Morgunblaðið - 26.08.1993, Síða 4

Morgunblaðið - 26.08.1993, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. AGUST 1993 Morgunblaðið/Þorkell Fornleifafundur á Arnarhóli ÝMSIR hlutir hafa fundist í fornleifagreftri á Arnarhóli og að sögn Ragnars Edvardssonar, verkstjóra framkvæmdanna, er gröfturinn líklega kominn niður í tóftir bæjarins sem var á Arnarhóli og því séu hlutirnir líklega úr bænum sjálfum. Hann segir að ekki hafi enn náðst niður á gólf bæjarins en vonast til að komast að því áður en þurfi að hætta að grafa, en aðeins megi grafa um 30 sentímetra til viðbótar. Á myndinni má sjá nokkra af þeim hlutum sem fundust í gær, m.a. postulínsbrot, hnapp og það sem Ragnar segist halda að sé beltissylgja. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar um SVR hf. Ekkí er tryggt að kjör starfsfólks verði óskert EKKI er forsenda fyrir því að leggja fram tillögu um breytingu SVR í hlutafélag á fundi borgarstjórnar í dag, að mati Starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar. Félagið segir að fyrirheit sem Sveinn Andri Sveinsson stjórnarformaður SVR og Markús Örn Antonsson borgar- stjóri gáfu starfsmönnum SVR þess efnis að þeim byðist starf hjá SVR hf. eða Reykjavíkurborg á sömu kjörum og þeir höfðu fyrir breytingu séu ekki tryggð. Helsti ásteytingarsteinninn í tillögum meirihluta Sjálfstæðisflokksins og fulltrúa starfsmanna SVR í sam- ráðshópi um breytinguna er afnám biðlaunaréttinda starfsmanna og breyting á lífeyrisréttindum þeirra. Skipaður var samráðshópur til að fjalla um tillögu meirihluta sjálf- stæðismanna í borgarstjóm og lauk því starfí í júlí með erindi til borgar- ráðs. Skömmu síðar sendi Starfs- mannafélag Reykjavíkurborgar borgarstjóra bréf þar sem STRV telur sig ekki mega treysta því að við undirbúning málsins hafí verið unnið út frá þeirri grundvallarfor- seridu að „allir starfsmenn SVR haldi launum sínum og laun og rétt- VEÐUR IDAGkl. 12.00 Heímild: Veðurstofa Islands (Byggt é veðurspá kl. 16.15-í g»r) VEÐURHORFUR I DAG. 26. AGUST YFIRLIT: Á Grænlandshafi er smálægo og önnur álíka við Hvarf, en suður í hafi er vaxandi 1.006 mb lægö, sem hreyfist fyr^t austur og síð- an norður og verður skammt suðvestur af iandinu í fyrramálið. SPÁ: Allhvöss sunnan- og suðaustanátt og rigning sunnan og vestan- lands, en mun hægara og stundum úrkomulaust í öðrum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Hæg austlæg átt og fremur hlýtt í veðri. Skýjað en þurrt að mestu um austanvert landið en víöa léttskýjað um vestanvert landiö. HORFUR Á SUNNUDAG: Hæg breytileg eða norðlæg átt og léttskýjað um sunnan- og vestanvert landið en skýjað norðaustanlands. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast suöaustanlands. Nýir veðurfregnatfmar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.46, 16.30, 18.30, 22. 30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 890600. ö Heiöskírt r r r r r r r r Rigning -M Léttskýjað * r * * r r * r Siydda & Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma A Skýjað Alskýjað v ^ ý Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörín sýnir vindstefnu og fjaörimar vindstyrií, heil fjööurer2 vindstig.^ 10° Hitastig v Súld = Þoka stig.. FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30ígær) Þjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiöfærir. Viða er þó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam- kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabflum, Gæsavatna- og Dyngjufjallaleiðir eru ennþá ófærar vegna snjóa, sama er að segja um Hrafntinnusker. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í slma 91-631500 og ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðln. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að ísl. tíma hiti vefitir Akureyrl 18 léttskýjaó Reykjavfk 10 súld Bergen 14 léttskýjað Helsinkl 14 skýjað Kaupmannahöfn 18 léttskýjað Narssaraauaq 7 ringlnásíö.kls. Nuuk 3 skýjað Oetó 18 úrkomalgrend Stokkhólmur 14 skýjað Þórshöfn 10 skýjað Algarve 22 léttskýjað Amsterdam 16 skúr Barcelona 26 alskýjað Berlín 17 skýjað Chicago 22 þokumóða Feneyjar 27 þokumóða Franklurt 17 skýjað Glasgow 16 léttskýjað Hamborg 16 skýjað London 16 akýjað LosAngeles vantar Lúxemborg 16 léttskýjað Madríd 21 skýjað Malaga 26 skýjað Mallorca 20 hálfskýjað Montreal 22 Iétt8kýjað NewYork 24 mistur Orlando 26 þokumóða Paría 10 léttskýjað Madelra 23 hálfekýjað Róm 32 hélfskýjað Vfn 15 rigning á síð.kls. Washington 24 mistur Wlnnlpeg 16 þrumuvcður indi verði þau sömu fyrir og eftir breytingar". Bent var á að þetta bréf hefði enga umfjöllun fengið í bprgarráði. í bréfínu segir að full- trúi Reykjavíkurborgar í samráðs- hópnum, Hjörleifur B. Kvaran, byggi niðurstöður sínar um lítinn mun á lífeyrissjóðsréttindum starfs- manna Reykjavíkurborgar og rétt- indum sem fást í almennum lífeyris- sjóðum, á áliti frá VÍB, sem stjórn Starfsmannafélagsins dregur í efa að sé rétt. Nauðsynlegt sé að kanna þennan þátt málsins mun betur. í öðru lagi segir í bréfínu að starfsmenn SVR sem biðlaunarétt eigi geti farið á biðlaun kjósi þeir það en með því fyrirgeri þeir rétti sínum til starfa hjá hinu nýja fyrir- tæki. Mikið samráð haft Sveinn Andri Sveinsson, formað- ur stjórnar SVR, segir að sjaldan eða aldrei hafí formbreyting á fyrir- tæki verið undirbúin jafnvel og nú og jafnmikið samráð haft við starfs- menn. Hann segir niðurstöðu út- tektar Sigurðar B. Stefánssonar hjá VÍB þá að lífeyrissjóðsréttindi starfsmanna verði meiri eftir þessa breytingu. Starfsmenn sem hafi skemmstan starfstíma komi þó lítil- lega verf út úr breytingunni en komið verði til móts við þann hóp starfsmanna. Hann segir að Starfs- mannafélagið hafí valið að reyna að tortryggja höfund skýrslunnar. Starfsmannafélaginu sé frjálst að láta aðra aðila gera fyrir sig trygg- ingafræðilega úttekt á lífeyrissjóðs- málunum. Biðlaun ekki forsvaranleg Varðandi biðlaunaréttindin sagði Sveinn Andri: „Ég held að það sé ekki forsvaranlegt í þessu þjóðfé- lagi að menn sem ganga í nákvæm- lega sömu störf á nákvæmlega sömu launum og áður fái tvöföld laun í heilt ár. Ég held að mörgum atvinnulausum manninum þætti það súrt í brotið að á þessum tím- um, þægju ákveðnir starfshópar tvöföld laun er þeir hætta sem opin- berir starfsmenn. Þeim aðilum sem hafa biðlaunarétt verður tryggður hann áfram hjá hlutafélaginu, en þeir eru aðeins 18 manns af 153,“ sagði Sveinn Andri. Útboð ríkisvíxla hjá Lánasýslu ríkisins Meðalávöxtun hefur lækk- að stöðugt frá áramótum MEÐALÁVÖXTUN ríkisvíxla til 6 og 12 mánaða hefur lækkað stöðugt frá áramótum. Meðalávöxtun tilboða sem tekið var í gær eftir útboð var 10,14% á bréfum til 6 mánaða og 11,21% á 12 mánaða bréfum. Til samanburðar má geta þess, að í útboði 26. maí var meðalávöxtun á 6 mánaða bréfum 10,85% og á 12 mánaða bréfum 12,01%. í útboði 27. janúar var meðalávöxtun á 6 mánaða bréfum 12,47% og hefur hún því lækkað um 2,33 prósentustig. Samkvæmt upplýsingum frá Lánasýslu ríkisins bárust 84 gild til- boð í útboðinu, samtals að ijárhæð 1.615 milljónir króna. Alls var tekið tilboðum að fjárhæð 995 milljónir króna frá 80 aðilum. Þar af var tek- ið tilboðum frá Seðlabanka íslands að fjárhæð 120 milljónir króna á meðalverði samþykktra tilboða. Hæsta ávöxtun samkvæmt tilboð- um nú var 10,35% á ríkisvíxlum til 6 mánaða og 11,30% á ríkisvíxlum til 12 mánaða. Lægsta ávöxtun var 9,80% á 6 mánaða bréfum en 11,14% á 12 mánaða bréfum. Meðalávöxtun var sem fyrr segir 10,14% og 11,21%. Bréf 5 lögmanna til dómsmálaráðherra Prófessor og læknar sakaðir um vanhæfi Vísa þessu á bug, segir Arnljótur Bjömsson FIMM lögmenn hafa sent dómsmálaráðherra bréf þar sem gagn- rýndur er þáttur Arnljóts Björnssonar prófessors við Háskóla ís- lands í mótun frumvarps til skaðabótalaga og skipun læknanna Bryryólfs Mogensen og Gísla Einarssonar í örorkunefnd. í svari læknanna tveggja til dómsmálaráðherra segir að hér sé um alvar- legan rógburð að ræða. „Ég vísa þeim ásökunum sem koma fram - í þessu bréfí á bug sem tilhæfulausum og mun senda greinargerð til dómsmálaráðherra um málið,“ sagði Amijótur Björnsson í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Lögmennirnir telja útreikninga í greinargerð sem Amljótur lagði fyrir allsheijamefnd Alþingis ranga og ætlaða til að sannfæra þingmenn um að örorkubætur hækki með lög- unum, þegar hið rétta sé að þær muni lækka. Benda bréfritarar á að Amljótur hafí verið starfsmaður Sjóvátryggingafélags íslands og gegni enn hlutastarfi fyrir íslenska endurtryggingu. Brynjólfur Mogen- sen hafí verið trúnaðarlæknir Vá- tryggingafélags íslands þegar hann var skipaður í örorkunefnd, en Gísli Einarsson varamaður hafí starfað fyrir Tryggingaskólann sem rekinn er af vátryggingafélögunum. Hæstaréttarlögmennimir Jón Steinar Gunnlaugsson, Viðar Már Matthíasson, Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson, Átli Gíslason og Sigurð- ur G. Guðjónsson undirrita bréfíð til dómsmálaráðherra, sem dagsett er 5. ágúst. í samtali við Morgun- blaðið sagði Atli Gíslason að lög- mennimir hefðu um sex ára skeið átt óformlegt samstarf um ýmis atriði er lytu að tryggingamálum. Með bréfínu væri ekki verið að fínna að hæfni læknanna tveggja, Brynj- ólfs Mogensen og Gísla Einarsson- ar, né Arnljóts Björnssonar prófess- ors, heldur væri hæfi í þeim störfum er um ræddi dregin í efa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.