Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 25.08.1993, Blaðsíða 7
B 11 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993 Hörpudiski landað úr mb. Arnfinni. Morgunblaðið/Ámi Helgason Hörpudiskveiðar hafnar eftir hlé frá því í marz HÖRPUDISKVEIÐAR hófust í Stykkishólmi 9. ágúst eftir árvisst hlé frá því í mars. Leyfilegt er nú að veiða 8.500 tonn af hörpu- diski á Breiðafirði á þessu fisk- veiðiári. Þar af er landað í Stykk- ishólmi um 6.500 tonnum. Einnig eru skelveiðar leyfðar frá Grund- arfirði og Brjánslæk. Þegar mest var leyft að veiða af hörpudiski var heildaraflinn 12.000 tonn en á síðustu árum hafa afla- heimildir verið skertar. Líkur eru á að engin skerðing verði á þessum veiðum næsta ár. Er það von manna að þetta sé það magn sem stofninn þolir og að ekki þurfi að skerða skelkvóta meira en nú er. í Stykkishólmi eru þrjár skelfisk- vinnslur starfræktar og níu stórum bátum og þremur minni úthlutað skelkvóta. Veiðarnar standa yfir frá ágúst og fram í febrúar/mars. Eftir þann tíma er nýting skelfisksins minni og sölumöguleikar ekki eins góðir. í fyrra var skelfiskurinn mest seldur til Frakklands og fékkst þar gott verð fyrir henn en eftir áramót lokaðist sá markaður. Eftir að staða dollarans hefur styrkst hefur skel- fiskurinn farið á Bandaríkjamarkað en hér áður var hann nær eingöngu seldur þangað. Hörpudiskveiðarnar skapa mikla vinnu bæði á sjó á í landi og eru því þýðingarmiklar fyrir atvinnulífið í Stykkishólmi. Standa saman að þróun hugbunaðar fyrir ótveginn Framleiða fiskréttí fyrir McDonald’s VERKSMIÐJA Icelandic Freezing Plants Ltd., dótturfyrirtækis SH í Grimsby í Bretlandi, selur á þessu ári rúmlega þúsund tonn af sérstök- um fiskréttum til McDonald’s veit- ingastaðanna á Bretlandseyjum. IFPL framleiðir ennfremur inikið af fiski og fiskréttum fyrir skyndibitastaði og veitingahúsakeðjur á Bretlandseyjum og hefur þessi þáttur starfseminnar farið vaxandi. Hærra verð fæst fyrir blokkir sem fara í þessa vinnslu, en hefðbundnar blokkir. IFPL í Grimsby selur McDonald’s 1.000 tonn í ár „Viðskipti IFPL og McDonald’s í Englandi, Skotlandi og írlandi hófust árið 1985. Heildarframleiðsla IFPL fýrir veitingastaðina hefur farið vax- andi ár frá ári og verður rúmlega þúsund tonn á þessu ári. Hvað varð- ar sölu til hins nýja íslenzka McDon- ald’s-veitingastaðar er of snemmt að spá um,“ segir Agnar Friðriksson, forstjóri IFPL í Grimsby. „Framleiðsla IFPL fyrir McDon- ald’s er nokkuð frábrugðin annarri framleiðslu verksmiðjunnar fyrir sama markað, þar sem fískrétturinn er ekki forsteiktur á framleiðslu- staðnum, eins og venja er, og mjög lítið deig með raspi er sett utan á þannig að hlutfall fisks í hveijum skammti er mjög hátt. Framleiðslu- ferlið er með þeim hætti að þau frystihús hér á landi, sem McDon- ald’s hefur samþykkt að framleiði fyrir sig, senda bein- og roðlaus flök í blokkum til IFPL, sem vinnur vör- una endanlega. McDonald’s gerir mjög strangar gæðakröfur og sérs- takir eftirlitsmenn á vegum keðjunn- ar hafa reglulegt eftirlit með því að þær séu uppfylltar, bæði í frystihús- unum hér á landi og hjá IFPL. Það er því mikil viðurkenning fyrir fram- leiðendur íslenzkra sjávarafurða að uppfylla hinar ströngu kröfur McDonald’s. Blokkirnar eru sér- sniðnar í þær stærðir, sem McDon- ald’s velur, en hátt verð blokkarinnar endurspeglar vörugæðin," segir i' frétt frá McDonald’s. DEB með umboð fyrir tímaritíð „Know How“ DEB-ÞJÓNUSTAN á Akranesi hefur fengið umboð fyrir sjávarútvegs- tímaritið Know How en það fjallar meðal annars um viðhald, viðgerð- ir og öryggismál á skipum. Markmið tímaritsins er að kynna nýja tækni og upplýsa lesendur um það útgerðarstarfsemi. - Know How kemur út á ensku Ijórum sinnum á ári og er gefið út af „ITS Publications” í Noregi. David Butt hjá DEB-þjónustunni á Akranesi er umboðsaðili norsku útgáfunnar hér á landi og í fréttatilkynningu frá honum segir að tímaritið sé gefið út í 4.500 eintökum og dreift til aðila í sjávarútvegi um allan heim. Af 900 áskrifendum í Noregi séu m.a. yfir- menn, vélstjórar, innkaupastjórar og véltæknifræðingar. íslenskum fiskframleiðendum og sem er að gerast í skipaiðnaði og þjónustuaðilum stendur til boða að kynna þjónustu sína í blaðinu og er áhugasömum bent á að skila greinum á ensku til DEB-þjónustunnar á Akranesi. Mynd af greinarhöfundi má fylgja greininni ásamt myndum sem tengjast efni hennar. Ásamt því að fá umboð fyrir „ITS Publications" fékk DEB umboð fyrir önnur fyrirtæki í eigu sömu aðila. Eitt þeirra útvegar til dæmis vara- hluti í skip og kemur þeim þangað sem óskað er. TÆKNIVAL hf. og Hugur hf. hafa ákveðið að taka upp samstarf um þróun hugbún- aðar fyrir sjávarútveg. Markmið þessa samstarfs er að bjóða fyrirtækjum í út- gerð og fiskvinnslu heildar- lausn á sviði upplýsingamála, lausn sem bæði nær yfir framleiðslu og fjárhagslega þætti. Tæknival og Hugur þróa hugbúnað fyrir útgerð og fiskvinnslu Tæknival hf. er 10 ára gamalt alhliða tölvufyrirtæki. Hjá fyrirtæk- inu starfa 58 manns, þar af 8 í hug- búnaðardeild. Helsti styrkur hug- búnaðardeildar er hugbúnaður fyrir sjávarútveg, en auk hans hefur ver- ið staðið að gerð hugbúnaðar fyrir sveitarfélög, iðnfyrirtæki, stéttarfé- lög og fleiri. Þróunarumhverfi hug- búnaðar heitir Progress, sem er fjórðu kynslóðar forritunarmál með eigin gagnagrunni. Hugbúnaður í stöðugri þröun Sjávarútvegshugbúnaður Tækni- vals hf. hefur verið í stöðugri þróun allt frá því að fyrsti hluti kerfisins, Agnes, leit dagsins ljós árið 1985. Mikil þekking og reynsla liggur að baki hugbúnaðarkerfunum sem nú er í notkun í hundraðatali um allt land. Hugbúnaðargerð er aldrei lok- ið; framundan er þróunarvinna hjá Tæknivali við að samræma kerfin innbyrðis til að auðvelda vinnu not- andans. Þessi vinna er þegar hafin og munu notendur sjá afrakstur hennar á næstu misserum. Ákveðið hefur verið að taka upp nýtt nafn fyrir allan hugbúnað Tæknivals fyrir sjávarútveg sem vinnur samkvæmt þessum nýja staðli. Hafdís skal heildarkerfið heita. Öll eldri kerfin Agnes, Torfí, Birgir, Bergur, Lundi, Prófastur og Muggur eru hlutar þessa nýja kerfis, Hafdísar. Starfsmenn voru í upphafi 5 en eru nú 14. Fyrirtækið er vafalaust best þekkt fyrir tímaskráningarkerfi sitt (Útvörð-Bakvörð). Um 250 fyrirtæki nota kerfin hérlendis, þar af nokkur í sjávarútvegi. Fyrir einu og hálfu ári hóf Hugur hf. samstarf við danska hugbúnaðar- fyrirtækið Damgaard Data um markaðssetningu á Concorde XAL hugbúnaði hérlendis. Concorde XAL er staðlaður viðskiptahugbúnaður í bestu merkingu þeirra orða. Auk allra almennra verkefna (fjárhags- bókhald, viðskiptamenn, lánar- drottnar o.s.frv.) er hugbúnaðurinn þanhig úr garði gerður að hann má aðlaga aðstæðum á hveijum stað eins og þörf krefur. Það gildir jafnt um skjámyndir, skýrslur og ný verk- efni. Á grunni þessara tveggja lausna, þ.e. Concorde XAL og Hafdísar, bjóða Hugur og Tæknival fyrirtækj- um í sjávarútvegi heildarlausn. Þessa heildarlausn má nota á öllum helstu stýrikerfum eins og DOS, OS/2 og Unix. Windows útgáfa er í vinnslu. Þetta skiptir miklu máli þegar notendur horfa til framtíðar og velta fyrir sér hvað verði ofan á í vaxandi samkeppni á tölvumark- aði. í allri þessari þróunarvinnu er haft að leiðarljósi, að gagnvart not- anda hugbúnaðarins vinni þessar tvær hugbúnaðarlausnir sem ein. Samstarf við Dani Hugur hf. var stofnað árið 1986. Tæknival og Hugur hafa lokið samræmingu á gagnaflutningi og gagnaskilum milli Hafdísar og Conc- orde XAL bókhaldskerfanna. Það er notandans að skilgreina á ítarlegan en þó auðveldan hátt hvaða gögn á að færa á milli og hvar yfírfærslan bókast í Concorde XAL. Þetta er auðvelt í uppsetningu og notandinn hefur fulla stjórn á því hvaða gögn færast milli kerfa. Þetta leiðir til þess að aðeins þarf að skrá upplýs- ingar einu sinni inn í kerfið, eftir það er aðeins um úrvinnslu gagna að ræða. Hafdís, hugbúnaður í Windows Hafdís er hugbúnaður í Windows. Verið er að færa eldri sjávarútveg- skerfi Tæknivals yfír í Hafdísi. Windows útgáfa Concorde XAL verður tilbúin snemma næsta árs. Hugur og Tæknival munu staðla notendaskil kerfanna. Ávinningur staðlaðs hugbúnaðar er mikill, m.a. eru notendur fljótir að læra á hug- búnaðinn, yfirfærsla gagna í t.d. Word eða Excel er leikur einn og hægt er að senda fax með faxgátt út úr forritunum beint til viðtakanda. Microsoft, framleiðandi Windows, hefur ákveðið að fylgja eftir mikilli útbreiðslu, Windows og sett fram staðal fyrir gagnaskil, sem gerir ólíkum hugbúnaðarkerfum kleift að vinna með gögn úr ólíkum gagna- grunnum. Þessi lausn er kölluð ODBC (Open Data Base Connect- ivity). Bæði Concorde XAL og Progr- ess ætla að bjóða þessa lausn. Með þessu verður allur gagnaflutningur auðveldur og framkvæmdur í sí- vinnslu. Með hjálp ODBC verður síð- asta áfanganum í tengingum Conc- orde XAL og Hafdísar náð. Á sjávarútvegssýningunni í sept- ember nk. munu Tæknival og Hugur m.a. sýna fyrsta afrakstur samstarfs fyrirtækjanna. (Fréttatilkynning) Vélstjóri óskast Vélstjóri með 750 kw réttindi óskast á tog- bát, sem gerður er út frá Vestfjörðum. Upplýsingar í símum 94-7440 og 94-7441. Fiskverkendur - útgerðarmenn Lifrarsöfnun hefst 1. september nk. Tökum einnig við lifur í verksmiðju okkar. Ef áhugi er fyrir hendi getum við útvegað útgerðum sérbúin lifrarkör. Frekari upplýsingar veitir verkstjóri eða verksmiðjustjóri í síma 91-28777. LYSI KVttTABANKINN Tapast kvóti? Aðstoðum þá sem eru að tapa kvóta vegna 25% reglunnar. Aðeins örfáir dagar til stefnu. Sími 656412, fax 656372, Jón Karlsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.