Morgunblaðið - 07.08.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993
5
^ Morgunblaðið/Kristinn
í Heiðmörk
KONUR í Bandalagi kvenna gróðursettu fyrstu trén við Huldukletta í fyrrakvöld. Fremst standa
Sjöfn Signrbjörnsdóttir, formaður Bandalags kvenna í Reykjavík, og Steinunn Armannsdóttir, vernd-
ari Bandalagsins og eiginkona borgarsljórans.
Konur rækta skóg í Heiðmörk
BANDALAG kvenna í Reykjavík hefur fengið reit í friðlandinu
Heiðmörk til ræktunar. Steinunn Ármannsdóttir, eiginkona Mark-
úsar Arnar Antonssonar borgarstjóra, og Sjöfn Sigurbjörnsdótt-
ir, formaður Bandalags kvenna, gróðursettu fyrstu trén í fyrra-
kvöld.
Bandalag kvenna í Reykjavík
er sameiginlegur vettvangur 26
reykvískra kvenfélaga. Bandalag-
ið hefði einkum og sér í lagi beitt
sér fyrir umbótum í jafnréttismál-
um, menningarmálum og uppeld-
is- og skólamálum. í samtali við
Morgunblaðið greindi Sjöfn Sigur-
björnsdóttir frá því að á banda-
lagsþinginu í fyrra hefði komið
fram eindreginn vilji þingfulltrúa
til að leggja gróðurvernd og skóg-
rækt lið. Konunum hefði þótt vel
við hæfi að fá reit til ræktunar í
friðlandi Reykvíkinga í Heiðmörk.
Sjöfn sagði það ékki hafa spillt
fyrir staðarvalinu að fjölmargar
konur á þinginu hefðu tekið þátt
í því að gróðursetja fyrstu trén í
Heiðmörk árið 1950 þegar svæðið
var gert að sérstöku friðlandi.
I fyrrakvöld komu saman um
50 konur í Bandalagi kvenna í
Reykjavík í gróðurreit Bandalags-
ins í Heiðmörk, ekki ijarri Huldu-
klettum í Löngubrekkum. Stein-
unn Ármannsdóttir, borgarstjór-
afrú og verndari Bandalagsins,
og Sjöfn Sigurbjörndóttir gróður-
settu fyrstu plöntunurnar. Voru
það eins og hálfs metra grenitré.
Alls gróðursettu konumar um 500
greni og furutré en konurnar vildu
fullvissa Morgunblaðsmann um
að tijátegundirnar yrðu fleiri.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir dró enga
dul á að henni þætti birkið falleg-
ast.
Dómsmálaráðherra um strok fanganna
Vill fé til öryggis-
mála o g flýta bygg-
ingu nýs fangelsis
ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra hefur fengið greinargerð
fangelsismálastofnunar ríkisins vegna stroks þriggja fanga frá Litla-
Hrauni í síðustu viku og hefur óskað eftir því að stofnunin geri
úttekt á öryggismálum fangelsanna og til hvaða nauðsynlegustu
aðgerða þurfi að grípa í því efni. „Það hefur þegar verið ákveðið
af fangelsismálastofnun að bæta innra starf fangelsanna varðandi
eftirlit og öryggi en ég tel að það þurfi að skoða þessi mál með
rækilegri hætti og fangelsismálastofnun hefur þegar verið falið
það,“ sagði Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann kvaðst
munu beita sér fyrir því að fé verði veitt til úrbóta í fangelsismálum.
„Eins og menn vita er í undirbún-
ingi bygging nýs fangelsis sem á að
bæta verulega úr því aðstöðuleysi
sem við búum við í dag,“ sagði Þor-
steinn. Hann sagði að nokkuð ljóst
væri að annars vegar hefði ófull-
nægjandi aðstaða og hins vegar ónóg
varðstaða nokkurra starfsmanna
gert strokið mögulegt.
Réttaröryggi og mannréttindi
Aðspurður hvort hann teldi að
strokið yrði til að flýta fyrir því að
nýtt fangelsi yrði byggt að Litla-
Hrauni sagðist Þorsteinn vona að svo
yrði. „Það eru nú rúm þijátíu ár síð-
an menn komust að þeirri niðurstöðu
að óhjákvæmilegt væri að bæta að-
stöðu fangelsanna. Á þeim tíma hef-
ur ekkert gerst þótt málinu hafi ver-
ið hreyft öðru hvoru síðan. Þó að það
séu engir þrýstihópar sem standa á
bak við úrbætur í þessum málum þá
geta menn ekki lokað augunum fyrir
því að útfrá réttaröryggi og mann-
réttindasjónarmiðum verður ekki
dregið lengur að hefjast handa. Við
höfum unnið samkvæmt fram-
kvæmdaáætlun sem sérstök nefnd
gerði á mínum vegum og ég vænti
þess að það komist skriður á fram-
kvæmdir á næstu ári,“ sagði Þor-
steinn Pálsson.
-----♦ ♦ «-----
Breiðari Bú-
staðavegur
FRAMKVÆMDIR eru nýhafnar
við að breikka Háaleitisbraut á
milli Bústaðavegar og Hvassaleit-
is. Gerðar verða fjórar akreinar í
stað tveggja. Þá er unnið að því
að breikka Bústaðaveg á milli
Bústaðabrúar og Háaleitisbraut-
ar.
Sunnan við þann hluta Bústaða-
vegar, sem verið er að breikka, á
einnig að setja trjágróður til að
minnka hávaða fyrir íbúa í blokkun-
um þar, að sögn Stefáns Hermanns-
sonar, borgarverkfræðings. „Þegar
við breikkum Bústaðaveginn notum
við uppgröftinn til að mynda hljóðm-
ön fyrir sunnan veginn, sem verður
græddur með tijám og gróðri til að
skerma þessi íbúðarhús' pínulítið frá
Bústaðaveginum," segir Stefán.
I fllefm*
svmœrtiibo&s:
Örfá eintök af
metsölufjallahjólinu
JJkJZZ/TRE tC
ár sérfHbodl
Wflf gotufjaliahjól
18 og 21 aíra,
aomu- og herrastell
MJÚKT GEL-SÆTl
SMELLIGÍRAR MEÐ
HANDFANGSSKIPTINGU
HATT S7ÝRI
KRÓMÓLÝ
lettmálmsstell
MEÐ ÆVIUNGRI
w ÁBVRÐG
26" hjól (frá 9 ára)
á 19.863,- stgr.
(ábur kr. 27.888,-)
STERKAR ÁLGJARÐIR
(áburkr. 33.555
Reiðhj6/avers/un/n
SUMARTILBOÐIÐ
STENDUR AÐEINS
í 10 DAGA
SKEIFUNNI V I
VERSLUN SÍMI 679890 - VERKSTÆÐI SÍMI 679891
RAÐGREIÐSLUR
ALVEG EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST KJORGRIP A TOMBOLUVERÐI
■ 11 ■
1