Morgunblaðið - 25.08.1993, Síða 6
10 B
MORGUNBLAÐIÐ
MARKAÐIR
MIÐVIKUDAGUR 25. AGUST 1993
Ú
i
Samtals fóru 168,7 tonn af þorski um fiskmarkaðina
þrjá hér syðra í síðustu viku. Um Fiskmarkað Hafnar-
fjarðarfóm 120,7 tonn og meðalverðið 81,43 kr./kg.
Um Faxamarkað fóm 12,7 tonn á 66,16 kr./kg og um
Fiskmarkað Suðumesja fóm 35,3 tonn á 87,76 kr./kg.
Af karfa vom seld 11,1 tonn, meðalverð í Hafnarfirði var
62,50,45,64 á Faxagarði og 53,37 syðra. Af ufsa vom
seld 67,9 tonn, meðalverð í Hafnarfirði var 34,76,36,79
á Faxagarði og 36,59 kr. hvert kíló á Suður-
nesjum. Af ýsu vom seld 46,6 tonn á mðrkuðunum
þremur hér syðra og meðalverðið 91,08 kr./kg.
Ágúst i 33.vika !
Eingöngu var
seldur fiskur
úr gámum í
Bretlandi í
síðustu viku,
samtals 430,6
tonná 144,27
kr./kg. Þar af
voru 198,8
tonn af þorski
á 152,01 kr./kg.
Af ýsu vom
seld 77,1 tonn
á 137,35 kr./kg
og 68,2 tonn
af kolaá 154,24 j
kr. hvert kíló.
Þorskur mmmmmm Karfi mmmm—m Ufsi !»«««
Tvö skip, Múlaberg ÓF og Klakkur SH, seldu afla sinn í Þýskalandi í síðustu
viku, samtals 275,7 tonn og var meðalverðið 89,77 kr./kg. Þar af vom 239,1
tonn af karfa á 94,14 kr./kg og 17,7 tonn af ufsa á 62,49 kr. hvert kíló.
Síðasta ár var sjávarútvegi
á Nýja Sjálandi afar gjöfult
Verðmæti útfluttra afurða
jókst um fjórðung í fyrra
SÍÐASTA ár
var nýsjálenzk-
um sjávarútvegi
afar gjöfult.
Verðmæti út-
fluttra sjávarafurða jókst um fjórðung annað árið í röð og heild-
ar sala sjávarafurða náði 1,3 milljarði nýsjálenzkra dollara,
rúmlega 51 milljarði íslenzkra króna. Þá tókst að leysa ýmis
vandamál í stjórnun fiskveiða og salan á risafyrirtækinu Sea-
lord leysti þær deilur sem stóðu yfir vegna kröfu frumbyggja
um aukna aðild að sjávarútvegi. Þá hafa framtíðarmarkmið
stjórnvalda við fiskveiðisfjórnun skýrzt, og má þar nefna þætti
eins og bætur vegna tapaðs kvóta, úthlutun nýrra veiðiheimilda
og fleiri atriði,
Verðmæti útfluttra sjávaraf-
urða frá Nýja Sjálandi jókst um
26,9% frá fyrra ári og náðu 1,2
milljörðum nýsjálenzkra dollara,
47,4 milljörðum íslenzkra króna.
Útflutningstekjur að viðbættum
tekjum vegna sölu á heimamark-
aðnum, sem námu um 480 millj-
ónum, urðu því alls um 1,3 millj-
arðar dollara eða rúmur 51 millj-
arður króna. Þessi mikla aukning
réðst af mörgum þáttum. Aukin
eftirspurn erlendis eftir hvítfíski
og aukin framleiðslugeta innan-
lands leiddi til mikillar aukningar
á útflutningi á hokinhala (hoki)
og hækkaðs meðalverðs á afurð-
unum. Mikil aukning var á veið-
um á smokkfiski og kolmunna
(southern blue whiting). Þrátt.
fyrir fremur slakan efnahag í
Bandaríkjunum náðist enn góður
árangur í sölu á búra til Banda-
ríkjanna.
Virðisauki afurðanna lykillinn
að velgengninni
Nýsjálendingar eru bjartsýnir á
gang mála í framtíðinni. Eftir-
spurn eftir fiski í veröldinni er
áfram mikil og afli nokkuð stöð-
ugur við eyjarnar. Lykillinn að
áframhaldandi vexti og verð-
mætaaukningu liggur í virðisauka
afurðanna með frekari fullvinnslu
heima fyrir, en aukin fullvinnsla
mun jafnframt leiða til vaxandi
fjárfestingar í sjávarútvegi og
aukinnar atvinnu.
Heildarafli úr lögsögu Nýja
Sjálands jókt um 10.4% og varð
alls 657.266 tonn. Verðmæti upp
úr sjó reyndust 657.6 milljónir
dollara, tæpir 26 milljarðar króna,
en það er aukning um 9,8% frá
árinu 1991. Skip í þeirra eigu og
gerð út af nýsjálendingum öfluðu
38,1 % af fiskinum, en leiguskip
voru með 61,7% aflans. Erlend
skip með veiðileyfi innan lögsög-
unnar tóku aðeins 0,19% af heild-
inni. Fiskeldi jókst mikið, en
auknar kröfur um gæði og hrein-
læti ullu nokkrum erfiðleikum.
Markmiðið verður því að bæta úr
þessum þáttum.
Verðmæti útflutningsins jókst
verulega, fyrst og fremst vegna
stöðguleika á erlendum mörkuð-
um og vegna mikils virðiskaua
heima fyrir. Þær fiskitegundir,
sem mestu skiluðu eru hokinhali,
búrfiskur, humar, smokkfiskur og
„snapper“. Útflutningur á kol-
fhunna (southem blue whiting)
jókst verulega og komst þar með
upp fyrir kræklinginn í sjötta
sæti verðmætustu tegundanna.
Útflutningsverðmæti á hokinhala
jókst um 34% milli ára og verð-
mæti útflutts smokkfisks jókst
um 44,3%.
Verja 40 milljónum til
markaðssetningar
Japan, Bandaríkin og Ástralía
voru áfram stærstu kaupendur
nýsjálenzkra sjávarafurða, en
mikil aukning varð á sölu afurða
til Evrópulanda. Aukning á sölu
þangað nam 22% í verðmætum
talið miðað við árið 1991, en það
er reyndar mun minni aukning
en varð milli áranna 1990 og
1991, en þá jókst verðmæti af-
urða seldra til Evrópu um 70%.
Haldi þessi aukning inn á Evrópu
áfram, verður Evrópukumarkað-
urinn orðinn jafnstór hinum
þremur innan fimm ára. Þá jókst
útflutningur til ýmissa Asíulanda
einnig.
Samtök fiskiðnaðarins eyddu á
síðasta ári einni milljón nýsjá-
lenzkra dollara, tæplega 40 millj-
ónum íslenzkra króna, í kynningu
og markaðssetningu á sjávaraf-
urðum. Snemma á þessu ári var
ákveðið sérstakt markaðsátak og
er stefnt að því að árið 2000
verði um 80 milljónum íslenzkra
króna varið til markaðssetningar.
Ætlunin er að festa Nýja Sjáland
í sessi sem stöðuga uppsprettu
sjávarfangs af miklum gæðum
og tvöfalda verðmæti útfluttra
afurða fram að aldamótum. Sam-
tökin vinna náið með opinberum
aðilum eins og utanríkisviðskipta-
deild utanríkisráðuneytisins,
sjávarútvegsráðuneytinu og sam-
tökum um afnám tollmúra. Einn
þeirra áfanga, sem náðst hafa
var aðgangur fyrir krækling inn
á Ítalíu í fyrra.
Byggt á New Zealand Professi-
onal Fisherman.
UTFLUTNINGUR
Hokinhalinn
skilar mestu
VERÐMÆTI fiskafla Nýjsá-
lendinga í fyrra nam alls 692,2
milljónum nýsjálenzkra dollara,
rúmum 27 milljörðum króna, en
það er 16% aukning frá árinu
1991. Þá jókst fiskeldi mikið
milli ára, en vaxandi markaðir
eru bæði erlendis og heimafyrir
fyrir ýmsar tegundir sjávardýra
úr eldinu.
Hokinhali reyndist verðmætasta
fisktegundin á síðasta ári. Verð-
mæti þess afla upp úr sjó í fyrra
var 127,3 milljónir dollara eða um
5 milljarðar króna. Búrfiskurinn
kom næstur, en fyrir hann fengust
3,6 milljarðar króna, fyrir humar
fengust 2,9 milljarðar, fyrir
„snapper" um milljarður og verð-
mæti smokkfiskaflans reyndist 1,4
milljarðar króna. Þessar fimm teg-
undur stóðu að baki 50,9% af afla-
verðmætinu, sem er heldur minna
en tvö árin þar á undan. Kolmunni
(southern blue whiting) skilaði
mun meiri verðmæti á land en fyrri
ár vegna aukins afla en verð á
sæeyra upp úr sjó tvöfaldaðist
milli ára. Loks má geta þess að
verðmæti lönguafla jókst um 50%
milli ára.
Mikil aukning hefur orðið á
kræklingarækt á Nýja Sjálandi og
gefur hún til kynna gífurlega
möguleika í eldi annarra sjávar-
dýra. Sem dæmi um vöxtinn í
kræklingaræktinni, hefur verð-
mæti útflutningsins aukizt úr 103
milljónum króna árið 1981 í 2
milljarða í fyrra. Af öðrum eldis-
tegundum má nefna ostrur og lax.
Útflutningur á ostrunni skilaði 324
milljónum í fyrra og laxinn 972
milljónum króna.
Þorskafli íslendinga í júlí 1967-1993*
þús. tonn
(*bráðabirgðatölur fyrir 1993)
1967
1970
1975
1980
1985
1990
1993
AFLINIM
Fiskafli Nýsjálendinga
(Þús. tonna upp úr sjó)
450
1988 1989 1990 1991 1992
©Eiginskip DLeiguskip □Útlendingar
Heimild: Nýsjálenska sjámútvegsiiðuneyllð
Leignskip
afla mest
NÝSJÁLENDINGAR hafa
lengi reitt sig á erlend leigu-
skip til að taka þann afla, sem
efnahagslögsagan getur gefið
af sér. Þeir hafa átt lítið af
skipum, þó þeim fjölgi nú nokk-
uð ört. Um tíma var nokkuð
um það, að útlendingar fengju
leyfi til veiða innan lögsögunn-
ar, en veiðar af slíku tagi eru
nú innan við 1%. Erlend leigu-
skip, meðal annars rússnesk,
japönsk og norsk, töku í fyrra
um 400.000 tonn og hefur hlut-
ur þeirra aldrei verið meiri.
Nýsjálenzkar útgerðir auka
einnig afla sinn, enda hefur
heildarafli aukizt.
TEGUINIDIR
Verðmætustu tegundir
(Milljónir NS-dala)
1988 1989 1990 1991 1992
Q Hokinhali B „Snapper"
® Búrfiskur 0 Humar 0 Smokkfiskur
Heimild: Samtök ftskframleiðenda á Nýja
Sjálandi
FIMM fiskitegundir eru undir-
staðan í útflutningi sjávaraf-
urða frá Nýja Sjálandi. Að
magni til nema þær 42,3% út-
flutningsins og 52% verðmæta.
Þetta eru hokinhali, búri, hum-
ar, smokkfiskur og „snapper".
Búrinn skilaði lengst af mestu,
en búraafli hefur dregizt sam-
an og veira veiðzt af hokinhala.
Þá hefur tekizt að margfalda
verðmæti hokinhalans með
flökun og fituhreinsun frá því
hann var að mestu heldur heil-
frystur. Þá skipa kolmunni
(southern blue whiting) og
kræklingur einnig miklu máli.
HÍblc