Morgunblaðið - 03.10.1993, Síða 29

Morgunblaðið - 03.10.1993, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993 29 75 og 80 ára afmæli Fríða Pétursdóttir og Brynjólfur Eiríks son frá Bíldudal Tengdaforeldrar mínir, hjónin Fríða Pétursdóttir og Brynjólfur Eiríksson frá Bíldudal, eiga stóraf- mæli á þessu ári. Fríða varð 75 ára hinn 4. mars sl. og Brynjólfur verð- ur áttræður á morgun, 4. október. Saga þeirra Brynjólfs og Fríðu er sjálfsagt um margt dæmigerð fyrir fólk af þeirra kynslóð. Þetta er fólkið sem óx til þroska og full- orðinsára með öldinni sem nú er senn á enda. Þetta er fólkið sem var í blóma lífsins þegar sjálfstæðis- baráttunni lauk með lýðveldisstofn- uninni 1944 og þetta er fólkið sem framkvæmdi hinar byltingarkenndu breytingar sem orðið hafa á Islandi síðustu áratugi. Breytingar þær sem þetta fólk framkvæmdi og upp- lifði eru hinar mestu sem orðið hafa í íslandssögunni og þótt erfitt sé að spá í framtíðina virðist margt benda til þess að fullyrða megi að engin kynslóð muni aftur lifa svo róttæk umskipti. Það kom sér því vel að þessi kynslóð hefur alltaf staðið báðum fótum á jörðinni og ekki leyft sér að ofmetnast eða fyllast of mikilli bjartsýni, sem hæglega hefði getað þýtt kafsiglingu þjóðarskútunnar þegar hún síst mátti við ágjöfum. — Það kom hins vegar í hlut síðari kynslóða sem kenndar hafa verið við lýðveldi, eftirstríðsár og 1968 að reyna hvað þjóðarskútan þyldi, með þeim afleiðingum sem nú er við að glíma. Öll sú þjóðfélagsfræði verður ekki rakin hér, en oft flýgur mér í hug þegar ég kynnist fólki af kynslóð þeirra Brynjólfs og Fríðu, hve grátléga lítið af reynslu forfeðranna fólk er reiðubúið að nýta sér. Fríða Pétursdóttir fæddist á Bíldudal 4. mars frostaveturinn 1918, dóttir hjónanna Valgerðar Kristjánsdóttur og Péturs Bjarna- sonar, sem lengst af bjuggu á Bíldu- dal. Fríða ólst upp á fjölmennu og barnmörgu heimili sem annálað var fyrir glaðværð og bjó fjölskylda hennar lengst af í húsinu Svalborg á Bíldudal. Húsið er byggt á tímum Thorsteinssonarveldisins á Bíldudal og stendur enn fremst á fjörukamb- inum þar sem sést vítt og breitt um Arnarfjörðinn. Húsið er nú á ný komið í eigu afkomenda Val-. gerðar og Péturs, og þar á fjölskyld- an skemmtilega daga á hveiju sumri, þótt flestir þeirra hafa nú flust brott frá Bíldudal. Brynjólfur Eiríkson er ekki Vest- firðingur að ætt eins og Fríða, en hann fæddist 4. október 1913 í bænum Sperðlahlíð við Geirþjófs- fjörð inn af Arnarfirði, þar sem foreldrar hans bjuggu, hjónin Sig- ríður Brynjólfsdóttir og Eiríkur Ei- ríksson sem bæði voru fædd og uppalin suður í Árnessýslu. Brynj- Blömostofa FriÖfmm Suðuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. ólfur ólst upp í Sperðlahlíð uns hann fluttist með foreldrum sínum inn á Bíldudal á níu ára afmælisdag sinn haustið 1922. Bíldudalur var á þessum árum mikið myndarpláss og naut þar enn áhrifa Péturs Thorsteinssonar, þótt hann væri löngu farinn með starf- semi sína. Skólaganga var til dæm- is meiri á Bíldudal en víðast úti á landi á þessum tíma og var skóla- stjórinn hinn þekkti uppfræðandi Jens Hermannsson. Fríða var þrjá vetur í skólanum og Brynjólfur í fjóra og eftir barnaskólanámið lærðu þau í nokkra mánuði hjá séra Helga Konráðssyni á Bíldudal, sem þar stýrði eins konar unglinga- eða framhaldsskóla. Á fyrstu unglingsárum og síðar fullorðinsárum unnu Fríða og Brynjólfur bæði við þau störf sem til féllu heima á Bíldudal. Fríða sinnti ýmsum störfum heima við hjá foreldrum sínum og sinnti um afa sinn og ömmu sem voru þá orðin öldruð og heilsulaus, eins og systur hennar höfðu gert á undan henni. Hún hleypti heimdraganum og var um tíma á Siglufirði, Hafnar- firði og í Reykjavík, var í vist eins og það kallaðist og heitir víst enn. Með húsmóðurstörfunum vann hún við fiskvinnslu eftir því sem aðstæð- ur leyfðu og síðustu árin á Bíldudal var hún við afgreiðslustörf í Kaup- félagi Arnfirðinga. Eftir að til Reykjjavíkur kom vann hún lengst af í Álfheimabakaríi. Brynjólfur var hins vegar ekki nema á 13. ári þegar hann fór fyrstu ferðina með föður sínum á opnum báti og fram yfir tvítugt starfaði hann einkum við sjó. Véla- og tækn- iáhugi vaknaði þó snemma og varð þess valdandi að honum var boðið árið 1932 að sækja námskeið á vegum Ríkisútvarpsins í viðgerðum og ýmsu því sem laut að hinni nýju tækni. Síðar lærði hann svo til vél- stjóra og vann lengst af við vélar og tæki eftir það. Hann var umsjón- armaður rafstöðvar Bíldudals í all- mörg ár og síðar véla- og tækja- gæslumaður hjá útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækjum staðarins. Við slík störf var hann allt til þess er þau hjónin fluttust suður til Reykja- víkur 1971 og starfaði eftir það hjá Véladeild og síðar Rafbúð Sam- bandsins. Auk fullra starfa hefur Brynjólfur svo einnig haft tíma af- lögu fyrir tómstundir og félags- störf. Hann sat til dæmis um skeið í hreppsnefndinni á Bíldudal og eitt árið gaf hann sér tíma til að verða skákmeistari Bíldudals. Þá hefur hann alltaf haft mikinn áhuga á sögulegum fróðleik og löngum stundum hefur hann varið í lestur og umræður um fræði er tengjast upphafi norrænnar menningar. Fríða og Brynjólfur giftust á gamlársdag 1939 og eiga fjögur börn: Pétur er framkvæmdastjóri Hólalax hf. í Hjaltadal, kvæntur Sigfríði Angantýsdóttur skóla- stjóra. Sigríður er ritari í Reykja- vík, gift Erni Engilbertssyni flug- stjóra. Gyða er húsmóðir í Reykja- vík, gift Jósteini Kristjánssyni veit- ingamanni og Valgerður Kristín er háskólanemi, gift undirrituðum. Afkomendur Brynjólfs og Fríðu eru vel á þriðja tug talsins. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast og tengjast Fríðu og Brynjólfi. Heiðar- leiki þeirra og jákvætt lífsviðhorf hefur alltaf heillað mig. Það hefur alltaf verið gott að heimsækja þau og ekki hefur verið síður skemmti- legt að ferðast með þeim innan- lands og utan. Ferðalög hafa lengi verið sameiginlegt áhugamál þeirra og þau hafa ekki látið sér nægja að ferðast um ísland og önnur lönd Evrópu, heldur hefur leiðin einnig legið til Norður-Ameríku og til fjar- lægari Austurlanda. Vonandi eigum við eftir að fara í nokkur ferðalög saman ennþá, innanlands eða utan. Anders Hansen. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langammma, DAGMAR ÓSKARSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést í St. Jósefsspítala t. október. Björg Karlsdóttir, Gerður Karlsdóttir, Marteinn Karlsson, Óskar Karlsson, Þórarna Hansdóttir, IMikulás Brynjólfsson, barnabörn og barnabarnabarn. Helgi Jónsson, Sveinn Guðmundsson, Þórdis Ágústsdóttir, t Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útförelskulegrareiginkonu, móður, dótt- ur, systur, mágkonu og tengdadóttur, DROPLAUGAR SVEINBJÖRNSDÓTTUR, tannlæknis, Sæbólsbraut 39, Kópavogi. Innilegar þakkir til allra sem önnuðúst hana í veikindum hennar. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 2B á Reykjalundi Þorvaldur Bragason, Sveinbjörn Björnsson, Björn Már Sveinbjörnsson, Einar Örn Sveinbjörnsson, Bragi Þórðarson, Birna Þorvaldsdóttir, Guðlaug Einarsdóttir, Soffía Ósk Magnúsdóttir, Elín Þorvaldsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ÓLAFS S. GUÐJÓNSSONAR, húsgagnasmiðs og fyrrv. verkstjóra á Reykjalundi, Espigerði 2. Anna Þóra Steinþórsdóttir, Óskar Már Ólafsson, Erla Pálsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Guðjón Þór Valdimarsson og barnabörn. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — simi 681960 t Hjartans þakkir fyrir hlýjar kveðjur og vináttu við andlát elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELÍNAR B. JENSEN. Atli Örn Jensen, Guðfinna Árnadóttir, Karítas Jensen, Tómas P. Óskarsson, Þórarinn Elmar Jensen, Svanhildur Gestsdóttir, Markús E. Jensen, Magðalena Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. * t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför systur okkar og mágkonu, HÖNNU SANDHOLT, Barmahlíð 38. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki öldrunardeildar Hvíta- bandsins fyrir hlýju og frábæra umönnun. Camilla Sandholt Ásgeir Sandholt, Þóra Sandholt, Martha Sandholt, Sigríður Sandholt. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVÖVU JENSEN, áður til heimilis á Tómasarhaga 42. Þórir Jensen, íris Jensen, Svava Kristín Jensen, Helga Vala Jensen, Pétur Vilhelm Jensen og barnabarnabörn. Helga Valsdóttir, Claus Weidemann, Ólafur Kjartansson, t Innilegar þakkir færum við þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmans míns, föður okkar, tengdaföður, afa og bróður, JÓNASAR GUÐMUNDSSONAR, Miðstræti 26, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir færum við Kór Landa- kirkju fyrir ómetanlega aðstoð. Sara Stefánsdóttir, Ásta Marfa Jónasdóttir, Hallgrfmur Júlíusson, Stefán Óskar Jónasson, Sigurlaug Grétarsdóttir, Guðmundur Karl Jónasson, Anna María Jónasdóttir, Jóhann Valdimarsson, barnabörn og systkini.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.