Morgunblaðið - 19.09.1993, Blaðsíða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1993
MÞRATT fyrir vænan
söngferil hefur Móeiður
Júníusdóttir ekki verið í
aðalhlutverki á breiðskífu
enn. Á því verður vísast
gerð bragarbót á næstu vik-
um, því Móeiður er á förum
í hljóðver að taka upp efni
á eina slíka. Að sögn Móeið-
ar verða á breiðskífunni
ýmsar jasslummur og göm-
ul dægurlög, þar á meðal
lítilræði af íslenskum lög-
um, en sveifla góð, því hún
hyggst fá jasshunda í spil-
irí. Móeiður hyggst stýra
upptökum ein í slagtogi við
Eyþór Arnalds, en ekki er
ljóst hver gefa mun út.
San Fransisco-sve'
VINSÆLASTA erlenda hljómsveitin hér á landi um þess-
ar mundir er líklega bandaríski kvartettinn 4 Non Blond-
es. Lag sveitarinnar What’s Up er spilað í síbylju og plat-
an, sem er frumraun sveitarinnar, selst gríðarvel.
4Non Blondes á rætur
víða, ef marka má upp-
runa sveitarliða, en hefur þó
verið kölluð fyrsta hrein-
ræktaða San Fransisco-
sveitin síðan á sjöunda ára-
tugnum, þegar hver spegla-
mussusveitin af annarri
spratt þar upp.
4 Non Blondes er hugar-
fóstur söngkonu sveitarinn-
ar, Lindu Perry, sem er sam-
tímis helst lagasmiður henn-
ar. Linda hefur lifað skraut-
legu lífi, og ekki alltaf kristi-
legu, en hún segir að illt líf-
erni í æsku hafi kennt henni
að fólk vilji tilfmningar en
ekki fínheit. Tifinningaríkur
söngstíll Lindu er einmitt
vörumerki sveitarinnar, ekki
síður en litskrúðugt útlit
hennar og annarra í sveit-
inni.
í upphafi var 4 Non
Blondes kvennasveit, en
kvarnast hefur úr henni með
tímanum og nú eru í henni
tvær stúlkur og tveir piltar.
Sveitarliðar gera þó lítið úr
kynferðinu og leggja á það
áherslu að það sem máli
skipti sé tónlistin. í því, líkt
og mörgu öðru, má segja að
sveitinni svipi til eldri San
Fransisco-sveita, þegar eina
leiðin til að greina kynferði
sveitarmanna var ef einhver
gleymdi að raka sig.
Sérkennlleg 4 skolkollar.
Stílbrigði Stone Temple Pilots.
FRAMLINUROKK
BANDARÍSKA rokkbylgjan er ekki hnigin enn, eins
og sannast á rokksveitinni Stone Temple Pilots. Sú er
í hópi vinsælustu rokksveita hér á landi og siglir örugg-
lega upp á við ytra með sína fyrstu breiðskífu, Core.
Stone Temple Pilots hefur
farið aðrar leiðir upp á
stjörnuhimininn en margar
sveitir, en fyrsta skrefið var
að fýlja sig um set frá Los
Angeles til San Diego, til
að losna úr gerviveröld Los
Angeles-rokksins. Annað
skref, sem sýnir að sveitar-
menn vita hvað þeir vilja,
var að hafna upphitunar-
hlutverki hjá Aerosmith og
kjósa heldur að leika með
furðufuglunum í Butthole
Surfers í sumar.
Stone Temple Pilots, en
nafnið er til orðið vegna
skammstöfunarinnar, STP,
komst á samning hjá Atl-
antic-risanum á síðasta ári
og þá fyrst segjast sveitar-
menn hafa haft tíma til að
æfa og semja, því undan-
gengin ár höfðu þeir verið
of uppteknir við að spila
undir ýmsum nöfnum. Á
þeim árum hafa þeir félagar
slípað tónmál sitt og skerpt
í rokk sem svipar til Seattle-
rokksins, an þess þó að
draga dám af því, en helsta
undrunarefni þeirra sem
heyra eru einkennilega súr-
realískir textar söngvara
sveitarinnar, ekki síður en
sá grúi stílbrigða sem hann
hefur vald á í söng.
Stone Temple Pilots er
gjaman nefnd með bestu
rokksveitum Vestanhafs um
þessar mundir, þykir reynd-
ar sameina það besta frá
grúa nafntogaðra rokkgoða,
og skipar sér með Alice in
Chains, Pearl Jam og Nir-
vana í framlínuna.
DÆGURTÓNLIST
Hvað liggurámilli trúabdúrsins og nýbylgjurokksins f
MANSÖNGVAR
PLOTUÚTGÁFA er happdrætti og margur fer
flatt á að gefa út sjálfur. Ekkert er þó betri kynn-
ing fyrir tónlistarmann en að sc nda frá sér breið-
skifu og sú stund rennur upp hjá hveijum tónlist-
armanni að það sé að duga eða drepast, að gefa
út eða hætta þessu stússi. Orri Harðarson heitir
ungur Skagamaður sem stóð frammi fyrir þeirri
ákvörðun og ákvað að sláta slag standa. Fyrsta
breiðskífa hans er væntanleg á næstu dögum.
eftir Árni
Watthiosson
Orri Harðarson á að
baki langan tónlist-
arferil þó ekki sé hann
kominn á efri ár. Hann
hefur starfað með ýmsum
Skaga-
sveitum,
þeirra
helstum
líklega
Óþekkt-
um and-
Iitum og
Bróður
Ðarwins.
Orri segist hafa ákveðið í
janúar að tími væri til
kominn að gera eitthvað
annað að spila með ný-
bylgjusveitum eða vera
trúbadúr. „Ég ákvað að
gera plötu með tónlist sem
liggur á milli trúbadúrsins
og nýbylgjurokksins og
reyna þannig að koma mér
á framfæri, kanna hvort
það sér grundvöllur fyrir
áframhaldandi músíkiðk-
un með þesum hætti.“
Orri segist hafa unnið
plötuna með hléum í júní
og júlí, en hann gefur út
sjálfur og Japís sér um
dreifíngu og auglýsing-
ar. Margir leggja Orra
lið á plötunni, helst
Jón Olafsson, sem
vann með honum út-
setningar og stýrði
upptökum, Stefán
Hjörleifsson, Birgir
Baldursson og Friðrik
Sturluson. Orri sér sjálfur
um söng og fékk tii liðs
við sig Onnu Haraldsdótt-
ur, sem áður söng með
Bróður Darwins, en einnig
syngur Valgerður Jóns-
dóttir sem söng
forðum með Frímanni.
Orri segist hafa valið á
plötuna með það fyrir aug-
um að gera hana útvarps-
væna, „Ég var búinn að
safna að mér nokkrum
tugum laga og valdi 30
léttustu lögin, sem urðu
nítján við nánari skoðun
og tíu þeirra enduðu á
plötunni. Textarnir eru
svo allir poppástartextar,
mansöngvar. Platan heitir
Drög að heimkomu og er
samin á meðan ég bjó í
Danmörku, líklega full af
tregaskotinni heimþrá."
Orri heldur útgáfutón-
leika í Bíóhöllinni á Akra-
nesi 7. október, enda er
þar hans markaður, og þar
leika með honum allir þeir
sem lögðu honum lið á
plötunni. Hann segist ein-
mitt ekki hafa miklar
áhyggjur af að selja fyrir
kostnaði, enda eigi hann
tryggan hóp stuðnings-
manna á Akranesi. Þegar
líður á haustið hyggst
hann svo smala saman í
rokksveit og hefja tón-
leikahald.
Morgunblaðið/Svorrir
Mansöngvar
Orri Harðarson.
Arftakl Roy Soerorosen. Á efri myndinni má sjá Cliff og
Skuggana í árdaga.
SKUGGARIMIR
SNÚA AFTUR
BRESKA rokksveitin Shadows er goðsagnakennd fyrir
að hafa lejkið undir með Dorian Gray rokksins, Cliff
Richard. Óbrotgjarnari er þó orðstír Skuganna sem
vinsælustu hljómsveit sem sinnt hefur leikinni tónlist
eingöngu.
Vinsældir Shadows skrif-
ast að miklu á snjallan
gítarleik Hanks B. Marvins,
sem var í síst minni metum
en Eric Clapton meðal gítar-
fróðra á árum áður. Fyrir
tveimur árum ákvað Hank
upp á sitt eindæmi að leysa
sveitina upp, nokkuð sem
forðum félagar hans tóku
ekki vel. Þeir voru í sárum
lengi vel, en hafa nú fundið
verðugan arftaka Hanks,
hollenska gítarleikarann
Roy Soerorosen, sem kunn-
ugir kalla einatt Roydon.
Roydon varð fyrir valinu
fyrir ábendingu Shadows-
vinafélags Hollands og seg-
ist vart vera búinn að átta
sig á upphefðinni enn, en
tónleikaferð hans með
Shadowsliðum heíjast í
næsta mánuði í Bretlandi
undir nafninu The Moon-
light Shadows.