Morgunblaðið - 26.08.1993, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.08.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 3 Einar Bollason, sem er með hóp útlendinga i hestaferð um landiö Höfum sannað að íslenski hesturinn er undraskepna Vaðbrekku, Jökuldal. „FERÐIN hefur enn einu sinni sannað hvílík undraskepna íslenski hesturinn er,“ sagði Einar Bollason þegar fréttaritari hitti hann að máli á Aðalbóli en þar var hann staddur ásamt rúmlega tuttugu og fimm manna hópi ferðalanga og starfsmanna og hópurinn langt að kominn alla leið vestan af Snæfellsnesi á hestum. Sagði Einar að gott væri að vera komin á Jökuldal og í Hrafnkelsdal og njóta anná- laðrar gestrisni. Ferðinni lýkur á Reyðarfirði í dag. Hópurinn var búinn að vera á ferð í tuttugu og tvo daga eftir endilöngu miðhálendinu. og riðið norðan jökla. Alls hafa verið notað- ir um 270 hestar í ferðinni en fjór- ir hestar sem Einar á sjálfur hafa verið með nær allan tímann og einn hestur, átján vetra og aldursforseti hestanna, hefur verið með alla leið- ina og lætur ekki á sjá. Fólkið í ferðinni kemur víða að, ellefu Þjóðveijar, fimm Austurríkis- menn, tveir Svisslendingar, einn Englendingur, einn Skoti og einn Norðmaður. Hópurinn hefur fengið með afbrigðum gott veður í ferðinni ef frá er talinn snjókomudagurinn við Ingólfsskála undir Hofsjökli sem að vísu jók enn á ævintýrablæ ferð- arinnar. Annars var sólskin alla daga eins og fréttaritari sá glöggt á ferðalöngunum sem voru útitekn- ir eins og verið hefðu í sólarlöndum svo mánuðum skipti. ' - Sig. Að. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson í hreppstjórafrakkanum Ekki hafði Einar Bollason þurft að fara í regnföt í ferðinni, hrepp- stjórafrakkinn hans dugði vel allan tímann. 30 smið- ir eruán atvinnu ÞRJÁTIU smiðir eru á atvinnu- leysisskrá um þessar mundir að sögn Grétars Þorsteinssonar. Hann segir að atvinnuhorfur fyrir næsta vetur séu dökkar og allt bendi til þess að smiðum fjölgi með haustinu á atvinnu- leysisskrá. Síðasta vetur urðu þeir flestir 150 á skránni og Grétar óttast að þeir verði enn fleiri næsta vetur ef ekki rofi til i atvinnumálum stéttarinnar. „Það er einkennandi fyrir ráðn- ingar, sem við vitum um í sumar, að þær eru flestar til skamms tíma,“ segir Grétar. „Við óttumst því að mjög margir þeirra, sem fengu vinnu í sumar, komi inn á skrána aftur strax í september eða í október.“ Hann segir að félaginu sé kunnugt um fjölmargar fyrir- hugaðar uppsagnir í haust og í byrjun vetrar. „Við vonum auðvit- að og höfum ástæðu til að ætla að ekki komi til flestra þeirra. Það er samt sem áður margt, sem bend- ir til þess, að smiðum fari fjölg- andi á atvinnuleysisskránni með haustinu,“ segir hann. Meira atvinnuleysi en á síðasta vetri? „Jafnframt óttumst við að á komandi vetri verði atvinnuástand mun lakara en síðastliðinn vetur en þá voru, þegar verst lét, um 150 smiðir atvinnulausir. Að vísu sjáum við ekki alveg fyrir hvaða áhrif verkefnin, sem fjármagna á með hluta af „milljarðanum" margumtalaða, hafa. Þegar þau verða boðin út þýðir það aftur á móti augljósan ávinning fyrir fé- lagsmenn okkar.“ Hann segir að aðeins eitt verk- efni hafi þegar verið boðið út. „Af þeim sökum vonumst við til að verkefnin verði boðin út hið fyrsta,“ segir hann. Fjölskyldu- garðurinn lokar í vetur BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt að frá og með 1. sept- ember verði einungis selt inn í Húsdýragarðinn og jafnframt að rekstri tækja og búnaðar í Fjölskyldu- garðinum verði hætt til vors. í tillögu íþrótta- og tóm- stundaráðs sem borgarráð samþykkti er gert ráð fyrir að athugað verði með að hafa opið um helgar ef vel viðrar. Garðurinn verður opinn að öðru leyti. agnadeild Hallarmi íími. 813211 og 8135'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.