Morgunblaðið - 03.10.1993, Page 28

Morgunblaðið - 03.10.1993, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993 t MARGRÉT GÍSLADÓTTIR frá Hoftúni, Stokkseyrarhreppi, er lést að Kumbaravogi 26. september sl. verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju miðvikudaginn 6. október kl. 14.00. Unnur Sigrún, Guðrún og Birna Bjarnþórsdætur og fjölskyldur. t Faðir okkar, bróðir, tengdafaðir, afi og langafi, HAUKUR PÉTUR GÍSLASON, Ö. Kristine Lundvegen 9, lést í Sjúkrahúsinu í Malmö 29. september. Jarðarförin auglýst síðar. Anna Kristín Hauksdóttir, Gísli Hjálmar Hauksson, Halldór Sveinn Hauksson, Birna Guðbjörg Hauksdóttir, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabarn og systkini hins látna. t Sambýliskona mín, JÓHANNA MARÍA JÓHANNESDÓTTIR, Seljavegi 25, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 5. október, kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda. Brynjólfur Ingólfsson. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞURÍÐUR FINNSDÓTTIR, Dunhaga 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 6. október kl. 13.30. Margrét Snorradóttir, Hallgrímur Snorrason, Gunnar Snorrason, Auður Snorradóttir, Finnur Snorrason, Halldór Baldursson, Rut Snorrason, Ólafur Siemsen, Lise Bratli Snorrason og barnabörn. t Okkar ástkæra ANNA ÁRNADÓTTIR, verður jarðsungin frá Dómkrirkjunni miðvikudaginn 6. október kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á heimahlynningu Krabbameins- félagsins. Jóna Sigurjónsdóttir, Guðrún Sigurjónsdóttir, Anna Björnsdóttir, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir og afi, GUÐFINNUR J. BERGSSON, . Hvassahrauni 7, Grindavik, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, mánudaginn 4. október kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hins látna er bent á Heimili aldraðra, Víðihlíð, Grinda- vík, Helga Jóhannsdóttir, Jóhann Guðfinnsson, Guðríður Guðfinnsdóttir, Grétar Guðfinnsson, Hallfríður Guðfinnsdóttir, Þórður V. Magnússon, og barnabörn. Jórunn Jórmundsdóttir, Rami Báara, Berglind Svavarsdóttir, Ægir D. Sveinsson, Amdís Eiríksdóttir, fv. Ijósmóðirfrá Foss- hólum — Minning Fædd 28. febrúar 1906 Dáin 22. ágúst 1993 Minn ágæti skólameistari, Broddi Jóhannesson, lét einhveiju sinni þau orð falla að fyrstu kynni manns af manni ... væru oft varanlegust og hefðu mikið að segja varðandi af- stöðu fólks hvors til annars síðar á lífsleiðinni. Þessi orð koma mér í hug nú eftir andlát hennar Dísu í Fosshólum og hugur minn reikar til þess tíma þegar ég fjögurra ára barn leit hana fyrst augum. Ég þykist enn sjá hana fyrir mér há- vaxna og bjarta yfirlitum, hressa og glaðværa í tali. Glæsileg var hún og engu var líkara en einhver bless- un fylgdi henni. Nokkrum árum síðar vorum við krakkamir af fáein- um bæjum syðst í Holtahreppi boð- uð að Efri-Rauðalæk til bólusetn- ingar (við einhveiju sem ég man ekki lengur hvað var). Er þangað kom var þar fyrir kona sem annað- ist þetta verk. Kona þessi var svo „næm“ að hún virtist skynja orð- lausan beyg okkar sumra af odd- hvassri nálinni og hún var jafnframt slíkur „sálfræðingur" að með glað- væru tali sínu einu sáum við það og fundum að bólusetningin var lít- ið og fljótafgreitt mál. Það þurfti enginn að segja mér hver hún var þessi kona, ég þekkti að þetta var hún Dísa í Fosshólum, þó að ég hafí sennilega þá ekki séð hana síð- ustu ijögur árin. Þessi mikilhæfa heiðurs- og gæðakona lést í Sjúkrahúsi Suður- lands 22. ágúst sl. hvíldinni fegin. Útför hennar fór fram frá Marteinstungukirkju tæpri viku síð- ar. Ég gat ekki verið þar viðstaddur og vil því minnast hennar hér. Mér er hugsað til hennar með virðingu og miklu þakklæti fyrir afstöðu hennar í þau skipti sem við réðum sameiginlega fram úr misþungum viðfangsefnum. Amdís fæddist [ Austurhlíð í Gnúpveijahreppi í Árnessýslu 28. febrúar 1906. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum sem bjuggu víða á Suðurlandi. Haustið 1918 fluttist hún með þeim til Reykjavíkur. Allt- af leitaði'þó hugur hennar til sveit- arinnar og þegar grösin tóku að grænka og farfuglarnir að syngja fór hún austur fyrir fjall til sum- ardvalar. Vorið 1928 gitist Arndís Sigur- jóni Jónssyni á Lýtingsstöðum í Holtum. Hlutskipti hennar varð þá það sama og margra annarra ungra kvenna að flytjast inní heimili tengdaforeldra sinna. Slíkt hafði tíðkast um aldir og litu margir á það sem sjálfsagðan hlut þótt ekki þyki það við hæfi á okkar dögum að tvær konur deili með sér sama eldhúsinu. Ég ætla að Arndís hafi verið of stórbrotin persóna til að una slíku. Þó bar hún ætíð lof á tengdaforeldra sína og var þeim þakklát fyrir margþætta hjálp. Árið 1935 reistu þau Arndís og Siguijón nýbýlið Fosshóla úr landi Lýtingsstaða. Ekki spáðu allir vel fyrir þeirri framkvæmd enda vom þá tímar kreppu og fátæktar. Þar sem þau byggðu var landið stórþýft og grámosavaxið. Aljt umhverfis voru svaðblautar mýrar og þangað var yfir brúarlausan læk og veg- lausa mýri að fara. Hér var allt reist frá gmnni. Á þessu ári voru börnin orðin fjögur (þáð elsta sjö ára), en þau áttu eftir að verða sjö talsins. Vart höfðu þau fyrr hafið búskap í Fosshólum en gamaveikin fór að höggva niður sauðíé bænda. Skapaði það afkomuleysi margra heimija. Siguijón brá þá á það ráð að ráða sig í vegavinnu til ágætis- mannsins Erlends á Hárlaugsstöð- um. Um árabil var hann þá lang- dvölum að heiman frá vori og fram á vetur. Er bömin uxu úr grasi er mér sagt að þau hafí orðið verk- dijúg við bústörfín. Svo kom, að Siguijón gat helgað sig búskapnum óskiptur. Er hann lést — um aldur fram — 1960 var vel búið í Fosshól- um. Mér fínnst búskaparsaga þeirra hjóna afrek út af fyrir sig og það að vera bóndakona í sveit og upp- alandi margra barna — við þær aðstæður sem þá vom — að það hafí verið fullt og stíft ævistarf. En því fór fjarri að það eitt hafí verið starfs- og lífsvettvangur Amdísar Eiríksdóttur. Það atvikaðist svo, að fljótlega uppúr 1930 fluttist ljósmóðirin i Efri-Holtum úr sveitinni. Var þá orðað við Arndísi hvort hún vildi ekki fara í ljósmóðurnám. Menn hafa fundið að hún var eins og „fædd“ inn í þetta starf, en því aðeins hefur hún farið til námsins að hún hefur fundið hjá sér innri köllun til þess. Hún útskrifaðist úr Ljósmæðraskólanum vorið 1932. Ljósmóðurstarfí gegndi hún svo í næstum þijátíu ár og var farsæl í starfí. Á fyrstu ljósmóðurámm Arndísar vom aðstæður allar gjöró- líkar því sem nú er. Þá var ekki sími kominn á sveitabæina, hestur- inn var eina samgöngutækið, ljós- móðirin gat verið vakin upp um miðja nótt.'Þá gilti það eitt að vera fljót að grípa töskuna og halda út í éldimma vetrarnóttina. Hugsum út í það hversu þessar konur urðu að stóla á sjálfa sig, því það gat tekið margar klukkustundir að ná í lækni, sem kannski var þá staddur í hinum enda sýslunnar. Svo gegndi “"Ijósmóðirin oft miklu hlutverki á sviði heilsugæslu og lækninga. Ein- hveiju sinni hafði drengur á ná- grannabæ Arndísar næstum höggv- ið af sér fingur. í dauðans ofboði var náð í Amdísi (læknirinn var of langt í burtu). Kunnáttusamlega gerði hún að sárinu með sínum lyfj- um, tók fram nál og garn og saum- aði fingurino fastan. Síðan hefur fmgurinn verið á sínum stað, en að vísu dálítið boginn. Það kom af sjálfu sér, að jafn frambærileg manneskja og Amdís kæmist ekki hjá því að vera valin til trúnaðar- og forsvarsstarfa. Hún var lengi formaður kvenfélagsins Einingar í Holtahreppi, fulltrúi fé- Iagsins á fundum Sambands sunn- lenskra kvenna (SSK), sat í vara- stjórn sambandsins, fulltrúi þess_ á þingum Kvenfélagasambands ís- lands, í orlofsnefnd SSK og í lands- nefnd húsmæðraorlofs fyrir Rang- árvallasýslu. Hún var í barnavernd- arnefnd Holtahrepps og skipaði sæti á framboðslista óháðra kjós- enda í Suðurlandskjördæmi í al- þingiskosningunum 1978. Faðir Arndísar var Eiríkur b.m.a. á Egilsstöðum í Flóa (f. 1851 - d. 1932), sonur Eiríks b. á Laugar- bökkum í Ölfusi, f. 1827, Eiríksson- ar. Kona-Eiríks Þorsteinssonar var Ingibjörg dóttir Eiríks Vigfússonar á Reykjum á Skeiðum (Reykjaætt) og Ingunnar Eiríksdóttur frá Bol- t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför BJARNA BRYNJÓLFSSONAR frá Skálavík, Stokkseyri, Guðfinnur G. Ottósson og aðrir aðstandendur. holti á Rangárvöllum (Bolholtsætt). Móðir Arndísar var Sigríður (f. 1864), dóttir Höskuldar í Stóra- Klofa í Landsveit, Jónssonar ríka í Mörk (bróður Árna á Galtalæk), Finnbogasonar á Reynifelli, d. 1833, Þorgilssonar, ættföður Reynifellsættarinnar. Maður Arndísar, Siguijón í Foss- hólum (f. 14. ágúst 1899 - d. 9. október 1960) var sonur Sigurleifar Sigurðardóttur og Jóns b. á Lýt- ingsstöðum, f. 1864, Þórðarsonar b. s.st, f. 1839, Gíslasonar í Siglu- vík í Landeyjum, f. 1811, Eyjólfs- sonar í Klauf, f. 1772, Einarssonar á Skúmsstöðum, f. 1724, Guð- mundssonar í Álfhólum, f. 1682, Gíslasonar í V-Klasbarða, f. 1635, Ámasonar. Börn Arndísar og Siguijóns eru sem hér segir: 1) María Guðmunda, f. 1928. M. Bjami Einarsson frá Varmahlíð, bifreiðastjóri í Kópa- vogi. 2) Sigurleif Jóna, f. 1930, hjúkrunarfræðingur. M. Jón Bárð- arson starfsm. í Álverinu. 3) Eirík- ur, f. 1934, b. Lýtingsstöðum. M. Sigrún Haraldsdóttir frá Efri- Rauðalæk. 4) Tryggvi, f. 1935 - d. 1969. 5) Sigríður, f. 1937, hjúkr- unarfræðingur í Kópavogi, er látin. 6) Þórður Matthías, f. 1941, b. í Fosshólum. M. Vilborg Gísladóttir frá Vindási í Landsveit. 7) Sigrún Erna, f. 1943. M. Tómas Gunnar Sæmundsson b. Hrútatungu, Hrútafírði. Börn Arndísar mega vera stolt af því að hafa átt slíka konu sem hana fyrir móður. Líf Amdísar var ekki alltaf „dans á rósurn". Á árunum uppúr 1937 átti hún við alvarlegt heilsuleysi að stríða. í tvö ár var hún rúmliggj- andi samfellt á Landakotsspítalan- um og var talin af. Á sjúkrahúsinu saknaði hún sárt fjölskyldu sinnar og heimilis en alltaf hélt hún and- legu jafnvægi. Gleði hennar varð mikil þegar heilsan tók að lagast, hún komst heim og starfskraftarnir tóku að smáaukast. Það er umhugs- unarefni hvernig kona með svona sjúkrasögu að baki hélt geislandi yfirbragði og glaðværð. Arndís var draumspök kona og trúði á framhaldslífið. Hún var ekki í neinum vafa um það að hulin öfl væru okkur mannlegum verum oft hjálplegar. Næstum allt líf hennar sjálfrar gekk út á það að hjálpa öðrum og láta gott af sér leiða. Þó munu þeir flestir nú látnir sem nutu góðmennsku hennar og mann- kærleika. Hún hafði samúð með þeim sem bjuggu við bág kjör og samgladdist þeim sem lánið lék við. Hún var bjartsýn og trúði því að allt færðist til betri vegar. Þrátt fyrir það að hún væri mjög sterk persóna var hún hlý í viðmóti og átti auðvelt með að tala við sér miklu yngra fólk. Seint á áttunda áratugnum flutt- ist Arndís að Lundi, dvalarheimili aldraðra á Hellu. Starfsævi hennar var þá enn ekki lokið, því að fyrstu árin vann hún þar í hálfu starfi og sá m.a. um lyfjagjafir til vist- manna. Hin síðustu misseri hafði heilsu hennar hrakað, svo að hún var orðin eins og skuggi af sjálfri sér. En í minningunni verður hún alltaf eins og hún var, þegar ég leit hana fyrst augum. Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.