Morgunblaðið - 03.10.1993, Síða 27

Morgunblaðið - 03.10.1993, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993 27 KAUPMANNAHAFNARBRÉF Skiptið ykkur ekki af því sem ykkur kemur ekki við í vikunni héldu ungmennasamtök bændasamtakanna mótmælafund í Ribe á Jótlandi til að mótmæla afskiptum stéttarfélagssambands faglærðra verka- manna af bónda nokkrum á Jótlandi. Bóndinn hefur ráðið verkamann, sem vinnur meira og fyrir minna kaup en á að gera samkvæmt töxtum stéttarfélags- ins. Verkamaðurinn er ánægður með kjörin, en það er sambandið ekki fyrir hans hönd. Það hefur því bannað að keypt sé af bóndanum mjólkin, en hann kippir sér ekki upp við það, heldur selur hana til Þýskalands. Málið hefur vakið upp umræður enn einu sinni um stefnu stéttarfélaga og afskipti þeirra. Laurentius Schilderink er hollenskur bóndi, sem á þijár jarðir á Jótlandi og rek- ur þær með myndarbrag. Hann er einn í vaxandi hópi hollenskra jarðeigenda á Jót- landi. Æ fleiri danskir bændur hætta bú- skap vegna rekstrarerfiðleika en líka vegna þess hve vinnudagurinn er langur og strangur. Hollenskir bændur eru óbangnir við langan vinnudag, en eiga við jarðnæðiss- kort að glíma í heimalandinu, þar sem hver lófastór blettur er ræktaður. Þeir hafa séð sér leik á borði að flytja til Danmerkur, kaupa jarðir þar og gerast bændur á dönsk- um jörðum. Og sumir láta sér ekki nægja eina, heldur fleiri jarðir eins og Schilderink. Hollenskir bændur eru ekki ný bóla í Danmörku. Árið 1521 fékk Kristján 2. Danakóngur hóp af Hollendingum til að nema land á Amákri, til að rækta upp þessa stóru eyju, þar sem Kastrup liggur nú. Landið þar var afbragð til grænmetisrækt- unar og þar kunnu Hollendingar vel til verka. Þeir tóku boði kóngsins um að ger- ast landnemar þar og þeirra sér enn stað, meðal annars á Drageyri, ef vel er að gáð. Og hollensku bændurnir, sem nú eru ný- byggjar á Jótlandi víla ekRi fyrir sér að vinna langan dag. Þar stendur einmitt hníf- urinn í kúnni, því bæði eru Danir lítt gefn- ir fyrir slíkt og einnig gæta stéttarfélögin þess að þeir slíti sér ekki út. Schilderink var tekinn tali af blaði í sveit- inni og þar sagði hann meðal annars frá þessum mun sem væri á Hollendingum og Dönum hvað vinnu snerti. Hann fengi eng- an Dana til að vinna frá kl. 4 að morgni 'fram til kl. 19, reyndar með hléum, eins og venjan væri í Hollandi. Því hefði hann ráðið landa sinn sem vinnumann. Fulltrúum stéttarfélagsins fannst þetta ekki eins snið- ug lausn og bóndanum, svo þeir hringdu í hann og funduðu með honum. Bóndinn nam boðskap þeirra um að í Danmörku giltu ákveðnar reglur um lágmarkslaun og vinnu- tíma bæði fyrir innfædda og aðflutta, studd- ar tilskipunum Evrópubandalagsins. Þrátt fyrir þetta vildi vinnumaðurinn vinna eins og hann var vanur og bóndinn lét boðskap stéttarfélagsins sem vind um eyru þjóta. Mótleikur stéttarfélagsins var að koma í veg fyrir að bóndinn gæti selt mjólkina sína í mjólkurfélagið á staðnum, eins og hann hafði gert áður. Starfsmenn stéttarfé- lagsins mættu á staðinn og komu í veg fyrir að hægt væri að afgreiða mjólkina. Schilderink bóndi hringdi í þýskt mjólkurfé- lag og þar voru menn meira en glaðir að fá mjólkina. Nú kemur þýskur mjólkurbíl- stjóri daglega og sækir mjólkina, sem hann keyrir svo til Þýskalands. Hann er sjálf- stæður, er ekki meðlimur í stéttarfélagi og því alls ónæmur fyrir tilmælum stéttarfé- lagsins danska um að sýna samstöðu. Hann er þvert á móti hinn ánægðasti með við- skiptin og vildi gjarnan flytja mjólk frá fleir- um suður eftir. Stéttarfélagið reyndi að ná sambandi við önnur þýsk stéttarfélög, en árangurslaust. Mjólkurflutningurinn skapar vinnu í Þýskalandi og þá hagsmuni mátu þýsku félögin meira en samstöðuna með dönskum stéttarbræðrum. Samstaðan riðlast og samúðin glatast Úm leið hafa meðlimir stéttarfélagsins danska líka misst þolinmæðina. í síðustu viku fengu mjólkurbílstjórar lánaða þrjátíu mjólkurbíla og keyrðu heim til bóndans til að lýsa andúð sinni á aðferðum og afstöðu stéttarfélagsins. Félagið hefði gert margt gott, en í þessu máli hefði það gengið of langt. Það mikilvægasta væri að halda í störf, en aðförin að hollenska bóndanum stefndi þeim í hættu, þegar hún leiddi til þess að bændur sendu mjólkina úr landi. Yfirmaður stéttarfélagsins hefur hins vegar lýst því yfir að þessi aðgerð gagnvart hol- lenska bóndanum sé aðeins sú fyrsta, fleiri fylgi á eftir, því hér sé tekist á um gi-und- vallarlögmál, þegar bændur sniðgangi regl- ur um laun og vinnutíma. Bóndinn er sam- mála stéttarfélaginu um að hér sé tekist á um grundvallarlögmál, en bara ekki um þau sömu og stéttarfélagið álítur. Stéttarfélagið álítur ekki að afstaða þess leiði til að störfum fækki og atvinnuleysi aukist og það er ekki í vafa um að hol- lenski bóndinn bijóti dönsk lög. Landbúnað- arfélagið í Ribe er ekki sama sinnis, en hefur staðið að baki Schilderinks, meðal annars með að fá málið tekið upp í Vinnu- réttinum. Þegar úrslit fást þar verður sölu- banninu aflétt, en fyrr ekki segja forsvars- menn stéttarfélagsins. Á meðan selur Schilderink mjólkina taplaust til Þýska- lands, en stéttarfélagið tapar samúðinni heima fyrir. í vikunni söfnuðust um sex hundruð ungir bændur og vinnumenn til að mót- mæla í Ribe að tilhlutan ungmennafélags bændasamtakanna þar. Með mótmælunum vildi unga fólkið undirstrika samstöðu með vinnumanninum, sem vill vinna og bóndan- um, sem vill hafa hann í vinnu. Meðal þeirra mætir afstaða stéttarfélagsins takmörkuð- um skilningi. Þessi uppákoma stendur yfir um leið og raddir heyrast úr heilbrigðisgeiranum að ákvæði stéttarfélaga um vinnutilhögun sé eitt af því sem hvað mest standi í vegi fyrir betra skipulagi á sjúkrahúsum, þar sem sjúklingar bíða allt upp í tvö ár eftir aðgerðum. Og nú þegar atvinnuleysi eykst þá er heldur ekki úr vegi að huga að sam- spili þess og skilyrða stéttarfélaga um vinnutilhögun. Sigrún Davíðsdóttir BYLTINGI í HEIMILISÞRIFUM I Auðveldari þrif! Uú þarf ekki að vinda með höndum. Með einu handtaki er moppan undin með því# að þrýsta henni í vindunaf Fata m/vindu á hjólum, skaft og moppa. aðeins kr. 6.640, stgr. Sendum einnig í póstkröfu. ðS I ui Nýbýlavegi 18-200 KÓP. - S: (91) 64 198fL ; I Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson Leikmynd og búningar: Guðrún S. Haraldsdóttir Lýsing: Lárus Björnsson Leikstjóri: Ingunn Ásdísardóttir íAe^ ýyVe' Leikarar: Sigrún Edda Björnsdóttir, irgrét Helga Jóhannsdóttir, Hanna María LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR uMmi fúmom NEWCASOE HEIMALEIKIR NEWCASnEUNmÞ l&OOOOKIÓBill NEWCASTUE CLÆSIFERÐIR ÍTAIÍU SUAAARAUKI55470,- frá 13. okt. til 24. nóv. Kr. 26.900, fyrir 3ja nátta ferð. Kr. 31.900, ■ fyrir 4ra nátta ferð. Innifalið er flug, gisting í tveggja manna herbergi, flutningur til og frá flugvelli í Newcastle og öll flugvallargjöld. Innifalið er: Flug frá Keflavík, KAUPMANNAHÖFN, MÍLANÓ EÐA RÓM, Bílaleigubíll í A flokki, ótakmarkaður akstur og öll flugvallargjöld. Brottfarardagar: Miðvikudagar og föstudagar. Verðið er miðað við mann og að 2 ferðist saman í bíl. FERPASKRIFSTOFAN ALÍS SÍMI 652266. Metsölublad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.