Morgunblaðið - 07.08.1993, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993
17
ENN standa deilur um brottför rússneskra hermanna frá Póllandi. Ágreiningur er um það hvar rússneski her-
málafulltrúinn eigi að hafa aðsetur í Póllandi. Hér má sjá rússneska hermenn á leið út úr Varsjá í gær.
Hosokawa kjörinn
for sætisráðherra
Tókýó. Reuter.
NÝR forsætisráðherra, Morihiro Hosokawa, var kjörinn í
neðri deild japanska þingsins í gær eftir nær tveggja daga
reiptog. Fékk hann 262 atkvæði en helsti mótframbjóðand-
inn, Yohei Kono, nýkjörinn leiðtogi Frjálslynda lýðræðis-
flokksins (LDP), lilaut 224. Með kjörinu lýkur 38 ára ein-
veldi LDP í ríkisstjórn landsins.
Atvinnu-
leysismet í
Þýskalandi
ATVINNULEYSI í vesturhluta
Þýskalands náði hámarki í júlí,
frá því að skráningar hófust, og
eru nú um 2,3 milljónir án at-
vinnu eða 7,5% vinnuafls.
Ræningi vill
sakaruppgjöf
RONALD Biggs, skipuleggjandi
frægasta lestarráns í sögu Bret-
lands, óskaði í gær eftir sakar-
uppgjöf frá breskum yfirvöldum,
en nú eru liðin 30 ár frá ráninu.
Biggs tókst að flýja árið 1965,
eftir að hafa verið dæmdur í 30
ára fangelsi og hefur síðan verið
í útlegð í Brasilíu.
Hermaður
myrtur
PALESTÍNSKIR skæruliðar
rændu ísraelskum hermanni á
hernumdu svæði í gær og
brenndu hann til bana í bifreið
að sögn talsmanns ísraelska
hersins. Yfirvöld í ísrael sveija
að brjóta á bak aftur skæruliða-
hópana sem stóðu að árásinni,
en morð á ísraelskum hermanni
í desember sl. varð til þess að
415 Palestínumönnum var vísað
úr landi í Israel.
Sljórn Georg-
íu segir af ser
TENGIZ Sigua, forsætisráð-
herra Georgíu, tilkynnti í gær
afsögn stjómar sinnar og mun
Edúard Shevardnadze, forseti
landsins, taka við embætti Sigua
tímabundið. Áður hafði Shev-
ardnadze sagt að það eina sem
gæti bjargað Georgíu frá borga-
rastyijöld væri sterkari miðstýr-
ing og neyðarlög, en barátta
aðskilnaðarsinna í Abkhazíu og
efnahagslegt hrun er ástæða
ástandsins nú.
Dómur
yfir Tyson
staðfestur
ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í
Indiana-ríki í Bandaríkjunum
hefur staðfest nauðgunardóm
yfir hnefaleikakappanum Mike
Tyson. Hann var dæmdur í sex
ára fangelsi árið 1992 fyrir að
nauðga 18 ára fegurðardrottn-
ingu á hótelherbergi.
Misnotkun
áfengis eykst
FLEIRI konur misnota áfengi,
eiturlyf og lyfseðilskyld lyf en
áður að sögn Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar (WHO).
Einnig hefur eiturlyfjanotkun
unglinga aukist verulega.
Barist um
dansara
NÆR 100 manns slösuðust, sjö
hús brunnu og margar verslanir
voru skemmdar í Siraganj í
Bangladesh þegar þrír kvenlegir
karldansarar neituðu að leika
listir sínar fyrir hóp manna sem
hvatti þá til dáða. Kvikmyndahús
í borginni réð dansarana til þess
að auglýsa mynd sem átti að
fara að frumsýna. Vildu eigend-
ur hússins ekki að aðrir fengju
að njóta dansins.
Konungur
jarðsunginn
YFIRVÖLD á Spáni hafa ákveðið
að minnast Baldvins Belgíukon-
ungs sérstaklega á laugardag,
en hann lést á sveitasetri sínu á
Suður-Spáni í síðustu viku. Hann
verður jarðsunginn í dag í Bruss-
el og hafa erlendir fyrirmenn
streymt til Belgíu undanfarið.
LDP tafði fyrir skiptunum með
því að setja sig á móti kjöri Takako
Doi, sem er sósíalisti og kona, í
embætti þingforseta. Stjórnarflokk-
urinn fyrrverandi taldi sig eiga rétt
á embættinu þar sem hann er stærst-
ur flokkanna á þingi. Svo fór þó að
Doi náði kjöri í gærmorgun og nokkr-
um stundum síðar var síðan kosið
milli Hosokawa og Konos.
Hosokawa er 55 ára gamall, af
aðalsættum og er oddviti þeirra sem
Norskar hvalveiðar
Innflutn-
íngsbann
vofíryfir
Washington. Reuter.
RON Brown viðskiptaráðherra
Bandaríkjanna hefur gefið út
staðfestingarkæru vegna hrefnu-
veiða Norðmanna og getur það
leitt til þess að innflutningsbann
verði sett á norskar vörur í Banda-
ríkjunuin.
Brown tilkynnti Bill Clinton for-
seta ákvörðun sína og er það á hans
valdi að ákveða hvort gripið verði til
viðskiptabanns. Ákveði forsetinn að
banna ekki innflutning frá Noregi
verður hann að rökstyðja þá ákvörð-
un sína fyrir þinginu innan tveggja
mánaða.
í bréfinu til Clintons segir að með
ákvörðun sinni að hefja hrefnuveiðar
í ágóðaskyni hafi Norðmenn grafið
undan verndaraðgerðum Alþjóða-
hvalveiðiráðsins (IWC).
Norska stjórnin lýsti óánægju
sinni með ákvörðun bandaríska við-
skiptaráðherrans í gær. „Við höfðum
vonað að ekki kæmi til ákvörðunar
af þessu tagi,“ sagði Vegard Ellefsen
talsmaður utanríkisráðuneyetisins í
Ósló. „Hrefnur eru ekki í útrýming-
arhættu og sá fjöldi sem ákveðið var
að leyfa veiðar á í ár ógnar stofninum
á engan hátt,“ bætti Ellefsen við.
gagnrýnt hafa fjármálaspillingu og
afturhaldssemi japanskra stjórn-
málamanna. Hann hefur einnig sak-
að háttsetta embættismenn um að
tefja fyrir umbótum.
Valdhafar eða strengjabrúður?
Stjórnmálaskýrendur segja að
raunverulegir valdhafar í Japan hafi
um margra ára skeið verið æðstu
embættismenn ráðuneytanna en
helstu stjórnmálamenn hafi fremur
verið strengjabrúður þeirra. Að sögn
breska tímaritsins The Economist
vakti það athygli fyrir nokkrum dög-
um er einn af ráðuneytisstjórunum
reyndi að ná tali af Hosokawa að
hinn síðamefndi hafði ekki tíma til
að ræða við hann.
Ólík sjónarmið
Aðrir eru á því að það muni verða
Hosokawa fjötur um fót að hann er
leiðtogi samsteypustjómar átta
flokka með ólík sjónarmið. „Hér er
mikill vandi á ferðum því að leiðtog-
inn [Hosokawa] er stjórnandi fyrir-
tækis sem hann á ekki sjálfur," sagði
talsmaður samtaka fyrirtækjastjóm-
enda. Aðrir bentu á að LDP myndi
beita sér af alefli í stjómarandstöðu
að því að reyna að kljúfa stjórnina.
Hæstiréttur Israels
Demjanj-
uk-málið
tekið fyr-
ir aftur
Jerúsalem. Reuter.
HÆSTIRÉTTUR ísraels
ákveður næstkomandi mið-
vikudag hvort teknar verði
til greina nýjar kærur á
hendur John Demjanjuk, sem
sýknaður hefur verið af
ákæru um að hafa sem ívan
grimmi framið stríðsglæpi í
Treblinka í Póllandi. Ein
kæran er frá Wiesenthal-
stofnuninni í Jerúsalem og
þar segir að fái Demjanjuk
að fara úr landi jafngildi það
sakaruppgjöf fyrir alla fyrr-
verandi stríðsglæpamenn
nasista.
Búist var við því að Demj-
anjuk fengi að fara strax eftir
sýknudóminn í síðustu viku. En
síðan hafa borist þtjár kærur
vegna meintra stríðsglæpa
Demjanjuks í Sobibor-búðunum
í Póllandi. Hæstiréttur vék að
því í dómi sínum að ekki væri
útilokað að Demjanjuk hefði
starfað þar en taldi ekki fært
að taka slíkar ávirðingar til
dóms vegna þess að hvorki
hafði verið ákært út af þeim
né málflutningur farið fram um
þær.
„Það verður ógerlegt að
krefjast þess að erlend ríki
rannsaki, dæmi eða framselji
stríðsglæpamenn eftir að ísra-
elsríki hefur sleppt stríðsglæpa-
manni,“ segir m.a. í kæru Wies-
enthal-stofnunarinnar. Banda-
rískur dómstóll sem á sínum
tíma samþykkti framsal Demj-
anjuks úrskurðaði fyrr í vikunni
að hann ætti rétt á að fara til
Bandaríkjanna og gætu ísrael-
ar ekki komið í veg fyrir það
án þess að brjóta gegn þjóða-
rétti. ísraelska dómsmálaráðu-
neytið hefur svarað með því að
segja að þessi úrskurður sé
ekki bindandi í ísrael.
Fyrst kom KARATE KID
Núerþað SAMHERJAR
SIDEKICKS.-SAMHERJAR
Frábær fjölskyldumynd.
Spennandi og fyndin.
r., •,.,.
HÁSKOLABÍÓ