Morgunblaðið - 15.07.1993, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 15. JÚLI 1993
IÞROTTIR UNGLINGA / KNATTSPYRNA
Lyngby
leikur hér
á landi
UNGLINGALiÐ frá danska fé-
laginu Lyngby B.K. kom hingað
til lands f gær en liðið mun dvelj-
ast hér á landi í tíu daga og
leika þrjá leiki við íslenska jafn-
aldra sfna.
I knattspyrnu sex
stundir á hverjum degi
Stór hluti af þeim drengjum
sem eru í Knattspymuskóla
Fram æfa einnig með sjötta flokki
félagsins og óhætt er að segja að
lítið komist að annað yfir sumar-
tímann heldur en knattspyrna.
Félagarnir Kristinn sem er til
hægri á myndinni og Hannes sem
báðir eru á tíunda aldursári eru
i þeirra hópi. Báðir leika þeir
knattspyrnu frá klukkan 10-16
ef matartími er undanskilinn.
„Það er mjög skemmtilegt bæði
á æfingum hjá sjötta flokki og í
knattspyrnuskólanum," sögðu
þeir en knattspyrnan er í fyrirrúmi
hjá þeim og skemmtilegasta
íþróttin að mati beggja.
Lið Lyngby er skipað leikmönnum
sautján ára og yngri og mun
Íað leika gegn FH í Kaplakrikanum
1. 17 í dag. Á sunnudaginn kl. 14
mun liðið mæta U-18 ára landslið
íslands í Laugardalnum og verður
annað hvort leikið á Valbjarnarvelli
eða á gervigrasinu. Síðasti leikur
liðsins hér á landi verður gegn ÍA á
Akranesi nk. miðvikudagskvöld.
Lyngby er eitt af þekktari félög-
um Danmerkur.
HANDBOLTI
Töphjá
stúlkunum
Islenska unglingalandsliðið í
handknattleik kvenna, skipað
leikmönnum 19 ára og yngri,
hefur tapað tveimur fyrstu leikj-
um sínum í opna Norðurlanda-
mótinu, sem stendur yfir í Dan-
mörku. Fyrst tapaði liðið stórt,
15:27, fyrir Noregi, en síðan með
einu marki, 19:20, fyrir Litháen.
Geysilegur áhugi
- segir Guðmundur Páll Gíslason hjá Knattspyrnuskóla Fram
„ÁHUGINN er geysilega mikill
hjá þessum krökkum. Margir
þeirra eru mættir klukkan nfu
á morgnanan og eru hér til
klukkan fjögur þegar við hætt-
um,“ segir Guðmundur Páll
Gfslason, leiðbeinandi hjá
Knattspyrnuskóla Fram í Safa-
mýrinni þegar Morgunblaðið
leit inn á æfingu ífyrradag.
Allflest knattspyrnufélögin
bjóða upp á Knattspyrnu-
skóla. Námskeiðin hjá Fram hafa
verið vinsæl og upp undir 200 þátt-
takendur hafa verið á þeim fjórum
námskeiðum sem félagið hefur
staðið fyrir í sumar. Skólinn stend-
ur frá klukkan 13 til 16 alla virka
daga en stór kjarni af eldri drengj-
unum mætir einnig á æfingar hjá
sjötta flokki félagsins fyrir hádegi.
„Þroskinn er mjög mismunandi
hjá þátttakendum enda eru krakk-
arnir allt frá fjögurra til ellefu ára.
„Við höfum því skipt þeim í tvo
hópa. Meira er um leiki hjá yngri
hópnum og þar eru „stórfiskaleik-
ur“ og „skallað og gripið" mjög
vinsælir. í eldri hópnum eru margir
strákar sem eru farnir að læra mun
meira um knattspyrnu. Þeir eru
orðnir það góðir að það er hægt
að kenna þeim skot og ýmis atriði
sem koma fyrir í leikjum," sagði
Ágúst Ólafsson sem í sumar starfar
sem leiðbeinandi hjá Fram ásamt
þeim Guðmundi Páli, Rúnari Sig-
mundssyni og Steinari Guðgeirssyni
sem allir æfa með meistaraflokki
Fram en þeir fá reyndar góða hjálp
frá piltunum úr þriðja flokki.
„Starfið er skemmtilegt. Við er-
um á knattspymuvellinum frá
klukkan tíu til fjögur og á kvöldin
förum við á æfingar. Þá má því
segja að við séum í knattspyrnu frá
morgni til kvölds," sagði Guðmund-
ur og bætti við að kennslan gengi
vel og að það væri ekki vandamál
að stjórna þessum hópi. „Sumir
drengjanna hlusta aldrei á okkur
en langflestir reyna að gera sitt
besta. Strákar eru í miklum meiri-
hluta en þó eru fjórar fimm stelpur
mjög góðar.“
Þátttakendur hafa verið á bilinu
fjörtíu til fimmtíu á hveiju nám-
skeiði en mikið er um að sömu
krakkarnir komi hingað aftur og
aftur.
Morgu nblaðið/Frosti
Yngri hópurinn sem mætti á æfmguna i fyrradag_ ásamt leiðbeinendum. Á
minni myndinni má sjá þá eldri og reyndari ásamt Ágústi Ólafssyni.
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið / Frosti
Fimmtán ára landsliðhópurinn i í handknattleik stúlkna. Aftari röð frá vinstri: Anna Margrét Guðjónsdóttir þjálf-
ari, Valdís Pjölnisdóttir (KR, Björg Fenger (Gróttu), Anna Blöndal (KA), Sæunn Stefánsdóttir (KR), Helga Ormsdóttir
(KR), Kristín Guðmundsdóttir (Víkingi), Ólöf Indriðadóttir (KR), Edda Garðarsdóttir (KR) og Inga Björgvinsdóttir
(Stjömunni). Fremri röð frá vinstri: Svava Jónsdóttir (Fram), Hrafnhildur Guðjónsdóttir (Val), Tinna Halldórsdóttir (ÍR),
Ragnheiður Ásgeirsdóttir (ÍR), Jóhanna Indriðadóttir (KR), Alda Guðmundsdóttir (KR), Birgitta Björnsdóttir (Fram),
Lilja Þórðardóttir (Stjömunni), Eva Halldórsdóttir (Víkingi) og Eva Jónsdóttir (Fram). Á myndina vantar Sólveigu
'Smáradóttur KA.
Landslið myndad
fyrir misskilning
YNGSTA stúlknalandsliðið í
handknattleik, fimmtán ára liðið
var myndað vegna misskilning.
Landsliðsnefndarmenn töldu að
lið skipað stúlkum sem fæddar
eru 1978 væri löglegt í Norður-
landamótið í sumar. Svo reynd-
ist ekki vera heldur var NM ætl-
að stúlkum fæddum 1977. Til
að gera gott úr málinu hafa
stúlkurnar æft og keppt í mótum
hér á landi enda munu margar
úr þessum hópi verða í eldlín-
unni fyrir íslands hönd næsta
haust.
Hópurinn kom fyrst saman í maí-
lok þegar það keppti á móti á
Akureyri. I sumar hefur hópurinn
verið í æfingum auk þess sem liðið
tók þátt í móti sem Sjóvá/ Almennar
gekkst fyrir í Valsheimilinu fyrir
skömmu.
Tók lið sitt af velli
Hópnum var skipt í A- og B-lið ?
mótinu. A-liðið sigraði B-liðið örugg-
lega í úrslitaleik 21:11. KR sigraði
Víking 13:10 í leik um þriðja sætið.
Stjarnan hlaut fimmta sætið með
sigri á Val 15:9. Stjarnan kom inn
í mótið í stað IR sem hætti keppni
í miðjum leik í kjölfar þess að einni
stúlku úr liðinu var sýnt rauða spjald-
ið. Fyrr í leiknum höfðu dómarar
stöðvað leikinn í fjórgang vegna
meiðsla stúlkunnar sem haltraði.
Þjálfari IR, Hlynur Jóhannsson vildi
hins vegar ekki taka hana af velli
og dómarar brugðu þá til þess að
gefa henni rauða spjaldið og útiloka
frá frekari þátttöku. Það sætti þjálf-
arinn sig ekki við og dró lið sitt af
leikvelli og út úr mótinu.
Veitt voru verðlaun til leikmanna
fyrir góða frammistöðu í mótinu.
Besti markvörður var valinn Sólveig
Smáradóttir, Olöf Indriðadóttir besti
sóknarmaðurinn, Sæunn Stefáns-
dóttir besti varnarmaður og besti
leikmaðurinn var valinn Inga Björg-
vinsdóttir. Ofangreindar stúlkur eru
allar í landsliðshópnum.