Morgunblaðið - 03.10.1993, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 03.10.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993 7 SUS mót- mælir tillög- um um húsa- leigubætur SAMBAND ungra sjálfstæðis- manna mótmælir ófullkomn- um tillögum félagsmálaráð- herra um upptöku húsaleigu- bóta, segir í ályktun frá SUS. Ennfremur segir: „Hið opinbera hefur á liðnum árum tekið hús- næðiskerfið til gagngerrar endur- skoðunar með það í huga að auð- velda almenningi húsnæðiskaup. Það markmið hefur náð fram að ganga. Láglaunahópar og ungt fólk sem húsaleigubæturnar eiga að ná til eiga nú greiðan aðgang að félagslegu húsnæði og hefur félagslega kerfið sogað til sín sí- fellt stærri hlut af fjármagni til húsnæðisbyggingar. Það keyrir því um þverbak þegar félagsmála- ráðherra ætlar þessum málaflokki enn meira fjármagn. Með því er engum greiði gerður og einungis aukið á hallarekstur ríkissjóðs með tilheyrandi hremmingum. SUS telur ekki að aðstæður á leigumarkaðnum séu nú með þeim hætti að nauðsynlegt sé að grípa til sérstakra aðgerða. Húsaleigu- bætur koma heldur ekki til með að skila tilætluðum árangri, því að viðbúið er að leiga muni hækka til jafns við bæturnar.“ Styrkir veittir til íþrótta- félaga STJÓRN Afreks- og styrktarsjóðs Reykjavíkur sem skipuð er fulltrúum frá Iþrótta- og tómstund- aráði og íþróttabandalagi Reykjavíkur hefur ákveð- ið eftirfarandi úthlutun úr sjóðnum, samtals 2,1 millj- ón: Taflfélagið Hellir. Veitt vegna byijendastarfs og vegna stofnunar nýs félags, 200.000 kr. Sundfélagið Æg- ir. Veitt vegan árangurs fé- lagsins 1992 og 1993, 300.000 kr. íþróttafélag kvenna. Veitt vegna starfs á vegum félagsins, 200.000 kr. Knattspyrnufélagið Valur, handknattleiksdeild. Veitt vegna árangur handknatt- leiksmanna í meistaraflokki og yngri flokkum, 300.000 kr. Knattspyrnufélagið Víkingur, borðtennisdeild. Veitt vegna árangurs borðtennismanna fé- lagsins, 300.000 kr. Knatt- spyrnufélag Reykjavíkur, handknattleiksdeild. Veitt vegna árangurs og starfs á vegum deildarinnar, 200.000 kr. ísknattleiksfélagið Björn- inn. Veitt vegna barna- og unglingastarfs, 200.000 kr. íþróttafélagið Ösp. Veitt vegna öflugs félags- og íþróttastarfs fyrir þroskaheft og fjöfötluð börn, 200.000 kr. Glímufélagið Ármann. Veitt vegna uppbygingastarfs á vegum deildarinnar og vegna árangurs 1993, 200.000 kr. í stjórn sjóðsins eru Hilmar Guðlaugsson og Ragnheiður Davíðsdóttir f.h. íþrótta- og tómstundaráðs og Ari Guð- mundsson f.h. Iþróttabanda- lags; Reykjavíkur. . ,ij; .. í \ jgl$ MH ;$ • Ío tL Handsal KOLBEINN Pálsson formaður Körfuknattleikssambands Islands (t.v.) og Steve Louis frá TKO Entertainment handsala samkomulagið um að standa sameiginlega að heimsókn Harlem Globetrotters. Körfuknattleikssamband íslands Tekur þátt í heimsókn Harlem Globetrotters KORFUKNATTLEIKSSAMBAND Islands og breska fyrirtækið TKO Entertainment hafa gert með sér samkomulag um að standa saman að heimsókn hins heimsfræga bandaríska körfuboltaliðs Harlem Globe- trotters. Auk þess er VISA ísland Island verður fyrsta landið sem Globetrotters-liðið heimsækir í þess- ari Evrópuferð, en meira en helming- ur liðsmanna eru nýir upprennandi körfuboltamenn. Hér keppir Globetrotters við bandaríska körfuboltaliðið Washing- ton Generals. Fyrsti leikurinn verður í Kapla- stuðningsaðili. krika í Hafnarfirði 12. október nk. og daginn eftir leika þeir á Akur- eyri. Síðasti leikurinn fer fram í Laugardalshöll 14. október. Fyrir skömmu urðu eigendaskipti á Harlem Globetrotters en nýi eig- andinn er Mannie Jackson, sem í eitt sinn keppti með iiðinu. Hann er núna aðstoðarforstjóri bandaríska stórfyrirtækisins Honeywell. trvgging fyrir ungt fólk á leið út i lifið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.