Morgunblaðið - 19.09.1993, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.09.1993, Blaðsíða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1993 1874 Björn Jónsson hefur út- gáfu vikublaðsins Isafoldar. 1905 Jökulsá í Axarfirði brú- uð. 1949 Gengi íslenzku krón- unnar lækkar um rúmlega 30% eftir gengisfellingu sterlingspundsins. 1966 Brotizt inn í sovézka sendiráðið. „Innbrotsmenn í kvennaleit, en fóru húsavillt." 1967 Fundi norrænna sam- # gönguráðherra um Loftleiða- deiluna lýkur án samkomu- lags. 1981 Áhöfninni á Tungufossi bjargað við Land’s End, Eng- landi. *** 1870 Umsátur Prússa um París hefst. 1876 James A. Garfield, 20. forseti Bandaríkjanna, deyr af skotsárum sem hann hlaut þegar honum var sýnt bana- tilræði 2. júlí, fjórum mánuð- um eftir að hann tók við emb- ætti. 1888 Fyrsta fegurðarsam- keppni sögunnar fer fram í Belgíu. Sigurvegarinn 18 ára þokkadís frá Guadeloupe, Bertha Soucaret. 1898 Brezki herforinginn Kitchener sækir til Fashoda til að kæfa ásælni Frakka í Suður-Súdan í fæðingu. 1934 Bruno Hauptmann handtekinn í New York, gefið að sök að hafa rænt barni flugkappans Charles Lind- berghs. 1941 Þjóðverjar taka Kiev (Kænugarð). 1944 Finnar undirrita vopna- hlésskilmála Rússa og „fram- haldsstríði” þeirra lýkur. 1945 Brezki landráðamaður- inn William Joyce - öðru nafni „Lord Haw-Haw - sem út- varpaði áróðri frá Hamborg, dæmdur til dauða. 1955 Heraflinn í Argentínu steypir Juan Perón forseta af stóli. 1973 Karl XVI Gústaf kemur til ríkis í Svíþjóð. AFMÆLISDAGAR Jean-Baptiste Delembre 1749. Franskur stjörnufræð- ingur og stærðfræðingur. Lajos Kossuth 1802. Ung- versk byltingarhetja og leið- togi þjóðernissinna. Páll Skúlason 1894. Stofnaði Spegilinn 1926 og var rit- stjóri hans og útgefandi til ársloka 1960. Sir William Golding 1911. Brezkur rithöfundur, sem er kunnastur fyrir Flugnahöfð- ingjann og hlaut bókmennta- verðlaun Nóbels 1983. Þórarinn Þórarinsson 1914. Ritstjóri Tímans um árabil (frá 1938). Jóhann Hafstein 1915. For- sætisráðherra 1970-1971; áður dómsmálaráðherra (1961 og 1963-1970). Trommusettió sprakk í loft upp 1967 Tveggja mánaða hljómleikaferð brezku rokk- sveitarinnar Who í Bandaríkj- unum lauk í kvöld með villtari tónleikum en venjulega. Yfir- leitt kóróna sveitarmeðlimirnir tónleika sína með því að bijóta hljóðfæri sín af hamslausri heift. Sú var þó ekki ætlunin þegar þeir komu fram í beinni sjónvarpsútsendingu í kvöld, en fiassdufti hafði verið komið fyrir í trommusetti Keiths Moons og það sprakk í loft upp. Eldurinn læsti sig í gítar- leikarann Peter Townsend, en hann slapp með lítils háttar brunasár og hlustarverk. Mexíkóborg í rústum 1985 Geysikröftugur jarð- skjálfti lagði stóran hluta Mexí- kóborgar og nágrennis í rúst í dag og mörg þúsund munu hafa látið lífið. Þúsundir bygg- inga og íbúðarhúsa eyðlögðust í skjálftanum, sem mældist 8,1 stig á Richterskvarða og er sá langöflugasti sem orðið hefur í Mexíkó á þessari öld. Margir óttast að annar landskjálfti muni fylgja í kjölfarið, en víð- tækar björgunaraðgerðir eru hafnar. Balboa fiiinur útliaf í lestri 1513 Spænski konkvistadorinn Vasco Nunez de Balboa kom til vesturstrandar Ameríku í dag og leit vesturhafið augum fyrst- ur Evrópumanna. Hafið nefnir hann Suðurhaf. Balboa kom til Nýja heimsins árið 1500 og hóf búskap á eynni Hispaníólu, erl varð gjaldþrota fyrir nokkrum árum og flúði til meginlandsins til þess að losna við lánardrottna sína. Hann stofnsetti spænska nýlendu í Panama og gaf henni nafnið Darien. Fyrir fjórum vik- um fór hópur Spánverja undir stjórn Balboa yfir eiði milli Norð- ur- og Suður-Ameríku, þar sem þeir urðu að ryðja sér braut gegnum þéttan frumskóg og berjast við Ijandsamlega indí- ána. I dag kom leiðangurinn að fjalli, sem Balboa kleif, og þá sannfærðist hann um að hann og menn hans stæðu á strönd nýs úthafs. Mikki mús fær múlid 1928 Listamaðurinn Walt Disney í Hollywood sendi í dag frá sér fyrstu teiknimynd sína með tali, Steamboat Willy. Mikki mús kemur fram í mynd- inni og talar með rödd Dis- neys. Mikki hét upphaflega Mortimer þegar Disney fékk hugmyndina að honum í fyrra. Disney og helzti samstarfs- maður hans, Ub Iwerke, vinna að hugmyndum um fleiri teiknimyndapersónur. Rússar sigraóir í Nióur- löndum 1799 Árás Frakka á sam- eiginlegt lið Breta og Rússa í Hollandi var hrundið í dag. Þrjátíu og fimm þúsund Bretar og Rússar undir stjórn hertogans af York áttu í höggi við 22.000 hermenn franska hershöfðingjans Brune við virkisbæinn Berg- en-op-Zoom. Rússar fóru hinar mestu hrakfarir og yfirmaður þeirra var tekinn til fanga ásamt mestöllu her- fylki sínu. Bretar hrundu árás Frakka, en aðgerðir bandamanna voru illa sam- ræmdar og þeir neyddust til að hörfa til Zijp. Frakkar misstu um 3.000 menn fallna og særða og Bretar 500, en Rússar 3.500 menn og 26 fallbyssur. York hertogi hef- ur tæplega yfir nógu öflug- um her að ráða til þess að geta hrakið Frakka frá Hol- landi. Svarti prinsinn sigrar Frakka 1356 Englendingar sigruðu Frakka við Poitiers í dag, tíu árum eftir orrustuna við Crécy. Enn hefur enskur her sigrað franskan her „þar sem riddaral- iðarnir börðust á hestbaki, en þeir ensku stigu af hestum sín- um“. Her Englendinga var skip- aður 6.000 bogmönnum og hestliðum, en her Frakka 20.500 mönnum. Jóhannn II Frakka- konungur var tekinn til fanga auk margra franskra hermanna og hermt er að fyrir hann verði krafizt 500.000 pundá lausnar- gjald - „samsvarandi 15-földum árslaunum Englandskonungs“. Frakkar misstu 4.500 menn fallna og særða, en lítið mann- fall varð í liði Englendinga, sem hörfuðu heilir á húfi til Borde- aux. Enski herinn var undir stjórn Játvarðar prins af Wales, Svarta prinsins, sem er sonur Játvarðar III og einn af mestu herforingjum stríðsins. Búizt er við að Svarti prinsinn verði æðsti valdhafi Englendinga í Aquit- aníu. LOFTBELGUR YFIR VERSÖLUM 1783 Tveir franskir papp- írsgerðarmenn, Joseph og Jacques Montgolfier, hófu á loft risastóran loftbelg fylltan reyk í Versölum í dag, Loðvíki konungi XVI og hirð hans til ánægju og skemmtunar. í loft- belgnum voru sauðkind, hani og önd. Belgurinn komst í 457 metra hæð og lenti í 1600 metra fjarlægð. Haninn fórst í lendingu, en kindina og önd- ina sakaði ekki. Fyrir þremur mánuðum sendu bræðurnir fyrsta loftbelg sinn á loft í Ánnonay. í dag vildu þeir prófa áhrif hæðar á lifandi verur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.