk til fararinnar, enda væri hér far- ið um stórt svæði, sem bæði byggi yfír mikilli náttúrufegurð og athyglis- verðri sögu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.