Morgunblaðið - 19.09.1993, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1993
2 B
MIKLAR SVEIFLUR í VEÐURFARI
yar og 8 tungumál rufu kyrrðina.
í hópnum voru 10 konur. Búið var
í tjöldum, en þrjú kúluhús voru
notuð yfír borinn, fyrir eldshús og
verkstæði. Á daginn var jafnan um
16 stiga frost og um 30 stiga frost
á nóttunni. „Allt að 10 stiga frost
gat verið í tjöldunum. Þetta var
þó ekki svo slæmt, því þarna er
þurr kuldi. Engin úrkoma var með-
an ég dvaldi á jökli, en það gat
orðið hvasst og skafrenningur á
norðan.“ Bækistöð var niðri í Syðri-
Straumsfirði og þangað var haft
SJÁ SÍÐU 4
í göngum 7 metrum undir yfirborðinu í jöklinum fékkst vinnuaðstaða með ískjarnann í 20 stiga
gaddi. Hér eru Árný Erla og Pálína Kristinsdóttir, kona Sigfúsar J. Johnsens, að ganga frá nýjum
ískjarna í þessum niðurgröfnu ísgöngum.
eftir Elínu Pólmadóttur/Ljósmyndir: W. Dansgoard, Sigfús J. Johnsen og Ivars Silio
Sumarið 1992 lauk þriggja ára
borunum á hábungu Græn-
landsjökuls, þar sem heitir
Summit, sem er í 3.230 m
hæð yfir sjávarmáli. Var þá
komið niður í gegnum jökulísinn,
borkjarninn orðinn 3.030 m á lengd
og fyrstu aldursútreikningar benda
/ til þess að hann gefi samfelldar
aldursupplýsingar 250 þúsund ár
aftur í tímann. Er talið að þarna
hafi fengist élsti ís sem Grænland-
sjökullinn geymir. Jafnframt er
þarna nánast engin hreyfíng á jökl-
inum sem gæti truflað úrvinnslu.
Árný Erla var þarna með á loka-
sprettinum. Hún segir að verið sé
að vinna að nákvæmara aldurs-
mati, sem gert er með ýmsum að-
ferðum, m.a. með greiningu á ösku-
lögum og leiðir Norræna eldfjalla-
stöðin þær rannsóknir. Sjálf er hún
að rannsaka veðurfarið út frá sam-
sætumælingum í kjamanum.
Þetta er evrópskt verkefni 8
þjóða. íslendingar koma þar inn í
fjárfrekt viðfangsefni, sem greitt
er af Vísindasjóði Evrópuráðsins
og af vísindasjóðum þátttökuland-
anna. Þegar maður furðar sig á
hve íslensku vísindamennirnir fá
stórt hlutverk í þessum rannsókn-
um segir Árný Erla að Sigfús J.
Johnsen, sem nú er prófessor við
Háskóla íslands hafi frá upphafi
verið einn áhrifamesti vísindamað-
ur við borframkvæmdir og túlkun
gagna frá Grænlandsjökli, var einn
af lykilmönnunum hjá Dönum og
hefur það stuðlað að því að á Rauh-
vísindastofnun Háskólans er nú
eftir heimkomu hans ötullega unnið
að rannsóknum á fornveðurfari.
Sigfús heldur sambandinu við Dani
og var einnig yfír þessum síðustu
borunum á Grænlandsjökli undan-
farin 3 ár. „Við Sigfús eram sam-
starfsmenn um rannsóknirnar á
kjarnanum hér á landi. Okkar
mælingar eru gerðar í samvinnu
við Dani og Frakka," segir Ámý
Erla. „Það eru svokallaðar sam-
sætumælingar, þar sem við mælum
þyngdina á ísnum, því hún er svo
háð hitastiginu á þeim tíma sem
úrkoman fellur. Vatn er misþungt
eftir þvf hvar og á hvaða árstíma
það myndast. Þannig er hægt að
mæla þunga vatns og þar með íss
úr iðrum jökla og nota niðurstöð-
urnar til að meta með næsta ná-
kvæmum hætti meðalhitann þegar
vatnið féll sem snjór á jökulinn.
Þetta er gert í massagreini sem
Alþjóða kjarnorkumálastofnunin í
Vín gaf Islendingum 1984 og er
eitt af dýrustu rannsóknatækjum
landsins."
Ámý Erla Sveinbjömsdóttir er
jarðfræðingur í sérfræðingsstöðu
hjá Raunvísindastofnun. Kom þar
til starfa 1986 og fór að vinna með
Sigfúsi við massagreininn sem
mælir samsætur, en svo eru kallað-
ir hinir mismunandi þyngdarflokk-
ar sama frumefnis. „Núna erum
við mjög upptekin af þessu Græn-
landsverkefni, en annars er fleira
mælt í þessu tæki. Við erum t.d.
að mæla grunnvatn á íslandi og
kortleggja grunnvatnsrennsli, sem
tengist jarðhitarannsóknum og
virkjun fallvatna. “
Ævintýri á hábungn jökulsins
Við víkjum að boruninni _efst
uppi á Grænlandsjökli og Árný
Erla segir það hafa verið heilt
ævintýri að fá að taka þátt í því
verkefni. „Það er eitthvað heillandi
við að vera á jökli. Maður er svo
einn í víðáttu jökulsins,“ segir hún.
Hópurinn var 40 manns þegar flest
metrar
3.000
2.000
Sigfús J. Johnsen prófessor með síðasta ískjarnabútinn í ísgöngun-
um. Búturinn sem hann heldur á er af botni jökulsins og því eldri
en 250 þúsund ára gamall.
Heimild:
Brilish
Anlarctic
Survey
Úr ískjörnum á
■ Grænlandsjökli
hafa menn nú
lesið að hitastigið
gat sveifast eins
og hendi væri
veifað um allt
að 10 gráður.
Eina stöðuga
tímbilið er
núverandi
hlýskeið.
0 200 400
Þriggja kílómetra langur fskjami boraður gegnum jökulinn
Vísindamenn, sem skoða
ískjarna úr Grænlandsjökli
vara viö þvi aö mengun
andrúmsloftsins og
gróöurhúsaáhrif geti
ytt af staö ógnvænlegum
veðurfarsbreytiungum
“Celsius
Hitabreytingar á
Grænlandsjökli