Morgunblaðið - 19.09.1993, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 19.09.1993, Qupperneq 17
B 17 MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1993 Nýjasta mynd Tim Burtons. MNorræn heimildar- og stuttmyndahátíð hefst í Kristianstad í Svíþjóð nk. miðvikudag og taka íslensk- ir kvikmyndagerðarmenn þátt í keppni um bestu myndir. Þau eru: Sigur- björn Aðalsteinsson og Baldur Hrafnkell Jónsson með heimildarmyndina Hið frábæra undur, Sæmund- ur Norðfjörð með heimild- armynd um Króatíu, Inga Lísa Middleton með hreyfi- myndina Ævintýri á okkar tímum og Sigurður Örn Brynjólfsson með teikni- myndina Jólatréið okkar. Hátíðin stendur frá 22.-26. sept. og er Árni Þórarins- son fulltrúi íslands í dóm- nefnd. Norðurlöndin skipt- ast á um að halda hátíðina og verður hún á Islandi í september að ári. MÁstralski leikstjórinn Peter Weir, sem á að baki myndir eins og Gallipoli, Vitnið og „Dead Poets Society11, hefur gert nýja mynd sem heitir „Fearless" eða Ottalaus og verður hún frumsýnd í Bandaríkjunum í haust. Segir hún af manni sem lifað hefur af flugslys og hvernig hann tekst á við lífið eftir þá reynslu. Með aðalhlutverkið fer Jeff Bridges en önnur hlutverk eru í höndum Rosie Perez, John Turturro, Tom Hulce og Isabellu Rossell- ini. ■ / síðustu viku misritaðist hér nafnið á leikriti Neil Simons, „Lost in Yonkers“, en það heitir Heima hjá ömmu og er bíóútgáfa þess væntanleg í Stjörnubíó. MNýjasta mynd Tim Burt- ons (Batman 1 og 2) heitir „Nightmare Before Christmas“ eða Martröð undir jólin og segir af Hrekkjarvökupúka sem hyggst spreyta sig á jólun- um. Þetta er teiknimynd sem kostar um 30 milljónir dollara og verður hún frum- sýnd vestra í haust. Það fylgir sögunni að Burton hafi lengi verið með þessa mynd í huga en ekki fengið ijármagn í hana fyrr en Batman gerði hann frægan. MHollenski leikstjórinn Paul Verhoeven kvik- myndar nú 65 milljón doll- ara sjóræningjamynd um alræmda sjóræningjakonu og fer Geena Davis með hlutverk hennar. Verhoev- en, sem síðast gerði Ógnar- eðli, bauð Sharon Stone hlutverkið en hún afþakk- aði. 60.000 A JÚRAGAREHNN Alls höfðu um 60.000 manns séð ævintýra- myndina Júragarð Stevens Spielbergs eftir síðustu helgi. Þá höfðu 13.000 manns séð „Sliver“ með Sharon Stone. í Háskólabíói höfðu tæp 6.000 séð Við árbakkann eftir Robert Red- ford, um 2.500 Eld á himni og kínverska myndin Rauði lampinn byijaði vel um síðustu helgi samkvæmt upplýsingum frá bíóinu. Háskólabíó hóf sýningar á frönsku mynd- inni Indókína eftir Régis Wargnier með Cat- herine Deneuve í aðalhlutverki nú fyrir helgi. Á eftir henni mun bíóið sýna „School Ties“ og svo „Benny & Joon“ með Johnny Depp og Mary Stuart Masterson en síðan verður Kvik- myndahátíð Listahátíðar haldin í Háskólabíói frá byijun næsta mánaðar og fram í hann miðjan. Þann 15. október verður spennumynd- in„The Firm“ eða Firmað frumsýnd í bíóinu og Sambíóunum einnig. Þar á eftir má búast við nýju Shakespeare-mynd Kenneths Bra- naghs, Ys og þys út af engu. Þá má nefna að Háskólabíó hefur sýningarréttinn á Harvey Keitel-myndinni „Young Americans" en eitt af lögunum í henni er „Play Dead“ eftir Björku Guðmundsdóttur. Tannfé mikið; T. rex ánægð með sinn hlut. Góð ráð dýr; Áifrún Ornólfsdóttir og Björn Karlsson í Ráðagóðu stelpunni. RÁDAGÓDA STELPAN TÖKUR á Ráðagóðu stelpunni, 30 mín- útna kvikmynd fyrir böm,'stóðu yfir í sumar en er nú lokið. Leiksijóri er Sigur- bjöm Aðalsteinsson sem áður hefur gert stuttmyndimar Ókunn dufl og Hundur hundur, en hann gerir einnig handritið ásamt Jóni Ásgeiri Hreinssyni. Myndin segir frá tíu ára stúlku í Hafnar- firði sem heldur í ferðalag að freista þess að losa föður sinn úr álögum, en hann hefur orðið að gijóti eftir að hafa espað upp álfa í Hellisgerði. Hún fær álfastrák sér til hjálpar og heldur í tröllabyggðir. Þau hitta fyrir sex mánaða og tveggja metra hátt tröllabarn og stela frá því fjöreggi sem hjálp- að getur pabbanum, en trölli eltir þau í bæinn. Með aðalhlutverkið fer Álfrún Omólfsdótt- ir, sem lék í Svo á jörðu sem á himni, Jó- hann Ari Lárusson leikur álfastrákinn, Jó- hann Sigurðarsson leikur tröllabamið og Bjöm Karlsson leikur pabbann. Tónlist við myndina semur Eyþór Arnalds, kvikmyndatökumaður og framleiðandi er Baldur Hrafnkell Jónsson og leikmyndahönn- uður er Þór Vigfússon. í BÍÓ Næstkomandi fimmtudag munu Sambíóin hefja kvik- myndahátíð á eigin veg- um þar sem sýndar verða á milli 10 og 12 bíómynd- ir sem Sambíóin eiga á lager. Þær em allt upp í þriggja ára gamlar en líka glænýjar eins og myndin Örlando eftir Sally Potter, sem mikta athygli hefur fengið er- lendis upp á síðkastið. Kvikmyndahátíðin mun standa í tíu daga eða svo og verður hún haldin í Bíóborginni. Á meðal mynda sem sýndar verða mánefna„„Mountains of the Moon“ eftir Bob Ra- felson með Patrick Berg- in í aðalhlutverki, „Music Box“ eftir Costa-Gavras með Jessica Lange í aðal- hlutverki, „The Power of One“ með Morgan Free- man í aðalhlutverki, „Mississippi Masala“ með Denzel Washington eftir Mira Nair, indverska leik- stjórann sem gerði „Sala- am Bombay!", Sagaþern- unnar eða „The Handma- id’s Tale“ eftir þýska leik- stjórann Volker Schlond- orff með NataSha Ric- hardson, Robert Duvall og Fay Dunaway í aðal- hlutverkum og „City of Hope“ eftir John Sayles. Sýningum á vinsæl- ustu myndunum mun haldið áfram eftir að há- tíðinni lýkur en hún kem- ur rétt í þann mund sem Kvikmyndahátíð Listahá- tíðar hefst í Háskólabíói. 3 <i> fl -o 3 s « O, g 3 OT O ~ o s- c 1§ 2 5o O.'B So ^ ÖjD ■* o Sönnást Nýjasta mynd breska leik- stjórans Tony Scotts í Bandaríkjunum er ólík öðr- um myndum hans eins og „Top Gun“ eða „Beverly Hills Cop 11“ eða „The Last Boy Scout". Hún heitir „True Romance" og hefur vakið talsverða athygli enda er handritshöfundur- inn Quentin Tarantion sem gerði hina ofbeldisfullu mynd „Reservoir Dogs“. Með aðalhlutverkin fara Patricia Arquette og Christian Slater en fjöldi ann- arra þekktra leikara fer með smærri hlutverk eins og Gary Oldman . „Ég hef ekki lesið handritið,” sagði Oldman þegar Scott hringdi í hann að falast eftir honum í hlut- verk, „segðu mér bara fjárans söguþráðinn". Svo Scott sagði: „Þú ert hvítur maður sem heldur að hann sé svartur og þú ert mellu- dólgur.“ „Reiknaðu með mér,“ sagði Oldman. Eins og við má búast frá hendi Tarantions er myndin ofbeldisfull í meira lagi og segir af nýgiftum hjónum sem flytja dóp frá Detroit til Los Angeles með mafíuna á hælunum. KVIKMYNDIR Leitadi Allen á nábir gamanmyndarinnar? Mordgáta áManhattan Woody Allen átti ekki sjö dagana sæla síðasta sumar, ekki frekar en Mia Farrow og börn þeirra, fjölskylda og vinir, en mitt í öllum látunum byrjaði Allen á mynd um morðgátu á Manhattan og hóaði í gamla vini til að gleyma sér í nokkru sem hann hafði ekki fengist við í næstum tíu ár eða frá því hann gerði „Broadway Danny Rose“ árið 1984, nefnilega gamanmynd. Nýja myndin hans heitir Morðgáta á Manhatt- an eða „Manhattan Murder Mystery“ og fer gömul kærasta Allens, Diane Kea- ton, með aðalkvenhlutverk- ið í stað fyrrum kærustu hans, Miu Farrow. Aðrir leik- arar eru Allen sjálfur og Ánjelica Huston og Alan Alda sem léku með honum í einni bestu mynd hans síðustu árin, „Crimes and Mis- demeanors". „Ég held það hafi verið meiriháttar átak fyrir hann að byija að vinna með skilnaðarmálið á bak- inu,“ er haft eftir Robert Eftir Arnald Indriðason Greenhut, vini Allens til margra ára og framleið- anda mynda hans. „Ég held það hafi gert honum lífið léttara að fást við gaman- mynd.“ Morðgáta, sem er 23. bíómynd leikstjórans og væntanleg í Stjörnubíó fljótlega eftir áramótin, segir frá því þegar íbúi í fjölbýlishúsi finnst látinn en nágrannar hans, mennt- að miðstéttarfólk eins og í öllum Allen-myndum, taka að rannsaka málið og fyll- ast grunsemdum um að ekki sé allt með felldu, hvorki í máli íbúans látna né ýmsu öðru sem kemur líkinu ekkert við. Keaton, matargerðarlistakona er dreymir um að opna veit- ingastað, tekur rannsókn málsins í sínar hendur en Gamla efnasambandið; Allen og Keaton í nýju gaman- myndinni. Hver gerði það? Allen og Alan Alda greiða úr flækjunni. í myndinni er hún gift Al- len, útgáfustjóra bókafor- lags, sem vill ekkert hafa með ansvítans málið að gera. Alda leikur vin þeirra og Huston leikur rithöfund, sem gefur góð ráð. Keaton var aðalleikkona Allens til margra ára eða frá því hann gerði sínar fyrstu óborganlegu gaman- myndir í byijun áttunda áratugarins. Hún hefur ekki leikið í mynd eftir hann síðan í Manhattan árið 1979 ef frá er talið örstutt söngatriði í „Radio Days“. Árið 1977 hreppti hún Óskarsverðlaunin fyrir bestan leik í Allen-mynd- inni Annie Hall, sem var ævisöguleg í meira lagi og var ekki síst um samband þeirra tveggja. Eftir þessar myndir slitnaði uppúr sam- bandi þeirra og Farrow varð aðalleikkona Allens allan níunda áratuginn. Er sagt að dreifingaraðilar Morðgátunnar, sem er TriStar, treysti á að gamla efnasambandið milli Allens og Keatons virki eins vel og forðum en Annie Hall og „Love and Death“ eru á meðal bestu og vinsælustu mynda Allens fyrr og síðar. Það fór a.m.k. vel á með þeim tveimur á meðan á upptökum stóð eftir því sem fregnir herma. En það eru fleiri góðir samstarfsmenn Allens til margra ára viðriðnir mynd- ina. Að fráslepptum þeim framleiðendum Greenhut, Jack Rollins og Charles H. Joffe, má nefna kvik- myndatökumanninn Carlo Di Palma, sem skapað hef- ur rétta andrúmsloftið í flölda mynda leikstjórans, klipparann Susan E. Morse, sem unnið hefur með hon um í mörg herrans ár og handritshöfundinn Mars hall Brickman, sem skrifar handritið ásamt Allen, en hann skrifaði m.a. handrit ið að Annie Hall og Man- hattan með honum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.