Morgunblaðið - 15.07.1993, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JULI 1993
31
Skapti Askelsson
skipasmíðameistari
það voru allir með. Gott væri ef
þetta lifði áfram; en þá dugir ekki
vílmóður eins og nú heyrist í landi,
það dugir ekki.
Skapti Áskelsson var vörpulegur
maður og vasklegur í framgöngu
og kippti þannig í kyn móður-
frænda. Hann var úr hópi átta
systkina sem upp komust. Faðir
hans var Áskell Hannesson, smiður
og bóndi, móðir Skapta Laufey Jó-
hannsdóttir frá Skarði í Dalsmynni.
Þau bjuggu í Austari-Krókum á
Flateyjardalsheiði, föðurleifð
Áskels. Jóhann Bessason á Skarði,
afi Skapta, var smiður mikill bæði
á tré og járn og þekktur að atgervi
og fyrir afls sakir - og eru sögur
af honum, bæði hjá Theodór Frið-
rikssyni og í Öldinni okkar (Óðni
1907), en verkin standa svo sem
Laufásbær, Laufáskirkja og vatns-
veitan á Skarði þar sem vatnið rann
uppímóti - sýndist fólkinu. Bessi
gamli bjó í Skógum í Fnjóskadal,
faðir hans var Eiríkur sterki á
Steinkirkju, þaðan Steinkirkjuætt.
Móðir Laufeyjar, kona Jóhanns, var
Sigurlaug dóttir Einars Bjarnason-
ar frá Fellsseli, þaðan er Fellssels-
ætt. Eru kynkvistir af þessum meiði
fjölmennir orðnir bæði nyrðra og
syðra.
Áskell faðir Skapta var enn smið-
ur og sagður gáfumaður, hann var
þriðji maður frá Kristjáni á Illuga-
stöðum. Hólmfríður móðir Áskels
átti ættir um Ljósavatnsskarð og
vestur í Svarfaðardal að Sælu.
Laufey móðir Skapta var mæt kona,
hún varð ekki langlíf. Áskell og
Laufey fluttu að Skuggabjörgum í
Dalsmynni, síðar að Fagraskógi og
Svínárnesi. Eftir dauða Laufeyjar
er flutt til Grenivíkur, þar var þorp
að verða til.
Systkin Skapta voru: Bjarni elst-
ur, sjómaður frá -Grenivík, traustur
maður og kímniríkur, vísnamaður;
Jóhannes, merkur jarðfræðingur,
lengi kennari við Menntaskólann í
Reykjavík; Þorbjörn, útgerðarmað-
ur, afbragð manna; Brynhildur,
varð ekki langlíf og mörgum eftir-
sjá að; Egill, kennari og bóndi,
traustur maður. Eftir lifa Þórir,
seglagerðarmaður á Akureyri, öðl-
ingur, og Stefanía yngst, drengur
góður.
Skapti átti hina ágætustu konu,
Guðfinnu Hallgrímsdóttur frá
Glúmsstöðum í Fljótsdal, hún lést
1979. Þau áttu tvo sonu, Hallgrím
sem nú er forstjóri fyrir Skipa-
smíðastöðinni Vör hf. og Brynjar
skipaverkfræðing á Akureyri, þar
eru tveir góðir kynkvistir Skapta á
heimaslóð. Hjá Hallgrími og konu
hans Hebu Ásgrímsdóttur átti
Skapti gott skjól í elli sinni. Og nú
er gamli burðarásinn fallinn, sá sem
mest lék um hér á árum áður -
hann var talsvert fyrirferðarmikill,
því er ekki að neita, og verður sjálf-
sagt líka handan Iandamæranna.
Skapti var ungur tekinn í fóstur
að Skarði, þar sem þá bjó móður-
kyn hans. Það hafði komið upp kíg-
hósti fyrir norðan, drengurinn
skyldi vera þar einhverjar vikur.
Og ílentist svo þar. Heimilið á
Skarði var stórt í sniðum, þótt afinn
væri fallinn, gamli Jóhann Bessa-
son. Við búinu tók Jón sonur hans,
Jón á Skarði, og þar ólst Skapti
upp að hálfu. Handan við ána
bjuggu þá foreldrar hans, á
Skuggabjörgum. Á Skarði fékk
Skapti hið besta atlæti. - Á efri
árum byggði hann sér sumarbústað
efst í Skarðsgili. Sterkar eru rætur
í Skarðsskógi. - Bragi Siguijónsson
rithöfundur og bankastjóri reit ævi-
sögu Skapta fyrir nokkrum árum.
Þar segir Skapti frá uppvexti sínum
bæði á Skarði og á Skuggabjörgum;
þar voru þeir geitasmalar Skapti
og Egill bræður, þá var geitabú-
skapur eðlileg framfærsla. Sjálfur
sá ég ungur hversu vel fór saman
fólkið og landið og sagan - og niður
Fnjóskár og niður aldanna - hversu
vel fólkið fór landinu.
Líkt og um Skapta þá ílentust á
Skarði margir sem aðstoðar þurftu
við - þetta var tryggingakerfi þess
tíma, og er falleg saga: allir kom-
ust þar til nokkurs þroska.
Skapti var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir
störf sín. Með föllnum verkmanni
þá eiga vel við minningarorð um
afa hans Jóhann gamla Bessason
sem Ingólfur læknir Gíslason sagði:
Nú verða einhverjir aðrir
á undan að ganga.
Guð veiti bjargráð og blessun
byggðinni minni.
Valgarður Egilsson.
t
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
INGVARS GUÐFINNSSONAR
fyrrverandi bryta,
verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 16. júlí kl. 10.30.
Steinunn Ingvarsdóttir, Sverrir Halldórsson,
Gunnar Ingvarsson, Jófríður Guðjónsdóttir,
Hólmfríður Ingvarsdóttir, Stefán Björnsson,
Guðbjörg Guðjónsdóttir, Einar Grétar Björnsson,
Anna Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Viðgerðir á Hofskirkju
AÐ UNDANFÖRNU hafa staðið yfir töluverðar viðgerðir á Hofskirkju
í Öræfum, en hún er eins og kunnugt er ein af fáum torfkirkjum land-
isns. Voru veggir og kampar hlaðnir upp að hluta og burðargrind
hússins endurnýjuð. Næsta sumar er svo gert ráð fyrir að ljúka við-
gerðum með því að laga stafgólfíð og flejra. Hofskirkja er í umsjá
Þjóðminjasafnsins og annast menn frá safninu viðgerðina. S.G.
t
Ástkær móðir okkar, dóttir, systir og
mágkona,
JÓNÍNA ELFA SVEINSDÓTTIR,
Ljósheimum 2,
er látin.
Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ruth Örnólfsdóttir,
Örnóifur Örnólfsson,
Bergþóra Skarphéðinsdóttir, Sveinn Guðmundsson.
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR,
Byggðavegi 103,
Akureyri,
er lést mánudaginn 12. júlí, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 19. júlí kl. 13.30.
Guðmundur Jónsson,Lovfsa Ásgeirsdóttir
Jón Einar og Birgir Örn Guðmundssynir.
t
Elskuleg móðir okkar,
JÓNÍNA ÓLAFSDÓTTIR,
sem lést laugardaginn 10. júlí verður jarðsett frá Fossvogskirkju
mánudaginn 19. júlí kl. 3 e.h.
Blóm afþökkuð, en þeir, sem vilja minnast hennar, láti líknarstofn-
anir njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhann Jónsson,
Guðrún Milburn,
Rannveig Sommer.
t
Móðir okkar,
ÓLÖF DAGMAR ÁRNADÓTTIR
frá Skútustööum,
sem andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands
miðvikudaginn 7. júlí, verður jarðsungin
frá Kotstrandarkirkju í Ölfusi laugardag-
inn 17. júlí kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Landgræðslusjóð, Ránargötu 18,
Reykjavík, sfmi 13422/18150.
Inga Huld Hákonardóttir,
Auður Hildur Hákonardóttir,
Hjördís Björk Hákonardóttir.
ARISTON ARISTON
stgr
800/1100 snun
18 þvottakerfi
Enginn barki
61,000,
stgr.
KJOLUR hf
Armúla 30
s: 678890 - 678891
ÞV0TTAVÉL
500/850 snún.
Regnúðakerfi
Síulaus
18 þvottakerfi
Magnskynjari
^íQ.a£aGan
Plymouth Sundance '89, rauður,
30 þ. km. V. kr. 890 þús.
Hyundai Pony GLS, '92, 4 þ. km.,
álfelgur, topplúga o.fl. Kr. 1.050
þús. Allt lánað.
MMC Colt EXE '92, svartur, 19 þ.
km. Kr. 850 þús.
Daihatsu Charade TX '91, blár, 10
þ. km.
Mazda 323 GTX '91, 4x4 turbo,
rauður.
Dodge Ram 250 '90, blár tvíl., 30
þ. km. Vél 318 EFI. Luxusklassa-
vagn. Kr. 2.4 m.
Subaru Legacy '92 4x4, 16 þ. km.
Kr. 1.690 þ.
Benz 1117-D '86, 5 tonna, 99 þ.
km., sturtur, veltist. Einstök gæði
og útlit.
Setlandsbátur, 18 fet, á vagni.
Kr. 170 þ.
Suzuki Vitara JLXI '91, 4x4, 3ja
dyra. Kr. 1.350 þ.
Peugeot 405 GR '91, rauður, 18
þ. km. Vandaður vagn og ágætt
verð kr. 1,1 m.
vít gtfta titq
Margirbílarseldir
fyrirskuldabréf.
Endalaus bílasala.
Nýlegir sölubílar óskast.
Höfum fjölgað sölumönnum.
Elsta bílasala landsins.
Höfum selt bíla frá upphafi.
v/Miklatorg, símar 17171-15014.
Mnfrifr
í Kaupmannahöfn
’ FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG A RÁOHÚSTORGI