Morgunblaðið - 15.07.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993
33
Mótherji fjármálaráðuneytisins fær engum vörnum við komið þeg-
ar Theo Waigel sparkar boltanum snyrtilega framhjá honum.
ÍÞRÓTTIR
Theo Wigel fjármálaráðherra
verðandi fótboltastjama?
Anna Bretaprinsessa er stödd í
Mongólíu í tilefni árlegrar frúar-
hátíðar þar í landi. Alvön hestum
brá hún sér bæði á hestbak og á
bak kameldýrs. Með henni á
myndinni er mongólskur fylgd-
armaður hennar.
Reuter
Léttur knattspyrnuleikur fór
fram nú í vikunni milli þýska
fj árm ál aráð u neytisi n s og þýska
verslunarráðsins. Að sjálfsögðu lét
Theo Waigel fjármálaráðherra sitt
ekki eftir liggja — enda kannski
frétt af góðri markvörslu Þorsteins
Pálssonar dómsmálaráðherra í Eyj-
um fyrr í þessum mánuði — og tók
þátt í keppninni af fullum krafti.
Meðfylgjandi myndir segja meira
en nokkur orð.
Ekki fer á milli mála að öllum
ráðum var beitt og má sjá hvern-
ig fjármálaráðherrann skallar
boltann af miklum krafti en nýt-
ir afgangsorkuna til að kýla and-
stæðinginn, sem á sér einskis ills
von.
. JF"
■
J.L.H. hjol fyrir linu numer 7/8
Sovereign flugustöng, 9 fet
TÆKIFÆRI
TILAÐ EIGNAST
HARDY
FLUGUSTÖNG
HOUSE OF HARDY vörur eru draumur allra sportveiðimanna.
Þær eru viðurkenndar hágœðavömr, sem ciga sérfáa líka.
Núgetum við boðið HARDY stangir ogjluguhjól á hagstœðu
vcrði. Gríptu þetta tœkifæri og eignastu HARDY - lífstíðar eign.
Helti
Sovereign
Sovereign
Deluxe
Iceland Special
Favorite
Favorite
lengdf AFTM
fetum númer Ifnu
9’
9'6"
9'3"
9'6"
9'
9’6"
7/8
7/8
7/8
8/9
7/8
7/8
verð kr.
34.490,-
35.757,-
27.574,-
21.950,-
19.281,-
19.889,-
HAFNARSTRÆTI 5 ■ REYKJAVÍK • SÍMAR 91-16760 & 91-14800
wwwwwwwvww
STJÖRNUR
Hvað veld-
ur svefn-
leysi?
Nokkrir þekktir aðilar í
Bandaríkjunum voru
spurðir að því hvað ylli þeim
helst svefntruflunum. Tom
Hanks svaraði því til að það
væru börnin hans. Hann hefði
áhyggjur af ýmsum erfiðleikum
sem kæmu upp hjá 11-15 ára
unglingum og hann gæti ekki
komið í veg fyrir. Þegar áhyggj-
urnar væru miklar gengi hann
um gólf eða horfði á sjónvarpið
um miðja nótt. Svarið var ein-
faldara hjá eiginkonu hans Ritu
Wilson: „Tom Har.ks".
Reuter
KONGAFOLK
Reynt að aka á
bíl Onnu prinsessu
Anna Bretaprinsessa og eigin-
maður hennar Tim Laurence
eru um þessar mundir á ferðalagi
í Rússlandi og Mongólíu. Síðastlið-
inn laugardag þegar þau yfirgáfu
Moskvu og voru í bílalest á leið út
á flugvöll var gerð tilraun til að aka
á limmósínu af Zil-gerð sem þau
hjónin sátu í ásamt fylgdarliði.
Lögregluvörður sem var í fylgd-
arliðinu og gegndi hlutverki lífvarð-
ar skaut aðvörunarskoti að bifreið-
inni og ekkert varð úr árokstrinum.
Bílstjórinn, sem virtist vera af
Kákasusættum samkvæmt heimild-
um dagblaðs í Moskvu, hélt áfram
vjsginn sem liggur til St. Peters-
borgar. Að sögn talsmanns breska
y&itcuixv
Heílsuvörur
nútímafólks
sendiráðsins í Moskvu voru Anna
og Tim aldrei i neinni hættu.
Árið 1986 komst upp um sam-
særi um að ræna Önnu prinsessu,
en þá hugðust ræningjarnir láta
hana af hendi í skiptum fyrir eitur-
lyfjabarón.
w
\