Morgunblaðið - 26.08.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.08.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. AGUST 1993 ENGAN SAKAÐI í UPPÞOTISEM 40 FANGAR Á LITLA-HRAUNITÓKU ÞÁTT í • - Morgunblaðið/Þorkell ÞEIR 8 fangar sem mest höfðu sig í frammi í uppþotunum voru færðir í einangrun í Síðumúlafangelsi og var myndin tekin þegar lögregla færði þá inn fyrir dyrnar þar. PAPPAKASSI fullur af vopnum, bareflum og munum sem teknir voru af föngum þegar öldur á Litla-Hrauni lægði í gær var svo þungur að botninn í honum gaf sig þegar Jón Ingi Jónsson fanga- vörður bar hann út fyrir dyr. 1 I [ f i I Mikið af vopnum fannst við klefaleit þegar ró var komin á UPPLAUSNARÁSTAND ríkti í fangauppþoti á Litla-Hrauni frá því í fyrrakvöld og þar til síðdegis í gær. 40 fangar af 52 tóku þátt í uppþotinu, að sögn fangelsisyfirvalda og voru átta þeirra færðir úr fangelsinu og vistaðir í Síðumúlafangelsi eftir að uppþotið var bælt niður. Ilvorki fanga., fangaverði né lögreglumenn sakaði að heitið gæti en að sögn Haralds Johannessen fangelsismálastjóra voru fanga- verðir um tíma í hættu og til stympinga kom milli þeirra og nokk- urra úr fangahópnum. Að sögn Gústafs Lilliendahls, forstjóra fang- elsisins á Litla-Hrauni, voru þeir fanganna, sem mest höfðu sig í frammi, undir áhrifum lyfja eða fíkniefna sem þeir höfðu komist yfir. Ástæða uppþotanna er talin spenna og óánægja fanganna með hertar öryggisráðstafanir í fangelsinu í kjölfar tíðra stroka úr því undanfarið. Mikið af hnífum, eggvopnum og bareflum fannst við klefaleit í fangelsinu eftir að ró komst á. Uppþotin hófust á þriðjudag þeg- ar hópur fanga hindraði þrjá fanga- verði, Símon Grétarsson, Sigur- mund Guðmundsson og Þóri Stein- dórsson, í að handtaka fanga sem æði hafði runnið á. Fanginn hafði allan daginn gengið um mjög æstur og ögrandi og var talið nauðsynlegt að taka hann úr umferð. Slíkt mun ekki óvanalegt. Tóku mann af fangavörðum Þegar fangaverðir höfðu fært hann í handjám eftir handalögmál veittist hópur fanga að þeim með hótunum og pústrum. Urðu fanga- verðimir að láta manninn lausan. Um kvöldið fóm fangamir til klefa sinna eftir fortölur fangavarða en í gærmorgun þegar í ljós kom að færa átti þrjá þeirra sem staðið höfðu að ólátunum í Síðumúlafang- elsið hófust mótmæli að nýju. Með- al annars vom rúður í fangelsinu brotnar. Fangelsið var þó aldrei á valdi fanganna heldur gengu 8-10 fangaverðir um meðal fanganna, töluðu við þá og reyndu að róa þá en urðu fyrir pústmm og hótunum. Um hádegisbilið í gær þegar ekki virtist lát á óeirðunum var óskað aðstoðar lögreglu í Reykjavík sem ásamt lögreglu á Selfossi sendi um þijátíu lögreglumenn austur til aðstoðar, þar á meðal fjölmarga víkingasveitarmenn. Einnig var slökkvilið til taks. Fóru í klefana þegar lögregla kom Eftir að lögregluliðsaukinn kom á staðinn og kom sér fyrir var föng- um tilkynnt um nærveru hans í hátalarakerfi fangelsisins. Fóm þeir þá til klefa sinna í sama mund og lögreglumenn og fangaverðir gengu inn í húsið. Tvær mínútur liðu frá því að lögregla og fangaverðir gengu inn í húsið þar til fangar vom komnir í klefa sína án átaka. Vopn og barefli Eftir að fangamir vom farnir til klefa sinna vom fimm þeirra sem taldir vom forsprakkar ólátanna færðir í Síðumúlafangelsið í Reykjavík og að því loknu gerðu fangaverðir og lögreglumenn ítar- lega leit í hveijum einasta klefa í fangelsinu. Við þá leit fannst tals- vert af ýmiss konar vopnum, barefl- um, skæmm og stunguvopnum, þar á meðal hnífum sem fangamir höfðu útbúið úr glerbrotum sem þeir höfðu fengið úr brotnum glugga. Á blaðamannafundi sem Harald- ur Johannessen, forstjóri Fangelsis- málastofnunar, Gústaf Lilliendahl, forstjóri fangelsisins á Litla- Hrauni, Erlendur Baldursson, deild- arstjóri í Fangelsismálastofnun, og Ómar Smári Armannsson aðstoðar- yfirlögregluþjónn efndu til eftir að ró var komin á í fangelsinu kom fram að talið væri að óánægja fang- anna með hertar öryggisráðstafanir í kjölfar tíðra stroka úr fangelsinu undanfarið væri unairrót uppþot- anna. „Rekið Gústaf“ Fram kom að fangamir hefðu þó engar sérstakar kröfur sett fram meðan á uppþotunum stóð og ekki mótmælt ráðstöfununum sem slík- um með neinum skipulögðum hætti. Um það leyti sem lögregla og fjöl- Morgunblaðið/Sigurður Jónsson UPPHAF uppþotanna var þegar nokkrir fangar rifu handjárnaðan félaga sinn úr höndum fangavarðanna Símonar Grétarssonar og Sigurmunds Guðmundssonar, sem eru á myndinni, og Þóris Stein- dórssonar. EFTIR að ró var komin á á Litla-Hrauni heldu lögreglu- og fangels- isyfirvöld blaðamannafund og greindu frá málinu. Frá vinstri: Gúst- af Lilliendahl, forstjóri fangelsisins að Litla-Hrauni, Haraldur Jo- hannessen fangelsismálastjóri, Erlendur Baldursson, deildarsfjóri. í fangelsismálastofnun, og Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlög- regluþjónn. HAFSTEINN Steindórsson varð- stjóri á Litla-Hrauni með hníf sem fangi hafði útbúið úr gler- broti sem tekið var úr rúðu sem brotin var í fangelsinu. miðlafólk settist um fangelsið setti einhver fanganna skilti út um brot- inn glugga en á það var letrað „Rekið Gústaf" og var þar væntan- lega átt við forstjóra fangelsisins. Gústaf Lilliendahl sagði það ekkert nýtt að fangar létu óánægju með aðbúnað bitna á persónu fangelsis- stjórans. Hins vegar hefðu fangar ekki mótmælt hinni hertu öryggis- gæslu með neinum ákveðnum hætti. Óánægja með aukið eftirlit Skv. upplýsingum Morgunblaðs- ins beinist óánægja fanganna m.a. að því að nú fær aðeins helmingur fanganna að vera í útivist á sama tíma en áður voru allir úti á sama tíma. Þá hefur verið meira um leit fangavarða í klefum en fyrr og eft- irlitsferðir fangavarða tíðari og meira áberandi, bæði að nóttu og degi, innan húss og utan. Auka- vaktir hafa verið settar á innan lóð- ar fangelsisins og utan við lóðina eru fangaverðir að næturlagi í bíl. Meðan á umsátrinu stóð voru um það bil 25 fangaverðir á vakt, hluti þeirra hafði verið við störf í allt að 24 tíma þegar ró var komin á. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins setti talsverðan ugg að fanga- vörðum við að sjá hversu miklu af vopnum fangamir höfðu sankað að sér og útbúið sér, m.a. úr billjard- kjuðum og glerbrotum. I t I 6 I I I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.