Morgunblaðið - 03.10.1993, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 03.10.1993, Qupperneq 31
ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR ATVINNUíi YSINGAR St. Franciskusspítali Stykkishólmi Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðing vantar strax eða sem allra fyrst á almenna hjúkrunar- og öldrunardeild. Stykkishólmur er um 1250 manna byggðar- lag þar sem perlur breiðfirskrar náttúru glitra í hlaðvarpanum. í Stykkishólmi er einsetinn grunnskóli með framhaldsdeild (tvö ár), kröftugum tónlistar- skóla auk góðs leikskóla (4 tímar á dag). Tiltölulega auðvelt er að fá dagmömmu. Ný íþróttamiðstöð er í bænum og gefur hún mikla möguleika á fjölbreyttri íþróttaiðkan. Góður kirkjukór fyrir þá sem hafa áhuga á slíku. Mikil eftirspurn er eftir fólki í almenna vinnu (fyrir maka). Húsnæði í boði Góð laun Hafir þú áhugg á skemmtilegu en oft krefj- andi starfi með, í hinu fallega umhverfi okkar þá hafðu samband við Lidwinu (hjúkrunarfor- stjóra) eða Róbert (framkvæmdarstjóra) í síma 93-81128. A KOPAVOGSBÆR Grunnskólar Kópavogs Auglýst er eftir umsjónarmanni tómstunda- mála í grunnskólum Kópavogs í austurbæ. Starfið er heil staða og skiptist til hálfs á milli Digranesskóla og Hjallaskóla. Starfs- maður þarf að geta hafið störf sem fyrst og er ráðningin til loka skólaársins. Skólahljómsveit Kópavogs Starf stjórnanda Skólahljómsveitar Kópa- vogs er auglýst laust til umsóknar. Launakjör miðast við launakjör tónlistarkennara. Upplýsingar um þessi störf gefur fram- kvæmdastjóri fræðslu- og menningarsviðs, Fannborg 4, sími 45700. Félagsmálastofnun Kópavogs Óskað er eftir félagsráðgjafa til afleysinga í tólf mánuði frá og með 1. nóvember nk. að telja. Um er að ræða hálfa stöðu í móttökueiningu fjölskyldudeildar. Verksvið er einkum mót- taka og greining nýrra erinda svo og með- ferð fjárhagsaðstoðarmála. Reynsla af starfi á félagsmálastofnun er æskileg. Frekari upplýsingar gefur Gunnar Klængur Gunnarsson, deildarfulltrúi, í síma 45700 frá og með 8. október nk. Starfsmannastjóri. Laust til umsóknar Starf skólastjóra tónlistarskóla Djúpavogs er laust til umsóknar, jafnframt er óskað eftir að viðkomandi gegni starfi organista í Djúpavogsprestakalli. Umsóknum skal skilað fyrir 10. október '93 á skrifstofu Djúpavogshrepps, nánari upplýs- ingar veitir Ólafur Ragnarsson, sveitarstjóri í síma 97-88834. Skrifstofustarf Leitað er að skrifstofustúlku sem hefur mjög gott vald á ensku og ritvinnslu, fyrir fámennt fyrirtæki. Viðkomandi þarf að vera lipur í umgengni, útsjónarsöm og sjálfstæð varðandi starfið og hafa bíl til umráða. Góð almenn menntun ásamt skýrleika í hugs- un og samviskusemi er grundvallaratriði. Viðkomandi þarf að vera tilbúin að leggja sig fram í starfi og bera ábyrgð á störfum sínum. Um er að ræða 1/2 dags starf sem gæti lík- lega orðið fullt starf áður en langt um líður. Upplýsingar um persónulega hagi (þ.m.t. símanúmer), menntun og fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 15.10.'93, merkt: „Enskukunnátta". Öllum umsóknum verður svarað. Svæðisstjórn málefna fatlaðra Vesturlandi Þroskaþjálfar Okkur vantar góðan þroskaþjálfa til þess að leysa af forstöðumanninn á Leikfangasafninu í Borgarnesi í 9 mánuði. Tímabilið frá 1. janúar-30. september 1994. Um er að ræða 100% starf, sem er bæði skemmtilegt og krefjandi í góðu starfsum- hverfi. Upplýsingar gefur Hanna G. Sigurjónsdóttir, forstöðumaður í síma 93-71780. Markaðsfulltrúi - fjármálasvið Lítið fjármálafyrirtæki leitar að starfskrafti til að sinna tímabundnu sérverkefni á sviði markaðs- og sölumála. Til að byrja með er um að ræða hálfsdags- starf, frá kl. 12.00 til 16.00. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi bifreið til umráða. Reynsla í markaðs- og sölumálum æskileg. Skilyrði að viðkomandi sé vanur að vinna sjálfstætt og hafi frumkvæði. Stúdentspróf af viðskiptasviði eða sambæri- leg menntun æskileg, en ekki skilyrði. Umsóknir er greini frá menntun og fyrri störf- um sendist auglýsingadeild Mbl eigi síðar en 7. október nk. merktar: „S-12120“. o. Ríkisútvarpið auglýsir starf sviðsstjóra í Sjónvarpinu laust til umsóknar. Starfshlutfall er 75% og unnið er í vaktavinnu. Helstu verkefni sviðsstjóra eru móttaka gesta, aðstoð við upptökustjóra, ýmis vinna við sjónvarpsupptökur auk verkefna sem tengjast kynningarmálum. Nánari starfslýsing liggur fyrir. Umsækjendur þurfa að hafa stúdentspróf eða sambærilega menntun og áhersla er lögð á ákveðna og þægilega framkomu. Umsóknarfrestur er til 9. október og ber að skila umsóknum til Ríkisútvarpsins, Efstaleiti 1, eða Sjónvarpsins, Laugavegi 176, á eyðublöðum sem fást á báðum stöðum. /Mflf RÍKISÚTVARPIÐ EIMSKIP Forstöðumaður Eimskip óskar eftir að ráða forstöðumann flutningamiðstöðvar. Flutningamiðstöð Eimskips er í Sundahöfn og er miðpunktur þjónustunets fyrirtækisins. Þar mætast vörustraumar innflutnings, út- flutnings og strandflutnings. í flutningamiðstöðinni er lögð áhersla á að uppfylla kröfur viðskiptavina um vandaða vörumeðferð, hraða og örugga afgreiðslu. í flutningamiðstöð starfa u.þ.b. 200 manns. Stjórnunar- og ábyrgðarsvið: ★ Stjórnar og ber ábyrgð á daglegum rekstri flutningamiðstöðvar þ.m.t. lestun og losun skipa, rekstri verkstæða og vöruskála. ★ Gerð rekstrar-, fjárfestingar- og markmiðsáætlana. ★ Vinnur að gæðastjórnun í samræmi við stefnu Eimskips í gæðamálum. Leitað er eftir manni með háskólapróf í verk- fræði og víðtæka reynslu á sviði stjórnunar. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Farið verður með allar fyrirspurnir og um- sóknir sem trúnaðarmál. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar „Eimskip" fyrir 12. október nk. Hagvangurhf Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.