Morgunblaðið - 03.10.1993, Page 32

Morgunblaðið - 03.10.1993, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993 ATVIN N MJALJGL YSINGAR Útstillingar - framsetning vöru Við leitum að starfskrafti til að sjá um glugga- útstillingar og taka þátt í vöruframsetningu í öllum 6 verslunum okkar í Reykjavík. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, vera hugmyndaríkur, hafa frumkvæði og góða framkomu. Áhugasamir sendi skriflegar umsóknir með greinargóðum upplýsingum til okkar fyrir 8. október nk. merkt: „Útstillingar". Ath. ekki í síma. Eymnndsson Höfðabakka 3, 112Reykjavík Félagsráðgjafi/ sálfræðingur Laus er til umsóknar staða sérfræðings á sviði félagsráðgjafar og sálfræðiþjónustu hjá Sauðárkróksbæ. Starfið er nýtt og mun við- komandi taka þátt í uppbyggingu þjónustunn- ar. Mjög góð vinnuaðstaða í nýju húsnæði. Upplýsingar veitir félagsmálastjóri og bæjar- stjóri í síma 95-35133. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist félagsmálastjóra, Bæj- arskrifstofum v/Faxatorg, 550 Sauðárkrókur. Umsóknarfrestur er til 11. október nk. Félagsmálastjóri. Innkaup - kvenfatnaður Traustur aðili óskar að ráða í innkaupastarf. Starfið felst í sjálfstæðum innkaupum er- lendis frá, aðallega á kvenfatnaði, samninga- gerð og samskiptum við verslanir o.fl. Starfinu fylgja krefjandi ferðalög. Hæfniskröfur: Við leitum að aðila með reynslu af sambæri- legum störfum og sem hefur gott auga fyrir tískusveiflum og nýjungum. Góð enskukunnátta nauðsynleg. Nánari upplýsingar veitirTorfi Markússonfrá kl. 9-12 í síma 679595. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráð- garðs merktar: „Innkaup" fyrir 9. október nk. RÁÐGAIŒXJRhf. STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI 686688 Sólheimar íGríms irimsnesi Starfsfólk - umönnun fatlaðra Þjónustumiðstöð fatlaðra á Sólheimum óskar eftir starfsfólki til að hafa umsjón með heim- ili fatlaðra íbúa Sólheima. Um er að ræða spennandi starf fyrirfólk með áhuga á mann- legum samskiptum. Til greina koma barnlaus hjón eða einstaklingar. Reynsla af meðferð- arstörfum æskileg. Unnið er í vinnulotukerfi (4 daga vinna-4 daga frO- Sólheimar eru byggðarkjarni í Grímsnesi. Þar eiga heimili 40 fatlað- ir einstaklingar auk 32 starfsmanna sem búa þar margir með fjöl- skyldum sínum. Á Sólheimum fer fram umfangsmikil ræktun í Skóg- ræktarstöðinni Ölri og garðyrkjustöð Sólheima. Á Sólheimum er einn- ig verndaður vinnustaður sem hefur með höndum hæfingu og vinnu- þjálfun. Á Sólheimum er sundlaug og íþróttahús. Allar frekari upplýsingar veitir forstöðumaður þjónustumiðstöðvar í síma 98-64430. Starfskraftar óskast Óskum eftir vönum bókara í hlutastarf, og einnig starfskrafti til skrifstofu- og afgreiðslu- starfa. Áhugasamir aðilar skili umsóknum með upp- lýsingum um menntun og fyrri störf til auglýs- ingadeildar Mbl., merktum: „K - 10961“, fyrir 6. okt. nk. BORGARSPÍTALINN Sjúkraliðar Öldrunardeildir Borgarspítalans auglýsa eftir sjúkraiiðum: Deild E-63, sem er hjúkrunar- og endurhæf- ingardeild, staðsett í Heilsuverndarstöð Reykjavíkurvið Barónsstíg, vantarsjúkraliða. Deildin er ætluð einstaklingum sem búa við margvíslega fötlun af völdum sjúkdóma og slysa og þarfnast langtíma hjúkrunar. Starfshlutfall samkomulagsatriði. Hvftaband öldrunardeild sem er staðsett á Skólavörðustíg 37, vantar sjúkraliða. Deildin er ætluð einstaklingum með alzhei- mer og þarfnast langtíma hjúkrunar. Starfshlutfall samkomulagsatriði. Nánari upplýsingar veitir Erna Einarsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri starfsmannaþjónustu í síma 696356. Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun óskast til starfa á neðangreinda leikskóla: Hálsaborg v/Hálsasel, s. 78360. Hraunborg v/Hraunberg, s. 79770. Eingöngu í 50% starf e.h. á leikskólana: Hálsakot v/Hálsasel, s. 77275. Seljaborg v/Tungusel, s 76680. Þá vantar starfsmann með sérmenntun í 50% stuðningsstarf e.h. á leikskólann: Holtaborg v/Sólheima, s. 31440. Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik- skólastjórar. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277. Staða yfirfóstru við Barnabæ Á Blönduósi er Barnabær, leikskóli fyrir börn í hálfs- og heilsdagsvistun. Starfsemin er deildarskipt; Músabær, (heilsdagsvistun 2-6 ára), Bangsabær (41. vistun) og Kisubær (41. vist- un). Starfsfólk Barnabæjar er m.a. leikskólastjóri, yfirfóstra, 2 fóstrur og þroskaþjálfi auk að- stoðarfólks. Nú standa mál þannig að yfirfóstran er að hætta og vantar nýja yfirfóstru helst frá 1. janúar 1994. Þær fóstrur sem áhuga hafa á starfinu hafi samband við leikskólastjóra (Jóhönnu) í síma 95-24530 og fái nánari upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til 20. október nk. Umsóknir skal senda bæjarskrifstofu Blöndu- óss, Húnabraut 6, 540 Blönduós. óskar að ráða matreiðslumann eða mat- ráðskonu til starfa sem fyrst f Café-ísland salnum á Hótel íslandi. Um er að ræða hlutastarf sem feist m.a. í að sjá um morgun- verð gesta og mötuneyti starfsfólks. Allar nánari upplýsingar gefur starfs- mannastjóri Hótels Sögu milli kl. 9.00 og 12.00 alla virka daga. Tölvunarfræðingur Leitum að tölvunarfræðingi frá Háskóla ís- lands, eða einstaklingi sem lýkur námi fljót- lega, til framtíðarstarfa hjá stóru fyrirtæki. Miklir möguleikar eru í boði. Nánari upplýsingar fást á skifstofu okkar. GuðntTónsson RÁÐCJÓF fr RAÐNlNCARhjÓNllSTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK. SÍMI62 13 22 FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI 0æ) Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á bæklunardeild. Deildin er 15 rúma deild, þar sem áhugaverð þróunarverkefni innan hjúkrunar eru í gangi. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar gefa: Rannveig Guðna- dóttir, starfsmannastjóri hjúkrunar, sími 30273 og Guðmunda Óskarsdóttir, deildar- stjóri bæklunardeildar, sími 30191. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Lyfjafræðingur óskast til starfa. Meginstarfssvið: Afgreiðsla, ráðgjöf, fræðsla. Áskilið er að viðkomandi sé reiðubúinn til að taka að sér kennslu í námsbraut í lyfjafræði við Háskóla fslands verði þess óskað. Nánari upplýsingargefur Jóhannes F. Skafta- son í síma 91-11760. Umsóknir ásamt upplýsingum um náms- og starfsferil sendist fyrir 18. okt. nk. Reykavíkur Apótek, posthólf 1489, Austurstræti 16, 121 Reykjavík. Markaðsstjóri Sérvöruverslun óskar að ráða markaðsstjóra. Starfið: ★ Umsjón og úrvinnsla markaðskannana. ★ Vöruframsetning. ★ Umsjón vörukynninga. ★ Stefnumótun og áætlanagerð. ★ Auglýsingamál. Hæfniskröfur: Við leitum að drífandi og skipulögðum aðila með starfsreynslu við verslun. Þekking á smásölu og sérvörumarkaðnum ásamt reynslu og/eða menntun í markaðsmálum nauðsynleg. Viðkomandi þarf að eiga auð- velt með að vinna með fólki. Nánari upplýsingar veitirTorfi Markússonfrá kl. 9-12 í síma 679595. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs merktar: „Markaðsstjóri" fyrir 9. október nk. RÁÐGARÐURM STJÓRNUNAR OG REKSIKARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI686688

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.