Morgunblaðið - 26.08.1993, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993
>
Upplýsinga- o g menningarmiðstöð nýbúa verður opnuð í dag
Nýbúar munu hafa
áhrif á starfsemina
„ÞÖRFIN er mjög mikil, að
kynna aðfluttum nýbúum Ís-
lands íslenska menningu og
siði,“ segir Gyða Björk Hilm-
arsdóttir starfsmaður nýstof-
naðrar upplýsinga- og menn-
ingarmiðstöðvar nýbúa.
íþrótta- og tómstundaráð rekur
miðstöðina, sem verður form-
lega opnuð í dag, og býður
Gyða alla nýbúa velkomna á
kynningarfund miðstöðvarinn-
ar klukkan 14. Gyða leggur
áherslu á að miðstöðin sé ekki
athvarf heldur samkomustaður
þar sem nýbúarnir hafi sjálfir
mikil áhrif á starfsemina.
„Það er nokkuð langt síðan sú
hugmynd, að koma upp aðstöðu
fyrir aðflutta útlendinga, kvikn-
aði,“ segir Gyða. „Námsflokkar
Reykjavíkur hafa lengi gælt við
þá hugmynd að koma upp slíkri
miðstöð en það var ekki fyrr en
í byijun sumars að gangur komst
á málin."
Að sögn Gyðu barst hugmyndin
til íþrótta- og tómstundaráðs og
tók það málið upp á sína arma.
Hún segir að Kristín Njálsdóttir
hafi unnið að uppbyggingu mið-
stöðvarinnar og fundið rúmgott
húsnæði í Faxafeni. „Loks fékk
hún mig til að sjá um miðstöðina
og á síðustu dögum höfum við
verið að gera húsakynni okkar
vistleg.“
Morgunblaðið/Sverrir
Sér um miðstöð
nýbúa
GYÐA Björk Hilmarsdóttir
býður alla aðflutta nýbúa á ís-
landi velkomna á kynningar-
fund Upplýsinga- og menning-
armiðstöðvar nýbúa, en hún
segist eiga von á að þeir hafi
mikil áhrif á starfsemina.
„Markmið okkar er að koma
íslensku inn á öll heimili nýbúanna
og kynna þeim íslenska menn-
ingu,“ segir Gyða. „Við leggjum
jafnframt ríka áherslu á að að-
stoða foreldra, einkum heimavinn-
andi mæður, með börn sín. Ég tel
t.a.m. mikilvægt að undirbúa
skólagöngu bama úr þessum hópi
og það munum við gera. Loks
munum við sinna upplýsingamiðl-
un en hér munu bæklingar liggja
frammi og loks verða túlkar á
okkar snærum, sem aðstoðað geta
hina nýju íbúa landsins."
Fjölbreytt starfsemi
Að sögn Gyðu verður miðstöðin
opin tvisvar í viku; á mánudögum
milli kl. 17 og 22 og á fimmtudög-
um milli kl. 10 og 16.30. „Við
verðum með léttar uppákomur,
fólk getur komið með börn sín,
en margir hafa þegar gefið mið-
stöðinni leikföng. Stofnanir munu
koma til með að heimsækja okkur
og kynna starfsemi sína. Borgar-
bókasafnið hefur lánað okkur
bækur en síðast en ekki síst getur
fólk einfaldlega komið hingað,
fengið sér kaffi og rætt málin.“
Samvinna við nýbúa
mikilvæg
Það er mjög mikilvægt, að
mati Gyðu, að miðstöðin verði
starfrækt í nánu samstarfi við
nýbúana. „Við munum halda
kynningarfund í dag þar sem þau
munu geta viðrað skoðanir sínar
og hugmyndir. Þeir verða að hafa
mikil áhrif á hvað boðið verður
upp á hjá okkur í miðstöðinni,"
segir Gyða að lokum.
GÓÐIR LEOURJAKKAR
ÞETTA ERU JAKKARNIR SEM GCD OG SSSÓL NQTA.
HÆGT ER AQ FÁ JAKKANA MERKTA HLJDMSVEITUNUM.
PÓSTSENDUM. SÍMI 3 1- BS 13 35
HANZ
KRINGLUNNI
PEPSI
Veiðimenn með morgunfeng. Morgunblaðið/Bemhard Jóhannesson
Borgarfjörður
Sífellt fleiri gera skot-
veiðar að áhugamáli
Reykholtsdal.
TIMI gæsaveiðanna er hafinn, mikill áhugi er fyrir fuglaveiði og
sífellt fleiri sem gera skotveiðar að áhugamáli og sinna því með því
að fara um sveitir landsins og veiða.
Misjafnt er hvernig bændur taka
á móti veiðimönnum, sumir vilja
ekki láta skjóta í landi sínu og aðr-
ir eru fengir því að einhver stuggi
við gæsum sem sækja hart að ný-
ræktum sem gera oft mikinn skaða
því gæsin bítur ekki grasið heldur
slítur það upp með rót. Það hlýtur
þó alltaf að vera lágmarks kurteisi
að biðja um leyfi hjá viðkomandi
og fá leyfí til að skjóta. Oft hafa
komið upp deilur milli veiðimanna
og landeigenda um veiðar á afrétta-
löndum, úthögum og almenningi.
Það væri til góða að félag skotveiði-
manna og landeigendur kæmu sér
upp merki sem segði til hvort veið-
ar væru leyfðar eða ekki og hvort
greiða ætti fyrir leyfið. Þetta er
hægt að gera með skilti við veginn
heim að bænum. Margir landeig-
endur eru farnir að búa til aðstöðu
fyrir skotveiðimenn og selja þeim
aðgang að landi sínu gegn vægu
verði.
- Bernhard.
Sálfræðingur með erindi
hjá Nýaldarsamtökunum
BANDARÍSKI sálfræðingurinn dr. José Stevens mun starfa á vegum
Nýaldarsamtakanna frá 25. ágúst til I. september nk. Dr. Stevens
er Islendingum að góðu kunnur fyrir fyrirlestra sína og námskeið
á síðustu árum og þá einkum fyrir kennslu sína í svokölluðum Mika-
el-fræðum.
Föstudaginn
27. ágúst flytur
hann svokallað
Mikael-erindi og
hefst lesturinn kl.
20.30. Laugar-
daginn 28. ágúst
heldur hann byij-
endanámskeið í
Mikael-fræðum Dr..José Stevens.
og gefst her em-
stakt tækifæri til þess að njóta
kennslu hans því hann hefur ekki
kennt þetta námsefni hér um ára-
bil og óvíst hvenær slíkt námskeið
verður haldið næst. Sunnudaginn
29. ágúst gengst dr. Stevens fyrir
framhaldsnámskeiði fyrir alla þá
sem lokið hafa byijendanámskeiði
eða þekkja náið til Mikael-fræð-
anna.
DU PONT bílalakk notað af
fagmönnum um land allt.
Námskeiðin á laugardag og
sunnudag hefst kl. 9 og standa -til
kl. 17 hvom dag. Fyrirlestrar og
námskeið dr. Stevens fer fram í
salarkynnum Nýaldarsamtakanna
að Laugavegi 66, 2. hæð sem gefur
nánari upplýsingar.
(Fréttatilkynning)
Rccbok
VINNINGSNÚMER
Vegna útkomu númeraðs myndalista um
RGGbok
skó, sem dreift var í vor með Sjónvarps-
vísi og fyrir Reykjavíkurmaraþon, voru
dregin út eftirtalin númer:
203, 534, 1046, 3503,
4127, 5110, 6902, 7226,
8323, 9629,13587,13786,
14304,14709,17498,17785.
Handhafar myndalista með þessum
númerum hafi samband við
OTUR HF.
Vjterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Faxafeni 12. Sími 38 000