Morgunblaðið - 03.10.1993, Síða 6
6 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993
Ostameistarar á ostadögnm
VERÐLAUNAHAFAR talið frá vinstri: Hermann Jóhannsson, Haukur
Pálsson, Oddgeir Sig’urjónsson, Björgvin Guðmundsson, Jóhannes Hauks-
son, Óskar H. Gunnarsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar, Halldór
Blöndal, landbúnaðarráðherra, og Geir Jónsson, formaður dómnefndar.
Oddgeir Siguijónsson Ostameistari ’93
Möguleikar í mysuuiii
ODDGEIR Siguijónsson, mjólkurfræðmgur hjá Mjólkursamlagi KEA á
Akureyri, var útnefndur Ostanieistari Islands '93 við upphaf ostadaga
Osta-og smjörsölunnar í gær. Titilinn hlaut Oddgeir fyrir ijómamysu-
ost sem nýkominn er á markað, en þetta er í þriðja sinn sem Oddgeir
hlýtur titilinn Ostameistari Islands
77 afbrigði osta voru dæmd í ár
og í máli Oskars H. Gunnarssonar,
forstjóra Osta-og smjörsölunnar,
kom fram að dæmt var eftir svipuðu
kerfi og stuðst er við í stórum alþjóð-
legum keppnum. Ostakeppni hefur
verið haldin annaðhvert ár undanfar-
in 10 ár, en fyrsti Ostameistari Is-
lands var einmitt sigurvegarinn í ár,
Oddgeir Siguijónsson, sem hlaut tit-
ilinn þá. Er þetta í þriðja sinn sem
hann sigrar í keppninni.
Athygli vakti að báðir verðlauna-
ostar Oddgeirs eru úr mysu og í
samtali við Morgunblaðið sagðist
hann hafa sérstaklega gaman af að
nýta afurðir mysu. „Hún er góð og
holl og býður upp á marga mögu-
.leika, þó hingað til hafí ekki mikil
áhersla verið lögð á hana.“
Keppt var í þremur flokkum og í
1. flokki, þar sem keppt var um fasta
osta, varð 26% maribo-kúmenostur
hlutskarpastur, en ostameistari hans
er Haukur Pálsson hjá Mjólkursam-
lagi KS á Sauðárkróki. Haukur hlaut
einnig 3. verðlaun fyrir 26% gouda-
ost, en í öðru sæti varð Búri frá
Mjólkursamlagi KÞ á Húsavík. Osta-
meistari hans er Hermann Jóhannsson.
Landsþing Þroskahjálpar um helgina
LANDSÞING landssamtakanna Þroskahjálpar var sett á föstudagskvöld á
hótel Sögu. Meginþema þingsins er „Fjölskyldur ungra barna“. Þingið stend-
ur um helgina og iýkur á sunnudag.
Nýr dægurmálaþáttur hefur göngn sína í Sjónvarpinu
Samkeppni um áhorf-
endur en ekki efni
- segir Signrður G. Valgeirsson ritstjóri Dagsljóss
Beðið til morg’uns
UMHVERFI Dagsljóss, dægurmálaþáttar Sjónvarpsins, er full-
búið og verður vígt formlega annað kvöld þegar þátturinn hefur
göngu sína.
DAGSLJÓS, nýr dægurmála-
þáttur, hefur göngu sína kl.
19.15 annað kvöld í Sjónvarpinu
og mun hann verða sendur út
fjögur kvöld vikunnar frá
mánudegi til fimmtudags. Út-
sending stendur þar til kvöld-
fréttir hefjast kl. 20 og verður
fjallað um stjórnmál, menningu,
ýmsa afþreyingu og önnur dæg-
urmál. Ritsljóri Dagsljóss er
Sigurður G. Valgeirsson og seg-
ir hann að þátturinn sé í sam-
keppni við Stöð 2 um áhorfend-
ur á áttunda tímanum. Ingvi
Hrafn Jónsson, fréttasljóri
Stöðvar 2, kveðst fagna sam-
keppninni en er ósáttur við
hvernig fjármunanna sem fara
í þáttinn er aflað.
Klukkan 19.30 sendir frétta-
deild fréttaskot inn í Dagsljós, auk
þess sem annað inngrip í dag-
skrána verður áður en þátturinn
hefst kl. 18.55. Fréttatími Stöðvar
2 er sendur út á sama tíma og
seinni fréttaskot Sjónvarpsins og
hefur Stöð 2 í nokkur ár sent út
blandaða dagskrá af svipuðum
toga og Dagsljós leggur áherslu á
fyrir fréttir í 19:19. Sigurður G.
Valgeirsson segir því ekki að leyna
að tímasetningin taki mið af 19:19
og fréttayfirlitið sem hefjist klukk-
an hálfátta sé miðað við að fólk
þurfi ekki að skipta yfir á Stöð 2
til að hlusta á fréttir raktar þar.
„Við verðum náttúrlega að hugsa
um hvað samkeppnisaðilinn er að
gera og svara því hæfilega, en við
erum ekki að gera þátt sem tekur
mið af 19:19 á nokkurn hátt. Við
erum að keppa um áhorfendur en
ekki að bjóða upp á sama efni
eins og Stöð 2 gerir, heldur auka
á fjölbreytnina. Þetta er ekkert
persónulegt. Mér finnst Stöð 2
vera að gera ágætis hluti og við
erum að gera verulega góða hluti,
að ég held. Við munum t.ð. tefla
hraustlegri menningarumfjöllun,
s.s. listaumfjöllun- og dómum,
gegn fréttum og kanna hvort hún
geti skákað fréttaefninu sem
menn vilja meina að sé vinsælasta
efnið, auk ýmislegs efnis í léttum
dúr. Aukin samkeppni á einungis
að auka gæðin hjá báðum aðilum.“
Aðspurður um kostnað við gerð
Dagsljóss segir Sigurður að þar
sem þátturinn leysi ýmsa aðra
dagskrárliði af hólmi, s.s. Litróf
og Skuggsjá, sé ekki verið að veita
nýtt fjármagn til Dagsljóss heldur
sé um áherslufærslu að ræða varð-
andi fjármagn.
Heiðarleg samkeppni af hinu
góða
Ingvi Hrafn Jónsson, frétta-
stjóri Stöðvar 2, segir að vegna
tímasetningar Dagsljóss og frétta-
innskots liggi í augum uppi að um
samkeppni sé að ræða við 19:19.
Hann kveðst líta á hana sem af
hinu góða, enda fagni hann fijálsri
samkeppni og auknu framboði
fyrir neytendur meðan það leiði
til fjölbreyttara efnis. „Ég býst
við að þarna sé metnaðarfullt ungt
fólk að störfum og greinilegt að
stórar fjárhæðir eru settar í þátt-
inn. Ef það er rétt sem við heyrum
er um tugmilljónir að ræða, sem
ég hef engar áhyggjur af, en minni
hins vegar fólk á að það fé er
innheimt af landsmönnum með
fulltingi sýslumanns. Ég er líka
ósáttur við skefjalaus undirboð
markaðsdeildar Sjónvarpsins, en
við höfum heimildir fyrfr allt að
50% undirboðum af þeirra hálfu
við auglýsingasölu og mennta-
málaráðherra fær ekki réttar upp-
lýsingar um þau vinnubrögð sem
þar eru viðhöfð. Það er ár síðan
við lögðum fyrir hann sannanir
um undirboð, en það er svo með
ríkisútvarpið — sem er að hluta
til óskabarn þjóðarinnar — að það
virðist geta gert hvað sem það
vill, óháð ríkisstjórn.“
Ingvi Hrafn segir að staðinn
verði vörður um 19:19 með eflingu
dagskrár og nýju fréttaumhverfi,
auk þess sem Stöð 2 hafi ýmis
mótspil upp í erminni sem fólk
hafi ekki séð enn. „Ef kannanir
sýna að við eigum að færa 19:19
framar í dagskránni, getum við
gert það með dagsfyrirvara," seg-
ir Ingvi Hrafn.
Morgunblaðið/Þorkell
Endurmenntun 25 þúsund manns
ENDURMENNTUNARSTOFNUN Háskóla íslands á tíu ára starfsafmæli
um þessar mundir. Alls hafa um 25 þúsund manns sótt námskeið hjá endur-
menntunamefnd Háskólans, sem frá og með árinu 1991 varð Endurmenntun-
arstofnun HÍ. Frá upphaff hafa verið haldin á annað þúsund námskeið og
námstefnur og nú á haustmisseri býður stofnunin sérfræðingum og áhuga-
fólki upp á tæplega 100 námskeið. Á myndinni eru Valdimar K. Jónsson
prófessor, stjómarformaður Eridurmenntunarstofnunar, Margrét S. Bjöms-
dóttir, sem verið hefur endurmenntunarstjóri frá upphafí en hefur nú fengið
tímabundið leyfí frá störfum, og Guðrún B. Yngvadóttir, skrifstofustjóri stofn-
unarinnar, en hún gegnir starfí endurmenntunarstjóra í fjarveru Margrétar.
Mari með tískusýningu
Vinnuslys
í álverinu
STARFSMAÐUR í álverinu í
Straumsvík hlaut þriðja stigs
bruna á höndum og fótum við
vinnu sína í kerskála verksmiðj-
unnar á fimmtudag. Talið er að
skammhlaup hafi orðið í keri með
þeim afleiðingum að maðurinn
fékk raflost.
Að sögn lögreglunnar í Hafnar-
firði var maðurinn, sem er á fertugs-
aldri, að færa til skaut milli kera.
Skammhlaup varð í 750 volta spennu
í keri og brunnu vettlingar og buxur
mannsins. Hann hlaut þriðja stigs
bruna. Læknir kom með sjúkrabíl
að slysstað og var maðurinn síðan
fluttur á slysadeild. Vinnueftirlitið
kom á staðinn og rannsakar málið.
--------*—♦—*-
Strokufang-
innófundmn
ARNAR Már Víglundsson, stroku-
fanginn sem lögreglan í Reykjavík
Iýsti eftir á föstudagskvöld, var
enn ófundinn um miðjan dag í gær.
Arnar Már strauk úr Hegningar-
húsinu á Skólavörðustíg ásamt
tveimur öðrum föngum að kvöldi
fímmtudags. Tveir þeirra voru hand-
teknir aðfaranótt föstudags í íbúð á
Kaplaskjólsvegi en Arnar Már geng-
HHRHHHhIIbHHHIMIwÉh
VERSLUNIN Mari, Hverfisgötu
52 í Reykjavík, hefur nú verið
starfrækt í eitt ár sem sérverslun
með kvenfatnað frá þekktu ítölsku
tískuhúsi MaxMara.
í upphafi voru tvær fatalínur á
boðstólum, MaxMara og Sportmax,
og í vor bættist við fatalínan Week-
end. Fljótlega kom í Ijós þörf fyrir
kvenfatnað í stærri stærðum en
MaxMara framleiðir. Því byijaði
verslunin nýlega að flytja inn fatnað
frá ítalska tískuhúsinu Marina Rin-
aldi sem er systurfyrirtæki MaxMara.
Verslunin Mari er nú nýbúin að
fá stóra fatasendingu frá þessum
tískuhúsum og til að kynna fatnaðinn
sem í boði er verður haldin tískusýn-
ing á Hótel Borg í dag, 3. október,
ki. i5. Ulmtt
Morgnnblaðið ritskoðað í Saudi-Arabíu
Dánartilkynningar
og bíóauglýsingar
klipptar úr blaðinu
GNÚPUR Halldórsson, starfsmaður flugfélagsins Atlanta í Saudi-
Arabíu, hefur fengið Morgunblaðið sent til sín í áskrift í nokkrar
vikur en fær það þó ekki í hendur fyrr en lögregluyfirvöld hafa
ritskoðað blaðið og klippt úr því dánartilkynningar og smáauglýs-
ingar þar sem birtar eru myndir af krossi og einnig bíóauglýsing-
ar ef á þeim má sjá myndir af nöktum eða hálfnöktum konum
„Það er allt efni blaðsins rit-
skoðað og búið að rífa úr síðum
blaðsins jarðarfaratilkynningar
vegna þess að það er kross í þeim
en krossar eru bannaðir í landinu
af trúarástæðum og einnig eru
rifnar úr blaðinu bíóauglýsingar
með myndum af nöktum konum.
Það má ekki einu sinni sjást í
bera fótleggi,“ sagði Gnúpur í
samtali við Morgunblaðið.
Allir óttast trúarlögregluna
Gnúpur hefur starfað með hópi
íslendinga vegna pílagrímaflugs í
Saudi-Arabíu frá því í apríl og
segist fá blaðið reglulega í hendur
en það sé þá yfírleitt orðið tveggja
vikna gamalt og hafi alltaf verið
ritskoðað með þessum hætti.
Einnig segist hann hafa komist
að því að rifín hafí verið ein blað-
síða úr enskri bók sem hann pant-
aði sér þar sem fjallað var um
sögu Saudi-Arabíu.
„Þarna er að verki trúarlög-
regla landsins sem í eru valda-
mestu mennirnir í þjóðfélaginu og
allir óttast hana. Þeir ganga um
götur, mjög sérkennilega klæddir
og með sítt skegg og taka fólk
sem verður á vegi þeirra ef það
er ósiðlega klætt og fylgjast með
að öllum veitingastöðum sé lokað
á bænatímum, sem eru tvisvar á
dag,“ sagði hann.
íslensku starfsmennimir hafa
ekki orðið fyrir teljandi óþægind-
um vegna afskipta lögreglunnar
eða strangtrúaðra að sögn Gnúps
en hann sagði að íslensku konurn-
ar gættu þess þó að klæðast svört-
um skikkjum og vera með slæður
á höfðinu þegar þær færu út því
ef sæist í hárið væri sett út á það.