Morgunblaðið - 03.10.1993, Síða 39
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993
39
uppskera
sumarsins
Sigurður Jónsson, IA:
22
19
18
17
Ágúst Gylfason, Val,
Haraidur Ingólfsson,
Ólafur Þórðarson, ÍA
Lúkas Kostic, ÍA
Gunnar Oddsson, ÍBK,
ÍA, Hlynur Birgisson,
r§
Friðrik Friðriksson, IBV
Helgi Sigurðsson, Fram
16
Alexander Högnason, IA
Sigursteinn Gíslason, ÍA
13
Einar Þór Daníelssón, KR 7
Kristján Finnbogáson, ÍA /
Lárus Sigurðssón, ÍA /
Tryggvi Guðmúndsson, ÍBV
15
Ólafur Kristjánsson,
Petr Mrasek, FH'
14
Bjarni Sigurðsson, Val
'■Kristján Jónsson, Fram
Óli Þór Magnússon, ÍBK
Stefán Arnarson, FH
Þórður Guðjónsson, ÍA
Ágúst Ólafsson, Fram
Fipnur Ktílbeinsson, Fylki
Mihgjló^ Bibercic, ÍA
Rúrtar Kristinsson, KR
Sigurður Björgvinsson, ÍBK
Steinar Guðgeirsson, Fram
- liða
ÍA 165 KR 89
Fram 124 Fylkir 88
FH 114 ÍBV 83
ÍBK 93 Þór 78
Valur 92 Víkingur 62
BMW 735ÍA
Bílasalan
Krókhálsi
Einn glæsilegasti
fólksbill landsins
er til sölu!
Krokhálsi 3. Reykjavik.
sinu 676833
Árgerð 1987
Ekinn 70.000 km
Hlaðinn aukabúnaði
Aksturstölva
Topplúga
Rafdrifnar rúður
Sjálfskipting
Samlæsingar
Rafdrifnir speglar
Sportfelgur
ABS hemlakerfi
Splittað drif
Leðurinnrétting
..og margt fleira
EVROPUKEPPNI BORGARLIÐA
FH: STAVANGERIF
Meistaraflokkur karla sunnudagur 3. okt. kl. 20.00
í íþróttahúsi Kaplakrika, Hafnarfirði
Miðaverð: 700,- kr. fullorðnir og 300,- kr. börn. (ódýrt)
Heiðursgestur: Ingvar Viktorsson bæjarstjóri.
Stuðningsmenn
fjölmennið,
við verðum að vinna
með 3 mörkum
til að komast áfram.
BÓKHALDSSTOFA VALS
BÆJARHRAUNI 20, HF
SÍMI 652982
A,*««<***
RLBERTS
STAPAHRAUN11
HAFNARFIRÐI
SÍMI54895
Sigurður
faiestur
Hlaut flest JW allra leikmanna 1. deildar karla
SIGURÐUR Jónsson, miðvallar-
leikmaður íslandsmeistara ÍA,
lék best allra á íslandsmótinu
í knattspyrnu, skv. einkunna-
gjöf íþróttafréttamanna Morg-
unblaðsins. Sigurður hlaut
samtals 22 M, sem er 1,4 M
að meðaltali íleik. Skagamenn
fengu flest M allra liða í deild-
inni, 165 alls.
Sigurður hefur verið yfírburða-
maður í deildinni í sumar ef
marka má einkunnagjöf blaðsins.
Þrátt fyrir að hafa misst tvo leiki
úr í deildarkeppninni var enginn
sem ógnaði honum í efsta sæti í
einkunnagjöf Morgunblaðsins.
Hann lék 16 leiki og fékk sjö sinn-
um 1 M fyrir leik sinn, sem þýðir
að hann hafi verið'góður, sex sinn-
um fékk hann 2 M (mjög góður)
og einu sinni 3 M (frábær); fyrir
10:1 sigurleikinn gegn Víkingum á
Akranesi.
Fjórir leikmenn 1. deildar fengu
samtals 19 M og eru í öðru sæti á
eftir Sigurði. Þeir eru; Ágúst Gylfa-
son úr Val, Gunnar Oddsson, IBK,
Haraldur Ingólfsson, ÍA, og Þórsar-
inn Hlynur Birgisson.
Níu leikmenn fengu 3 MI leik
Níu leikmenn 1. deildar fengu 3
M fyrir leik, sem þýðir að viðkom-
andi hafi leiki frábærlega. Þeir eru:
Sigursteinn Gíslason, Sigurður
Jónsson, Alexander Högnason,
Ólafur Þórðarson og Sturlaugur
Haraldsson frá Akranesi, Atli Ein-
arsson, Kristján Jónsson og Ágúst
Ólafsson úr Fram og KR-ingurinn
Atli Eðvaldsson.
Skagamenn á toppnum
fslandsmeistarar ÍA fengu flest
M allra liða, eða 165 alls og kemur
það kannski fáum á óvart. Þeir
Morgunblaðið/Ástvaidur
Slgurður Jónsson hlaut samtals
22 M, sem er 1,4 M að meðaltali í leik.
fengu einnig flest M í einum leik,
18 M fyrir 10:1 leikinn gegn Víking-
um. Framarar komu næstir með
samtals 124 M og fengu einnig
næst flest M í einum leik, 17 M í
3:3 jafnteflisleiknum gegn fA á
Akranesi. FH var í þriðja sæti í
heildina með 114 M. Þór og Víking-
ur fengu fæst M allra liða, Þór 78
og Víkingur 62.
OPIN SAMKEPPNI
UM HÖNNUN Á MERKI
FYRIR ÞjÓÐHÁTÍÐARÁRIÐ 1994.
Þjóðhátíðamefnd 50 ára lýðveldis á íslandi hefur ákveðið að gangast fyrir opinni
samkeppni, í samráði við FÍT, Félag íslenskra teiknara og skv.
samkeppnisreglum þess, um hönnun merkis fyrir þjóðhátíðarárið 1994.
Öllum er heimil þátttaka, jafnt félögum innan FÍT sem öðrum.
Verklýsing og hlutverk.
1. Merkið skal vera stílhreint með þjóðlegum einkennum.
2. Merkinu er ætlað að minna á 50 ára afmæli lýðveldis á íslandi.
3. Heimilt er að notast við allt að 4 liti við hönnun merkisins en jafnframt skal það geta
staðið í einum lit á grunni, án þess að tapa stíl eða táknrænni merkingu. Tillögum skal
skilað á arkarstærð DIN A4 (29,7 X 21.0 sm). Merkið skal vera í tveimur stærðum, 15
sm og 2 sm í þvermál, bæði í litum og svörtu.
4. Auk þess að vera merki 50 ára afmælis er gert ráð fyrir að það verði notað til
kynningar við hátíðarhöld og annað sem tengist hátíðinni.
5. Tillögum skal skilað til Þjóðhátiðamefndar, Bankastræti 7, 3. hæð, 101 Reykajvík.
Hver tillaga skal merkt dulnefni, en nafn höfundar ásamt heimilisfangi og símanúmeri
viðkomandi, skal fylgja með í ógagnsæju, lokuðu umslagi, merktu dulnefninu.
6. Skilafrestur er til 10. nóvember 1993.
Dómnefnd og verðlaun.
7. Sérstök dómnefnd, sem í eiga sæti tveir fulltrúar tilnefndir af Þjóðhátíðamefnd og þrír
frá FÍT, velur þær tillögur sem hljóta verðlaun. Dómnefndinni er heimilt að hafna
öllum tillögum ef þátttaka og gæði þeirra merkja, sem send verða í keppnina, teljast að
mati dómnefndar vera ófullnægjandi.
Trúnaðarmaður dómnefndar er Steinn Lárusson, framkvæmdastjóri Þjóðhátíðamefndar
og veitir hann allar upplýsingar í síma 91-609463.
8. Þegar endanlegt val á merkjum liggur fyrir, verða viðkomandi umslög opnuð,
vinningshöfum tilkynnt úrslit og verðlaun afhent við sérstakt tækifæri, þar sem öll þau
merki sem berast í samkeppnina, munu verða til sýnis.
9. Veitt verða þrenn verðlaun, 1. verðlaun kr. 400.000.-, 2. og 3. verðlaun kr. 200.000.-
hvor, ásamt eðlilegri greiðslu til höfundar fyrir hönnun og frágang, þess merkis sem
notað verður.
10. Þjóðhátíðamefndin áskilur sér ótímabundinn notkunar- og ráðstöfunarrétt á því merki,
sem hlýtur verðlaun í samkeppninni og notað verður án þess að aukagreiðslur komi til
umfram það sem getið er um í lið 9.
Þjóðhátíðamefndin mun taka ákvörðun um hvaða tillaga, sem borist hefur, verður
notuð sem þjóðhátíðarmerki.
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND 50 ÁRA LÝÐVELDIS Á ÍSIANDI.