Morgunblaðið - 03.10.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.10.1993, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C/D 224. tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Málglaða Pico skilað ÞEGAR „Pico-san“ (Pico litli) páfagaukur japönsku húsfreyj- unnar Teruko Tsuyukubo hafði verið týndur í tvær vikur voru flestir búnir að gefa upp vonina um að sjá hann á ný, segir í frétt í japanska blaðinu Tokyo Shimbun. Hann hafði hins vegar flogið að bensínstöð í þijátíu kílómetra fjarlægð og sest þar á öxl afgreiðslumanns. Hann kenndi í brjósti um fuglinn litla og fól nágranna sínum að sjá um hann. Þegar Pico litli var búinn að ná sér eftir nokkra daga fór hann hins vegar að þylja upp nafnið sitt „Tsuyukubo Pico“ (Pico hennar Tsuyukubo) og hvar hann ætti að heima. A Ohagstæður spamaður BRETINN Frank Gregg ákvað fyrir tveimur árum að koma fjár- málunum í lag og fór því á bóka- safnið og fékk lánaða bókina „Hvernig á að spara peninga“. Sú ferð var þó síður en svo til fjár. Gregg gleymdi að skila bókinni ásamt annarri sem hann tók að láni og á dögunum dæmdi dómstóll í Liverpool hann til að greiða um 50 þúsund krónur í sekt vegna þessa. Gregg viður- kenndi að hafa gleymt bókunum og því væri réttmætt að hann yrði að greiða sekt. Upphæðina sagði hann hins vegar vera „fár- ánlega“. Sektir taka mið af tekj- um viðkomandi og þar sem Gregg hafði gleymt að fylla út eyðublað þar sem slíkar upplýs- ingar ber að skrá var hann sjálf- krafa dæmdur til að greiða há- markssekt. Þrálátir skuldarar YFIRVÖLD í Washington eru orðin langþreytt á erlendum sendiráðum sem ekki greiða stöðumælasektir. Hefur því þingið lagt til að fjárhagsaðstoð verði skorin niður sem nemi úti- standandi skuldum viðkomandi ríkja vegna stöðumælasekta. Þessari tillögu er fyrst og fremst beint að Rússum en þeir þrjósk- ast við að viðurkenna um 200 milljóna króna uppsafnaða skuld sem Sovétríkin skildu eftir sig er þau voru leyst upp. Aðrir svartir sauðir eru t.d. sendiráð Nígeríu, Egyptalands, Suður- Kóreu, Zimbabwe og Búlgaríu. I rústum heimilisins Reuter INDVERSK yfirvöld segjast nú óttast að rúmlega þrjátíu þúsund'manns hafí farist í jarðskjálftunum sem riðu yfir landið á fimmtudagsmorgun. Fjöldi slasaðra er talinn í tugþúsundum og sum dagblöð staðhæfðu að allt að 44 þúsund manns hefðu farist. Alls lögðust um 36 þorp í rúst. Fleiri jarðskjálftar mældust á sama svæði, um 450 kílómetra austur af borginni Bombay, aðfaranótt laugardagsins en ekki hafa borist fregnir um mannskaða af völdum þeirra. Narashimha Rao, forsætisráðherra Ind- lands, ætlaði að heimsækja jarðskjálftasvæðið á laugardag en indverska ríkissjónvarpið sagði hann hafa aflýst heimsókn sinni vegna mikilla rign- inga en þær hafa einnig gert hjálparstarf mun erfiðara á þessum slóðum. Indverska ríkisstjórnin sagðist í gær ætla að taka við erlendri aðstoð til að aðstoða fórnarlömb jarðskjálftanna. Verður það í fyrsta skipti frá því ríkið fékk sjálfstæði frá Bretum árið 1947 að Indveijar fá fjárhagsaðstoð vegna náttúruhamfara. Poti við Svartahaf á valdi hersveita Gamsakhúrdía Tblisi. Reuter. HERSVEITIR hliðhollar Zvíad Gamsakhúrdía, fyrrum forseta Georgíu, náðu í gær hafnarborginni Poti við Svartahaf á sitt vald. Að sögn tals- manns varnarmálaráðuneytis Georgíu féll borgin eftir tangarsókn her- sveita forsetans fyrrverandi sem hrakinn var frá völdum í janúarmán- uði í fyrra. Með þessari árás hefur verið staðfestur sá ótti margra að búast megi við hörðum bardögum sveita Gamsakhúrdía og stjórnarhers- ins, sem lýtur stjórn Edúards Shevardnadze, forseta Georgíu. Talsmaður varnarmálaráðuneytis- ins sagði að bardagamir hefðu stað- ið yfir í nokkrar klukkustundir og að borgin hefði fallið eftir þunga tangarsókn „Zvíadista" en svo eru fýlgismenn Gamsakhúrdía, fyrsta lýðræðislega kjörna forseta Georgíu, nefndir. Hann kvað ótiltekinn fjölda manna hafi fallið og særst og sagði að sveitir uppreisnarmanna hefðu hertekið skrifstofu borgarstjóra Poti. Með þessari árás er sýnt að banda- lag það sem Gamsakhúrdía og She- vardnadze náðu að mynda í síðasta mánuði til að veija héraðið Abkhazíu heyrir sögunni til. Héraðið er nú á valdi Abkhaza, múhameðstrúar- manna sem beijast fyrir aðskilnaði frá Georgíu og njóta stuðnings harð- línumanna i Rússlandi. Talsmenn Sameinuðu þjóðanna hafa sagt að neyðarástand ríki í Abkhazíu, tug- þúsundir manna hafa flúið heimili sín, margir til fjalla og höfúðborg héraðsins, Sukhumi, er í rústum eft- ir bardaga undanfarinna vikna. Gamsakhúrdía sneri aftur úr út- legð er sýnt þótti að georgíski stjórn- arherinn myndi ekki ná að halda Abkhazíu en fylgismenn forsetans fyrrverandi hafa á sínu valdi land- svæði í vesturhluta landsins. Ófarir stjómarhersins em í senn mikið persónulegt og pólitískt áfall fyrir Shevardnadze en staða Gams- akhúrdía þykir að sama skapi hafa styrkst mjög við fall Poti. Hún er mikjvæg olíuhöfn áuk þess sem hjálpargögn erlendis frá hafa verið ser\d til borgarinnar. FÓRNARLÖMB STALÍNISMANS Engum tilgagns Kl JÍKVŒTT segir lóhannes Sturla, sem slasadist í vióureign við eiturlyjjasala JAPAN TIMAMOTIJM C BILABLAÐ ÖKUKENNARANÁM í KENN- ARAHÁSKÓLANUM • FORD GAUAXY1959 ÁRGERÐ • RAF- DRIFIÐ REIÐHJÓL • ÞJÓFA- FÖRN í L YKLINUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.