Morgunblaðið - 03.10.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993
21
Mun Japan hafa skotið öðrum stór-
veldum á þessu sviði, svo sem
Bandaríkjunum, ref fyrir rass, þeg-
ar á fyrstu árum tuttugustu og
fyrstu aldarinnar, eða á eftir að
skapast meira jafnvægi á milli iðn-
aðarstórvelda en í dag virðist vera?
„Það er ávallt erfitt að segja til
um hvað framtíðin muni b.era í
skauti sér. En auðvitað verðum við
að huga að því með hvaða hætti
samspili þjóðanna á þessu sviði
verður háttað á næstu árum og
þegar kemur fram á næstu öld. Til
að byija með leiddu Evrópuþjóðir
efnahagslífið á alþjóðamælikvarða,
með Þýskaland og Frakkland í far-
arbroddi. Síðan náðu Bandaríkin
forystuhlutverkinu og nú má segja
að Japan, ásamt Þýskalandi að
vissu marki, sé leiðandi í heimsefna-
hagsmálunum. En Þýskaland á
augljóslega við geysileg innri
vandamál að stríða í kjölfar samein-
ingar Austur- og Vestur-Þýska-
lands - vandamál sem enginn getur
sagt fýrir um á þessari stundu
hvernig verða leyst.
Vegna þess sem ég sagði áðan,
um að japönsk fyrirtæki í hundruða-
tali hafa nú um nokkurt skeið fært
út kvíamar í öðrum Asíulöndum,
sérstaklega Kína en einnig Suður-
Kóreu, Norður-Kóreu og Taiwan
og nýta þarlent vinnuafl fyrir fram-
leiðslu sína, þá verður það
ekki Japan eitt sem nýtur
ávaxtanna af auknum
hagvexti og batnandi
efnahag í framtíðinni,
heldur heimsálfan sem
slík. Þannig get ég vel
ímyndað mér að í stað
7% til 8% árlegs hagvaxt-
ar í Japan geti hann orð-
ið í kringum 3% í náinni
framtíð.
Það viðhorf hér í Japan
að japanska þjóðin geti
ekki ein setið að asískum
hagvexti verður stöðugt
útbreiddara. Við gerum
okkur grein fyrir þeim
skyldum sem hvíla á okk-
ur í samfélagi þjóðanna
og að Japan verður í
framtíðinni að leggja
meira af mörkum til hins
alþjóðlega samfélags en hingað til.
Jafnframt á ég von á því að þátt-
taka Japans í alþjóðlegum friðar-
og samstarfssamtökum, þróunar-
verkefnum, umhverfisverndarsam-
tökum og fleiru muni geta orðið
meiri á næstu árum og áratugum
en hingað til og að japönsk stjórn-
völd muni beita sér fyrir því að
hafa aukin áhrif á ákvarðanatöku
í þeim efnum.
Þetta er sú framtíðarsýn sem ég
sé fyrir mér og nú þegar stjórnar-
tíð LDP (Liberal Democratic Party)
er lokið og ríkisstjórn Hosokawas
hefur tekið við stjórnartaumunum
á ég von á að áherslur í þessa átt
verði þær sem einkenna munu þátt-
töku Japans á alþjóðavettvangi.
Spilling japanskra stjórnmálamanna
- Þessi orð yðar um lok stjórnar-
tíðar LDP, kalla fram þá spurningu
mína hvort þér teljið að umræðan
hér innanlands og á alþjóðlegum
vettvangi um japönsk stjórnmál,
þar sem mikil áhersla hefur verið
lögð á þátt spillingar, mútuþægni
stjórnmálamanna, óeðlilegan fjár-
stuðning fyrirtækja við einstaklinga
og stjórnmálaflokka, einkum þó
LDP, leiði til þess að róttækar
breytingar eigi sér stað í stjórn-
kerfí Japans? Mun þessi umræða
leiða til þess að veruleg hreinsun
eigi sér stað í stjórnkerfi landsins
og hver er skýring yðar á því að
stjórnkerfið hafði rotnað með þess-
um hætti innan frá?
- Eftir síðari heimsstyijöldina
þurfti Japan á öllum sínum krafti
að halda til þess að ná efnahagsleg-
um bata eftir hrunið sem varð hér
í stríðinu, eins og ég vék fyrr að.
Til þess að svo mætti verða, var
öll áhersla lögð á slíkan bata þegar
LDP tók við stjórn landsins. Síðan
það var hafa lífskjör japönsku þjóð-
arinnar batnað stórkostlega og
segja má að þjóðin lifi nú í vellyst-
ingum.
Stjórnmálaumræðan allan stjórn-
artíma LDP eða í 38 ár var því á
margan hátt einhæf, þar sem tveir
stórir flokkar tókust á um hvers
konar þjóðfélagskerfi ætti að vera
hér í Japan: SDP (Social Democrat-
ic Party) barðist jafnan fyrir því
að sósíalísku þjóðfélagskerfí yrði
komið hér á, en LDP vildi hið
fijálsa, lýðræðislega þjóðfélagskerfi
þar sem áhersla væri lögð á frelsi
einstaklingsins og ágæti einka-
framtaksins. Á vissan hátt endur-
speglaði stjórnmálaumræðan hér
innanlands því heimsumræðuna og
átökin á milli Sovétríkjanna sem
voru og heimskommúnisma þeirra
og Bandaríkjanna með sitt frjálsa
þjóðfélag og kapítalíska hagkerfi.
Við hrun Berlínarmúrsins og fall
heimskommúnismans var svo sem
lítið eftir til þess að takast á um í
þessum efnum, því heimskommún-
isminn reyndist einfaldlega ófram-
kvæmanlegt kerfi, sem dæmdi sjálft
sig úr leik. Þannig varð boðskapur
sósíalista hér í Japan úreltur á einni
nóttu, ef svo má að orði komast,
eins og annars staðar í heiminum
og við það myndaðist ákveðið tóma-
rúm í stjómmálaumræðu hér í Jap-
an.
Nú er staðan sú að allir flokkar
hér í Japan eru þeirrar skoðunar
að fijálst, óheft þjóðfélag sé hið
rétta form, og stefna beri að því
að fullkomna það form eins og unnt
sem mútuþægni og óeðlilegur fjár-
stuðningur við einstaklinga, fyrir-
tæki og skriffinna léku allt of stórt
hlutverk. Umburðarlyndi og lang-
lundargeð japönsku þjóðarinnar er
mikið. En japanska þjóðin er einnig
mjög skynsöm og þegar hún gerði
sér grein fyrir því hvernig var kom-
ið fyrir stjómkerfi hennar greip hún
sjálf í taumana og sagði: „Hingað
og ekki lengra!"
Segja má að umburðarlyndi og
þolgæði séu þjóðareinkenni Japana,
en því em sem betur fer takmörk
sett og það er vegna þess að um-
burðarlyndi þjóðarinnar gagnvart
stjórnmálamönnunum þraut, sem
mikil pólitísk endurreisn fer nú fram
í japönskum stjórnmálum. Það að
þjóðin hafði svo lengi .umburðar-
lyndi með LDP, þrátt fyrir þá spill-
ingu sem þar viðgekkst, var líkast
til vegna sannfæringar þjóðarinnar
um að hér ætti að vera fijálst lýð-
ræði, en ekki heft skipulag sósíal-
ismans. Það að nýir stjórnmála-
flokkar vora stofnaðir í kjölfar upp-
ljóstrana um spillinguna innan LDP
var náttúrlega svar stjórnmála-
manna, sem ekki áttu lengur sam-
leið með LDP, við ákalli þjóðarinnar
um að hún fengi nýja valkosti til
þess að velja um í kosningum, án
þess að hún ætti það á hættu að
vera að kjósa yfir sig sósíalískt þjóð-
BUÐIN
UM giörvalit
Japan eru
trúarleo hof
sem úetta
og flest eru
liau helDuð
Búdda.
er. Allir era samamála því að djúp
virðing fyrir frelsi sé grundvallarat-
riði í slíkri stefnu. Þetta er auðvitað
höfuðskýring þess að SDP, sem
jafnan var stærsti stjórnarand-
stöðuflokkur LDP, skuli hafa getað
tekið þátt í samsteypustjórn Ho-
sokawas."
Spillir löng stjórnarseta?
- Teljið þér að það sé einum
stjórnmálaflokki hollt að halda um
stjórnartauma lands síns samfleytt
í 38 ár eins og LDP gerði, eða var
svo löng stjórnarseta LDP aðalskýr-
ing þess að japönsk stjórnmál spillt-
ust með svo afgerandi hætti? Og
hvað segið þér um umræðuna hér
í Japan í dag, í þá vera að pólitísk
endurreisn sé lífsnauðsynleg jap-
önskum stjórnmálum? Hvað segið
þér um þá staðhæfingu að spilling-
in sem einkennt hafi stjómmálin
síðustu ár og misseri hafi gengið
svo fram af almenningi þessa lands
að umburðarlyndi þjóðarinnar
gagnvart stjórnmálamönnum sé
uppurið og ekkert nema róttækar
breytingar á stjórnarháttum, með-
för fjármuna og öflun þeirra geti
endurvakið traust þjóðarinnar á
stjómmálamönnum sínum?
„Þegar stjórnmál staðna og völd
era ávallt á sömu hendi, þá er vissu-
lega meiri hætta en ella á því að
kerfið rotni innan frá. Því er ekki
að leyna að þetta gerðist hér í Jap-
an. Það er vissulega hörmulegt, en
þrátt fyrir þessa staðreynd, stað-
hæfi ég að enginn annar flokkur
gat haldið um stjórnartaumana á
þessum áram en LDP, því eini raun-
veralegi valkosturinn var SDP og
japanska þjóðjn hafnaði því þjóðfé-
lagskerfí sem hann vildi koma hér
á - blessunarlega.
Við svona langa stjórnarsetu
LDP þróaðist mjög náið samband
milli hinna þriggja ráðandi þátta
japansks þjóðfélags: ríkisstjórnar-
innar, fyrirtækjanna og skrifræðis-
ins, og afleiðing þessa langvarandi
nána sambands varð spillt kerfi, þar
skipulag.
Hin pólitíska endurreisn sem
Hosokawa forsætisráðherra mun
leiða verður vonandi til þess að
honum takist að endurreisa trú
fólksins á japönskum stjórnmála-
mönnum. Ugglaust tekur það nokk-
urn tíma - hugsanlega langan tíma.
Ég er á hinn bóginn ekki í nokkrum
vafa um að við erum á réttri braut.“
Tveggja flokka kerfi á ný
- En eygið þér einhveija von um
að stöðugleiki geti náðst í stjóm-
málalífi Japans á næstunni, þar sem
við völd er samsteypustjóm átta
flokka? Er ekki ólíklegt að svo marg-
ir aðilar geti komið sér saman um
raunhæfar breytingar, stefnumörk-
un til framtíðar og pólitíska endur-
reisn sem þjóðin öðlist trú á? Er
ekki líklegast að allar ákvarðanir
verði hálflitlausar málamiðlanir, sem
muni ekki skila sér til þjóðarinnar á
þann veg að hún trúi því að róttæk-
ar breytingar japansks stjómkerfis
séu að verða að veraleika?
„Það segir sig sjálft, að það er
ekki auðvelt verk að halda saman
átta flokka samsteypustjórn, á þann
veg að hún virðist sem heildstætt
og samhent stjórnarafl. Á vissan
hátt er ég þeirrar skoðunar að hér
sé um-tímabundið stjórnmálaástand
að ræða og japanska þjóðin muni
í grófum dráttum kjósa þegar fram
líða stundir að hverfa aftur til sög-
unnar, það er, að hér verði í megin-
dráttum tveggja flokka kerfi, þótt
einhverjir smáflokkar verði ugg-
laust áfram við lýði.
En ég geri mér ákveðnar vonir
um að ríkisstjórn Hosokawas sitji
að minnsta kosti í tvö ár og komi
á þeim tíma vel á veg þeirri póli-
tísku og efnahagslegu endurreisn
sem að er stefnt, jafnframt því sem
skýr stefnumörkun verður að liggja
fyrir innan tveggja ára á hvaða
hátt Japan ætlar að axla ábyrgð
sína í alþjóðlegu samhengi og leggja
sitt af mörkum til annarra og meira
þurfandi þjóða.“
Kvenúlpur
með og án hettu
verð frákr. 6.698 - 9.998
ar
H BUÐIN, miðbæ Garðabæjar, sími 656550.
Frá Lögmönnum Höfðabakka
Brynjólfur Kjartansson, hæstaréttarlögmaður,
sem rekið hefur eigin lögmannsstofu að Garða-
stræti 6, Reykjavík, hefur frá og með 1. októbér
1993 gerst meðeigandi að Lögmönnum Höfða-
bakka s.f. Mun hann samkvæmt því reka lög-
fræðistofu þessa í félagi við Vilhjálm Árnason,
hrl., Ólaf Áxelsson, hrl., Eirík Tómasson, hrl.
og Hrein Loftsson, hdl.
Reykjavík, 30. september 1993.
Lögmenn Höfðabakka
Vilhjálmur Árnason, hrl.
Brynjólfur Kjartansson, hrl.
Olafur Axelsson, hrl.
Eiríkur Tómasson, hrl.
Hreinn Loftsson, hdl.
LÆKKUN!
25%
LÆKKUN Á STOFNGJALDI
FYRIR BOÐTÆKI
Nýttu þér kosti Boðkerfisins sem er sniðið
að þörfum nútímafólks á öllum aldri.
Nánari upplýsingar um þjónustuna er að
finna á bls. 18 í símaskránni, í síma 997000
(grænu upplýsinganúmeri Pósts og síma)
og á póst - og símstöðvum um land allt.
BOÐKERFI
PÓSTS OG SÍMA
PÓSTUR OG SÍMI