Morgunblaðið - 03.10.1993, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993
13
Ríkið kaupir Bæjarbjarg á 800 þúsund krónur
Bæjarbjarg skiptir um eigendur
FRÁ undirritun samnings um kaup ríkisins á Bæjarbjargi, bróður-
hluta Látrabjargs; fv. Ossur Skarphéðinsson, umhverfismálaráð-
herra, Þórhallur Arason, fh. fjármálaráðuneytisins og seljandinn,
Albert Gíslason, bóndi í Saurbæ á Rauðasandi.
Stefnt að friðlandi
á næstu árum
UMHVERFISMÁLARÁÐHERRA og Þórhallur Arason f.h. fjár-
málaráðuneytis undirrituðu í gær samning um kaup á Bæjar-
bjargi, hæsta hluta Látrabjargs, og er söluverðið 800 þús. kr.
Seljandi er Albert Gíslason, bóndi á Saurbæ. í Látrabjargi er ein
stærsta sjófuglabyggð í Evrópu en Bæjarbjarg er u.þ.b. helmingur
þess og segir Arnþór Garðarson, formaður Náttúruverndarráðs,
að stefnt sé á að það verði að friðlandi ásamt nærliggjandi svæð-
um á næstu árum. Svæðið er á náttúruminjaskrá og notaði ríkið
forkaupsrétt sinn þegar bjargið var boðið til sölu.
30 viðbótarsæti
til Kanarí
um jólin
Jólaferðin seldist upp í síðustu viku
Við höfum nú samið um að fá stærri flugvél með Air Europa, því jólaferðin okkar
seldist upp í síðustu viku. Við þökkum frábærar undirtektir við Kanaríferðum
Heimsferða og hlökkum til að veita frábæra þjónustu á Kanarí í vetur.
Bókaðu strax og tryggðu þér sæti meðan enn er laust.
18.|desVi jólaferð
30 viðbótarsæti.
Verð kr. 59.800,-
pr. mann m.v. hjón með 2 börn, 2—14 ára. Las Isas.
Verð kr. 75.200,-
pr. mann m.v. 2 í íbúð, Las Isas.
6. janúar - 3 vfkur
Verð kr. 42.300,-
pr. mann m.v. hjón með 2 börn, 2-14 ára, Turbo Club.
Brottfarir:
18. desember
6. janúar
27. janúar
17. febrúar
10. mars
24. mars
Flugvallarskattar og forfallagjald
fullorðinna kr. 3.630,- barna kr. 2.375.
air europa
B IURAU1A
Verð kr. 59.700,-
pr. mann m v. 2 í fbúð, Turbo Club.
HEIMSFERDIR hf.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600
Arnþór segir að rætt verði á
næstunni við eigendur aðliggjandi
jarða á Látrum, í Breiðuvík og
Keflavík, og reynt verði að fá sam-
þykki þeirra fyrir friðlendi til að
tryggja framtíð Látrabjargs.
Bæjarbjarg var í öndverðu í eigu
Saurbæjarkirkju á Rauðasandi, en
kirkjan var í eigu bændanna í
kring og eignaðist Albert Gíslason
og fjölskylda hans bjargið þegar
þau gerðust ábúendur á jörðinni
1986. Albert segir að hann hafi í
fyrstu ætlað að selja svæðið undir
beitarland en ríkið gengið inn í
söluna með forkaupsrétti sínum,
og láti hann eignina gegn því lo-
forði kaupanda að ekki verði geng-
ið á hlut sauðfjárbænda á svæðinu.
Bjargið liggur undir
skemmdum
Albert segir ágang ferðamanna
vera farinn að setja mark sitt á
Látrabjarg og umhverfi þess, og
einkum sé umferð jeppa að aukast
mikið. „Svæðið liggur nánast und-
ir skemmdum. Gróðurinn uppi á
■ MÁNUDAGINN 4. október
1993 mun Michael Culbert frá
þekktri, sjúkrastofnun í Kalifor-
níu og Mexíkó halda fyrirlestur í
Háskólabíói, A-sal, kl. 19.00.
Enginn aðgangseyrir. Allir vel-
komnir.
■ HRAFN Óli Sigurðsson,
hjúkrunarfræðingur MS, sem
starfar í New York og stundar
doktorsnám við Adelphi Univers-
ity, New York, flytur fyrirlestur-
inn: Sérhæfing í hjúkrun: Viðbót-
arnám í skurðhjúkrun mánudag-
inn 4. október, kl. 12.15-13.00 í
stofu 6 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríks-
götu 34. Fyrirlesturinn er öllum
opin.
■ REYKJAVÍKURANGI
Kvennalistans heldur opinn fund
undir yfirskriftinni Heilsdags-
skóli — veruleiki eða blekking?
Mánudaginn 4. október kl. 20 á
Kornhlöðuloftinu. Framsögu á
fundinum hafa Árni Sigfússon,
borgarfulltrúi, Auður Stefándótt-
ir, kennari í Ártúnsskóla, og
Sigrún Helgadóttir, formaður
foreldrafélags Selásskóla. Að
loknum framsöguerindum stýrir
Guðrún Ögmundsdóttir, borgar-
fulltrúi Kvennalistans, almennum
umræðum. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
bjarginu er afar viðkvæmur og
sérstaklega þarf að gæta mos-
ans,“ segir Albert. „Við bændurn-
ir í kring höfum engin tök á að
vernda svæðið vegna þess kostn-
aðar sem því fylgir og þegar um-
ferðin er orðin jafn mikil og raun
ber vitni fer allt úr böndunum.
Ég er því sáttur við kaupendurna
vegna þess að þeir munu hugsa
vel um bjargið, fuglalífíð og nátt-
úruna og vera í sátt við bændur.“
SIEMENS
Siemens frystikistur á
betra veröi en nokkru
sinni fyrr!
GT27B02 (2501 nettó)
= 42.900 kr. stgr.
GT34B02 (3181 nettó)
= 47.900 kr. stgr.
GT41B02 (4001 nettó)
= 51.900 kr. stgr.
Munið umboösmenn
okkar víða um landið.
SMÍTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 628300
J L húsið, Hringbraut 121, simi: 91
borgara, ófrískar konur
Leikfimi: Fyrir byrjendur
og íþróttafólk, eldri
og konur meo barn á brjósti
Topp-tímar fyrir þá
sem vilja grennast
Þolfimi. Funk.
Brennslutimar. vaxtamotun.
Kvennatimar. Pallatímar
Þrekhringur. Kraftganga.
Hlaupahópur. Skíöahópur.
Kynningarverö:
3.000 krv
fyrsta mánuðinn.
- V. /- ^ ^
í J.L. húsinu