Morgunblaðið - 19.09.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.09.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1993 B 15 stofu. Hún var búin með tækninám- ið og þetta var hentugt sem undir- búningur fyrir framhaldið. Þar vann hún í tvö ár. Vegna stríðsins var ekki mikið um vinnu. Allt var í lamasessi í Danmörku og atvinnu- leysi. Hún segist þó oftast hafa verið í vinnu þar til friður var sam- inn. Faðir hennar dó 1945 og hún fór heim í nóvember það ár. Ég hegg eftir því að hún segir heim um Islands. „Já, það hefur alltaf verið heim. Pabbi var af ís- lenskum ættum, og mamma segir að ég hafi verið íslendingur frá því ég steig hér á land,“ svarar hún um hæl. Hún hafði skrifað Sigurði Guð- mundssyni arkitekt, fyrrverandi vinnuveitanda pabba hennar, sem sagði henni að koma strax. Hún fór að vinna á teiknistofu Sigurðar og félaga hans Eiríks Einarssonar. Þeir voru þá þá að ljúka við Foss- vogskapelluna og Þjóðminjasafnið. Báðar þessar byggingar finnst El- ísabetu bera meiri keim af Eiríki Einarssyni, sem var lærður í Þýska- landi þar sem byggingar voru þá „monumental". Hilti strák Elísabet hugðist vinna sér inn peninga áður en hún héldi áfram í arkitektanámið. En næsta vor hitti hún strákinn - Friðrik Gísla Daní- elsson frá Hlíðarhúsum í Reykjavík. Þá kom rugl á rýmið. Þau fóru að leggjast í ferðalög, bæði Farfuglar. „Eg ætlaði eitt kvöldið að ganga á Esju. En þá versnaði veður og ég stóð þama á veginum og komst ekki í bæinn. Þá kom kassabíll og kallað var til mín hvort ég vildi far. Gísli var að vísu ekki í bílnum, en systir hans, sem sagði honum þegar hann kom heim seinna um kvöldið, að nú hefðu þær fundið konu handa honum. Og það varð“. Þar með voru námsáformin fokin út í veður og vind. Og Elísabet hætti líka á teiknistofunni: „Við vorum þá búin að ákveða að byggja þetta hús í Kópavoginum með mági mínum, sem bjó í hinum endanum og móðir þeirra bræðra líka. Og þó ég sé múrari, þá var mágur minn betri. Á þeim árum fékkst ekki neitt, maður þurfti alltaf að vera uppi í Fjárhagsráði og öllum þessum nefndum til að fá leyfi fyrir hveijum hlut. Sjáðu til dæmis hurðirnar, þær eru ekki eins, við fengum leyfi fýr- ir tveimur gegn um einn og öðrum tveimur gegn um annan." Við sitjum í þessu húsi á Þing- hólsbrautinni við Kópavoginn, sem Elísabet Firisen teiknaði sjálf og byggði með fjölskyldu sinni. Þau höfðu fengið erfðafestuland niður að sjónum og þetta var fyrsta íbúð- arhúsið á svæðinu með byggingar- leyfi sem slíkt. Þau voru þar frum- byggjar. Önnur hús höfðu verið byggð sem sumarbústaðir eða vinnuskúrar. Nú er þama mikið breytt, búið að fýlla upp og byggja fyrir neðan og stór tré umlykja húsið. Fjaran var rétt fyrir neðan og sjórinn blasti við. Eitt sinn lágu flugvélar og herskip þarna úti á voginum, var víst ein af fyrstu NATO-æfingunum fyrir framan gluggana þeirra. Ein vélin slitnaði upp. Þau byijuðu að byggja 1947 og fluttu fljótlega inn þótt húsið væri ekki íbúðarhæft, eins og Elísabet segir. Ekkert fékkst í bygginguna og þá ekki nema með alls kyns leyf- um. Þau áttu til dæmis miðstöðvar- ofnana og miðstöðvarketilinn, en engin leið að fá pípurnar, svo þau hituðu upp með kolaofni og þótti gott ef hitinn í húsinu fór upp í 15 stig. „Gerði ekkert til, enda vorum við vön útilegum," segja hjónin. Þau hlóðu sjálf upp húsið úr vibrosteini, en fengu menn til að steypa loftplöt- una, sem var í einu lagi. „Þá sá ég að maðurinn sem var að leggja jám- in ætlaði að spara þau. Eg sagði við hann að ég vildi hafa þetta eins og væri á teikningunni. Hann var dálítið hissa á því hvað þessi kona væri að segja honum til. Ég komst svo að því af hveiju hann vildi spara járnin, hann ætlaði að kaupa af okkur afgangana. Það var jafn erf- itt að útvega sér jám eins og allt annað til bygginga á þeim tírna." Þarna í húsinu sínu við sjóinn ólu þau hjónin upp fimm syni, sá fyrsti fæddist 1950. Þrír þeirra em skipasmiðir, enda uppaldir við sjó- inn. í fystu átti fjölskyldan bara árabát, síðan fengu þau vélbát og loks færðist sjósóknin yfir í segl- báta. „Síðast vomm við með segl- bát hérna fyrir framan, meðan við áttum land að sjó,“ segja þau. „Nú era flestir, böm og barnaböm, í siglingafélaginu Ymi í Kópavogi. Þetta er fjölskyldudella." Hætti Elísabet þá alveg við að teikna hús. „Ég teiknaði svolítið fyrir fólk öðm hveiju, til dæmis þegar þurfti viðbyggingar, einkum meðan Kópavogur var að byggjast. Fmmbyggjarnir réttu hveijum öðr- um hjálparhönd. Ef maður fór í bæinn, var maður gjarnan beðinn um að kaupa um leið nagla af ákveðinni gerð. Og maður tók fólk upp í bílinn á leiðinni." Elísabet ætlaði að verða arki- tekt, en fór aldrei alla leið, eins og hún segir. Sér hún svolítið eftir þvf? „Nei, það er nú eitthvað ann- að. Það er fleira í lífínu en að bygg- ja,“ svarar hún með sannfæring- arkrafti. STÓRAR, SMÁAR, ÖFLUGAR, VANDAÐAR, RYÐFRÍAR, ALHLIÐA... DÆLUR Þú þarft ekki aðfara annað þegar þig vantar dœlur. # LOWARA = HÉOINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260 Elisabet vard fimm barna móóir i Kópavoginum, þar sem hún eignaóist mann og heimili. Þarna er hún i garó- inum meó heímilis- hundinn. elstu skólum í Danmörku, rakti rætur sínar aftur til 13. aldar. „En hann var svo strangur að maður var skíthræddur. Ég hafði verið í Landakoti, þar sem var góður agi, ekkert I líkingu við þetta. Það var slegið á hendurnar og algengt að maður væri látinn standa úti. Ég reyndi þetta allt - auðvitað. Orð fór af því að sögukennaranum væri meinilla við ef einhver brosti. Ég missti blýant í fyrsta tíma hjá hon- um og beygði mig niður eftir hon- um. Þegar ég var að rétta mig upp sá ég að strákur var að glenna sig framan í mig og brosti út undir eyru. Fékk auðvitað bágt fyrir. Þegar ég kom heim var það pabbi sem varð reiður. Þegar hann kom upp í skóla hitti hann dönskukenn- arann, sem sagði: Já, en hún er svo afskaplega óöguð! Aumingja pabbi, sem hélt að hann ætti prúða stelpu. En þessi dönskukennari var samt ekki svo slæmur. Þegar hann var reiður við mig, þá sagði hann: Bölv- aður ísbjöminn þinn. Ef ég svo gerði góða ritgerð þá kallaði hann mig Norðurljósið sitt. Þetta var góður skóli, en maður kom bara úr allt öðm umhverfí." Elísabet var samt ákveðin í að verða arkitekt. í Danmörku var um tvær leiðir að velja, annars vegar að taka stúdentspróf og svo skól- ann, en hins vegar að taka sveins- próf í t.d. múraraiðn og bygginga- fræði og fara þá leið í arkitektúr- inn. „Síðarnefnda leiðin var styttri. Foreldrar mínir hvöttu mig, en fannst að ef menntaskólaleiðin væri farin þá yrði svo langt í að maður gæti séð fyrir sér. Og svo var ég stelpa. Þau höfðu í Danmörku séð að ef stúlka giftist ekki þá var eins líklegt að hún endaði sem ódýrt vinnuafl hjá systkinum sínum. Og við áttum að geta séð fyrir okkur,“ útskýrir Elísabet. Hún fór því í múraranámið, vann í því verklega á sumrin og var svo í byggingafræðinámi á veturna. Þetta var fjögurra ára nám en þar sem hún hafði verið í gagnfræða- skóla, þá tók hún þetta saman og útskrifaðist múrarasveinn haustið 1942. Verklega námið hlýtur að hafa verið erfitt fyrir stúlku? „Ég varð auðvitað að vinna. Það er það sem múrarar gera. Það er að sumu leyti erfitt, en þannig lærir maður,“ segir Elísabet hvatlega. „Svo höfðu múrarar handlangara. Við pabbi veltum þessu fyrir okkur. Hann hafði sem múrari hlotið silfurverð- laun, en ég fékk ekkert nema hrós.“ Það er staðfest á sveinsbréfinu hennar: Ros! stendur þar. Eftir að hafa lokið prófínu um haustið fékk Elísabet vinnu á teikni- Húsió sitt teiknaói El- isabet sjólf og var meó i aö byggja þaó. Þó stóó þaó vió sjó- inn, þar sem nú hefur ver- ió byggt fyrir framan. Og einn góóan veóurdag mótti sjó þarna úti á Kópavogin- um herskip eg fiugvólar, sem voru aó taka þátt í einni af fyrstu NATO- œfingunum. >• S»éSS -» . Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.