Morgunblaðið - 15.07.1993, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JUU 1993
29
Vonin felst í
sáttargjörð
Munib Younan frá luthersku kirkj-
unni í Palestínu segir kirkjuna vinna
mikið hjálpar- og skólastarf
KRISTIN kirkja í Palestínu vinnur að sáttargjörð ólíkra kynþátta
og trúarbragða. Kirkjan stundar viðamikið líknar- og skólastarf
meðal þurfandi Palestínuaraba. Nýlega heimsótti Island séra
Munib Younan, lútherskur prestur í Ramallah, skammt frá Jerúsal-
em. Séra Younan er í stjórn Lútherska heimssambandsins og situr
í kirkjuráði Mið-Austurlanda. Meðal erinda séra Younans hingað
til lands var að leita stuðnings Þjóðkirkjunnar og Hjálparstofnun-
ar kirkjunnar við mannúðarstarfið í Palestínu.
„Kristnir menn hafa búið við
botn Miðjarðarhafsins allt frá
frumkristni. Arabar eru nefndir í
Postulasögunni á meðal þeirra sem
tóku við heilögum anda á hvíta-
sunnudag forðum,“ segir séra Yo-
unan. Flestir arabar aðhyllast isl-
am, en hvernig er að vera kristinn
meðal múslimskra araba? „Kristnir
Palestínuarabar eru minnihluti
meðal minnihluta, en hafa þó ekki
neina minnimáttarkennd,“ segir
séra Younan. „Við erum súrdeig
og eigum að sýra mjölið, iíkt og
Jesús Kristur sagði. Við höfum
hlutverki að gegna í þjóðfélagi
okkar og erum hluti samfélagsins."
Helstu kirkjudeildir kristinna í
Palestínu eru kaþólska kirkjan,
gríska rétttrúnaðarkirkjan, aust-
urlenska kirkjan og evangelískar
kirkjur. Lútherska kirkjan í Palest-
ínu telur um 2.000 meðlimi og
rekur mjög umfangsmikið starf. A
vegum kirkjunnar er skóli fyrir
tæplega 3.000 palestínska nem-
endur sem tekur við nemendum
án tillits til trúar eða uppruna. í
skólanum er veitt almenn menntun
á grunnskólastigi og biblíufræðsla,
hjálparstofnanir og einstaklingar
greiða skólagjöld fátækra nem-
enda. Séra Younan segir menntun
þjóðar sinnar mikilvæga og ekki
síður siðferðilega fræðsla, sem
lögð er áhersla á í skólanum. Auk
almennrar kennslu innrætir skól-
inn nemendum sínum umburðar-
lyndi og kennir þeim að umgang-
ast annað fólk sem jafningja, jafn-
vel þótt það sé af öðrum uppruna,
hafi aðrar skoðanir eða aðra trú.
Kirkjan rekur einnig viðamikið
líknarstarf, meðal annars matar-
gjafir til aldraðra í Ramallah. „Við
hjálpum öllum sem eru í þörf. Til
dæmis er enginn matarþega í lút-
herska söfnuðinum. Þeir eru mú-
slimar og úr öðrum kristnum kirkj-
um,“ segir séra Younan. „Það er
ekki gerður greinarmunur á fólki
eftir uppruna eða trúarbrögðum.“
Kirkjan í Palestínu hefur notið
stuðnings frá Norðurlöndum og
Þýskalandi, en hin síðari ár hafa
þær kirkjur í auknum mæli beint
hjálparstarfi sínu til Austur-Evr-
ópu og gengi norrænna gjaldmiðla
hefur lækkað. Þarfirnar í Palestínu
hafa þó síður en svo minnkað.
Meðal erinda séra Younans hér á
landi var einmitt að leita eftir
stuðningi Hjálparstofnunar kirkj-
unnar við líknar- og skólastarf
Morgunblaðið/Sverrir
Séra Munib Younan heimsótti forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, meðan harin dvaldi hér
á landi.
Lúthersku kirkjunnar í Palestínu.
Heimabær séra Younans, Ram-
allah á Vesturbakka Jórdanár,
hefur oft verið í fréttum vegna
uppþota og óeirða. „Pólitískt
ástand er mjög erfitt í Palestínu,“
segir séra Younan. „Jerúsalem er
einangruð frá Vesturbakka Jórd-
anar og við þurfum sérstakt leyfi
til að heimsækja borgina. Þar er
miðstöð athafnalífsins, helstu heil-
brigðisstofnanir og menntastofn-
anir að ekki sé minnst á helga
staði.“ Jerúsalem er heilög borg
þriggja eingyðistrúarbragða, krist-
indóms, gyðingdóms og islam.
— Hvert er hlutverk kirkjunnar
í landi þar sem hatur og óvild virð-
ist hafa fest svo djúpar rætur?
„Hlutverk okkar er að byggja
brýr milli manna,“ segir séra Yo-
unan. „Við sem kirkja biðjum þess
að þjóðirnar tvær fái búið saman
og að eingyðistrúarbrögðin þrjú
geti einnig búið saman í sátt og
réttlæti. Sem kristin kirkja erum
við á móti ofbeldi og vinnum að
friðsamlegum lausnum." Fulltrúar
trúarbragðanna þriggja hafa tvisv-
ar hist til samræðna, fyrst í Sví-
þjóð og nú síðast í Sviss. Séra
Younan bindur einnig vonir við
friðarviðræðurnar sem staðið hafa
milli Palestínumanna og Israela
þótt árangur háfi ekki sýnt sig til
þessa. En séra Younan dregur
ekki dul á að ástandið sé óviðun-
andi og erfitt að búa við langvar-
andi óréttlæti.
Séra Younan segist geta talað
um vandamálin í ísraei á opinská-
an hátt úr ræðustóli kirkjunnar.
Hann leggur mikla áherslu á þátt
sáttar og fyrirgefningar í boðskap
sínum. „Ég þrái að sjá hringrás
illskunnar enda, að hatrið hverfi.
Að allir íbúarnir læri að lifa í sátt
og samlyndi. Það er ekki auðvelt
að fyrirgefa, því hatrið stendur svo
djúpt, en við vinnum að sáttar-
gjörð og hún getur farið fram.
Þetta er mín framtíðarsýn. Fyrir-
gefningin fylgir svo í kjölfar sátt-
argjörðarinnar. Við verðum að
læra að lifa saman í sátt á þessu
landsvæði, það er engin önnur
lausn til. Meirihluti fólks á þessu
svæði viil farsæla og friðsæla lausn
á vandamálunum fyrir botni Mið-
jarðarhafs. Samt er margt að ótt-
ast og ég er hræddur um að póli-
tísk vandamál kunni alveg eins að
vaxa í framtíðinni. Það eru til öfga-
menn með öfgaskoðanir bæði í
ísrael, á íslandi og meðal Palest-
ínumanna. Oft njóta þeir athygli
fjölmiðla, en meirihlutinn er á ann-
arri skoðun. Fyrirgefningin og
kærleikurinn megna ein að bæta
ástandið."
— En hvað um framtíð Palest-
ínuþjóðarinnar, sem búið hefur á
hernumdu svæði áratugum saman?
„Þjóð mín hefur gengið um hríð
veg þjáningarinnar, Via Dolorosa,
en við vitum að þeirri göngu lýkur
með upprisu. Þjóð mín mun rísa
upp.“
____________Brids____________________
Arnór Ragnarsson
Mánudaginn 5. júlí mættu 50
pör til leiks í Sumarbrids. Spilaður
var tölvureiknaður Mitchell með
tölvugefnum spilum. Miðlungur
var 420. Efstu pör voru:
Norður/Suður:
Dúa Ólafsdóttir - Eggert Bergsson 474
Ragnar Hermannsson - Matthías Þorvaldsson 472
Erla Siguijónsdóttir - Sigurður Siguijónsson 470
Hjördís Eyþórsdóttir - Lindsay Scandrett 458
Austur/Vestur:
Erlendur Jónsson - Jón Viðar Jónmundsson 502
Þórður Sigurðsson - Valtýr Pálsson 488
Siguijón Harðarson - Óðinn Þórarinsson 487
Árnína Guðlaugsdóttir - Bragi Erlendsson 47
Þriðjudaginn 6. júlí mættu 34
pör til leiks. Spiluð voru 30 spil
og miðlungur var 420. Efstu pör
voru:
Norður/Suður:
Guðmundur Eiríksson - Bjöm Theodórsson 570
Jón Steinar Ingólfsson - Sigurleifur Guðjónsson 510
Jón Ingólfsson - Aron Þorfinnsson 476
Austur/Vestur:
Ragnheiður Nielsen - Helgi Samúelsson 509
Guðlaugur Sveinsson - Lárus Hermannsson 498
Sigfús Þórðarson - Þórður Sigurðsson 490
Miðvikudaginn 7. júlí mættu 40
pör. Spilaður var tölvureiknaður
Mitchell. Meðalskor var 420. Efstu
pör:
Norður/Suðun
ÞórðurBjömsson-KjartanJóhannsson 521
Alfreð Kristjánsson - Gylfí Guðnason 489
Þórður Sigurðsson - V^týr Pálsson 475
Austur/Vestur:
Guðmundur Páll Amarss. - SverrirÁrmannsson534
Hermann Friðriksson - Vignir Hauksson 516
Oskar Karlsson - Þórir Leifsson 490
TÆLENSKUR MATUR
TÆLENSKT UMHVERFI
Sumarbridge er spilaður alla
daga nema laugardaga og byijar
stundvíslega kl. 19.00. Allir spilar-
ar eru velkomnir.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
' gtóum Moggans!
Sumarútsalan
hefst í dag
Allt að
afsláttur
s 'W ■
IZITÍ’ Kringlunni, sími 689811 & Hverafold, sími 676511 j