Morgunblaðið - 03.10.1993, Síða 4

Morgunblaðið - 03.10.1993, Síða 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT ERLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993 INNLENT 10-15 millj. verkefni til sveitarfélaga SAMKVÆMT samþykkt ríkis- stjórnarinnar er gert ráð fyrir breytingu á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga á næstu tveimur til þremur árum þannig að þau geti tekið á sig aukin verkefni sem áður voru á hendi ríkisins. Þgrna er um að ræða verkefni á sviði heilsugæslu, öldrunarmála, í málefnum fatlaðra og rekstur grunnskóla og talið er að kostn- aðurinn sé á bilinu 10-15 millj- arðar króna. Einnig verður fjár- magn til Jöfnunarsjóðs sveitárfé- laga aukið tímabundið vegna sameiningar sveitarfélaga en síð- an varanlega vegna verkefnatil- flutningsins. Rússar mótmæla veiðum í Smugunni Rússar hafa harðlega mótmælt veiðum íslenskra togara í Smug- unni. Þetta kom fram á fyrsta degi opinberrar heimsóknar Þor- steins Pálssonar sjávarútvegs- ráðherra til Rússlands. Hafa Rússar hótað að rifta samstarfs- samningi rússnesks fyrirtækis við íslenskt fyrirtæki um kola- veiðar við strönd Rússlands. Fjármagnstelguskattur frestast Nefnd á vegum stjórnarflokk- anna sem falið var að semja frumvarp um fjármagnstekju- skatt' hefur fengið frest til að skila af sér áliti til 10. okt. en áður var ráð fyrir því gert að hún skilaði af sér um miðjan septem- ber. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur nefndin ERLENT Landskjálfti á Indlandi TALIÐ er að 15.000 manns, hið minnsta, hafi farist í jarðskjálfta sem reið yfir vesturhluta Ind- lands á fimmtudag. Mesti skjálft- inn mældist 6,4 stig á Richter- kvarða en flestir fórust í borgun- um Umarga og Khilari í um 450 kílómetra fjarlægð frá Bombay. Búist var við því að tala látinna ætti eftir að hækka verulega og var jafnvel talið að landskjálftinn hefði orði allt að 25.000 manns að fjörtjóni. Þetta er mesta mannfall af völdum jarðskjálfta í suðurhluta Asíu í rúm 50 ár. Stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir óviðunandi skjálftavarnir. Abkhazía fallin Hersveitir aðskilnaðarsinna náðu á fímmtudagsmorgun borg- inni Ochamchira á sitt vald og skömmu síðar hertóku þær borg- ina Gali. Stærstur hluti Abkhaz- íu-héraðs er því á valdi upp- reisnarmanna sem berjast fyrir aðskilnaði frá Georgíu. Ringul- reið var sögð ríkja S röðum stjórn- arhersins. Á þriðjudag sneri leið- togi Georgíu Edúard She- vardnadze til Tbilisi en hann hafði haldið til í ^ukhumi, höfuð- borg héraðsins, og heitið því að veija borgina til síðasta manns. Sigur aðskilnaðarsinna er i senn talinn mikið persónulegt og póli- tískt áfall fyrir Shevardnadze og er talið að ófarir stjórnarhersins geti reynst vatn á myllu helsta andstæðings hans, þjóðernis- sinnans Zvíads Gamsakhúrdía, fyrrum forseta Georgíu. Kirkjan miðlar málum Samk'ömulag náðist aðfararnótt föstudags um að aflétt yrði ums- átri hers og lögreglu við Hvíta lagt til að gildistaka skattsins frestist til 1. júlí á næsta ári en áður var ráð fyrir því gert að skatturinn tæki gildi um áramót og fyrirheit um það gefin í yfir- lýsingu ríkisstjórnarinnar til aðila vinnumarkaðarins í tengslum við gerð kjarasamninga í vor. Ásgeir Sigurvinsson hættir hjá Fram Ásgeir Sigurvinsson hefur hætt sem þjálfari knattspymufé- lagsins Fram en hann gerði samning til tveggja ára við félag- ið fyrir nýlokið keppnistímabil. Aðstoðarþjálfari hans lætur einn- ig af störfum. Þjálfararnir lögðu til róttækar breytingar á liðinu fyrir næsta keppnistímabil en þær fengu ekki hljómgrunn hjá stjóm Fram. Rekstri leikskóla ríkisspítalanna hætt Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að hætta rekstri leik- skóla á sjúkrahúsum til að spara og var starfsfólki af þeim sökum sagt upp störfum fyrir mánaða- mót. Þessar aðgerðir hafa vakið upp harða andstöðu starfsfólks á spítölum sem segja leikskólapláss hluta af ráðningarkjörum og því þýði þetta uppsögn á ráðningar- samningi þess. Gert er ráð fyrir að sveitarfélögin taki við rekstri leikskólanna. Fyrsta síldin á land Fyrsta síldin á þessari vertíð er komin á land á Höfn í Horna- firði. Sjávarútvegsráðuneytið hefur í haust fundað með fulltrú- um síldarútvegsmanna og síldar- kaupenda til að leita leiða til að fá síld í vinnslu en á síðustu ver- tíð tókst ekki að uppfylla alla sölusamninga sökum þess að svo mikið af sfldinni fór í bræðslu. Óvissa um sölusamninga á nýhaf- inni vertíð hefur sett málið í bið- stöðu. húsið svonefnda í Moskvu gegn því að varnarsveitir fulltrúaþings- ins, sem þar situr, afhentu vopn sín. Samkomulagið náðist vegna milligöngu Aleksíj H patríarka, yfirmanns rússnesku rétttrúnað- arkirkjunnar. Á föstudag lýstu þingmenn hins vegar yfir því að þeir gætu ekki samþykkt þessar málalyktir og fóru þeir fram á frekari viðræður við fulltrúa Bor- ís Jeltsíns Rússlandsforseta. Andstaða við stefnu Jeltsíns gagnvart þinginu þótti fara vax- andi í vikunni, einkum í Síberíu. Friðaráætlun hafnað Þing Bosriíu-múslima hafnáði á miðvikudag friðaráætlun sátta- semjara Evrópubandalágsíns og Sameinuðu þjóðanna. Krafðist þingheimur þess að öllum þeim svæðum sem fallið hefðu í hend- ur Serba og Króata yrði skilað. Fréttaskýrendur töldu þessa nið- urstöðu fela í sér að enn einn blóði drifinn vetur væri í vændum í Bosníu. John Smith og frú. Mikilvægur sigur Smiths Leiðtogi Verkamannaflokksins breska, John Smith vann mikil- vægan sigur á miðvikudag er samþykkt var á ársþingi að losa verulega um tengsl flokksins og verkalýðsfélaga. Félögin hafa fram til þessa ráðið mestu um skipan framboðslista og er talið að þetta hafi fælt marga kjósend- ur frá því að styðja flokkinn í kosningum. Gagnrýni magnast á hendur viðskiptaráðherra Clintons Brown neitar að hafa Sprengingar í London ÞRJÁR sprengjur sprungu við götuna Finchley Road í miðborg Lundúna aðfaranótt laugardagsins en sprengju- sérfræðingum lögreglunnar tókst að aftengja eina til viðbótar áður en hún sprakk, Tvær sprungu fyrir utan pizzastað en sú þriðja við neðanjarðarlestarstöð. Sex manns særðust í sprenginungum, enginn lífshættulega, sem talið er að Irski lýðveldisherinn beri ábyrgð á. þegið fé frá Víetnömum Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. STYRINN í kringum Ron Brown, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, vegna frétta um að hann hafi þegið fé til að vinna að því að afnema viðskiptahöft Bandaríkjamanna á hendur Víetnömum eykst stöðugt. Á föstudag greindu tveir fjölmiðlar frá því að bandaríska alríkislögregl- an, FBI, hefði í fórum sínum minnisblöð, sem víetnamskur kaupsýslu- maður sendi aðstoðarmanni forsætisráðherra Víetnams. eftir fundi sína með Brown. FBI hefur ekki viljað staðfesta að hafa komist yfir minnisblöðin, en samkvæmt frásögn sjónvarps- stöðvarinnar ABC og tímaritsins US News & World Report er viðræð- um Browns og kaupsýslumannsins, Nguyen Van Hao, þar lýst sem ,já- kvæðum" og gefið til kynna að Brown hafi tekið að sér að vinna Aukin harka í Moskvu EINN fulltrúa þingmannanna, sem hafast við í Hvíta húsinu í Moskvu, Júrí Voronín, sagði í gær að þeir krefðust þess að fá að koma fram í sjónvarpi í beinni útséndingu áður en þeir myndu hefja viðræður við Stjóm Boris Jeltsíns Rússlandsfor- seta á ný. Voronín, sem er aðstoðarmaður Rúslans Khasbúlatovs þingforseta, sagði stjómarliða hafa gefið ranga mynd af viðræðunum eftir fyrsta fundinn, sem haldinn var fyrir milli- göngu Alexíj II patríarka. Því vildu þingmenn fá að koma sínum sjónar- miðum á framfæri sjálfir áður en þeir settust að samningaborðinu á ný. Eru þessi ummæli talin benda til að aukin harka sé að færast í deilu þings og forseta. að því að afnema viðskiptabannið. Kom einnig fram að verið væri að rannsaka hvort greiðslur til Browns frá Hao eða víetnömskum embættismönnum hafi farið gegnum bankaútibú Banque Indosuez í Sin- gapore. Brown viðurkennir að hafa átt þijá fundi með Hao, þar af einn í febrúar eftir að hann tók við emb- ætti. Brown kveðst hins vegar ekk- ert hafa gert af sér og aftekur með öllu að hafa þegið 700 þúsund doll- ara gegn því að þrýsta á um að Bandaríkjastjórn afiétti viðskipta- banni á Víetnam eins og hann hefur verið sakaður um. Málið er þannig vaxið að Brown hitti kaupsýslumanninn Nguyen Van Hao í þrígang, fyrst í nóvember og síðast í febrúar. Hann neitar hins vegar að hafa átt nokkur viðskipti við manninn, sem býr í Flórída eða að hafa þegið af honum fé og kveðst hafa hafnað erindi hans kurteislega. Fyrrum viðskiptafélagi Haos, maður að nafni Binh T. Ly, heldur því fram að Brown hafí tekið við peningum frá stjórn Víetnarns gegn því að hjálpa tií við að ’ áflétta viðskipta- banninu. Hao hefur borið vitni fyrir kviðdómnum og Ly fyrir FBI. Ly hefur sagt að Brown hafi farið fram á sýnu meira en 700 þúsund dollara. Hann hafi viljað hlut af olíu- tekjum og ýmsum framkvæmdum í Víetnam. „Af hveiju hefur Brown logið að fjölmiðlum undanfarna mán- uði,“ spurði Ly á blaðamannafundi, sem hann hélt eftir að hafa rætt við áðumefndan þingmannahóp repú- blikana á fimmtudag. Tveir repúblikanar, fulltrúadeild- arþingmennirnir Dana Rohrabacher og Dan Burton, kröfðust þess í ræð- um á miðvikudag að skipaður yrði sérstakur saksóknari í málinu. Janet Reno dómsmálaráðherra kvaðst á fimmtudag ekki myndu verða við þeirri ósk þar sem svo gæti virst sem um hagsmunaárekstur væri að ræða ef hún skipaði þann, sem kannaði framferði samráðherra síns. Samkvæmt lögum var hægt að láta óháða nefnd skipa saksóknara til að kann meint brot stjómarliða, en repúblikanar sáu til þess að þau rynnu út þegar átti að endurnýja þau vegna óánægju með langa og kostn- aðarsama rannsókn Lawrence Walsh á íran-kontra-hneykslinu. Nú kveðst Reno ekki hafa tækið til að nota í máli, sem gæti verðskuld- að óháða rannsókn. Clinton kveðst hins vegar ekki í nokkrum vafa um heiðarleika ráðherrans. „Hann hefur sagt mér að hann hafi ekkert gert rangt," sagði Clinton að Brown við- stöddum á fimmtudag. „Hann hefur gert nánast allt rétt í starfi viðskipta- ráðherra. Ég tel hann hafi staðið sig mjög vel og hef enga ástæðu til að trúa honum ekki.“ Haft er fyrir satt að starfsmenn forsetans hafi viljað að Brown gerði hreint fyrir sínum dyrum á blaða- mannafundi, en ráðherrann hafi ekki viljað það samkvæmt ráði lögfræð- ings síns. Ríkir að sögn nokkur óánægja með þessa ákvörðun innan veggja Hvíta hússins. Vilja menn þar síst af öllu að repúblikanar einoki umræðuna um þetta mál með þeim afleiðingum að það vindi upp á sig og gerist jafn orkufrekt og deilan um herþjónustu samkynhneigðra, ferðaskrifstofu forsetaembættisins og bamfóstrumá! dómsmálaráð- herraefnis Clintons. Slíkt gæti dregið athygli almennings frá heilbrigðisá- ætlun Clintons og umræðunni um fríverslunarsáttmála Norður-Amer- íku (NAFTA). Rannsókn á umsátrinu um búgarðinn í Waco Sögðu ósatt um áhlaupið New York. The Daily Telegraph. LIÐSMENN sérsveita (ATF) hafa orðið uppvísir að því að gera tilraun til þess að leyna rannsóknaraðila því sem raunverulega átti sér stað í umsátrinu um búgarð sértrúarflokks Davids Koresh í Waco í Texas. Umsátrinu lyktaði með því að búgarðurinn brann og um áttatíu safnað- armeðlimir fórust. ATF hefur sætt harðri gagnrýni fyrir umsátrið um búgarðinn. Upplýsingar þessa efnis komu fram stuttu áður en Lloyd Bentsen, fjármálaráðherra Bandaríkjanna hugðist segja fcá rannsóknum sjálf- stæðra aðila á atburðunum í Waco. ATF heyrir undir fjármálaráðuneytið og það voru liðsmenn ATF sem stóðu að áhlaupinu á búgarðinn. Búist var við því að Bentsen myndi boða gagn- gera endurskoðun á starfsemi- ATF en forstjórinn, Stephen Higgins, lýsti því yfir fyrir skömmu að hann væri sestur í helgan stein, 54 ára. Áhiaupið á Waco var gert þann 28. febrúar á þessu ári en þá tók við umsátur sem stóð í 51 dag. Nú hefur verið upplýst að viku fyrir áhlaupið var gerð áætlun um það en þegar áhlaupið mistókst, var -henni breytt til að -hykna -yfir- -mis- tökin. Meðal annars var sagt að leið- toginn, David Koresh, hefði ekki farið út fyrir búgarðinn í tvö ár og því hefði verið nauðsynlegt að ráð- ast til inngöngu. Þessi fullyrðing var gegn betri vitund ATF sem átti myndbandsupptökur af Koresh á næturklúbbum og börum, nokkrum vikum fyrir áhlaupið. Þá hafa liðs- menn ATF fullyrt að þeir hafi ekki haft hugmynd um að Koresh hafi vitað af áhlaupinu fyrirfram. Hið rétta er að skömmu fyrir áhlaupið heyrði einn liðsmaður ATF Koresh segja að ATF og Þjóðvarðlið væru -á -leiðinni.-----------------1 L i 1 . 6 * ! I I f

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.